Þjóðviljinn - 24.06.1987, Qupperneq 15
Og
þetta
Uka...
Gornik Zabrze
heitir liðið sem um helgina sigraði í 1.
deildinni í Póllandi. Peir töpuðu þó
síðasta leik sínum. í 2. sæti varð Pog-
on Szczecin og í 3. sæti Katowice.
Fyrirliði ítalska
liðsins Fiorentina, Giancarlo Antog-
noni, hefur gert tveggja ára samning
við Lausanne í Sviss. Laun Antog-
noni hjá Lausanne verða um 20 milj-
ónir kr. á ári.
Úrslitum
í leik Belgíu og írlands í Evrópu-
keppni landsliða U-21 árs hefur verið
breytt úr 1-1 í, 3-0 frum í vil. Belgar
notuðu þrjá eldri leikmenn, en mega
aðeins nota tvo. Þeir voru einnig
dæmdir í 80.000 króna sekt. Tyrkir
voru einnig sektaðir, fyrir slæma
hegðun áhorfenda, í leik þeirra gegn
Englendingum sem lauk 0-0. Tyrkir
þurfa að punga út 260.000 krónum.
Þá voru Svíar og Júgóslavar einnig
sektaðir fyrir svipaðar sakir.
Tottenham
hefur fengið Gary Mabbut til að vera
áfram hjá liðinu. Mabbut hafði áhuga
á að fara til Manchester United, en
féllst á að skrifa undir nýjan samning
við Tottenham. Þá hefur Chris Fairc-
lough skrifað undir samning við Tott-
enham, en hann lék með Nottingham
Forest.
Dortmund
hefur keypt Murdeo MacLeod frá
Celtic í Skotlandi. Samningurinn
gildir til tveggja ára. Þá hefur félagi
hans hjá Celtic, Maurice Johnston
gengið til liðs við Nantes í Frakk-
landi.
Pisa
og Pescara heita nýju liðin í 1.
deildinni á ftalíu. Pisa sigraði í 2.
deild og Prescara hafnaði í 2. sæti.
Þrjú lið höfnuðu í 3.-5. sæti og verða
að Ieika sín á milli um sæti í 1. deild.
Það eru Cremonese, Cesena og
Lecce.
Marseille
náði ekki að vinna deildinni í Frakk-
landi og Michel Hidalgo fram-
kvæmdastjóri og Gerard Banide,
þjálfari hafa nú verið dæmdir í bann.
Þeir töpuðu í síðasta leik gegn Paris
SG og létu dómarann heyra það með
þeim afleiðingum að þeir verða að
fylgjast með leikjum liðsins úr áhorf-
endastúku í fyrstu leikjum liðsins
næsta keppnistímabil.
Stuttgart
hefur gefið Karl Allgöwer lokafrest
til sunnudags til að ákveða hvort hann
verður áfram hjá liðinu. Þrátt fyrir að
samningur Allgöwers renni ekki út
fyrr en 1988, hefur hann margoft lýst
því yfir að hann vilji fara eitthvað
annað. Hann hefur m.a. átt í við-
ræðum við austurríska liðið Sturm
Graz.
ítalska félagið
AC Milan hefur gengið frá samning-
um við Frank Rikjaard, varnarmann
Ajax. Hann getur þó ekki leikið með
liðinu nema lögum um fjölda útlend-
inga verði breytt. Ruud Gulllit og
Marco Van Besten eru fyrir hjá Milan
og ef reglunum verður ekki breytt
getur Milan ekki notað Rikjaard.
ítalir
hafa verið útilokaðir frá þátttöku í
Heimsmeistarakeppni landsliða
undir 16 ára í knattspyrnu. ftalir sig-
ruðu í Evrópuriðlinum, en leikmenn
liðsins voru of gamlir. Það verða því
Sovétmenn og Frakkar sem keppa
fyrir hönd Evrópu í HM, auk Tyrk-
lands eða Vestur-Þýskalands, en liðin
eiga eftir að leika sín á milli um 3.
sætið.
Landsliðsmaðurinn
frá Argentínu, Jorge Valdano, hefur
endurnýjað samning sinn við Real
Madrid. Hann datt úr liðinu í fyrra
sökum veikinda. Hann er þriðji út-
lendingurinn hjá Real Madrid, en
þeir mega aðeins vera tveir.
Frjálsar íþróttir
/
A Grand Prix móti í Prag
Einar í 4. sæti
Elnar Vllh jálmsson náði sér ekki á strik í Prag í gær og var langt f rá sínu besta.
Einar Vilhjálmsson hafnaði í 4.
sæti á Grand Prix móti í Prag í
gær. Hann kastaði 76.54 metra.
Það var Sergei Yvesyukov sem
sigraði, kastaði 82.28. Nicu Ro-
ata frá Rúmeníu hafnaði í 2. sæti
með 81.16 og Peter Borglund frá
Svíþjóð í 3. sæti, kastaði 76.66.
Einar kastaði 79.24 metra á
Flugleiðamótinu um síðustu helgi
og það hefði fært honum 3. sætið.
Aðstæður til íþróttaiðkanna
voru hinar verstu. Mikil rigning
og árangur eftir því. Þó leit eitt
heimsmet dagsins ljós.
Sergei Bubka setti heimsmet í
stangarstökki. Hann lyfti sér
auðveldlega yfir 6.03 metra og
bætti sitt eigið heimsmet um tvo
sentimetra.
Met Bubka var ársgamalt, en
hann hafði oft komist nálægt því.
Og nú loks í 3. tilraun fór hann
yfir. „Þetta var mjög erfitt vegna
veðurs og ég hélt að ég gæti það
ekki, en strax í fyrstu tilraun fann
ég að ég átti möguleika," sagði
Bubka.
Þetta var 7. heimsmet Bubka,
en hann hefur einokað greinina
undanfarin tvö ár.
Úrslit í öðrum greinum komu
ekki ýkja mikið á óvart. Stærstu
nöfnin sigruðu í flestum greinum.
Alberto Cova sigraði með góðum
endaspretti í 3.000 metra hlaupi á
Handbolti
Erfitt í Júgóslavíu
Landsliðið á mjög sterku móti
Landsliðið í handknattleik er
nú á leið til Júgóslavíu á mjög
sterkt alþjóðlegt mót. Liðið var
tilkynnt í gær.
Róðurinn verður án efa mjög
þungur. Með íslendingum í riðli
eru Sovétríkin, Noregur og gest-
gjafarnir Júgóslavía. í hinum
riðlinum er Austur-Þýskaland,
Ungverjaland, Spánn og U-21 árs
landslið Júgóslavíu.
Fyrsti leikurinn er gegn Sovét-
ríkjunum á laugardag, því næst
gegn Norðmönnum og Júgó-
slavíu.
Hópurinn sem fer til Júgósla-
víu:
Markverðir
Einar Þorvarðarson
Brynjar Kvaran
Guðmundur Hrafnkelsson
Aðrir leikmenn
Þorgils Óttar Mathiesen
Þorbjörn Jensson
Jakob Sigurðsson
Karl Þráinsson
Knattspyrna
Markalaust ár!
Gengi Skallagríms hefur ekki
verið með besta móti að undan-
förnu, en þeir skoruðu þó tvö
mörk um helgina og það voru
fyrstu mörkin i deildarkeppninni
í tæpt ár, eða nákvæmlega 51
viku!
Skallagrímur hefði ekki skorað
mark í deildarkeppninni síðan
28. júní 1986. Þá skoraði Þór
Daníelsson tvö mörk gegn Þrótti,
en Skallagrímur tapaði þeim leik,
2-9. Það var svo loks nú um síð-
ustu helgi að Skallagrímur
skoraði aftur. Snæbjörn Ottars-
son og Bjarni Sigurðsson
skoruðu sitt hvort markið gegn
Njarðvík. Skallagrímur tapaði
samt, 2-3.
Þetta voru því fyrstu mörkin í
13 leikjum. Það gerir alls rúmar
1200 mínútur eða 20 klukkutíma.
-Ibe
Knattspyrna
íkvöld
árs
Islenska landsliðið U-21
leikur í kvöld gegn Dönum.
Leikurinn er á Akureyri og
hefst kl. 19.
7:53.98 sekúndum. Imrich Bugar
sigraði í kringlukasti með 66.20
metra kasti. Það sem mest kom á
óvart var að Amelia Nuneva frá
Búlgaríu, sem á besta tímann á
árinu í 100 metra hlaupi kvenna
tapaði fyrir landa sínum Nadeza
Georgieva og gæti því misst sæti
sitt í landsliðsinu fyrir Evrópu-
bikarkeppnina í Portúgal.
-Ibe
Sigurður Gunnarsson
Alfreð Gíslason
Páll Ólafsson
Guðmundur Guðmundsson
Kristján Arason
Geir Sveinsson
Sigurður Sveinsson
Atli Hilmarsson
Júlíus Jónasson
Þorbergur Aðalsteinsson fer
ekki með sökum meiðsla. Hann
hefur æft með liðinu að undan-
förnu, en meiddist á æfingu nú
fyrir skömmu. „Ég tognaði í baki
og get ekkert spilað,“ sagði Þor-
bergur í samtali við Þjóðviljann.
Ég verð líklega góðan tíma að ná
mér og lítið annað að gera á með-
an en slappa af.“
Þetta mót er mjög sterkt og
heimamann ætla sér stóran sigur.
En Sovétríkin og Austur-
Þýskaland eru með mjög sterk lið
og munu líklega setja strik í
reikninga heimamanna.
-Ibe
Körfubolti
Sigur gegn
íslenska unglingalandsliðið lék
um helgina tvo leiki gegn úrvals-,
liði frá Kentucky. Islendingar
höfðu sigur i fyrri leiknum, en
töpuðu þeim síðari.
íslenska liðið lék mjög vel í fyr-
ri leiknum og var yfir allan tím-
ann. í hálfleik var staðan 39-33 og
leiknum lauk með sigri íslands,
78-76.
Herbert Arnarson átti mjög
góðan leik og skoraði 25 stig,
Guðjón Skúlason skoraði 15 og
Falur Harðarson 10.
íslensku strákarnir byrjuðu
mjög vel í síðari leiknum og
leiddu framan af. í hálfleik var
staðan 50-42 íslandi í.vil.
En í síðari hálfleik gekk ekkert
upp og Kanarnir sigu framúr og
sigruðu 76-71.
Guðjón var stigahæstur í
leiknum með 15 stig, Herbert 13
og Guðmundur Bragason 9,-Jbe
Knattspyrna
Dregiö í
bikamum
Búið er að draga í 3. umferð
Mjólkurbikarkeppninnar. Lið úr
2. deild leika saman í tveimur
leikjum.
ÍR og Víkingur leika saman og
Leiftur og KS.
Öruggt er a.m.k. eitt lið úr 3.
deild kemst í 16-liða úrslit.
Reynir Sandgerði og Stjarnan
leika saman og það lið sem sigrar
leikur í 16-liða úrslitum, en þá
koma lið úr 1. deild til sögunnar.
Þessi lið lentu saman í 3. umferð:
iR-Víkingur
Grindavík-Selfoss
Leiknir-ÍBV
Reynir-Stjarnan
Leiftur-KS
ÞrótturN/Huginn-Höttur/Einherji
Sigurvegararnir komast áfram í 4.
umferð, auk liðanna úr 1. deild.
-Ibe
Punktar úr 6. umferð
Hinrik Þórhallsson, KA, lék á
föstudagskvöldið sinn 150. leik í
1. deildarkeppninni, gegn Völsu-
ngi. Hann lék 67 leiki með Breiða-
bliki, 31 með Víkingi og hefur nú
leikið 52 leiki með KA í 1. deild.
Þrír leikmenn léku í fyrsta
skipti í 1. deild á föstudagskvöld-
ið. Pétur Óskarsson með Fram
gegn FH, Árni Þór Freysteinsson
með KA gegn Völsungi, og
Steinn Magnússon með FH gegn
Fram.
Tveir skoruðu sitt fyrsta 1.
deildarmark fyrir nýtt félag,
Andri Marteinsson fyrir KR,
gegn Þór, og Björgvin Björgvins-
son fyrir Víði, gegn ÍBK, sem
hann lék áður með. Björgvin var
reyndar leikmaður með Víði
áður en félagið komst í 1.
deildina. Helgi Bentsson lék á ný
með ÍBK eftir ársdvöl hjá Víði og
skoraði, gegn Víði!
Þorvaldur Örlygsson, KA,
skoraði sitt fyrsta 1. deildarmark,
gegn Völsungi.
Haraldur Ingólfsson, fA,
skoraði sitt fyrsta 1. deildarmark,
gegn Val.
Ingi Björn Albertsson skoraði
sitt fyrsta 1. deildarmark fyrir Val
í 4 ár. Það var hans 126. mark í 1.
deildarkeppninni en enginn ann-
ar íslenskur knattspyrnumaður
hefur náð 100 mörkum.
KR vann sinn stærsta sigur í 1.
deild í 10 ár, 5-0 gegn Þór. Fyrir
10 árum unnu KR-ingar einmitt
Þórsara með 6-0, en þá féllu bæði
liðin í 2. deild.
ÍBK hefur unnið alla 1.
deildarleiki sína gegn Víði, 5 tals-
ins, og er eina liðið sem getur
státað af slíkri sigurgöngu gegn
Garðsbúum. Reyndar fékk Víðir
3 stig frá ÍBK með kæru í fyrra.
Þorsteinn Halldórsson, KR,
fékk sitt þriðja gula spjald í 6.
umferðinni en áður hafði Ian
Fleming, FH, unnið sama afrek.
Eitt spjald í viðbót þýðir eins
leiks bann fyrir þá félaga.
-VS
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15