Þjóðviljinn - 24.06.1987, Blaðsíða 11
ÖRFRÉTTIR
Prestfæð
er tekin að hrjá kaþólsku kirkj-
una. Samkvæmt tölulegum upp-
lýsingum úr Vatíkaninu deyja um
sjö þúsund prestar drottni sínum
árlega, og þeirsem læratil prests
eru ekki nándar nærri nógu
margir til að fylla í skörðin. Ef
marka má tölfræði páfagarðs
voru prestar á snærum kirkjunn-
ar 403.480 í hittifyrra, en voru
433.089 árið 1973. Og það þó
þeim fækki með hverju árinu sem
yfirgefa prestskapinn; árið 1973
voru þeir 3.690, en 1.002 árið
1985.
Miklar róstur
urðu í Leeds á Norður-Englandi í
gær er hundrað svartir unglingar
réðust gegn klámbúllu einni og
jöfnuðu hana við jörðu með
bensínsprengjum. Félagi þeirra
einn hafði verið handtekinn á
sunnudaginn var og gefið að sök
að hafa unnið spjöll á lögreglubíl.
Honum hefur verið sleppt úr
haldi. Frammámönnum í hverf-
inu þar sem sprengjuárásin var
gerð tókst að stilla til friðar, en loft
er mjög lævi blandið.
Yfirmenn
í Suöur-Afríku liggja nú yfir hljóð-
ritunum af ræðu sem Desmond
Tutu erkibiskup hélt nýlega í
Mozambique, og bræða með sér
hvort hann hafi gerst brotlegur
við „öryggislöggjöf" apart-
heidstjórnarinnar. I ræðu sinni
sagði Tutu að sá tími kynni að
renna upp að grípa yrði til ofbeld-
is til að velta óréttlátum vald-
höfum úr sessi. „En ég held að
það sé enn ekki tímabært," sagði
Tutu. Hann er væntanlegur til
Suður-Afríku á mánudaginn.
Löggjafarþingið
á Taiwan samþykkti umdeild lög
um þjóðaröryggi í gær, og líta svo
á að með þeim sé stigið skref í þá
áttina að afleggja herlögin sem
eru í gildi í landinu. Stjórnarand-
staðan stóð fyrir setuverkfalli til
að mótmæla lagasetningunni, en
hann telur hún aðeins andlitslyft-
ingu á herlögunum, en ein klásúl-
an kveður á um að allir stjórn-
málaflokkar verði að afneita
kommúnisma. Herlög hafa verið í
gildi allt frá ’49 er Guomindang
(þjóðernissinnar) hrökkluðust frá
völdum í Kína og flúðu til eyjar-
innar.
Chun Doo Hwan
forseti Suður-Kóreu hyggst hitta
höfuðfjanda sinn í pólitíkinni að
máli í dag. Kim Young Sam heitir
hann og er formaður Lýðræðis-
lega sameiningarflokksins. Þetta
eru mikil tíðindi í flokkapólitíkinni í
Suður-Kóreu, en Chun lét sig haf
það að ákveða að hitta Kim og
leita leiða til að lægja ófriðaröldur
innanlands, eftir að tugþúsundir
námsmanna og annarra mót-
mælenda hafa barist dögum
saman við óeirðalögregluna.
Leonard Bernstein
hefur fallist á að stjórna Concert-
gebouwhljómsveitinni í Amster-
dam seinna í vikunni. Þetta verða
góðgerðartónleikar, og er
meiningin að ágóðinn renni
óskiptur til læknastöðvar þar sem
rannsóknir á eyðniveirunni fara
fram. Bernstein hefur áður stjórn-
að hljómsveitum í Bandaríkjun-
um í sama skyni. Miðinn kostar
ríflega tvöþúsundkall, og auk
þess að leggja góðu málefni lið fá
hljómleikagestir að hlýða á
fimmtu sinfóníu Schuberts og
fjórðu sinfóníu Mahlers.
ERLENDAR FRETTIR
Pershing II meðaldræg skammflaug Bandaríkjamanna sett saman í Vestur-Þýskalandi
Afvopnunarmál
Shullz og
Shevardnadze
funda í júlí
Utanríkisráðherrar risaveldanna munu hittast
í Washington um miðbik nœsta mánaðar.
Að sögn Edwards nokkurs
Rowny, eins helsta ráðgjafa
Ronalds Reagans Bandaríkjafor-
seta í afvopnunarmálum, hafa
þeir Shultz og Shevardnadze,
utanríkisráðherrar risaveldanna,
mælt sér mót í höfuðborg Banda-
ríkjanna ásamt sérfræðingafans
þeim sem ber hita og þunga af
samningaviðræðum landanna í
Genf í því augnamiði að ryðja úr
vegi ágreiningsefnum sem sam-
komulag um meðaldrægar
kjarnflaugar í Evrópu strandar á.
Fundur þeirra mun eiga sér stað
um miðbik næsta mánaðar þó ná-
kvæm dagsetning hafi ekki verið
ákveðin.
Frá því að samningaviðræður
risaveldanna hófust að nýju þann
þrettánda apríl síðastliðinn hefur
nokkuð miðað og báðar samning-
anefndir vinna nú út frá sömu
drögum þar sem kveðið er á um
mikinn niðurskurð meðaldrægra
kjarnaflauga vítt og breitt um
heiminn og algera eyðingu þeirra
og skammdrægra flauga úr Evr-
ópu.
En Rowny bendir á að vinnu-
plaggið sé uppá „130 síður og enn
hefur ekki náðst samkomulag um
eina einustu þeirra". Það hefur
nefnilega að geyma öndverð við-
horf aðila og starf samninga-
nefndanna í Genf er í því fólgið
að reyna að samræma sjónarmið-
in. Að sögn Rowny er ágreining-
ur um fjögur grundvallaratriði og
„erfiðleikar við að leysa þann
ágreining er helsti vandinn í vegi
samkomulags“.
Reaganstjórnin vill að ákvæði
um mjög strangt gagnkvæmt eft-
irlit aðila verði í samningi þannig
að öldungis ógjörlegt verði að
fara á bak við mótherjann.
Rowny fullyrðir að Sovétmenn
fallist á að risaveldin hafi hvort
sína eftirlitsmenn í herbúðum
andstæðingsins en þeir hafni
hinsvegar hugmyndum Banda-
ríkjamanna um hvernig best sé að
haga slíku eftirliti og láti jafn-
framt undir höfuð leggjast að
færa fram tillögur sjálfir um þetta
efni.
Annar ásteytingarsteinn er
ákvæði í drögunum um að hvor
aðili um sig megi eiga 100 meðal-
flaugar svo fremi þær séu utan
seilingar Evrópu. Rowny segir
Sovétmenn leggja á það mikla
áherslu í Genf að fá haldið að
minnsta kosti 33 meðalflaugum
með þrem kjarnoddum hverri í
Asíuhluta ríkisins. Hann kvað
þessa stífni Kremlverja flækja
samningamálin að mun. Sjálfir
segja Sovétmenn brýna nauðsyn
bera til að þeir fái haldið þessum
flaugum þar sem þær séu eina
mótvægi þeirra gegn kjarnflota
Bandaríkjamanna á Kyrrahafi.
Rowny gat um tvö önnur mál
sem væru þrándur í götu
samkomulags. Þau snertu
skammdrægu flaugarnar og 72
Pershing 1-A flaugar í eigu
Vestur-Þj óðverj a.
Fyrr í þessum mánuði söðlaði
Reaganstjórnin um í skamm-
flaugamálinu og krafðist þess að
ekki væri látið staðar numið við
eyðingu þeirra úr Evrópu heldur
yrðu þær allar að fokka, hvar sem
risaveldin hefðu holað þeim nið-
ur.
Krafan er náttúrlega einkenni-
leg því Sovétmenn eiga um 120
slíkar flaugar, 80 í Evrópu en 40 í
Asíu, en Bandaríkjamenn standa
á því fastar en fótunum að þeir
eigi enga slíka flaug.
Það er alkunna að Gorbatsjof
hefur fyrir löngu fallist á að eyða
öllum skammflaugum úr Evrópu
en Shultz er einn til frásagnar um
það að hann hafi, á fundi þeirra í
Shultz og Shevardnadze. Þeir hyggjast freista þess að ná samkomulagi um að
flaugarnar verði teknar í sundur aftur.
Moskvu nýskeð, einnig sam-
þykkt eyðingu Asíuflauganna.
Samningamenn Kremlverja í
Genf hafa enn ekki fengið fyrir-
mæli um að fallast á eyðingu
skammdrægra flauga úr Asíu, að
sögn Rownys, en þess væri vart
langt að bíða að þau bærust.
Hvað viðvíkur þýsku flaugun-
um þá hafa Sovétmenn sagt sem
svo að ekkert geri til þótt Bonn
haldi þeim áfram svo fremi um
kjarnoddana verði samið í Genf
en þeir eru nú í vörslu bandaríska
setuliðsins í Vestur-Þýskalandi.
-ks.
Zimbabwe
Foiréttíndi hvítra afnumin
Forseti landsins gerðiþinginu ígœr greinfyrir tveim veigamiklun nýmœlum sem
ganga ígildi íár, afnámiforréttinda hvítra áþingi og stofnun valdamikils forseta-
embœttis
Ráðamenn í Zimbabwe hafa
látið það boð út ganga að
þingforréttindi hvíta minnihlut-
ans verði afnumin i ár og í sam-
tímis verði deildaskipting þings-
ins látin fokka og allir fundir
haldnir í einni málstofu.
Hvítir íbúar Zimbabwe eru nú
um 100. 000 talsins. en alls eru
landsmenn um átta miljónir. Þeg-
ar stjórnarskrá landsins var sett
saman árið 1979 höfðu Bretar
hönd í bagga og studdu dyggiiega
þá kröfu hvíta minnihlutans að fá
myndarlegan kvóta þingsæta til
ráðstöfunar á þingi í að minnsta
kosti sjö ár frá gildistöku stjórn-
skipunarlaganna. Þeir hafa nú til
ráðstöfunar 20 af 100 sætum í
fulltrúadeild þings Zimbabwe en
10 af fjörutíu í Oldungadeild.
Það var forseti landsins, Cana-
an Banana, sem gerði grein fyrir
breytingunum í gær við setningu
þingsins. Honum mæltist á þessa
lund:
„í fyrri stjórnarskrá var kveðið
á um misrétti kynþátta í sjö ár.
Þau sjö ár eru nú liðin. í samræmi
við þau fyrirheit sín að afnema
þessa mismunun við fyrsta tæki-
færi hyggst stjórn mín færa til
betri vegar ýms ákvæði stjórnar-
skrárinnar þannig að allir þegnar
sitji við sama borð þegar fulltrúar
eru valdir til setu í báðum
deildum þings.“
Ennfremur sagði Banana frá
þeim ásetningi stjórnarinnar að
sameina báðar deildir þingsins í
eina málstofu, að stofna valda-
mikið forsetaembætti sem hefði
framkvæmdavald með höndum
og að liðsinna eftirleiðis sem
hingaðtil ráðamönnum í Mó-
sambik í baráttu þeirra við hægri-
sinnaða skæruliða.
-ks.
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11