Þjóðviljinn - 19.06.1987, Blaðsíða 2
p_SPURNINGIN_
Hvernig líst þér á tillögur
tilvonandi ríkisstjórnar
um nýjan skatt á kredit-
kort og bíla?
Einar Gíslason leigubílstjóri
Mér líst vel á skatt á kreditkort,
það ætti að vera löngu búið að
setja hann, þaö er ekki eðlilegt aö
þeir sem greiða með peningum
greiði lán annarra. En mér líst illa
á skatt á bíla, það eru nægilegir
skattar fyrir á þeim.
Þórarinn Gíslason
handlangari
Það er allt í lagi með kreditkorta-
skatt, en eignaskattur á bíla er
hæpinn. Það er nauðsynlegt fyrir
fólk að geta átt bíl og svona
skattur auðveldar það ekki.
Lára Ásbergsdóttir
nemi
Þetta ætti í sjálfu sér að eiga rétt á
sér.
Ómar Jónsson
strætisvagnabílstjóri
Ég hef ekki kynnt mér þetta mál
enn og get þar af leiðandi ekki
sagt neitt skynsamlegt um þetta í
augnablikinu.
Ásta Sigfúsdóttir
heimavinnandi húsmóðir
Maður er nú nógu mikið skatt-
lagður nú þegar, og mér finnst
ekki koma til greina að skatt-
leggja bíla, það er nógu dýrt að
reka þá þó ekki bætist við. En
kreditkortaskattur myndi líklega
jafna eitthvað bilið á milli þeirra
sem nota þau og þeirra sem ekki
gera það.
fréthr
Hátíðahöldin
bænum
Albert Guðmundsson „kingsar" í víta-
spyrnukeppni á Laugardalsvelli.
(Myndir: Sig.)
Á Tjarnarbakkanum. Drekinn ógurlegi sem krakkarnir í Vinnuskóla Reykjavíkur gerðu fyrir hátíðina.
50 þúsund
Gífurlega mikil þátttaka var í
hátíðahöldunum, einkum þó
sunnan og vestan lands þar sem
veðurguðirnir fóru mjúkum
höndum um landsmenn.Á
Norður- og Austurlandi var
þungbúið og víða súld og því má
segja að þar hafi allt verið með
hefðbundnum hætti á þjóðhátíð-
inni.
Alls staðar fóru hátíðahöldin
vel fram og lítið bar á ölvun að
sögn lögreglumanna víðs vegar á
landinu.Batnandi fólki er best að
lifa.
í Reykjavík er talið að um 50
þúsund manns hafi safnast saman
í miðbænum og slagar það hátt
upp í mannföldann á 200 ára
afmælinu í fyrra.Stórar fígúrur
settu mikinn svip á yfirbragð
samkomunnar og margt ungviðið
greip í pabba og mömmu þegar
þau létu á sér kræla.
Elstu menn muna ekki annað
eins fjölmenni á þjóðhátíð í
Hafnarfirði og svipaða sögu er að
segja af helstu þéttbýlisstöðum
sunnan og vestan lands. Útidans-
leikir voru víða haldnir og fóru
óvenjulega vel fram, var sam-
dóma álit allra þeirra sem sam-
band var haft við í gær.
-gsv
I
I Hljómskála-
garðinum. Þær
kunnu að meta
veðurblíðunaog
góðu
stemmninguna
þessaryngis-
meyjarúrGötu-
leikhúsinu.