Þjóðviljinn - 19.06.1987, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR
Handbolti
Ætlum okkur sigur
Segir Bogdan. Þrír leikirgegn Dönum
„Við ætlum okkur að sjálf-
sögðu sigur og það kæmi sér mjög
illa fyrir okkur að tapa þessum
leikjum, sagði Bogdan Kow-
alczyk landsliðsþjálfari og átti
þar við leiki gegn Dönum um
helgina. „Það er lágmark að
vinna tvo af þremur leikjum.“
Fyrsti leikurinn er á Akureyri í
kvöld kl. 18.30. Annar leikurinn
á Húsavík kl. 16 á morgun og loks
sá þriðji í Laugardalshöllinni á
sunnudag kl. 20.
„Þessir leikir skipta allir mjög
miklu máli fyrir okkur og reyndar
allir undirbúningsleikir okkar,
sagði Bogdan. Það er mikil sam-
keppni um sæti í liðinu og leik-
menn munu leggja sig alla fram.
Allir leikmenn hafa fengið leyfi
Körfubolti
Kanarí
heimsókn
Körfuknattleiksmenn ættu að
fá eitthvað fyrir sig nú um helg-
ina. Þá kemur hingað úrvalslið
frá menntaskóla í Kentucky og
leikur gegn íslenska unglinga-
landsliðinu.
Fyrri leikurinn verður í Selja-
skóla á laugardag kl. 19 og síðari
leikurinn í Njarðvík á sunnudag
kl. 19.
Það er íslenska unglingalands-
liðið sem leikur gegn liðinu frá
Kentucky, en til að styrkja það
leika með eldri unglingalands-
Iiðsmenn.
Þetta er í 4. sinn sem þetta lið
kemur hingað og hefur sigrað í
öllum leikjunum, að einum und-
anskildum. -lbe
frá sínum félögum til undirbún-
ings fyrir ólympíuleikanna, að
Alfreð Gíslasyni undanskildum,
en það stendur til bóta.
Þessir leikir eru síðasti hlutinn í
undirbúningi fyrir mjög sterkt
mót í Júgóslavíu, þar sem sterk-
ustu þjóðir heims mæta til leiks.
Þess má geta að okkur hefur
gengið mjög vel gegn Dönum að
undaförnu. Ekki tapað í 10 síð-
ustu leikjum.
Lið íslands er þannig skipað:
Einar Þorvarðarson
Brynjar Kvaran
Guðmundur Hrafnkelsson
Þorgils Óttar Mathiesen
Júlíus Jónasson
Bjarki Sigurðsson
Karl Þráinsson
Sigurður Gunnarsson
Alfreð Gíslason
Páll Ólafsson
Guðmundur Guðmundsson
Kristján Arason
Geir Sveinsson
Sigurður Sveinsson
Atli Hilmarsson
Jakob Sigurðsson
Árni Friðleifsson
Birgir Sigurðsson
Þorbjörn Jensson
Þorbjörn Aðalsteinsson
Danska liðið er þannig skipað:
Karsten Holm
Jens Kristensen
Hans Munk Andersen
Fleming Hansen
Erik Veje Rasmussen
Hendrik Hattesen
Frank Jörgensen
Morten Stig Christensen
Bjarne Simonsen
Lars Lundbye
Otto Mertz
Michael Fenger
Ola Lauridsen
Lars Gjöls-Andersen
Claus Bo Munkedal
Þjálfari Dana er Anders Dahl
Nielsen, sem þjáfaði KR fyrir
nokkrum árum og er þetta fyrsta
verkefni hans með liðið. -lbe
Matthías Hallgrímsson sækir hér að marki „Útlendingahersveitarinnar",
en Þorsteinn Bjarnason lokar markinu. Mynd: E.ÖI.
Knattspyrna
Jafnt í stiömuleik
Gott kast
„Heimavarnarliðið“ og „Út-
lendingahersveitin“ gerðu jafn-
tefli, 7-7, í stjörnuleiknum á 17.
júní. Úrslitin voru samt ekki aðal-
atriðið, heldur það að með
leiknum söfnuðust 433.000 krón-
ur sem Halldór Einarsson afhenti
Jónu Gróu Sigurðardóttur, for-
manni Verndar, í leikslok.
Leikurinn var skemmtilegur á
köflum og mátti oft sjá skemmti-
leg tilþrif hjá gömlu mönnunum.
Einar Vilhjálmsson reyndi við
Norðurlandametið í spjótkasti í
hálfleik, en það tókst ekki. Hann
náði þó að kasta spjótinu 79
hjá Einari
metra. „Þetta var þokkalegt.
Brautin var mjög laus og ein-
beitingin ekki nógu góð,“ sagði
Einar í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Ég er í mun betri æfingu núna
heldur en á sama tíma í fyrra og
geri mér vonir um mun betri ár-
angur. Ég hef náð góðum tökum
á spjótinu, enda fengið meiri
tíma til æfinga og árangurinn fer
að koma í ljós.
Þá var vítaspyrnukeppni í hálf-
leik. Arnór Guðjohnsen sigraði
þar, en kempurnar voru með
bundið fyrir augu. -Ibe
KR-ingar sækja hér að marki Þórs, eins og svo oft í leiknum, en Baldvin tókst að bægja hættunni frá. Mynd:E.ÓI
í ♦ * 4 ’ *>
l.deild
Kennslustund í knattspymu
Stórsigur KR-inga og fimm glæsileg mörk
KR-ingar tóku Þórsara í kennslu-
stund í því hvernig á að spila knatt-
spyrnu og hvernig á að skora mörk.
Stórsigur KR-inga, 5-0, var verð-
skuldaður og leikurinn mjög
skemmtilegur.
Leikurinn var þó jafn framan af.
Bæði liðin sóttu, en KR-ingár heldur
sprækari við markið. Á 8. mínútu
kom það fyrsta eftir laglegt spil. Will-
KR-Þór 5-0 (1-0) * * * *
KR-völlur 18. júní
Áhorfendur:968
Dómari: Eysteinn Guömundsson *
1-0 Björn Rafnsson (8.mín), 2-0 Andri
Marteinsson (57.min), 3-0 Pétur Pét-
ursson (71.mín), 4-0 Pétur Pétursson
(86.mínj, 5-0 Björn Rafnsson (87.mín)
Stjörnur KR:
Rúnar Kristinsson *
Þorsteinn Halldórsson *
Björn Rafnsson *
Andri Marteinsson *
Pétur Pétursson *
Stjörnur Þórs:
Baldvin Guðmundsson «
Nói Björnsson *
um Þórsson gaf á Rúnar Kristinsson.
Hann renndi boltanum á Björn
Rafnsson og hann skoraði auðveld-
lega fram hjá Baldvin í markinu.
Þórsarar áttu einnig þokkaleg færi.
Kristján Kristjánsson átti skot yfir úr
aukaspyrnu og Hlynur Birgisson
skaut framhjá eftir að hafa komist
einn innfyrir. Hinum megin varði
Baldvin vel frá Birni og Rúnari.
Fyrri hálfeikurinn var í jafnara lagi
og með smá heppni hcfðu Þórsarar
átt að geta lætt inn marki. En í síðari
hálfleik voru það KR-ingar sem réðu
ferðinni. Annað markið kom
snemma í síðari hálfleik. Pétur sendi
boltann inná Björn og hann renndi
honum út á Andra sem skoraði með
þrumuskoti. Fallegt mark og vel að
því staðið. Þriðja markið kom ekki
fyrr en síðari hálfleikur var rúmlega
hálfnaður og enn var það fallegt spil
KR-inga sem lagði grunninn. Andri
sendi boltann út á Rúnar og hann gaf
frábæra sendingu á Pétur sem skoraði
með góðum skalla, 3-0.
Það var svo ekki fyrr en rétt undir
leikslok að síðustu tvö mörkin komu.
Pétur bætti öðru marki sínu við með
því að lyfta boltanum snyrtilega yfir
Baldvin í markinu. Mínútu síðar kom
svo síðasta markið og var það stór-
glæsilegt. Björn fékk boltann við víta-
teigshorn og sneri boltanum í hornið
fjær, framhjá Baldvin í markinu, lag-
lega gert.
KR-ingar sýndu það í þessum leik
að þeir geta spilað stórskemmtilega
knattspyrnu. Liðið náði mjög vel
saman og sóknarieikurinn. sem
byggðist upp á stuttu og hröðu spili
gekk mjög vel. Vörnin gerði sig seka
um smávægileg mistök. en stóð sig þó
vel. KR-ingar hafa enn ekki fengið á
sig mark á heimavelli og hafa leikið
mjög vel.
Þórsarar byrjuðu leikinn vel, en
liðið virðist vanta stöðugleika. Smált
og smátt dró úr liðinu og þegar annað
markið kom var eins og allt loft væri
úr þeim. Þeir hafa náð mjög góðum
leikjum gegn Fram og ÍA, en þess á
milli dottið niður. Þeir hafa þó góðu
liði á að skipa og líklega aðeins tíma-
spursmál hvenær þeir fara í gang.
-Ibe
V-Þýskaland
Arie Haan til Stuttgart
Methjá Gladbach. Stuttgartí 12. sæti
Frá Jóni H. Garöarssyni, fréttamanni
Þjóðviljans í V-Þýskalandi:
Arie Haan, þjálfari Anderiecht
mun taka við liði Stuttgart næsta
keppnistímabil.
Haan samdi ekki ýkja vel við
forráðamnenn Anderlecht, þrátt
fyrir góðan árangur með liðinu og
sagði upp nú fyrir skömmu. Hann
tekur við af Coordes, sem skildi
við Stuttgart í 12. sæti eftir 7 tap-
leiki í röð.
Síðasta umferöin í Bundeslig-
unni var leikin í fyrradag. Glad-
bach sló met Kölnar með því að
vinna sinn 10. leik í röð. Það var
Nurnberg sem varð nú fyrir barð-
inu á Gladbach og tapaði 0-4.
Uwe Rahn skoraði tvö marka
Gladbach og tryggði sér marka-
kóngstitilinn með 24 mörk, einu
marki meira en Fritz Walder hjá
Mannheim.
Stuttgart tapaði sínum síðasta
leik og þarmeð 7. leiknum í röð,
gegn Leverkusen, 4-1. Lið Stutt-
gart hefur valdið miklum von-
brigðum og hafnaði í 12. sæti.
Gladbach, Dortmund og
Bremen eru örugg í Evrópu-
keppni, auk Hamburger og Bay-
ern Munchen. Ef að Hamburg
sigrar Stuttgarter Kickers í úr-
slitaleik bikarkeppninnar þá fer
Leverkusen einnig í Evrópu-
keppni.
Uerdingen hafnaði í 8. sæti
eftir sigur gegn Mannheim í síð-
asta leik, 3-2 á útivelli. Þetta var
jafnframt fyrsta tap Mannheim á
heimavelli.
Berlin og Dússeldorf falla í 2.
deild og Homburg þarf að leika
aukaleik gegn St.Paulen um sæti í
Bundesligunni.
Úrslit í síðustu umferð:
Bayem Múnchen-Schalke............1-0
Bochum-Dússeldorf................2-2
Bremen-Köln......................2-2
Homburg-Berlin...................2-2
Kaiserslautern-Hamburg...........0-4
Frankfurt-Dortmund...............0-4
Leverkusen-Stuttgart.............4-1
Gladbach-Núrnberg................4-0
Mannheim-Uerdingen...............2-3
Sund
tslandsmet Ingibjargar
Sundfélagið Ægir sigraði með yfir-
burðum á sundmeistaramóti Reykja-
víkur. Eitt íslandsmet var sett á mót-
inu.
Ægir hlaut 212.5 stig. Ármenning-
ar höfnuðu í 2. sæti með 76 stig og KR
í 3. sæti með 73.5 stig.
Ingibjörg Arnardóttir setti fslands-
met í 1500 metra skriðsundi á
18.27.68. Gamla metið var 18.30.10.
Ingibjörg keppti í fjórum einstak-
lingsgreinum og sigraði í þeim öllum.
Hún var einnig í sigursveit Ægis í
4x100 metra skriðsundi.
Ólafur Einarsson keppti í fimm
einstaklingsgreinum og sigraði í
öllum. Hann var einnig í sigursveit
Ægis í 4x100 metra skriðsundi.
Ólafur Einarsson sigraði í 800
metra skriðsundi (9.26.65), 400
metra fjórsundi (5.23.10), 100 metra
baksundi (1.12.14), 200 metra skriðs-
undi (2.13.48)og 100 metra flugsundi
(1.04.46).
Ingibjörg Arnardóttir sigraði í 1500
metra skriðsundi (18.27.68), 400
metra fjórsundi (5.34.45), 100 metra
skriðsundi (1.04.53) og 100 metra
flugsundi (1.12.02).
Gunngeir Friðriksson sigraði í 200
metra bringusundi á 2.44.29 og í 100
mctra bringusundi á 1.15.68.
Þórunn Gunnarsdóttir sigraði í 100
metra bringusundi kvenna á 1.27.34.
og í 200 metra bringusundi á 3.10.40.
Lóa Birgisdóttir sigraði í 100 metra
baksundi á 1.16.33.
A-sveit Ægis sigraði í 4x100 metra
skriðsundi karla á 4.02.34 og í 4x100
metra skriðsundi kvenna á 4.29.82.
-Ibe
Föstudagur 19. júni 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15