Þjóðviljinn - 02.07.1987, Qupperneq 1
Fimmtudagur 2. júlí 1987 140. tölublað 52. órgangur
Verslunin
Veltan hefur stóraukist
Um ogyfir40% veltuaukning íheildverslun ogþjónustu á sama tíma ogframfœrsluvísitalan hœkkaði uml6%.
Mikil útlánaþenslaí bankakerfinu. Seðlabankinn grípur ítaumana
ensla í verslun á höfuðborgar-
svæðinu hefur verið langt um-
fram aimenna verðlagsþróun það
sem af er þessu ári. Veltu-
aukningin í heildverslun á fyrsta
ársfjórðungi var tæp 40%. í
byggingavöruverslun var veltu-
aukningin 44% miðað við sama
tima í fyrra og 42% í þjónustu-
greinum. Á þessum sama tíma
hækkaði framfærsluvísitalan um
16% eða nær þriðjungi minna en
veltuaunkningin varð í verslun og
þjónustu.
Samkvæmt útreikningum
Þjóðhagsstofnunar voru tæplega
53% af heildarveltunni í smásölu-
verslun í Reykjavík en það er
töluvert hærra en hlutfall íbúa
borgarinnar af heildarfjölda
landsmanna. Þá vekur einnig at-
Stjórnarmyndun
Ráðherralist-
inn í höfn
Framsókn ogíhaldfáfjóra, kratarþrjá.
Þorsteinn forsœtisráðherra. Deilt um
kaupleiguíbúðir ígœr
Steingrími Hermannssyni hef-
ur tekist það ætlunarverk sitt
að fá jafn marga ráðherra og
Sjálfstæðisflokkurinn. Niður-
staðan af tveim maraþonfundum
formannanna þriggja aðfaranótt
gærdagsins og síðdegis í gær var
að Framsóknarflokkurinn fengi
fjóra ráðherra einsog Sjálfstæðis-
flokkurinn en kratar þrjá. For-
sætisráðherra þríhjólsins verður
Þorsteinn Pálsson. Ráðherrastól-
unum á þingi fjölgar því um einn
og verða nú 11 í stað 10.
Krafa krata um kaupleiguíbúð-
ir er það mál sem mest hefur vaf-
ist fyrir formönnunum ef stóla-
skiptingin er undanskilin. Sjálf-
Síld
Svilgegn
eyoni
Síldarsvil innihalda efni,
sem mun verða notað til
framleiðslu á lyfi gegn
eyðni. Tilraunir meðþað
hafa lofað góðu
Allt frá því að sjúkdómurinn
eyðni varð að þeim faraldri sem
við þekkjum í dag, hafa vísinda-
menn úti um allan heim lagt nótt
við dag við að flnna lyf sem að
gagni mætti koma í baráttunni
við hann.
Svo virðist sem einhver árang-
ur sé að líta dagsins ljós, því í
nýlegu fréttablaði norska utan-
ríkisráðuneytisins Norinform
kemur fram að síldarsvil (sæðis-
kirtlarnir) innihalda efni, sem
mun verða notað til framleiðslu á
lyfi gegn eyðni.
{blaðinu kemur fram að norsk-
ir aðilar munu bráðlega hefja
framleiðslu á þessu lyfi, en heiti
þess er skammstöfunina AZT,
sem stendur fyrir azidothymidin.
Tilraunir með þetta lyf hafa hing-
að til lofað góðu. grh.
stæðisflokkurinn er andvígur
hugmyndinni og hún fær einnig
dræmar undirtektir hjá Fram-
sókn. Það stóð því upp á Jón
Baldvin í gær hvort hann sliti við-
ræðum á þessari kröfu.
Auk þess að deila með sér stól-
um var í gær gengið frá stefnuyf-
irlýsingu þríhjólsins sem og fyrstu
aðgerðum í efnahagsmálum.
Þingflokkar flokkanna þriggja
hittust kl. 18 í gær þar sem fjallað
var um niðurstöðu viðræðnanna.
Mun málamiðlun Þorsteins í
kaupleiguíbúðunum . hafa mætt
talsverðri andstöðu hjá þing-
mönnum Alþýðuflokksins og
frestuðu sjálfstæðismenn þing-
flokksfundi þar til hreinar línur
væru komnar í því máli.
Ráðherraskiptingin er sú að
auk forsætisráðuneytisins fær
Sjálfstæðisflokkurinn samgöngu-
mál, - Friðrik Sophusson,
menntamál, - Birgir ísleifur
Gunnarsson og iðnaðarráðú-
neyti, - Ólafur G. Einarsson.
Ráðherrar Framsóknarflokks
verða Steingrímur Hermannsson
utanríkisráðherra með utanríkis-
viðskipti, Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra, Jón
Helgason landbúnaðarráðherra
og Guðmundur Bjarnason heil-
brigðisráðherra.
Þrír efstu menn Reykjavíkur-
lista Alþýðuflokksins verða ráð-
herrar krata. Það eru þau Jón
Baldvin Hannibalsson með
innanríkisviðskipti, dóms- og
kirkjumál, Jón Sigurðsson með
fjármál og Jóhanna Sigurðardótt-
ir með félagsmálin.
Auk þessa var deilt um helstu
embætti þingsins og er nú ljóst að
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
verður áfram forseti sameinaðs
þings en Alþýðuflokkurinn fær
formann fjárveitinganefndar og
Sjálfstæðisflokkurinn formann
utanríkismálanefndar.
Þessi niðurröðun getur þó
breyst á síðustu stundu en einsog
málin stóðu er blaðið fór í prent-
un í gærkveldi, benti flest til þess
að ný ríkisstjórn taki við í dag eða
á morgun. -Sáf
hygli að í öllum greinum verslun-
ar er veltubreytingin mun meiri í
Reykjavík og á Reykjanesi en í
öðrum landshlutum og að hlut-
deild höfuðborgarsvæðisins í
heildarveltunni hérlendis fer síf-
ellt vaxandi.
Þessi stóraukna velta hefur
ekki síst sýnt sig í stórauknu pen-
ingamagni í umferð og aukningu
útlána í bankakerfinu sem m.a.
hefur orsakað um 2.5 prósentus-
tiga hækkun meðalútlánsvaxta
síðustu tvo mánuði.
Til að sporna gegn þessari
þenslu greip Seðlabankinn í gær
til þess ráðs að hækka lausafjár-
hlutfall innlánsstofnana úr 7% í
8% en í tilkynningu frá bankan-
um kemur fram að þessi aðgerð
sé til þess að stemma stigu við
útlánaþenslu og efla öryggi
bankakerfisins.
-Jg-
Hæstur á hæsta tindi
Eyjólfur Óskarsson starfsmaður Landsvirkjunar keyrði félaga sína í Jökla-
rannsóknafélaginu uppá Hvannadalshnjúk, hæsta tind landsins, á dögun-
um. Eyjólfur tók með sér tröppustiga, sem hann setti upp á hábungunni og
klifraði uppí efsta þrepið, öruggur um að vera efsti maður á tindinum. Frá v.:
Gissur Símonarson, Eyjólfur, Sólveig Kristjánsdóttir og Leifur Jónsson. -
Mynd: Árný Sveinbjörnsdóttir.
Þríhjólsaðgerðir
Matar-
skattur,
vaxtahækkun,
tölvugjald
Tíu prósent skattur á
ýmsar matvörur.
Þríflokkarnir œtla að
rétta við ríkissjóð á
þremur árum
Alþýðuflokkur, Framsóknar-
flokkur og Sjálfstæðisflokkur
hafa komið sér saman um að afla
ríkissjóði 1030 milljóna viðbótar-
tekna á þessu ári með auknum
söluskatti, og ýmsum gjöldum.
Um fjórðungur þessarar upp-
hæðar á að fást með söluskatti á
mat.
Flokkarnir þrír höfðu komið
sér saman um að taka upp 10%
söluskatt á matvörur aðrar en
kjöt, fisk, mjólk, ávexti og græn-
meti, og á þessi skattur að hala
inn 250 milljónir á þessu ári, 600 á
næsta ári. Þennan típrósentskatt
á einnig að leggja á veitingar í
veitingahúsum, og verk arkitekta
og endurskoðenda, en 25% sölu-
skattur á að koma á tölvur, aug-
lýsingar, sólbaðstofur, heilsu-
ræktarver og farsíma, - sein raun-
ar er þegar komið á.
Samtals á aukinn söluskattur
að afla ríkissjóði rúmra 600
milljóna út þetta ár og á næsta ári
tæpra 2 milljarða.
Bílagjald, - 4 krónur á hvert
bílkíló, með 10 þúsund króna
þaki - á að afla 200 milljöna á
þessu ári og 600 næsta ár, og
kjarnfóðurgjald, sem neytendur
borga með hærra verði svínakjöts
og kjúklinga, á að hala inn 80
milljónir frammað áramótum,
200 milljónir á næsta ári.
Gjald á ríkisábyrgðir og erlend
fyrirtækjalán á svo að afla 90
milljóna á þessu ári og 360
milljóna næsta ár.
Af rúmum milljarði í auknar
tekjur á árinu á síðan að verja 100
milljónum til að hækka trygging-
abætur og öðrum 100 til að
„milda“ áhrif af matarskattinum.
Væntanleg stjórn ætlar að auki
að hækka vexti af spariskírt-
einum ríkissjóðs, sennilega uppí
9%, og til að draga úr þenslu á að
hækka innlánsbindingu banka-
stofnana hjá Seðlabanka um 3-5
prósent.
Ennfremur á að fresta endur-
greiðslu söluskatts til sjávarút-
vegs og iðnaðar og frysta féð í
Verðjöfnunar-, Fiskveiða- og
Iðnlánasjóði.