Þjóðviljinn - 28.06.1987, Síða 7

Þjóðviljinn - 28.06.1987, Síða 7
DRAUGASAGAN „Skemmtilegt er myrkrið" Eftir Gunnar Hersvein. Myndskreyting eftir ÓlafHelga Ég komst um daginn yfir draugasögu sem Jón Árnason hafði átt í fórum sínum. Af ó- kunnum ástæðum lét hann aldrei prenta þessa sögu. Aftur á móti birti hann stytta útgáfu af henni með allt annarri atburðarás. Sag- an sú arna kom fyrir almennings- sjónir undir nafninu „Skemmti- legt er myrkrið” og hljóðar svo: „Ifyrndinni og allt til vorra daga var það landssiður að vaka yfir líkum og var það oftast gjört við ljós er nótt var eigi albjört. Einu sinni dó galdramaður nokkur, forn í skapi og illur viðfangs. Vildu fáir verða til að vaka yfir líki hans. Þó fékkst maður til þess sem var hraustmenni mikið og fullhugi að því skapi. Fórst hon- um vel að vaka. Nóttina áður en átti að kistuleggja slokknaði ljós- ið litlu fyrr en dagur kom upp. Reis þá líkið upp og mælti: „Skemmtilegt er myrkrið.” Vökumaður svaraði: „Þess nýtur þú ekki.” Kvað hann þá vísu þessa: „Alskínandi er nú fold, út er runnin gríma. Það var kerti en þú ert mold og þegiðu einhvern tíma.” Síðan hljóp hann ofan á líkið og braut það á bak aftur. Var það síðan kyrrt það sem eftir var nætur.” fslendingar hafa frá fornu fari haft þá meginreglu að hafa það sem sannara reynist. Af þeim sökum tel ég skyldu mína að leiða sannleika draugasögunnar í ljós með því að birta söguna sem ég hef undir höndum. Hún greinir nákvæmlega frá því sem gerðist í raun og veru og kemur nú fyrir augu ykkar í fyrsta skipti en ég hef vélritað hana upp og lagað hana m.t.t. nútíma stafsetningar. Gerið þið svo vel: Einu sinni var galdramaður . með þykkar og loðnar augna- brýr, svart skegg og silfurgráan lubba. Hann var forn í skapi og lifði einn í dularfullu húsi. Hann starfaði á nóttunni og notaði myrkrið við tilraunir sínar og galdra. Menn spáðu oft í hvað hann væri að bauka en voru ekki á einu máli um það. Hvorki var hægt að spyrja hann að því né heimsækja hann því honum var lítt um samræður og heimsóknir gefið. Meðal mannanna var fögur stúlka sem bjó yfir óseðjandi forvitni sem varð skynseminni yfirsterkari. Hún var heitbundin hraustmenni miklu en eina tungl- bjarta nótt smeygði hún sér í svarta yfirhöfn og læddist að húsi galdramannsins. Hún guðaði á glugga. Þetta var milda vetrar- nótt og bláleitur hestur hljóp framhjá og hvarf inn í skóginn. Hún gægðist en innanhúss var ekkert nema kolniðamyrkur því húseigandinn þoldi ekki ljós. Tunglið var þó fullt. Þarna stóð hún við húsið grönn og lagleg á góðum skóm og lyfti dálítið hæl- unum, lagði fingur að glugga, teygði höfuðið og þrýsti andlitinu að rúðunni og mændi inn fyrir en augun brugðust henni. Hún hélt þó áfram að stara og þuldi í lágum hljóðum ósk um að augun mættu sjá. Smátt og smátt tók óskin að rætast og augun að aðlagast myrkrinu. Hún greindi litlausa hluti, stórt og fyrirferðarmikið borð og alls konar litla hluti sem lágu ofan á því en hún þekkti þá ekki. Taldi hún að þetta væru galdragripir. Augu hennar liðu yfir eins og vaxandi og þverrandi tungl á víxl í samræmi við forvitn- ina sem munir galdramannsins vöktu með henni uns hún mætti augum hans skínandi eins og tvær smágerðar sólir í myrkrinu. Þá hneig hún niður. Hún rankaði fljótlega við sér og hljóp sem fætur toguðu heim í rekkju til að hugsa, spennt og rjóð í kinnum. Galdramaðurinn fór líka að hugsa. Hann gekk um gólf og velti málunum fyrir sér. Hún var óspjölluð mey. Með fulltingi hennar gæti hann flutt fjöll úr stað. Allt í einu linaðist hann upp og rann niður í djúpan stól. Hann hafði sjálfur smíðað þessi óvenjulegu húsgögn. Hann var orðinn ástfanginn. Hann yrði að seiða stúlkuna til sín eða búa til ástardrykkinn og gefa henni af honum. Hann ólgaði nóttina á enda af nýjum tilfinningum og glímdi við formúluna að töfra- drykknum sínum. í morgunsárið þegar stafir sól- arinnar reyndu að stjaka við hon- um var hann eins og steinrunninn maður. Dauður, liðið lík. Dauðann hafði borið að garði. Hann kemur alltaf á versta tíma og leyniformúlan að ástar- drykknum hvarf á vit óminnis- gyðjunnar. Þegar það kom á daginn að galdramaðurinn var dauður skaut nýtt vandamál upp kollin- um. í fyrndinni var það landssið- ur að vaka yfir líkum og var það oftast gert við ljós á vetrarnótt- um. Hver átti að vaka yfir iíki galdramannsins? Hugrekki þurfti til en það var ekki auðfundið með mönnum á þessum tíma. Fallega stúlkan gerði gys að mönnum og kallaði þá hugleysingja. Að lok- um skipaði hún hreystimenni sínu að vaka ella myndi hún slíta trúlofuninni. Hinn hrausti var ekki heigull í rauninni og bar nafn með rentu. Hann féllst á skilmála hennar og lét flytja líkið heim til sín. Fórst honum vel að vaka um nóttina. Um morguninn kom stúlkan. Hún þvoði líkið og snurfusaði. Hún greiddi hár galdramannsins og skegg. Hún lyfti augnalokun- um og skoðaði augun sem voru slokknuð og sokkin í djúp dauðans og tár hennar drupu á þau. Hún kyssti hann á munninn. Henni fannst eitthvað töfrandi við hann. Allan daginn dyttaði hún að líkinu, klæddi það og reyndi allt sem í hennar valdi stóð til að gera það dálítið líflegra. Þegar kvölda tók kom hreysti- mennið heim eftir notadrjúgan vinnudag og tendraði kerti. Stúlkan kvaddi um miðnætti en hún fór ekki heim til sín. Nóttin var hlý og seiðmögnuð. Tunglið var mikilfenglegt og himinninn dökkblár. Ulfhundur ýlfraði í fjarska og stúlkan sem var hvít sem mjöll gekk í hið dularfulla hús galdramannsins. Það tók að líða á nóttina og hreystimennið vakti tíðindalaust við kertaljósið en litlu fyrr en dagur rann slokknaði ljósið og líkið reis upp og mælti „Skemmti- legt er myrkið.” Hinum hrausta hvellbrá og stirðnaði. Þegar blóð- ið tók að renna á ný í æðum hans svaraði hann líkinu „En þess nýt- ur þú ekki” kvað hann síðan ein- hverja vísu og stökk á líkið til að brjóta það á bak aftur. Líkið hafði gert ráð fyrir þessum við- brögðum og smeygði sér liðlega undan og náði um leið að koma rothöggi á hinn hrausta. Galdra- maðurinn kyrkti hann síðan, hafði fataskipti við hann og bjó um hið nýja lík til kistulagningar og breiddi yfir það. Yrði það greftrað næsta dag. í grárri morgunskímunni gekk hraustlegur maður út úr húsinu. Álnarhátt þokulag huldi jörðina en að öðru leyti var skyggni gott. Maðurinn sá ekki fætur sína en vissi að hann þokaðist nær húsi sínu. Sunnudagur 28. júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.