Þjóðviljinn - 28.06.1987, Síða 4
Ljón Norðursins við styttu Einars Jónssonar at Brautryðjandanum á Austurvelli. Ljósm. Sig.
Sjáandinn með stafinn í eyðimöriánni
LJÓN NORÐURSINS, LEÓ ÁRNASON HÚSASMIÐUR OG LÍFSKÚNSTNER 75 ÁRA
Það stafar af honum Ijóma þar
sem hann situr við borð sitt í
gyllta salnum á Hótel Borg:
gráspengt og slegið hárið,
sem gengur í bylgjum uppaf
hvelfdu enninu, loðnarauga-
brýr sem geyma leiftrandi
augu er lýsa undarlegu sam-
blandi af stráksskap og stór-
mennsku, alhvítt og grósku-
mikið skeggið sem undirstrik-
ar dökkt yfirbragð og grátein-
óttur jakki, sem liggur laus á
báðum öxlum og gefurtil
kynna ásamt með vindlinum á
milli fagurmótaðra fingra og
flúruðum stafnum við stólbrík-
ina að hér situr höfðingi í
stafni: „Ég ervökumaðurog
sjáandi," segirhann, „einfar-
inn með stafinn í eyðimörk-
inni.“
Hann gengur undir nafninu
Ljón Norðursins, en heitir réttu
nafni Leó Árnason og er 75 ára
um þessar mundir. Fundur okkar
á Hótel Borg var af því tilefni og
hann sagði mér frá æsku sinni og
uppruna, foreldrum og litríkum
æviferli og kryddaði frásögnina
með ljóðum sem hann mælti af
munni fram eins og ekkert væri
sjálfsagðara:
Við ysta haf
„Ég er ættaður frá Mánavík
nyrst á Skaga og alinn upp við
blíðu og hörku. Faðir minn var
smiður hörkuduglegur og ég var
talinn lifandi eftirmynd hans, en
móðir mín hét Anna Lilja Tóm-
asdóttir og ól mig upp við Vídal-
ínspostillu og Helgakver.
Fyrstu bernskuminningar mín-
ar eru frá því þegar bróðir minn
var að kveða rímur og móðir mín
var að syngja úr grallaranum á
dimmum vetrarkvöldum. Ég
var smali í æsku og yfirsetan yfir
ánum er mér minnisstæðust úr
bernsku. Ég lærði af skepnunum
og skepnurnar hændust að mér.
Þarna var stórgrýtt lyngvaxið
fjalllendi og fjörubeit og allra
veðra von. Á vetrum, þegar
heiður var himinn myndaðist
stundum svartur og rauður bakki
við sjóndeildarhringinn, og þá
gat hann skollið á með 10 vind-
stigum eins og hendi væri veifað.
Þá var gott að eiga góðan foryst-
usauð, og ég man að það kom
fyrir að ég lagði mig í skjól undir
kverkina á forystusauðnum. Þar
var þögnin og hlýjan sem mér er
minnisstæð.
Við smalarnir fengum 3 sauði í
laun fram að fermingu, en á ferm-
ingardaginn fengum við 3 ær
loðnar og lembdar, hnakk, beisli
og loforð um hest. En ég eignað-
ist minn fyrsta hest fyrir ferm-
ingu, það var folald sem ég fann
að dauða komið úti á víðavangi
og vó ekki meira en hundur.
Þetta var foli, og hann var svínal-
inn í fjósinu og ég hirti hann eins
og barn, og þetta varð mesti fjör-
hestur sem ég hef átt. Hann hét
Erill og náði aldrei stærð á við
aðra hesta. Ég sat yfir 100
sauðum og 75 lömbum, og eitt
vorið fengum við 30 þrílembur.
Hringjari
í Hólaskóla
Ég fór á Hólaskóla og þótti
strax öðruvísi en fólk er flest. Ég
var hringjari í skólanum og komst
áfram á kröftunum. Það stóðust
mérfáirsnúningíslagsmálum, og
það þótti fyrir mestu á þeim
árum. Á Hólum áttum við í mesta
lagi tvennar buxur og skyrtur og
nærföt til skiptanna en það var
vel að okkur búið samt, og þeir
Jósep Björnsson og Steingrímur
Steinþórsson voru skilningsríkir
kennarar.
Faðir minn var smiður, og ég
hjálpaði honum við smíðarnar frá
5 ára aldri.
Á saltfisklofti
í Grindavík
Ég kom fyrst til Reykjavíkur
1931 og fór þá beint hingað á
Borgina. Hún hefur verið mitt
annað heimili í Reykjavík síðan.
En ég fór áfram suður til Grinda-
víkur, smíðaði þar yfir 8 tonna
trillu og sótti þaðan sjóinn einn
vetur. Við sváfum á loftinu í
saltfiskshúsinu og kaupið eftir
veturinn átti að vera 160 krónur,
en ég fékk það aldrei borgað.
Stakkurinn og fleira sem ég hafði
fengið í úttekt hjá Geysi fyrir
vertíðina kostuðu hins vegar 140
krónur, þannig að ég varð ekki
ríkur á þessari útgerð, en ein-
hvern veginn leið manni samt vel.
Eftir Grindavíkuræfintýrið
gerðist ég vinnumaður hjá Olafi
lækni í Þjórsártúni, heyjaði þar
ofaní 18 kýr og fékk vel goldið
fyrir. Síðan fór ég á Laugavatns-
skólann, lauk honum á 2 árum og
kom svo til Reykjavíkur.
Ég varð nasisti í 2-3 mánuði
eftir Laugarvatnsdvölina, - það
gekk ýmislegt á á þessum árum,
og ég sigldi norður til Akureyrar í
nasistabúningnum. Ég var á Ak-
ureyri fram á stríðsárin, og þegar
ég kom suður aftur var herinn
kominn.
Ég átti þátt í því að stofna
verkamannafélagið Óðin þegar
ég kom suður, það var félag
verkamanna í Sjálfstæðisflokkn-
um. Ég held að ég hafi alltaf verið
íhaldsmaður, en ég hef þó aldrei
kunnað að fara með peninga. En
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki
lengur það sem hann var og ég á
þar ekki heima lengur. Olafur
Thors og Jakob Möller, það voru
mínir menn.
Konur eru
blómin okkar
Ég náði mér í réttindi sem
húsasmiður í Reykjavík og hef
síðan byggt um 300 íbúðir, þar af
4-5 endurgjaldslaust fyrir kunn-
ingjana. Ég hef rekið prjónastofu
í Hveragerði með 50 manna
starfsliði og íssjoppu í Reykjavík
fyrir Steingrím Hermannsson. Ég
er tvígiftur og átti 8 börn, en með
hvorugri konunni bý ég og guð
blessi þær báðar. Mér þykir vænt
um konur, þær eru blómin okk-
ar...“ Það færist bros yfir Ljón
Norðursins og hann mælir fram
eftirfarandi kvæði:
Ég sá hana gegnum glerið
við gluggann hún sat.
Ég sá ekki hvort hún var
ínokkru
eða hafði á sér lítið fat.
Ég sá en ég skynjaði ekki
hvernig hún gat
átt þessa einstœðu fegurð.
Því hún var eins og brumið
sem býður upp á allt,
hún var eins og bergið,
bæði hvítt og svart,
og hún var eins og báran,
Sjáandinn og vökumaðurinn
með stafinn í eyðimörkinni rís úr
sæti sínu og býður upp á kveðju-
sem býr við lítinn stein,
og hún var eins og björkin,
sem staðið getur ein....
Heimför
Ljón Norðursins segir mér að
áhugi hans hafi fyrst og fremst
blundað í athöfninni, en hugur
hans hafi þó glímt meira við það
að dvelja utan gufuhvolfsins en
inrian þess. En við þessi tímamót
ævinnar verður bernskan honum
áleitin og það vegarnesti sem
hann hlaut úr foreldrahúsum. Og
hann fer að lokum með fyrir mig
kvæði sem hann kallar Heimför
og tileinkar móður sinni:
skál að höfðingjasið. Heill sé
honum, sjötíu og fimm ára
gömlum. —ólg
Ég fletti upp blaði í lífs míns bók
í blátœrri lind sé ég mynd þá er skóp
þann veg sem allur er troðinn
affótum sem fluttu mig feti oft nœr.
Fullið var slegið síðast í gcer.
En þó er markið máski aldrei fjœr,
ég móki í vökulum ósi.
En ég sigli úr höfn út á sœdrifið haf
seltan þar þyrlar sér meira.
Og blásvartar holskeflur kyrja sinn brag,
það hriktir í stefni og reiða
er öskrandi veður hið brjálaða haf;
horfið er mastur og fleira.
En ég stefni til norðurs því óttu þar á
sem býður mér betri daga.
Því þar logar nóttin sem gullroðið traf
frá guðs sköp til síðustu daga.
Og þar er þaninn strengur á milli lofts og hafs,
sem tendrar sína Ijóðlínu við bergsins svörtu brúin.
Og því á ég þennan eld sem að eilíflega brennur
á boðans hvössu sköflum við örlaganna rún,
en skuggsýn hefur búið mér sköp í skúta á norðurhjara,
og ég sigli norður nakinn og fer ekki í föt
þessa björtu og síðustu daga.
Þar á ég líka móður, sem unni mér mest
af alhug og einlœgum vilja.
Og þaðan eru minningar sem meitluðu flest
af því sem hinir ekki skilja.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 28. júní 1987