Þjóðviljinn - 19.06.1987, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 19.06.1987, Blaðsíða 11
MYNDLISTIN Listasafn Háskóla íslands sýnir hluta verka sinna í Odda, hugvísindahúsi Háskólans. Listasafn háskólans var stofn- að 1979 með listaverkagjöf hjónannalngibjargarGuð- mundsdóttur og Sverris Sig- urðssonar, en meginuppistaða þeirrar gjafar var verk Þorvald- ar Skúlasonar er spönnuðu all- an feril hans. Þau verk eru einn- ig meginuppistaðan í sýning- unni, auk þess sem sýnd eru sýnishorn þeirra 130 verka sem til safnsins hafa verið keypt síð- an þaö varstofnað. Sýningin er opin daglega kl. 13.30-17. Graphica Atlantica - alþjóð- leg grafíksýning á vegum Reykjavíkurborgarog félagsins íslensk grafík stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni sýna um 100 listamenn frá 24 löndum um 400 verk, sem gefa gott yfirlit yfir strauma í graf íklist beggjavegna Atlantsála. Opið 14-19 til 28. júní. Steingrímur Eyfjörð Krist- mundsson sýnir málverk, skúlptúraog teikningar í Gallerí Svart á hvítu við Óðinstorg. Sýningin hefurþrjú megin- þemu, sem sótt eru í Völsunga- sögu og Eddukvæði. Steingrímurstundaði nám við MHÍ1971-75 og í Helsinki 1979-80 og Maastricht í Hol- landi 1980-83. Sænskt KEX nefnistsýning ungra sænskra listamanna í Nýlistasafninu við Vatnsstíg 3b og MÍR-salnum, Vatnsstíg 10. Sýningin er liður í skiptisýning- um ungra myndlistarmanna frá Noregi, Svíþjóðog (slandi, en sýningar ungra listamanna f rá þessum löndum hafa gengið á milli Oslóar, Stokkhólms og Reykjavíkur. Alls eiga 13 sænskir listamenn verk á sýn- ingunni, en sýningar þessar eru styrktar af Norræna menning- armálasjóðnum og fleiri aðilum. Kristján Kristjánsson sýnir málverk og grafklippimyndir sem unnareru með colla- chrome aðferð í Ásmundarsal. i fréttatilkynningu segir: „Hérer horft úr bakspeglinum til fortíð- ar og f ramtíðar, þar sem sjóng- lerin sameinast í hvolfspegli samtíðar.“Opið kl. 14-18virka dagaen 14-22 umhelgartil 28. júní. Gullsmíðaháskólinn í Val- by í Danmörku gengstfyrir samsýningu 12 gull- og silfur- smiða sem útskrifast hafa frá skólanum í Gullsmíðastofu Pét- urs T ryggva að Skólavörðustíg 6. Þátttakendurísýningunni eiga það allir sammerkt að hafa nýlokið tveggja ára framhalds- námi við skólann og 9 þeirra hafa hlotið sérstaka viðurkenn- ingu skólans fyrir verk sín. Sýn- ingin verður opnuð laugardag 20. júní kl. 10 og stendur til 30. júní. Garðar Jökulsson sýnir landslagsmyndir í olíu og vatns- lit í Kirkjuhvoli í Garðabæ. Opið kl. 14-22 dagana 19.-21. júní en kl. 18-22 22. og 23. júní. David B. van Doomelen prófessorviðtextíldeild Pensyl- vania State University í Banda- ríkjunum sýnirtextílmyndirí Gallerí Langbrók, Bókhlöðustig 2. Doomelen er þekktur f ræði- maður á sínu sviði og hefur haldið fjölda einkasýninga og samsýninga. Opiðalladagakl. 14-18 til 28. júní. Ljósmyndasýning Þor- varðar Árnasonar stendur nú yfir í Djúpinu á horni Hafnar- strætis og Pósthússtrætis. Opið kl. 11 -23.30 til 28. júní. UM HELGINA Síðustu sýningar Leikfélags Reykjavíkur á Djöflaeyjunni og Degi vonar verða nú um helgina. Á myndinni eru Harald G. Haralds, Margrét Ákadóttir og Guðmundur Ólafsson í hlutverkum sínum í Djöflaeyjunni. Elías B. Halldórsson sýnir plíumálverk og tréristur í Gallerí íslensk list, Vesturgötu 17. Opið kl. 14-19 um helgina. Síð- ustudagar. Áning 87 - Sumarsýning ASÍ áverkum 11 listamannasem sýnaglerlist, leirlist, textíl og málmsmíði stendur nú yfir í Listasafninu við Grensásveg. Opiðvirkadaga kl. 16-20 en 14-22 umhelgartil 19.júlí. Gallerí Gangskör, Torfunni við Amtmannsstíg sýnir grafík- myndir eftir f innsku listamenn- ina Marjatta Nuoreva og Heikki Arpo. Opið virka daga 12-18 en 14-18 um helgina. Síðasta sýn- ingarhelgi. Jón Ingi Sigurmundsson sýnir 40 pastel-, vatnslita- og olíumyndir í Eden í Hveragerði. Þetta er þriðja einkasýning Jóns Inga. Sýningin stendurtil 29. júní. Myndlistarklúbbur Mos- fellssveitar sýnir í Gagn- fræðaskólanum í Mosfellssveit. 17 manns eiga myndir á sýn- ingunni en klúbburinn starfar undir handleiöslu Jóns Gunn- arssonarlistmálara. Sýningin er opin í dag kl. 18-21, laugar- dag kl. 13-20 og sunnudag kl. 13-21. Sæmundur Valdimarsson myndhöggvari sýnirfresku- myndir í vinnustofu sinni að T unguvegi 22 eftir hádegi á laugardag. Sigurður Einarsson sýnir pastel-, vatnslita- og olíumyndir frá 1986 og 87 í Þrastalundi. Þetta er þriðja einkasýning Sig- urðar. Sýningin er opin á af- greiðslutíma söluskálans til mánaðamóta Byggða-, lista- og dýra- safn Árnesinga áSelfossi, T ryggvagötu 23 er opið kl. 14- 17virkadagaog kl. 14-18 um helgar til 13. september. Ásmundarsafn sýnirum þessarmundiryfirlitssýningu á abstraktmyndum Ásmundar Sveinssonarog spannarsýn- ingin 30 ára tímabil á ferli lista- mannsins. Einnig er á staðnum sýnt myndband sem fjallar um konuna í list Ásmundar Sveins- sonar. Listasafn Einars Jóns- sonar er opið alla daga nema mánudaga kl. 13-16. Högg- myndagarðurinn er opinn alla dagakl. 11-17. Þjóðminjasafn íslands er opið laugardaga, sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. Arbæjarsaf n er opið alla daga nema mánudaga kl. 10- 18. Meðal nýjunga á safninu er sýning á gömlum slökkvibílum, sýning áfornleifauppgreftri í Reykjavík og sýning á Reykja- víkurlíkönum. Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8 í Hafnarfirði stendur fyrir sýningu sem nefn- ist Árabátaöldin, og er hún byggð á handritum Lúðvíks Kristjánssonar um íslenska sjávarhætti. Heimildarkvik- myndin „Silfur hafsins" er einn- ig sýnd á safninu. Opið alla daganemamánudagakl. 14- 18. TÓNLIST Drengjakór kirkju hins heil- aga Nikulásar í Hamborg syng- ur í Egilsstaðakirkju á laugar- dag, í kirkjunni á Eyrarbakka þriðjudaginn 23. júní og í Skál- holti miðvikudaginn 24. júní. Stjórnandi kórsins er Ekkehard Richter og á söngskránni eru verk eftir Mozart, Schutz, Mendelssohn, Bach o. fl. Sólstöðutónleikar verða í Norræna húsinu á sunnudag kl. 20.30. Einleikari erörn Magnússon. Örn kom heim fyrir ári úr 6 ára framhaldsnámi í pí- anóleik í Manitóba, Berlín og London. Á efnisskrá eru ítalsk- ur konsert eftir Bach, Sónata op.27no.1 eftirBeethoven, Ballaða eftir Chopin og Prelúdí- ureftirDebussy. Heitur Pottur í Duushúsi. Sunnudagskvöld kl. 21.30 spil- ar Kvartett Kristjáns Magnús- sonar, á mánudagskvöld kl. 21.30 verður jam-session þar sem fjölmargir hljóðfæraleikar- arbregðaáleik. Kynnirverður VernharðurLinnet. LEIKLIST Leikfélag Reykjavíkursýnir Dag vonar eftir Birgi Sigurðs- son í allra síðasta sinn í Iðnó laugardag kl. 20. Leikritiðer fjölskylduharmleikur reykvískr- skrar fjölskyldu á sjötta áratugn- um. Sýning þessi hlaut góða dóma og hefur notið mjög mikillaraðsóknar. Stefán Bald- ursson leikstýrir, Þórunn S. Þorgrímsdóttirgerir leikmynd og búninga og tónlist er samin af Gunnari Reyni Sveinssyni. Djöflaeyjan eftir Kjartan Ragn- arsson verður sýnd í Leik- skemmu LR við Meistaravelli í kvöld kl. 20 og laugardag kl. 20. Eru þetta síðustu sýningar verksins sem hefur notið geysi- júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 legra vinsælda og eru sýningar orðnar 60 á aðeins fjórum mán- uðum og uppselt á nánast hverjasýningu. Höfundurog leikstjóri er Kjartan Ragnars- son, leikmynd og búninga gerir Grétar Reynisson og Jóhann G. Jóhannsson aðstoðaði við tónlistarflutning og útsetningar. Þjóðleikhúsið sýnir Hvar er hamarinn? eftir Njörð P Njarö- vík í leikför um Vestfirði og Vest- urland. Verkið er gleðileikur fyrir eldri börn og unglinga og er byggt á Þrymskviðu þar sem segir f rá því þegar Þór týndi hamri sínum í greipar Þryms sem heimtar Freyju fyrir konu í skiptum fyrirtóliö. Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir, tónlist ereftirHjálmarH. Ragnarsson og leikmynd og búninga gerir Sigurjón Jóhannsson. Sýnt l/erður i Bolungarvík í kvöld, Flateyri 20. júní, Þingeyri 21. júní, Bíldudal 22. júní, Patreks- firði 23. júní, Króksfjarðarnesi 24. júní, Búðardal 25. júní, Stykkishólmi 26. júní, Grundar- firði 27. júní, Hellissandi 28. júní og á Akranesi 30. júní. Allar sýningarnar hefjast kl. 20.30. Ferðaleikhúsið sýnir Light nights í Tjarnarbíói fjórum sinn- um í viku: fimmtudags-, föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld kl. 21. Sýning- in er f lutt á ensku enda ætluð ferðamönnum. í 25 atriðum eru leikin og sýnd atriði úr Egils- sögu, þjóðsöguraf huldufólki, tröllum og draugum og gamlar gamanfrásagnir. Erþetta 18. sumarið sem Ferðaleikhúsið sýnir Light nights í Reykjavík. HITT OG ÞETTA Vikuleg laugardagsganga Frístundahópsins Hana nú í Kópavogi verður á morgun laugardag 20.júní. Lagtaf stað frá Digranesvegi 10 kl. 10. Rölt verður um bæinn að skoða lita- dýrð vorsins. Allir velkomnir. Nýlagað molakaffi. Úti vistarferð í Þórsmörk sunnudag. Sólstöðuferðir í Viðey sunnu- dag kl. 13 og kl. 20. Góð leið- sögn. Brottförfrá kornhlöðunni Sundahöfn. Jónsmessunæturganga þriðju- dagkl.20. Vestmannaeyjaferð 26.-28. júní. Upplýsingar og farmiðar á skrif- stofu Útivistar Grófinni 1, símar 14606 og 23732. 13.30-16. Föstudagur 19. 19líúiií VERD. 29S ARSRIT KVLNRETTINDAFELAGS ÍSLANDS 1987 1 Ef Bíarní Fel vœri kona... Arsrit Kvenréttindafélags íslands „19. júní“ er komið út Fæst í bókaverslunum, á blaösölustööum ög hjá kvenfélögum um land allt. Kvenréttindafélag ísldhdS|

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.