Þjóðviljinn - 19.06.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
LBEHN
AÐ Fy\RS€LLI
5KÓIACÖNGU
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
Norðurland
Grasmítill
herjar
á tún
Bœndur í Eyjafirði og
Suður-Þingeyjarsýslu
berjast við mauraplágu.
Tún verða gráleit og gras
sölnar. Slœtti seinkar
Við höfum aldrei fyrr orðið vör
við þennan roðamaur í svo
miklu magni og það er óhætt að
segja að þetta sé sannkölluð
plága. Það má búast við að slætti
muni seinka um a.m.k. tvær vik-
ur vegna þessa, sagði Gígja Snæ-
dal húsfreyja á Dagverðareyri við
Eyjafjörð í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær, en pínulítil kvikindi
sem oftast eru kölluð roðamaur
hafa að undanförnu herjað á tún
fyrir norðan með þeim afleiðing-
um að spretta hefur snar-
minnkað.
Gígja sagði að þau á Dagverð-
areyri hefðu fyrst orðið vör við
ófögnuðinn sl. sunnudagskvöld,
en síðan hafa margir hektarar
verið úðaðir eitri á Dagverðar-
eyri og víðar.
Bjarni Guðleifsson hjá Búnað-
arsambandi Eyjafjarðar sagði í
gær að þessi kvikindi væru þekkt
víða um Iand en þó aðallega á
Norðurlandi. „Þetta hefur ekki
áður þekkst í svo miklum mæli en
verst er ástandið í Eyjafirði og í
Suður-Þingeyjarsýslu. Þar er
þetta mikið vandamál og mun
seinka slætti mikið. Og var ekki á
bætandi, því nokkuð var um kal-
skemmdir í túnum á þessu svæði.
Þessi kvikindi hafa oft verið
kölluð roðamaur, en einnig
grasmaur. En í raun og veru er
þetta ekki maur og ég hef haliast
að því að kalla þetta grasmítil.
Þessi plága veldur því að tún
verða gráleit. og gras sölnar
jafnvel. Við kunnum engar skýr-
ingar á því hvers vegna þetta gýs
upp nú, en það getur margt hafa
komið til,” sagði Bjarni í gær.gg
Bifreiðaeftirlitið
Allt í lamasessi
Mikil óánœgja starfsmanna embœttisins um allt land. Einar Torfason: Pað er hœgt að gera
margt annað en að ráðastá launakjör okkar fyrirvaralaust. Haukur Ingibergsson: Starfsmenn
fengu bréffyrir viku þar sem þessar aðgerðir voru boðaðar
Starfsmenn Bifreiðaeftirlitsins
af öllu landinu komu saman til
fundar í húsnæði þess í Reykjavík
í gærmorgun. Allir þjónustustað-
ir embættisins voru lokaðir og öll
starfsemi lá því niðri.
Á fundinum samþykktu starfs-
menn að ganga á fund
dómsmálaráðherra og mótmæla
þeim aðgerðum stjórnenda að
krukka í launakjör þeirra án þess
að samráð væri haft við þá sjálfa.
Þá vilja þeir einnig mótmæla
þeirri lögleysu að stjórn embætt-
isins skuli með aðgerðum sínum
stuðla að því að umferðareftirlit
falli niður. Skýrt er kveðið á um
það hlutverk embættisins.
„Það var 15. júní sem stjórn-
endur kynntu okkur þessar að-
gerðir en þær áttu að ganga í gildi
í gær. Það er ekkert nýtt að halli
sé á rekstri þessarar stofnunar og
þess vegna kemur okkur þetta
mjög á óvart að nú á allt í einu að
fara nýjar leiðir í því að ráða bót á
því,“ sagði Einar Torfason sem
starfað hefur hjá Bifreiðaeftirlit-
inu í Reykjavík í 20 ár.
I
„Okkur finnst það fáránlegt að
ætla starfsmönnum að bera uppi
hallann á rekstri stofnunarinnar.
Öll aukavinna á að færast inn á
dagvinnutímann og við eigum að
hætta klukkan fjögur á daginn.
Vaktir vegna umferðarslysa og
samvinnu við lögreglu og Vega-
gerð falla niður. Þá á að bjóða út
tölvuvinnslu á skráningu og
skoðun bifreiða fyrst innan stofn-
unarinnar en síðan utan hennar,"
sagði Guðmundur Ólafsson eftir-
litsmaður úr Keflavík.
Að sögn Hauks Ingibergssonar
forstöðumanns hefur fjárveiting
til stofnunarinnar aldrei verið
hærri en í ár. „Með þeirri ráðstöf-
un átti að koma í veg fyrir þann
hallarekstur sem hér hefur verið
á undanförnum árum. En allar
áætlanir fóru úr skorðum m.a.
vegna þess að nýskráningar og
umskráningar á bílum fóru langt
fram úr því sem áætlað var. Þetta
var okkur ljóst í maí og sett var
nefnd í málið á vegum okkar,
dómsmálaráðuneytisins og fjár-
málaráðuneytisins. Hún lagði
þessar aðgerðir til sem nú er deilt
um.“
Stjórn Ökukennarafélags ís-
lands hefur lýst yfir fullum stuðn-
ingi við starfsmenn Bifreiðaeftir-
litsins vegna þessara mála allra.
Ökukennarar óttast að þessar
sparnaðaraðgerðir hafi slæmar
afleiðingar í för með sér fyrir um-
ferðaröryggi landsmanna og
þjónustu við próftaka og öku-
kennara.
-gsv
Starfsmenn Bifreiðaeftirlitsins á fundi um sparnaðinn á vinnustað sínum á Bíldshöfða (Mynd E. Ól.)
Afgreiðslutími
Meirihluti með frelsinu
Meirihluti borgarfulltrúafylgjandiþvíað afgreiðslutími verslana verðigefinn nánastfrjáls
Ljóst er að meirihluti er fyrir
því í borgarstjórn að gefa opnun-
artíma verslana í borginni nánast
frjálsan og setja verslunareigend-
um þannig í sjálfsvald hvenær
þeir hafa verslanir sínar opnar.
Tillaga að samþykkt um af-
greiðslutíma verslana var til um-
ræðu í borgarstjórn í gærkvöldi,
en var vísað til annarrar umræðu
í borgarráði.
Flutningsmenn tillögunnar eru
fimm borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, en Magnús L. Sveins-
son forseti borgarstjórnar og for-
maður Verslunarmannafélags
Reykjavíkur hefur lýst sig and-
vígan breytingunni. Ekki er vitað
um afstöðu annarra borgarfull-
trúa flokksins. Borgarfulltrúar
Alþýðubandalagsins eru allir
fylgjandi breytingunni og svo er
einnig um borgarfulltrúa Al-
þýðuflokksins. Sigrún Magnús-
dóttir borgarfulltrúi Framsókn-
arflokks mun sitja hjá en fulltrúi
Kvennalistans er á móti.
Samkvæmt tillögunni verður
afgreiðslutími verslana frjáls, en
með skilyrðum þó. Þau eru í
fyrsta lagi að þeir sem vilja hafa
opið á tímabilinu frá kl. 23.30 til
7.00 á morgnana verða að sækja
sérstaklega um leyfi til þess.
í öðru lagi er í samþykktinni
ákvæði um að á föstudaginn
langa, páskadag, hvítasunnudag
og á jóladag skuli vera lokað all-
an daginn.
í þriðja lagi er svo kveðið á um
að nýársdag, skírdag, annan í
páskum, annan hvítasunnudag,
sumardaginn fyrsta, 1. maí, upp-
stigningardag, 17. júní, fyrsta
mánudag í ágúst og annan jóla-
dag skuli vera lokað allan daginn
nema sérstök leyfi séu fyrir hendi
til annars. Þá er óheimilt að hafa
opið eftir kl. 15.00 aðfangadag
jóla og gamlársdag. -gg
Reykjavíkurhús
Úttekt á
brunavörnum
Tillögu um úttektá
brunavörnum íhúsum í
Reykjavík vísað til
borgarráðs
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins fluttu á borgarstjórnar-
fundi í gærkvöld tillögu um að
láta fara fram úttekt á bruna-
vörnuni í húsum í Reykjavík. Til-
lögunni var vísað til borgarráðs.
Á fundinum í gær kom fram að
menn telja ástæðu til þess að ótt-
ast að brunavörnum í húsum í
borginni sé verulega áfátt og voru
nefnd dæmi þar um.
Hilmar Guðlaugsson vakti at-
hygli á því í umræðu um bruna-
varnir í húsunum við Hverfisgötu
105 og Tryggvagötu 4-6, Hamars-
húsinu, að ástæða væri til að ætla
að víðar væri pottur brotinn í
þessum efnum.
í framhaldi af því fluttu borg-
arfulltrúar Alþýðubandalagsins
áðurnefnda tillögu og var sam-
þykkt samhljóða að vísa henni til
umfjöllunar borgarráðs. “gg
Fiskmarkaðir
Mikil ásókn hjá flotanum
Fjórir togarar hafa pantað sölu
á afla sínum í Fiskmarkaðin-
um í Hafnarfirði á næstu dögum.
Mikill áhugi er hjá útgerðum að
selja á markaðinum enda hefur
það verð sem fengist hefur fyrir
aflann verið fyllilega sambærilegt
við verð á fiskmörkuðum í Eng-
landi og Þýskalandi undanfarnar
vikur.
Næsta uppboð hjá Fiskmark-
aðinum í Hafnarfirði verður á
mánudag en þá landar togarinn
Víðir. Á miðvikudag verður boð-
inn upp aflinn úr Karlsefni og á
föstudag aflinn úr Otri. Þá hefur
togarinn Ýmir pantað sölu þar-
næsta mánudag. Auk þessara
togara verður seldur afli fjölmar-
gra báta í næstu viku.
Faxamarkaðurinn í Reykjavík
mun líklega taka til starfa í næstu
viku en þar verður aflinn seldur
stærðarflokkaður. Sveinn Hjört-
ur Hjartarson lögfræðingur LÍÚ
sagði í samtali við Þjóðviljann að
útgerðarmenn væru ánægðir með
útkomuna á fyrstu uppboðunum
og verðið ætti trúlega eftir að fara
hækkandi.