Þjóðviljinn - 28.06.1987, Síða 3

Þjóðviljinn - 28.06.1987, Síða 3
Ingimar í sjónvarpið Geysir gefinn út vestanhafs Stutt spjall við Ásmundí Gramminu um íslenska tónlist ó Bandaríkjamarkaði, fyrsta geisladiskinn hérlendis og Sykurmolana „Könunum finnst þessi músík athyglisverð söguleg heimild og merkilegtónlistarlegaséö. Þeir hafa áhuga á þessari bylgju sem reis sem hæst hér á landi upp úr 1980,” sagði Ásmundur Jóns- son í Gramminu í samtali við Sunnudagsblaðið en um næstu mánaðamót kemur út í Banda- ríkjunum platan GEYSIR. Á GEYSI verður tónlist með fjölmörgum hljómsveitum og einstaklingum; Kuklinu, Þey, Þorsteini Magnússyni, Purrkn- um, Hilmari Erni Hilmarssyni, Das Kapital og Sveinbirni Beinteinssyni, svo nokkur nöfn séu tiltekin. - En kunna Bandaríkjamenn að meta íslenskt rokk, - er það ekki einhver afdalatónlist fyrir þeim? „Innan þess markaðar sem er skilgreindur independent er tals- verður áhugi, ekki hvað síst á Þeysurunum og Kuklinu. En það stendur til að gefa þessa plötu út í Kanada og Evrópu líka og það er verið að reyna að vekja áhuga Japana.” - Verður plötunni fylgt eftir með tónleikahaldi vestanhafs? „Nei, við kynnum plötuna á tvennan hátt. Ánnars vegar í út- varpsstöðvum og hins vegar með myndböndum. Ég hef þegar fengið slatta af bréfum frá stöðv- um í Bandaríkjunum og þau eru mjög jákvæð og skemmtileg. Myndböndin verða í eldri kantin- um, flest síðan Þeyr var upp á sitt besta. í haust er síðan væntanleg plata á markaðinn frá sama fyrir- tæki, safnplata með Þeysurun- um, en tónlist þeirra virðist ætla að standast tímans tönn býsna vel.” - Stendur þá ekki til að hóa Sunnudagur ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 þessari sveit saman á nýjan leik úr því heimsfrægðin er loks á næsta leyti? „Ég minntist nú á það við nokkra af fyrrum meðlimum hljómsveitarinnar þegar sýnt var að platan þeirra kæmi út í Banda- ríkjunum. Þeyr fórnuðu höndum yfir tilhugsuninni einni saman. Þeyr tilheyrir fortíðinni.” - Það var og. En hvað er að frétta af útgáfumálum Gramms- ins að öðru leyti? „Þessa dagana erum við að gefa út fyrsta diskinn sem er gerð- ur fyrir geislaspilara. Það gerum við í samvinnu við Japis sem er innflytjandi þessara tækja. Á þessum fyrsta diski verður Frelsi til sölu með Bubba Morthens. Sú hljómplata hefur nú selst í 15000 eintökum og er þannig ein af mest seldu plötum á landinu frá upphafi. Áð auki eru fjögur önnur lög Bubba á diskinum; tvö af Das Kapital plötunni og síðan nýtt lag við ljóð Snorra Hjartarsonar, Þjóðvísa. I haust er einmitt vænt- anleg frá Bubba trúbadorplata, þar sem þetta lag verður væntan- lega líka. - Og Sykurmolarnir ykkar, hvað eru þeir að bedrífa þessa dagana? „Nú á næstunni kemur út á Englandi smáskífa með þeim og á næstu þrernur mánuðum væntan- lega önnur til viðbótar og svo stór plata. Það verður gaman að fylgj- ast með hvernig þeim gengur. Snati tekinn á beinið Elskulegur Snati. Þar sem þú sjálfur ert nú ekki hugaðri en svo að þora ekki að klóra undir nafni þá hef ég ekki hugsað mér að gera það heldur (það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra-reglan). En ástæða þess að ég finn hjá mér þörf til að sletta bleki á blað eru skrif þín, en þó sérstaklega þann 21. júní síð- astliðinn. Raunar hef ég ekki gert mér fyllilega grein fyrir því hvort um grín eða alvöru var að ræða, en hafi þetta átt að vera grín er skopskyn þitt svo sannarlega bág- borið, mun bágbornara en þeirra Jóns Áxels og Péturs Steins. Ekki þar fyrir að ég voni það ekki. Það var þessi þriðji kafli (skrif- aður með rómverskum tölum - góð íslenska það) sem fór svona eitthvað í taugarnar á mér. Þú skrifar: „Jón Axel, Pétur Steinn og fleiri góðir menn, vart mæl- andi á íslensku og þaðan af síður með vott af skopskyni, tröllríða þjáðum hlustum þjóðarinnar. Þeir eru alltaf í góðu skapi þessir strákar. Ausa auðfúsir úr brunnum fáfræði sinnar og aula- fyndni. Og þeir eru allir eins. Þeir eru hetjur hvunndagsins sem auglýsa týndar lyklakippur og steikarpönnur; spyrja hlustendur út úr um fæðingardag frelsarans og trommuleikarann í U2.“ Ég skal ekki dæma um skop- skyn né íslenskukunnáttu þeirra Bylgjumanna, enda enginn sér- fræðingur í þeim efnum, en hitt er annað mál að oft er það nú svo að fólk sér svo óskaplega vel flísina í auga annarra þrátt fyrir bjálkann sinn stóra og mikla. Nóg um það. En það var þetta með fáf- ræðina sem ég ætlaði mér að fetta fingur út í. Því að þetta sem þeir Jón Axel, Pétur Steinn og fleiri hafa verið að miðla okkur hlust- endunum á ekkert skylt við heimsku. Viska um popptónlist, týndar lyklakippur og steikar- pönnur er viska líka og ekkert síðri en önnur þó svo að þú eigir erfitt með að melta hana. Og kvelji hún eitthvað hlustir þínar er kominn tími til að þú skoðir leiðbeiningarnar með viðtækinu þínu og reynir að komast að því hvar „off-takkinn“ er staðsettur á því. Það er nefnilega staðreynd sem þú verður bara að sætta þig við, elskulegur Snati minn, að þetta er það sem þjóðin vill. Fjöldi þeirra sem hringja og reyna að finna svarið við því hver fæðing- ardagur frelsarans er og gefa upp ýmsar upplýsingar um trommu- leikarann í U2 er sönnun þess. Og Snati minn! Hvað er að því að vera í góðu skapi? Nei, það er satt að frelsið (og þá ekki síður prentfrelsið) fæðir af sér fífl. Að minnsta kosti ætla ég að vona að þú hlífir okkur les- endum Þjóðviljans við frekari loppuförum þínum, séu þau öll í þessum dúr. Að öðrum kosti verður ekki langt að bíða þess að þetta ágæta blað verði orðað við sorpblaðamennsku þá sem þú varst svo duglegur að saka þá kol- lega þína á DV um. ScY\ol-rfeL Uppstokkunin á yfirstjórn sjónvarpsins heldur áfram. Ekki er langt síðan Bogi Ágústsson var gerður að hægri hönd útvarpsstjóra. Nú er í kyrrþey búið að gera fréttamanninn góðkunna, Ingimar Ingimarsson, að aðstoðarframkvæmdastjóra sjónvarpsins... ■ Tídindi í Teningi Listtímaritið Teningur er væntanlegt á næstu dögum. Meðal efnis í blaðinu að þessu sinni er viðtal við Gyrði Elíasson skáld og Kristján Guðmundsson myndlistar- mann. Það sem þó sætir mestum tíðindum er áður óbirt Ijóð eftir sjálfan Sigfús Daðason, en a.m.k. tíu ár eru nú liðin síðan hann birti síðast Ijóð eftir sig. Ljóðaunnendur hafa því tilefni til að gleðjast... ■ Á besta aldri Af bókaútgáfu er það einnig að frétta að þær Þuríður Pálsdóttir og Jóhanna Sveinsdóttir munu nú vinna að bók um breytingaskeiðið hjá konum. Jóhanna gerði ís- lenskum elskhugum skil í einni bók hér um árið og Þur- íður var með söluhæstu bók- ina á síðustu vertíð. Og það er Forlagið sem gefur þessa bók út. Og nafnið- að sjálfsögðu: Á besta aldri! ■ Holland Biðjið fyrir heiðríkju! Veðurguðirnir hafa ekki verið Hollendingum hliðhollir að und- anförnu. Það sem af er júnímán- uði hefur rignt svo að segja lát- laust og muna landsmenn ekki eftir annarri eins úrkomu um hás- umarið né kuldum. Nú er svo komið að jafnvel strangtrúuðum kaþólikkum þyk- ir nóg komið af hnerrum og snýt- ingum. í gær létu leiðtogar þeirra það boð út ganga til presta og preláta að þeir fengju fólk til liðs við sig til að fá almættið í betra veðurskap með innilegum bæn- um um skýjarof og sólarglætu. - ks

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.