Þjóðviljinn - 19.06.1987, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 19.06.1987, Qupperneq 1
Föstudagur 19. júní 1987 129. tölublað 52. örgangur Byggingaryfirvöld Heimurinn Boða meiri hörku Embœtti byggingafulltrúans i Reykjavík enn rcett í borgarstjórn. Borgarstjórn hótar dagsektum Byggingaryfirvöld í Reykjavík, embætti byggingafulltrúa og byggingarnefnd, urðu fyrir harðri gagnrýni á fundi borgar- stjórnar í gærkvöldi m.a. vegna linku gagnvart byggingaraðila Hamarshússins, hússins við Tryggvagötu 4-6. í fjölmörgum atriðum er um það að ræða að Byggingarfélagið Ós, sem annað- ist breytingar á húsinu fyrir nokkrum árum, hefur gert sig sekt um að brjóta byggingarreg- lugerð eða sniðganga hana. Til- mælum um úrbætur hefur í engu verið sinnt. Sigurjón Pétursson Alþýöu- bandalagi vakti máls á þessu með fyrirspurn um úrbætur á húsinu. Sigurjón benti á að auk þess sem fleiri íbúðir eru í húsinu en sam- þykktar hafa verið, vantar neyðarstiga á það. Ýmsar teikningar vantar og oft er um að ræða misræmi milli þeirra teikninga sem þó eru fyrir hendi. Vegagerðin Verkfall skollið á Samningar tókust ekki í gœrkvöld. Nœstifundur ekki fyrren á þriðjudag en þá verða sjöfélög komin í verkfall. Samningafundi var slitið um níuleytið í gærkvöld milli vega- gerðarmanna, verkamanna hjá Skógrækt ríkisins og Vinnumála- nefndar ríkisins án þess að samn- ingar hefðu náðst. Boðað verk- fall verkalýðsfélaganna Rangæ- ings á Hellu og Þórs á Selfossi skall því á um miðnættið í nótt. Næsti samningafundur er ekki boðaður fyrr en á þriðjudag og fylgja því boðuð verkföll fimm annarra félaga í kjölfarið annað kvöld. Sex félög hafa auk þess boðað verkfall 23. og 24. júní. Einkum munu verkföllin koma niður á viðhaldi svo að búast má við holóttum vegum fljótlega ef ekki semst hið snarasta. Skóg- ræktarmenn hafa ekki boðað verkfall enn sem komið er. í framhaldi af fyrirspurn Sig- urjóns flutti Hilmar Guðlaugsson formaður byggingarnefndar til- lögu um að fela byggingarnefnd að ganga eftir úrbótum á húsinu að viðlögðum dagsektum á bygg- ingaraðilann. Tillaga Hilmars var samþykkt samhljóða. Össur Skarphéðinsson Al- þýðubandalagi sagðist telja þetta dæmi enn eina staðfestinguna a því að gera þyrfti úttekt á starf- semi byggingafulltrúaembætt- isins í Reykjavík. Hann benti á steypumálið, sem kom upp í lok síðasta árs, burðarþolsmálið og þetta og sagði: „Það dettur allt í, gegnum það öryggisnet sem á að vera fólgið í starfsemi þessa emb- ættis." Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagðist telja að ganga þyrfti eftir því af mun meiri hörku að byg- gingameistarar fari eftir teikning- um og samþykktum byggingar- nefndar og tók Bjarni P. Magnús- son Alþýðuflokki í sama streng. Sagði Vilhjálmur það ekki óal- gengt að vikið væri frá sam- þykktum teikningum. -gg Vínkjallari Viðeyjarábóta? - Þetta er vínkjallari ábótans í Viðeyjarklaustri, það er engin spurning, sagði þessi vígalegi drengur, Örn Þór Halldórsson, einn verkamanna við fornleifauppgröft í Viðey. Vínkjallari er það varla, og engar flöskur hafa fundist þótt ýmislegt forvitnilegt hafi komið í Ijós síðustu vikur. Líklegt þykir að mannvirkin sem grafin hafa verið upp séu skemmur frá dögum Skúla fógeta. Meira frá Viðey í næsta Sunnudagsblaði. (Mynd Sig.). Stjórnarmyndun Fatafella aflijúpar ráðamenn Að venju kennir margra grasa í Heimi í dag. Við viljum vekja at- hygli góðfúss lesara á tveim einkar fróðlegum greinum. Önnur fjallar um ítölsku kosning- arnar og horfur í stjórnmálunum þar syðra. Hin snýst um andóf gegn kjarnorku í frændríki Ítalíu, Frakklandi. Að auki eru svo margar frovitnilegar og skemmti- legar smærri fréttir. Vatnajökull Hýr skalia Grímsfjalli 60 manna leiðangur á Grímsfjalli. Borað í fyrsta sinn gegnum íshelluna yfir Grímsvötnum Sextíu manna leiðangur fór í gær á Grímsijall á Vatnajökli með nýjan skála fyrir jöklafara. Skálinn, sem tekur 25 manns í ko- jur, var settur á skíði og dreginn á jöklinum af tveimur snjóbflum frá Landsvirkjun. Ferðin frá jökulröndinni upp á sjálft fjallið tók ekki nema sex tíma og gekk miklu betur en menn höfðu þorað að vona. Flutningnum lauk um sexleytið í gærmorgun í einmuna sól og blíðu. Þegar Þjóðviljinn hafði sam- band við leiðangurinn um far- síma í gær voru menn að vonum þreyttir eftir næturferðina um jökulinn og voru að skríða í poka. Að sögn þeirra var jökullinn tal- svert sprunginn, en þó gekk ferð- in óhappalaust. Auk vísinda- manna voru félagar úr flugbjörg- unarsveitinni og hjálparsveit skáta með í förinni. Leiðangurinn fór á fimm snjó- bílum en auk þess voru nokkrir snjósleðar með. Skálinn, sem nú var leystur af hólmi með þeim nýja, var 30 ára gamall og vel þekktur meðal jöklafara. I leiðangrinum, sem kemur ekki niður af jökli fyrr en eftir viku í viðbót, verður í fyrsta skipti borað gegnum íshelluna yfir Grímsvötnum og sýni tekið úr vatinu. _ös Sandur í smurolíuna Framsókn heimtar forsœtisráðuneytið. OECD-skýrslan setti strik í reikninginn. Kratar óhressir með upphlaup Framsóknar. Ekkert á að gera íhúsnœðismálum. Flokkarnirþinga stíft. Príhjólinu seinkar Framsóknarmenn undirstrik- uðu þá kröfu sína í gær að Steingrímur Hermannsson sæti við stýrið á þríhjólinu. Það gerðu þeir eftir margra klukkutíma þingflokksfund. A fundinum kom einnig fram megn óánægja með hversu skammt virðist eiga að ganga í þá átt að bæta halla ríkis- sjóðs. Framsóknarmenn höfðu á orði að Jón Baldvin hefði gerst helst til yfirlýsingaglaður þegar hann sagði að búið væri að ná samkomulagi um fyrstu aðgerð- irnar. Þá mun OECD-skýrslan hafa sett strik í reikninginn í gær, en í skýrslunni er varað við halla- rekstri ríkissjóðs. „Það er erfitt að skilja hvers- vegna framsóknarmenn eru að strá sandi í smurolíuna," sagði krati sem Þjóðviljinn ræddi við í gær. Sagði hann jafnframt sér- kennilegt hvernig Framsókn tal- aði sig frá allri ábyrgð: „Nú er Steingrímur steinhissa á erfiðri stöðu ríkissjóðs einsog hann hafi hvergi komið þar nærri.“ En kratar eru ekki bara óá- nægðir með upphlaup Framsókn- ar í gær. Það fer mjög í taugarnar á þeim hversu litlu þeir hafa náð fram, einkum þó í húsnæðismál- um. íhaldið leggst alfarið gegn kaupleiguíbúðunum og er^ and- vígt því að auknu fjármagni verði veitt í húsnæðiskerfið. Þá taka þeir ekki í mál að leiðrétta mis- gengið. Stólastríðið er mjög flókið og formennirnir þrír gera allir kröfu til forsætisráðuneytisins. Þá vinna reiknimeistarar flokkanna enn að útfærslu fyrstu aðgerða í ríkisfjármálum og nú leggst íhaldið gegn tillögunni um krít- arkortaskatt og andmæli fisk- vinnslunnar við því að hætt verði að endurgreiða uppsafnaðan söluskatt virðast hafa hrifið. Sjá bls. 3 um OECD- skýrsluna. -Sáf

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.