Þjóðviljinn - 24.06.1987, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 24.06.1987, Qupperneq 9
Kristín Á. Ólafsdóttir „Að hjakka í sama fari eða ryðja nýja braut“ nefnist 16 síðna greinar- gerð Kristínar Á. Ólafsdóttur. „Til hvers ætlast fólk af stjórnmálahreyf- ingu?“ spyr Kristín í upphafi, og svar- ar í þremur meginköflum: „Að hún tjái lífssýn", „Aö hún gæti hagsmuna", Að hún skilgreini samtíð og vísi fram á veginn". Sú mynd sem andstæðingarnir draga upp af Alþýðubandalaginu er sú, segir Kristín, að þar fari áhuga- menn um miðstýringu, forræði, kerfi, - einangrunarsinnar og svart- agallsrausarar sem haldi sig hafa einkarétt á stórasannleik og réttlæti og berjist ákaft gegn nýjungum, markaði og einstaklingsfrelsi. Skiigreining flokksmanna sjálfra sé auðvitað önnur. Kjarni lífssýnar sósíalista sé jöfnuður, og Kristín segir að þegar hún kom til liðs við flokkinn hafi miklu skipt áhersla á mannleg gildi, uppeldismál, menntun, listir. Sjálfstæðisbaráttan og herandstaða séu einnig lykilat- riði. Lífssýn sósíalista hefur tekið mikl- um breytingum síðustu áratugi, segir Kristín. Frá og með sjötta áratugn- um hafi menn fallið frá Sovétkerfi sem fyrirmynd, frá allsherjar þjóðn- ýtingu og miðstýringu, og hræring- arnar í lok sjöunda áratugarins hafi haft enn afdrifaríkari áhrif á stefnu vinstri manna: valddreifing og fjöldavirkni verða lykilatriði, forr- æði er hafnað, hinir óskoruðu leið- togar teknir niðraf stalli, skrifræði fordæmt, og fram koma kröfur um opið þjóðfélag þar sem upplýsingast- reymi er forsenda skoðanamyndun- ar og aðhalds. Svart-hvít mynd á síður við í póli- tískri sýn, frasar og stórisannleikur verða hjáróma, segir Kristín, og með uppkomu „hinnar menntuðu milli- stéttar“ verða vinstrimenn að endur- skoða hefðbundna stéttagreiningu sína. Kvenfrelsishreyfingin hefur gríðarleg áhrif og aðrir afskiptir hóp- ar krefjast jafnræðis, - umhverfismál komast efst á dagskrá. Tornæmi á kall tímans Alþýðubandalagið hefur reynst tornæmt á kall tímans, segir Kristín, og þessir straumar fundu sér ekki eðlilegan farveg í flokknum: „Lífssýnin gamla er þar enn ríkjandi og birtist bæði í pólitískum áherslum og vinnubrögðum", -og þessvegna hafi andstæðingarnir að ákveðnu leyti rétt fyrir sér um flokkinn. „Ég er ekki í minnsta vafa um það að þetta er ein af ástæðum þess að Kvennaframboð varð til ‘82 og Þjóð- arflokkur fyrir kosningarnar í vor.“ „Til að bæta úr þessu þarf pólitík flokksins að vísa meir á framtíðar- lausnir. Við verðum að komast upp úr því neikvæða, klisjukennda and- stöðufari - oft m jög hrokafullu - sem einkennirflokkinn“, leggja áherslu á mannleg gildi, og valddreifing og fjöldavirkni eiga að vera einkenni flokksins í áherslum og vinnu- brögðum: „Á það skortir mikið nú. Fáir móta stefnuna. Örfáir einstak- lingar birtast þjóðinni sem talsmenn Alþýðubandalagsins. Svo til ein- göngu karlmenn." Enda fáar konur fulltrúar flokksins á þingi, - líklega verði að koma upp kvóta- og endur- nýjunarreglu á þingflokk og sveitarstjórnir. Flokkurinn á að vera opinn, segir Kristín, og þar á að berjast harðast gegn samtryggingu, upplýsinga- einokun og spillingu. „Með opnari flokki á ég við að óttanum við fjölmiðla - og þar með fólkið í landinu - verður að linna,“ segir Kristín. „Það er misskilningur að halda að styrkur felist í því að Opnari f lokkur - opnara samfélag .a —.. „u—: ..arUniiiA — hvftrrfl hapsmnnir <skuln varfSir'? P.r f viðurkenna aldrei veikleika." Menn þurfi að temja sér að taka á ágrein- ingsmálum „í stað þess að sópa þeim undir teppið eða bregðast við með ofstopa og svikabrigslum þegar fólk talar öðruvísi en foringjunum líkar“. Menn kvarti yfir að gagnrýni sé illa tekið og að hlustunarhæfni forystu- manna sé í öfugu hlutfalli við talfimi þeirra. Það verði einnig að hætta að líta á það sem „helgispjöll“ að einn bjóði sig fram gegn öðrum, og leggja af þá afstöðu til flokksins og forystu hans sem lflrist „viðhorfum trúaðra til safnaðar og helgra manna“. Kjarastefna Stjómmálahreyfing á einnig að gæta hagsmuna, segir Kristín, og ræðir harðar árásir á launafólk á síð- asta kjörtímabili. Þróunin í kjara- málum hafi auðvitað ekki verið AI- þýðubandalaginu að kenna, en fólk hafi ætlast til að flokkurinn brygðist við af meiri krafti en raun varð á. Ástæður þess séu einkum tvenns- konar: „Hræðsla við stimpilinn „verðbólguflokkur“ (...) og, sem vegur enn þyngra, faðmlag flokks og ASÍ-forystu.“ Eftir samningana í ársbyrjun ‘84 hafi magnast hjá sumum áhyggjur af meintu sambandsleysi ASÍ-forseta og flokksformanns, sem hafði ásamt Dagsbrún gagnrýnt þá samninga. „Þrýstingurinn á formann flokksins um nánara samstarf við ASÍ hefur án efa verið sterkur í einhverjum bak- herbergjum vorið og sumarið 1984 þótt ekki væri sú krafa áberandi á fundum flokksins.“ Undir kaflaheitinu „Faðmlagið“ ræðir Kristín BSRB-verkfallið haustið 1984, þegar ASÍ-forystan „varð viðskila“ og samdi á lokuðum fundum um skattalækkun og niður- skurð ríkisútgjalda. Eftir verkfallið hafi komið fram verulegur biturleiki hjá BSRB-fólki í garð ASÍ þar sem enginn stuðningur við verkfallið kom úr þeirri átt. „Fólk tengdi Al- þýðubandalagið ASÍ-forystunni, og það ekki að ófyrirsynju“, þar sem ýmsir helstu áhrifamenn ÁSÍ hafi verið „þungaviktarmenn" í flokkn- um, og engin gagnrýni heyrst frá flokksforystu í garð ASÍ-leiðarinnar. „Haltu-kjafti-línan“ Eftir þetta verður „tillitssemin“ við ASÍ-forystuna æ ljósari í flokkn- um, segir Kristín, strekkingurinn stríðari milli ákveðinna forystu- manna og Þjóðviljans, sem hafði gagnrýnt samningana, og hugtakið „haltu-kjafti-línan“ varð til og túlk- aði meintan þrýsting forystu á Þjóð- vilja sem og flokksmenn um að láta af gagnrýninni. Hinsvegar vex því byr að flokkurinn móti eigin stefnu í kjaramálum, og ályktun þess efnis verið samþykkt á landsfundinum 1985. Þrátt fyrir þá samþykkt hafi lands- fundurinn engu breytt. Framkvæmd- astjórnin sem þá var smíðuð hafi ver- ið vel mönnuð fulltrúum ASÍ- forystunnar og fólki sem lítt hafði andæft „meintri ASÍ-gíslingu flokks- ins“, og flokkurinn hafi ekki fram- fylgt kjaraályktuninni. Kjósendur hafí haldið áfram að skynja flokkinn á sveif með ASÍ-forystunni, saman- ber stuðning þingmanna flokksins - nema Guðrúnar Helgadóttur - og borgarfulltrúa við „þjóðarsáttina" í febrúar 1986. Innsiglið hafi svo verið sett með framboðslistanum í Reykjavík í vor. En af hverju eru þessi nánu tengsl óæskileg? spyr Kristín, og svarar með öðrum spurningum: Hvernig á að skilgreina verkalýðshreyfinguna, - hverra hagsmunir skulu varðir? Er sjálfsagt að kjarapólitík flokksins sé samróma forystusveit ASÍ? Á flokk- urinn að skipta sér af baráttuaðferð- um verkalýðssamtaka? í hugum ýmissa flokksfélaga sé ASÍ hin raunverulega verkalýðs- hreyfíng, og samtök opinberra starfsmanna óæðri eða „fölsk“. Þetta viðhorf hafí kjósendur skynjað í vor, „það er ein skýringin á fylgistapi flokksins, sem hefur að stórum hluta sótt stuðning sinn í raðir opinberra starfsmanna“. Reynslan frá BSRB- verkfallinu hafi ekki gleymst, og raunar verið skerpt í byrjun árs með þeim tóni frá ASI-forystunni að op- inberir starfsmenn hefðu sprengt „þjóðarsáttarrammann“ í kjarabar- áttu sinni. Flokksstefna og málamiðlun Það er ekki sjálfsagt að flokkurinn taki undir niðurstöður ASÍ- forystunnar, segir Kristín: „Þær nið- urstöður sem þverpólitísk verkalýðs- forysta kemst að hljóta að vera pólit- ísk málamiðlun“, og Alþýðubanda- lagsmenn hafa aðrar skoðanir á ýms- um þáttum kjaramála en Sjálfstæðis- menn eða Framsóknarmenn. „Ég veit að fjöldi Alþýðubanda- lagsmanna, bæði félagar og kjósend- ur, eru ekki sammála viðbrögðum ASÍ við kjaraárásum fráfarandi ríkisstjórnar. Hvorki því baráttu- leysi sem einkenndi kjörtímabilið, lágum kaupkröfum né niðurstöðum samninga. Alþýðubandalagið hefði því átt að gagnrýna þessa leið ASÍ- forystunnar opinskátt.“ Áherslur flokksins hafi hins vegar verið í þver- öfuga átt. Þá verði launafólk sjálft að fínna heppilegustu baráttuleiðir án dag- Kristín Á. Ólafsdóttir: framtíð fyrir sér.“ „Með pólitískri umbyltingu getur Alþýðubandalagið átt mikla skipana frá stjórnmálaflokkum. Hreyfingum t grasrótinni beri að fagna, en forðast miðstýringu og sjónarmið sem mótast af forræðis- hyggj u, - sem hafi einkennt ýmis við- brögð við baráttu til dæmis fóstra og kennara eða kröfum fiskvinnslufólks um eigin samtök. Að vísa fram á veg í þriðja kaflanum rekur Kristín stefnu flokksins í ýmsum málaflokk- um, og telur að í vor hafi Alþýðu- bandalagið ekki verið „flokkurinn með ljósið inn í framtíðina“. Það hafi kjósendur fundið og orðið varir meiri pólitískrar nýsköpunar hjá öðrum framboðum. Flokknum hafí til dæmis ekki tek- ist að andæfa áróðri um að launa- hækkanir sem helsta orsakavald verðbólgu. Þau rök nái langt inn í raðir flokksmanna, en minna hafi farið fyrir gagnrýni á vitlausar fjár- festingar, - mun dýpri rót efnahags- vandans, og sé ástæðan líklega að flokkurinn hafí verið „þátttakandi í fjárfestingarvitleysunni". Þótt flokkurinn hafí vissulega gert góðar tilraunir til stefnumótunar í at- vinnumálum, meðal annars að frum- kvæði Þjóðviljans, hafi honum ekki tekist að „ná í gegn“ sem vegvísi til nýsköpunar í atvinnulífi, enda virðist gæta fomeskju í skilgreiningu hans á íslensku atvinnulífi: „í grófum drátt- um erum við með sjávarútvegi og landbúnaði, og iðnaði í seinni tíð - en fjári illa við verslun og „milli- liði“.“ í sjávarútvegsmálum sé ekki bara spurning um kvóta eða ekki kvóta, það þurfi til dæmis að beina sjónum að nýjungum í vinnslu og setja stækkunarglerið á stóru sölusam- tökin og það kerfi sem þau hafa kom- ið sér upp. Landbúnaðarstefna flokksins þyki óljós, og löngu sé orð- ið tímabært að endurskilgreina milli- liðina, - „við skulum hætta að fjand- skapast með óljósum frösum um „milliliðina“. Sá fjandskapur hefur m.a. orðið til þess að fólk sem vinnur í verslun, þjónustu og bankakerfi lítur á Alþýðubandalagið sem svar- inn óvin sinn. Þarna er um að ræða örtvaxandi hóp láglaunafólks, að stórum hluta konur, sem samkvæmt skoðanakönnunum flykkjast ekki að Alþýðubandalaginu. “ Kristín segir að í augum fjöldans sé Alþýðubandalagið ríkisforsjár- flokkur sen standi vörð um „báknið“ og treysti hinu opinbera best til flestra verka. Þetta sé meðal annars afleiðing af því að vörnin gegn ný- frjálshyggjunni „hefur gert okkur íhaldssöm og hrædd við gagnrýni“ á opinbera kerfið. Flokkurinn hljóti að berjast fyrir aðhaldi og endur- skoðun í þessum geira, fyrir auknu frumkvæði og forræði starfsmanna hins opinbera og endurmeta heppi- leg rekstrar- og eignarform. Kristín segir BJ og síðan Kvenna- lista hafa tekið við því hlutverki flokksins að vera helsti gagnrýnandi samtryggingar, spillingar og lokaðs stjórnkerfis. í þessum efnum verði flokkurinn að taka sig stórlega á, og koma sér „úr neti samtryggingar og spilltrar fyrirgreiðslupólitíkur". Alþýðubandalagið skorti skýra stefnumótun í kosningabaráttunni, segir Kristín, og það átti sinn þátt í hrakförunum í vor. Ástæðurnar séu Svavar Gestsson Út úr pattstöðunni Svavar Gestsson: „Með miðstjórnarfundinum í haust þarf að Ijúka röntgenmynda- tökum af sjálfum okkur, og þá þarf með landsfundinum að hefjast nýtt sóknarskeið." „Greining" Svavars Gestssonar er 55 síður og skiptist í átta megin- kafla: Kosningaúrslitin, Samtök launafólks, Þjóðfrelsisbaráttan, Áherslur út á við, Vinnubrögð inn á við, Valdabarátta einstaklinga, Til- lögur til úrbóta, Út úr pattstöðu - nýtt sóknarskeið. Svavar segir almennar ástæður fyrir niðurstöðum Alþýðubanda- lagsins fjórþættar: Hugmyndafræði- legan vanda, taktískan vanda, vinnu- brögð í flokknum inn á við, og valda- baráttu einstaklinga innan flokksins. Svavar ræðir nokkuð óhagstæðar ytri aðstæður í kosningunum, meðal annars ný framboð og upplausn flokkakerfis, góðæri hjálplegt stjórnarflokkunum, fjáraustur í auglýsingar, og væringar milli kjara- hópa rétt fyrir kosningar. Svavar nefnir hér einnig hug- myndafræðivanda sem Alþýðu- bandalagið deili með vestrænum vinstriflokkum, og meðal annars fel- ist í að þessir flokkar hafi að undan- fömu þurft að verja velferðarsamfé- lagið fyrir nýfrjálshyggjustefnu. Við hlið stóru vinstriflokkanna spretti síðan upp aðrir sem yfirtaki „hið hefðbundna mótmælahlutverk vinstrimanna gegn íhaldi Vestur- landa“. Reynslan sýni að þessi vörn verði einkum erfið fyrir flokka í stjórnarandstöðu. Svavar segir Alþýðubandalagið sækja sóknarafl sitt fyrst og fremst til tveggja meginstrauma, þjóðfrelsis- baráttu og verkalýðshreyfingar, samtaka launafólks. Um þjóðfrelsis- baráttu í víðasta skilningi (andstaða við her og Nató, landhelgismál, bar- átta gegn erlendu fjármagni, áhersla á náttúruvernd og umhverfismál o.sv.frv.) sé nær enginn ágreiningur í flokknum. Stefna hans í þessum mál- um efli hann og safni honum fylgi, henni þurfi að halda hátt á lofti. Vandi í verkalýðshreyfingu Kjaramál hafi hinsvegar reynst flokknum erfið undanfarin misseri samfara miklum vanda innan verka- lýðshreyfingarinnar. Samtök launa- fólks segir Svavar eiga við fyrst og fremst þrennan vanda að stríða. I fýrsta lagi koma hagsmunaárekstrar innan verkalýðshreyfingarinnar þar- sem andstæður hafi skapast milli launahópa. Samtökin séu á mikilli hreyfingu, þar verði vart hættulegrar upp- lausnar, sérgreining starfa fjarlægi launamenn frá félagslegum viðhorf- um og auki á sundrung milli hópa. Vinnuþrældómur á íslandi sé einnig eitt þeirra vandamála sem stendur launafólki og samtökum þeirra fyrir þrifum. í öðru lagi sé verkalýðshreyfingin nú í vörn fyrir „kerfið“, þá félagslegu samhjálp sem hún á mestan þátt í að koma upp, þar hafi verið rekin varn- arstefna, ekki sóknarstefna. í þriðja lagi sé skipulag samtaka launafólks úrelt og úr sér gengið og brýn nauð- syn á endurskipulagningu allrar hreyfingarinnar. Þessi vandi hafi komið vel í ljós í kjaraátökunum ‘84, og aftur í að- draganda kosninganna, þegar ASÍ og BSRB ná ekki saman og flokkur- inn klemmist á milli. Svavar rekur síðan annál kjara- mála síðustu ár, rifjar upp efnahags- aðgerðir Thoroddsen-stjórnarinnar sumarið ‘82, sem höfðu í för með sér nokkra kaupmáttarskerðingu, og ræðir síðan „höggið“ í upphafi nú- verandi stjórnar, samningsbann og gríðarlega kjaraskerðingu, sem að- eins mættu veikum viðbrögðum sam- taka launafólks. Samningarnir í ársbyrjun ‘84 hafi verið veikir, og hafi hann lýst þá lé- lega - „í fyrsta sinn sem forystumað- ur, ibrmaður flokksins, lýsti and- stöðu við kjarasamninga með þeim hætti sem ég gerði þá“, sem var óhjá- kvæmilegt „vegna þess að ég tel að flokkurinn eigi að hafa sjálfstæða af- stöðu til kjarasamninga hvenær sem þeir kunna að vera gerðir.“ Samningarnir uppúr BSRB- verkfallinu haustið ‘84 hafi einnig verið vondir. t þá vantaði verðtrygg- ingarákvæði, enda ávinningar þeirra teknir til baka með einu pennastriki. Þrennt gerðist, segir Svavar: Sundrung samtaka launafólks, engar kröfur fyrren um seinan um kauptryggingu, ósvífin ríkisstjórn. í heild hafi félagsleg sjónarmið beðið ósigur. Misklíð ASÍ og BSRB hafi svo leitt til þess að gagnrýni BSRB- manna hafi beinst að Alþýðubanda- laginu með ósanngjörnum hætti, og síðar magnast, og veikt flokkinn sem „verkalýðsflokk“. Vinnufriður Eftir þetta hafi margt verið rætt um ágreining milli forystu ASÍ og Alþýðubandalagsins, sem væri undirrótin að „kreppu“ í Alþýðu- bandalaginu. Svavar segist þá hafa rætt við forystumenn í verkalýðs- hreyfingunni til „að skapa vinnu- frið“, meðal annars með því að endurskipuleggja verkalýðsmálaráð flokksins, og hafi niðurstaðan verið innsigluð í framkvæmdastjórn vorið 1985. „Þegar hér var komið sögu var verkalýðsmálaráðið orðið óstarfhæft með öllu og stöðugar deilur settu svip sinn á málfiutning flokksins, þingmanna flokksins á alþingi (...) og blaðið var í árásarham andspænis samskiptum við verkalýðshreyfing- una og stefndi reyndar vísvitandi að því að rjúfa þau tengsl.“ Ágreiningur hélt hinsvegar áfram, og snerist aðallega um þetta: „Hluti fíokksfélaga heldur því fram að draga eigi úr hinni hefðbundnu upp- setningu mála um „flokkinn og verkalýðshreyfinguna“, aðrir telja það ekki tímabært nema annað hafi komið í staðinn, og loks var engu líkara en hópur manna í flokknum vildi nota þessi átök til þess að hræra upp í flokknum og skapa sem víðtæk- asta óánægju hvað sem það kostaði.“ Flokksmenn hafi þó náð saman á síðasta landsfundi haustið 1985. „Mín lína á fundinum var samkomu- lag. Sú lína sigraði, þrátt fyrir harða andstöðu þeirra sem þóttust sjá að samkomulagið yrði reist á sandi því í raun væri lítill vilji til samstarfs. Því miður kom það á daginn ótrúlega fljótt.“ Þetta samkomulag byggðist á að litið var á flokkinn í þremur hlutum: „Verkalýðsforystu“, „flokksmiðj u“ og „lýðræðishóp“. Svavar telur að „flokksmiðjan“ hafi komið of illa út, samkomulagið verið rétt út af fyrir sig, „en hlutföllin í framkvæmda- stjórninni voru vitlaus - hvort sem litið er á félagatölu flokksins eða hlutverk flokksins í bráð og í lengd.“ Svavar rekur síðan samningana í febrúar og desember í fyrra. Alþýðu- bandalagið hafi gagnrýnt ýmislegt í þeim samningum, en í heild talið þá í rétta átt. Eftir árið 1986 hafi verið ljóst að verkalýðshreyfingin hafði náð árangri, kaupmáttur kauptaxta jókst, samið hafði verið um mikla hækkun lægstu launa, um nýtt kerfi í húsnæðismálum, um að taka verð- bólguna niður og um nýtt skattak- erfi, - allt að frumkvæði verkalýðs- hreyfingarinnar. Hlutur flokksins átti nú, segir Svavar, að vera „já, en...“, það er gagnrýninn stuðningur. En um það „náði flokkurinn ekki saman og það sem verra var: Blaðið ekki heldur, sem hélt áfram að keyra gegn niður- stöðu kjarasamninganna í febrúar fram eftir því ári.“ Með þessari af- stöðu hafi Þjóðviljinn í raun undir- búið jarðveginn fyrir sigur Kvenna- listans á kostnað Alþýðubandalags- ins „þegar kenningin um nauðsyn þess að refsa Alþýðubandalaginu náði víðtækri útbreiðslu“. Vissulega hafi orkað tvímælis að semja þegar verkalýðshreyfingin hefði engin tök á framkvæmdinni, „en auðvitað var það ekki hlutverk blaðsins að endur- spegla fyrst og fremst veikleika flokksins“. Fleira hafi þó orðið til þess að kjaramál urðu flokknum ekki til framdráttar í kosningunum, - í vor hafi opinberir starfsmenn knúið fram launabætur, og ASÍ sagt að sínir menn yrðu að hækka líka, og þannig skapast enn á ný væringar milli mikilvægra launamannahópa. „Fróðlegt væri að fá uppskriftina að kosningasigri við þessar aðstæð- ur,“ segir Svavar. Hann segir hafa komið fram þá skoðun að höggva beri á samskipti flokks og verkalýðs- hreyfingar. Það komi ekki til greiná, - hinsvegar verði að haga þeim eftir efni og aðstæðum á hverjum tíma. Svavar ræðir nokkuð um framboð Ásmundar Stefánssonar á Reykja- víkurlistanum, sem hafi verið gagnrýnt; „það var um það víðtæk samstaða innan flokksins að Ás- mundur Stefánsson ætti að verða einn af frambjóðendum flokksins.“ Aðild Ásmundar að efna- hagsráðstöfunum hefði átt að „skila okkur betur inn á miðju kjósenda“ ef styrkur hans hefði hagnýst, það sé ljóst að breytt efnahagsstefna að frumkvæði verkalýðshreyfingarinn- ar átti hljómgrunn, en Framsókn hafi hagnast á þessu, ekki Alþýðu- bandalagið. I niðurstöðum sínum um flokk og verkalýðshreyfingu segir Svavar meðal annars að flokksmenn eigi að beita sér fyrir endurskipulagningu á samtökum launafólks. Flokkurinn á að leggja áherslu á efnahagstillögur sem skapa almenn skilyrði fyrir betri launum, en hann á ekki sem slíkur að skipta sér af einstökum útfærsluat- riðum samninga. Og hann á að styðja liðsmenn verkalýðshreyfing- arinnar, en hann verður að þora að gera greinarmun á forréttindahóp- um og almennu launafólki. I kafla um áherslu út á við segir Svavar almennt álit að stjórnarand- staðan á þipgi hafi verið slöpp, og það komi niður á flokknum sem stærsta stjórnarandstöðuflokknum. Þingmenn hafi leyft sér að snúast gegn stefnu flokksins eða tala hver með sínu nefi, og hafi ekki skapað tiltrú kjósenda. Þá hafi aðdragandi síðasta landsfundar haft neikvæð áhrif, þarsem í fjölmiðlum hafi til dæmis birtst það álit mæðranefndar að flokkurinn þætti staðnaður, ólýð- ræðislegur og leiðinlegur. „Hver kaupir „vöru“ sem sölumennirnir sjálfir stimpla óæta?“ Sundurþykkis- ímynd Átök í forvali fyrir borgarstjórn- arkosningarnar hafi ekki sýnt sam- starfsvilja innan nýrrar forystu þegar tveir forystumenn buðu sig fram gegn tilteknum einstaklingum, og ekki hafi bætt úr skák þegar Þjóðvilj- inn hafi frá því snemma árs 1985 snú- ist gegn taktík flokksins gagnvart samtökum launafólks. Ekki hafi „lekar“ úr helstu flokksstofnunum í fjölmiðla bætt ástandið. Ein meginá- stæðan fyrir ósigrinum í vor sé án efa að flokkurinn „birti af sér mynd sem sundurþykkur flokkur þar sem alltaf logar allt í innbyrðis átökum, þar sem einstakir forystumenn níða flokkinn niður með alls konar orða- leppum hver um annan og þar sem fátt sé aðhafst til frjórrar stefnuum- ræðu.“ Um vinnubrögð inn á við segir Svavar að flokkstarfið sé of lítið, og á ábyrgð varaformanns flokksins að halda þar á spöðum, þótt ekki sé við hann einan að sakast. Hann segir kvennapólitík og samstöðu kvenna hafa verið lamaða innan flokksins, „því miður af konum sem kusu að taka valdabaráttu eftir öðrum línum fram yfir kvennapólitík flokksins“. Svavar segir að málefnastarf í flokknum hafi sumt verið öflugt, en harmar sérstaklega afdrif álits vinnu- hóps um efnahags- og atvinnumál, sem „fékkst ekki birt“ í tæka tíð fyrir kosningar. Sem betur fer hafi valddreifing og lýðræði orðið einn grunntóna í flokknum. Þessi orð hafi hinsvegar innávið reynst krafa um stjórnleysi, og gagnrýnir í framhaldinu vinnu- brögð formanns framkvæmdastjórn- ar (Ólafs Ragnars) og miðstjórnar (Kristínar Á. Ólafsdóttur). Þá hafi verið litið á þingflokkinn sem ein- angrað fyrirbæri, og störf hans ekki nýst flokknum sem heild. Svavar ræðir síðan um Þjóðvil]- ann. Blaðið hafi þangað til á síðustu misserum alltaf lagt áherslu á tvennt: „fyrst að vera blað sem gefur tóninn, „línuna“ fyrir hönd flokksins og ef „línan“ var ekki til þá að geta í eyðurnar, og í annan stað að vera vopn féiaganna gegn andstæðingun- um“. Þjóðviljinn hafi alltaf verið umdeildur innan flokksins, og í sinni ritstjóratíð segir Svavar ágreininginn yfirleitt hafa stafað af afstöðu blaðs- ins til verkalýðsmáia „en þar var sú meginlína höfð uppi að láta ekki í blaðinu, í skrifum ritstjóra, skerast í odda við forystusveit flokksins“. Þetta verkefni hafi vissulega orðið vandasamara síðustu misseri. „En um skeið var ljóst að blaðið var ekki vanda sínum vaxið að þessu leyti, þar sem það kom fram sem málgagn lítils hluta flokksins gegn flokknum, sem er stimplaður af sama hópi sem flokkseigendafélagið ægilega sem er vont við hin algóðu lýðræðisbanda- lög.“ Þetta kom fram, segir Svavar, í þögn um störf borgarfulltrúa á síð- asta kjörtímabili, og að auki hafa þingmenn flokksins „haft misjafna þingfréttaþjónustu af hendi blaðs- ins“, - verra sé þó að ritstjórar hafi ekki „litið á það sem skyldu sína að koma því á framfæri sem þingmenn flokksins gera og þess vegna hefur þingflokkurinn svip deyfðar og drunga gagnvart flokksmönnum“. Ritstjórn blaðsins líti ekki á sig sem hluta af liðssveit flokksins, og blaðið ekki skilað sér sem málflytjandi gegn öðrum flokkum. Þetta hefur leitt til þess, segir Svavar, „að það er yfirgnæfandi meirihlutasamstaða um það innan flokksins að gera verður ráðstafanir til þess að breyta stöðu Þjóðviljans“. Svavar segir síðan að meðal annars „Guðmundarmál“ hafi komið í veg fyrir það í fyrrasumar að hann gerð- ist aftur ritstjóri á blaðinu, en í um- ræðunum það sumar hafi komið í ljós sá þverbrestur af hálfu ritstjórnar- innar að krefjast þess að ritstjórnar- stefnan yrði mótuð innan veggja rit- stjórnarinnar en án samráðs við flokkinn. „Þetta er lýðræðið - eða hvað: Að 30 manna starfslið blaðsins ráði ritstjórnarstefnu blaðs sem er í 8 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN! Mlftvlkudagur 24. júní 1987 fyrst og fremst tvennskonar: „1. Menn hafa staðið gegn nýjum hug- myndum og ekki opnað fyrir strauma breytinga (...). 2. Flokks- menn hafa verið vanfærir um að ræða ágreiningsmál á fordómalausan hátt, þeim hefur ýmist verið sópað undir teppi eða persónugerð og þarmeð frosið í pattstöðu „arm- anna.“ Tökum á ágreiningnum í lokaorðum greinargerðarinnar segir Kristín meðal annars að hún hafi ekki nefnt óeiningu innan flokksins sem eina af ástæðum kosn- ingaúrslitanna, og sé ósammálaþeim sem benda á ágreininginn sem eina helstu höfuðmeinsemdina. Kristín bendir á úrslit borgarstjórnarkosn- inganna í fyrra, þarsem G-listinn fékk rúm 20 prósent en þá hafi átök verið mun opnari, meðal annars vegna hörku í forvali. Þótt ljóst hafi verið um ágreining innanflokks í kosningunum í vor hafi kjósendum ekki verið gefin tilefni til að beina augum að þeim, þvert á móti reynt að breiða yfir. Samt sem áður hafi Reykjavík hrapað í rúm 13 prósent og afhroð einnig orðið í öðrum kjör- dæmum, „þar sem friður hefur verið sagður ríkja“. Hinsvegar hafi ástandið dregið úr getu og krafti, og annað útilokað en að taka á ágreiningnum og skera úr um meginmál. Kristín segir að fé- lagar „í andófinu“ hafi verið sakaðir um að setja sjónarmið sín ekki skýrt fram, og eigi sú gagnrýni rétt á sér, „líklega hefði okkur verið nær að op- inbera óánægju okkar og andstæðar skoðanir við gjörðir flokksins miklu oftar (...). Við létum skammirnar um óeiningu hafa of mikil áhrif á okkur.“ Mönnum hljóti þó að vera ljóst að andófsöflin vildu að flokkurinn ræki aðra verkalýðspólitík, tæki öðruvísi á samtryggingu og spillingu, legði áherslu á valddreifingu og opin vinn- ubrögð. Þetta hafi flokkurinn ekki gert: skipan í Útvegsbankaráð í árs- lok ‘85, hert tengsl flokks og ASÍ- forystu þráttfyrir landsfundarsam- þykkt, atkvæði greidd með þjóðar- sáttmni, vanhæfni flokksins að taka á „Guðmundarmáli“, tilraun til að gera flokksformanninn að Þjóðvilj- aritstjóra. Þessi dæmi hafi einmitt verið nefnd af þeim sem nú létu vera að kjósa flokkinn eða gerðu það með hundshaus; og sé full ástæða til að ætla að þau viðhorf sem verið hafa í minnihluta í helstu flokksstofnunum séu meirihlutasjónarmið meðal fé- laga og kjósenda. Pólitísk umbylting Sé það rétt, spyr Kristín, að þessi pólitík hafi valdið mestu um hrakfar- irnar, eru þá þeir sem stýrt hafa ferð- inni reiðubúnir til að endurskoða af- stöðu sína? „Eða ætlar þessi meiri- hluti, sem mest hefur kvartað um óeininguna, að beita sér fyrir því að hinn óánægði minnihluti þegi meira eða komi sér burt úr flokknum?“ Kristín telur að verði haldið áfram á sömu pólitísku vegferð geti fylgi flokksins minnkað enn. „Með póli- tískri umbyltingu held ég hins vegar að Alþýðubandalagið geti átt mikla framtíð fyrir sér.“ Þá verði það að vera „uppreisnarafl gegn niðurlæg- ingu sem fólki er sýnd með smánar- launum, vinnuþrælkun og óþolandi félagsaðstæðum“, að „skynja þjóðfélag sem breytist mjög ört og sanna hæfni sína til að móta opið, lýðræðislegt framtíðarsamfélag“, að verða „trúverðugur boðberi mann- réttinda, menningar og mannræktar“. Á landsfundinum í haust sýni mál- efnaáherslur, og val á fólki til að fylgja þeim eftir, hvort flokkurinn ætlar að sigla sama sjó eða taka ann- an kúrs. eigu 3000 manna flokksheildar!“ Að lokum þessa kafla fjallar Svav- ar um „valdabaráttu einstaklinga“. Nöfn eru ekki nefnd, enda þekki allir flokksmenn hvaða vandi hér sé á ferð, en „ég fullyrði hins vegar að þessi þáttur mála er ein meginástæða þeirra deilna“ sem uppi hafa verið. Nýtt sóknarskeið í kaflanum „Tillögur til úrbóta“ er fyrst rætt um málefnastarf, sem með- al annars beindist að hinum almenna hugmyndafræðilega vanda vinstri- flokka. Flokkurinn þurfi að brýna stefnu sína í kjaramálum, efna- hagsmálum, atvinnumálum o.s.frv. Á þeim grunni eigi síðan að ákveða starfsstíl og málflutning, „það væri rangt að byrja á stflnum en enda á stefnunni“. Gagnvart verkalýðshreyfingunni á flokkurinn að haga áherslum sínum þannig að hann „verði sem minnst fyrir barðinu á innri vanda verka- lýðshreyfingarinnar og samskipta- erfiðleikum samtaka launafólks“. í þeim efnum þarf líka, segir Svavar, að ná til „hinnar nýju tæknivæddu og skólagengnu verkalýðsstéttar ekki síður en hinna sem vinna við fram- leiðsluna“. Flokknum ber að leggja áherslu á kvennastarf með þeim hætti að starf að jafnréttismálum sé forgangsverk- efni flokksins, meðal annars með sérstökum starfsvettvangi kvenna í tengslum við flokkinn. Svavar telur að þrátt fyrir allt sé hægt að jafna ágreining í verkalýðs- málum á skömmum tíma. Hinsvegar geti í öllum flokkum orðið „hvöss deila um þróun landsbyggðarinnar“. Flokkurinn verði að „taka á byggð- amálunum í heild, bæði stjórnkerfi landsbyggðar og atvinnumálaþróun þar“, ella geti illa farið. Það þarf að kynna nýjar áherslur í flokksstefnunni og halda uppi fræðslustarfi um sósíalisma, og leggja þó einkum áherslu á hinar sjálfstæðu áherslur sósíalísks flokks í því sem „sameinar okkur íslend- inga“. Um starfið inn á við og út á við: „Þessu næst vil ég draga það fram sem meginatriði að flokksmenn leysi vanda flokksins innan flokksins en ekki með upphlaupum og lekum í fjölmiðla. Slík vinnubrögð á að for- dæma einum rómi.“ Flokkurinn á að auki að skipuleggja kerfisbundið flokksliðið til starfa í félagsmála- hreyfingum sem eiga skylt við máls- taðinn. f þriðja lagi er óhjákvæmilegt að endurmeta samskipti flokksins og Þjóðviljans. f þeim efnum eru tveir kostir: „1. Að blaðið verði með skýrari hætti en verið hefur málgagn flokksins, til dæmis á því stigi sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur gagnvart Morgunblaðinu. 2. Að blaðið og flokkurinn losi enn frekar um tengslin en orðið er.“ Svavar hallast að fyrri kostinum og telur óhjákvæmilegt að blaðstjórn taki róttækar ákvarðanir, - miðstjórn, eða landsfundur, eigi einnig að marka þá stefnu sem flokkurinn tel- ur rétt að fýlgt verði. Endurskipulagning skrifstofu er líka á dagskrá, og síðast en ekki síst breytingar á forystusveit flokksins í því skyni „að þar verði til flokks- miðja sem haldi saman um velferð flokksins númer eitt, hvað sem á dynur“. Þeir sem „merktir eru af inn- anflokksátökum síðustu ára“ eiga að skipta um starfsvettvang, og ber að líta svo á að nú séu sæti trúnaðar- manna opin. í síðasta kafla greiningar sinnar, „Út úr pattstöðu - nýtt sóknarskeið“ segir Svavar meðal annars að „röntgenmyndatökunum“ þurfi að ljúka með miðstjórnarfundinum í september, og nýtt sóknarskeið að hefjast með landsfundinum. Á því skeiði leysi flokkurinn sinn eigin vanda og móti skýrar línur um fram- tíð samfélagsins. íslenskt þjóðfélag þurfi að eignast sterkt Alþýðubanda- lag, og jákvæð áhrif af skýrum vinstri málflutningi síðustu dagana fýrir kosningar hafi sýnt að grundvöllur- inn sé fyrir hendi. „Niðurstaðan er sú“ segir Svavar að lokum „að þrátt fyrir allt sé má- lefnalegur ágreiningur minni en margir vilja vera láta, að það sé unnt að gera mál upp með eðlilegum hætti, og að það sé unnt að sækja fylgi, enda komi Alþýðubandalagið allt fram sem heill flokkur - eini flokkur íslenskra vinstri manna.“ Miftvlkudagur 24. Júni 1987 ÞJÓÐVIUINN - StÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.