Þjóðviljinn - 02.07.1987, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 02.07.1987, Qupperneq 6
FLOAMARKAÐURINN URRIÐI (Salmo trutta) Urriöinn getur bæöi verið staöbundinn, kallaöur vatnaurriöi cöa gengið til sjávar og þá kallaður sjóbirtingur. Urriðinn þarf rennandi vatn til aö hrygna í og nær því ckki að tímgast í vötnum án í eöa úrr- ennslis. í vötnum og ám lifir urriðinn einkum á stærri fæðudýrum, svo sem vatnabobbum, homsílum og stórum lirfúm og púpum. Urriöinn er því cftirsóttur til stangveiði þar sem tiltölulcga auðvelt cr aö búa til agn er líkist hans náttúrulegu fæðu. Sjóbirtingurinn elst upp í fcrsku vatni þar til hann nær göngustærö 20-25 sm og þá 3-4 ára gamall. Sjógönguseiði urriöans ganga undir samskonar myndbreytingu og laxinn er aö fram an grcinir. Sjóbirtingurinn gcngur til sjávar sncmma vors, venjulega í mai. Sjóbirtingurinn fer ekki í langar ætisgöngur og heldur sig mest í nágrenni við sínar heima ár. I>aö tekur sjóbirtinginn meira en eitt sumar t sjó að verða kynþroska. Sjóbirtingurinn er mun verr aðlagaður að lífi í sjó en laxinn og nær ekki að halda seltujafnvægi við lágt hitasig, og er það ástæða þess að hann gengur aftur í árnar að haustinu þar sem allur stofninn hefur vetursetu. Sjóbirtingsgöngur í árnar geta staðið fram á jólaföstu a.m.k. á suðurlandi. Stórir sjóbirtingar hafa oft gengið til sjávar og bæta við sig vexti á hverju ári ásamt því sem þcir þroska hrogn og svil. I>að kemur stundum fyrir aö sjóbirtingurinn sé það lengi að ná sér eftir hrygningu að hann nær ekki að hrygna að hausti og tekur hann sér þá árs hr^gning- arhvíld. Veiðimenn Nýtileg stangveiðihandbók Starfsmann Þjóðviljans vantar litla íbúð til leigu. Skilvísum greiðslum og mjög góðri um- gengni heitið. Uppl. í sima 35236. Til sölu Eldhúsborð og 4 stólar úr beyki til sölu. Uppl. í síma 16671 e. kl. 20. Óska eftir 3-4ra herb. íbúð eða gömlu húsi í miðbænum til leigu. Uppl. í síma 25825. Túnþökur Gróskumiklar túnþökur úr Land- sveit til sölu. Sími 99-5040. Barnapía óskast til að gæta tveggja barna í Hóla- hverfi. Aðallega á kvöldin og um helgar. Uppl. i síma 75875. Commodore PC 10 tölva með Epson LX-80 prentara til sölu. Uppl. i síma 91686856 og 93-2567 á kvöldin. Fallegt danskt (barna)garðhús til sölu ódýrt. Uppl. í síma 32760 á kvöldin. Veiðileyfi Veiðileyfi í Langavatni. Góð að- staða í húsum og traustir bátar. Einnig er hægt að fá aðstöðulaus veiðileyfi. Nánari upplýsingar gefur Halldór Brynjólfsson í síma 93-7355. 10 gíra karlmannshjól til sölu. Ný dekk. Sími 14807. Gamalt virðulegt vel bólstrað sófasett, fyrirferðar- mikið og þungt, sófi og 2 stólar með gulbrúnu áklæði til sýnis og sölu á kr. 30 þús. að Öldugötu 42, efstu hæð. Sími 23236 í hádeginu og eftir kl. 19 á kvöldin. Stór bakpoki óskast Mig vantar stóran, sterkan ferða- bakpoka. Má vera ódýr. Guð- mundur í síma 681548 eftir kl. 18. Ford Cortina árg. '70 til sölu óskoðuð en í vel ökufæru ást- andi. Selst ódýrt. Uppl. í síma 29371. Vel uppaldir kettllngar fást gefins á uppeldis- og með- ferðarheimilinu Sólheimum 7. Sími 82686. Stúlka eða strákur óskast til að gæta 3ja ára stelpu á morgnana þrjár vikur í júlí. Búumí Skipholti. Uppl. í síma 13907. Notuð föt fást gefins Eru ekki einhver félagasamtök eða stofnanir sem vilja þiggja 3 stóra poka af notuðum fötum? Uppl. í síma 25398. Vídeótæki Beta vídeótæki til sölu á ca. 10.000 krónur. Uppl. í síma 79818. Nikon linsa Óska eftir Nikon linsu 24 mm. Uppl. í síma 73679. Krakkahjól 16 tommu Winters barnahjól til sölu á kr. 3.500.-. Sími 37865. Kennaranemi óskar eftir 2 herb. íbúð. Góðri um- gengni og skilvísum greiðslum heitið. Uppl. í síma 83759 eftir kl. 17. Fyrir skömmu gaf forlagið Handagagn út litla en snotra bók fyrir j>á sem vilja helst eyða öllu sumrinu í að flakka um landið og renna fyrir fisk. Bókin er einkar handhæg, full með notadrjúgar upplýsingar fyrir þá sem hafa ánetjast stangveiðinni. Hæfilegt rúm er í bókinni fyrir skráningu afla í sérstaka afla- dálka, sem spanna allt veiðitíma- bilið á þessu sumri, en einnig hinu næsta. Þessutan er fullt af skemmtilegum fróðleik í bók- inni, sem allir veiðimenn hafa gaman af og gagn. Þannig eru birtar aflatölur fjölmargra laxáa síðustu tíu árin og meðalveiðin líka. f bókinni eru upplýsingar um sjávarföll á ýmsum stöðum landsins, lýst veiðistöðum og -vötnum og sérlega gott framtak felst í því að birta símanúmer veiðifélaganna innan Lands- sambands stangveiðifélaga og með þeim upptalningu á veiði- vötnum á svæði hvers félags um sig. Veiðitól Mjög gagnlegur fróðleikur um flugur, fluguhnýtingar og öll möguleg veiðitól sem stangveiði tengjast er að finna í bókinni, vandaðar litmyndir af fjölmörg- um helstu veiðiflugunum sem stangveiðimaðurinn þarf að þekkja, skýrt frá slysavörnum sem sjálfsagt er að sem flestir kynni sér og auk þess er dágott orðasafn, þar sem veiðislangið er skyrt. í bókinni er einnig að finna knappar og skemmtilega skrifað- ar lýsingar á helstu þáttum í lífi laxfiskanna hér á landi. Það er drjúgur fengur að þessum kafla. Sannast sagna er nefnilega ótrú- lega erfitt fyrir stangveiðimenn að komast yfir gagnyrtan fróðleik á aðgengilegu formi um líf fisk- anna sem egnt er fyrir. Að mörgu leyti mætir þessi litla stangveiði- handbók Handagagns þeirri þörf. Þættirnir um lífsferla islensku laxfiskanna eru augljóslega skrif- aður af einhverjum, sem þekkir vel til líffræðinnar. Þannig er þess til að mynda getið að „nokkur hluti“ hængseiða laxins kyn- þroskist í ánum án þess að ganga til sjávar. Þetta hafa hins vegar fáir gert sér grein fyrir hér á landi, einsog sést á því að í innlendum kennslubókum er held ég hvergi 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN minnst á þennan sérstæða þátt í lífsferli laxins. Það er hins vegar miklu meira en „nokkur hluti“ hængseiðanna sem kynþroskast í ánum, að minnsta kosti erlendis. Þar taka að meðaltali um 65 prósent hæng- seiðanna út bráðgeran kyn- þroska, og er þó að líkindum van- metið. Lífsferlar laxfiska í bókinni er frá því sagt, að þessir litlu hængar séu einskonar varnagli náttúrunnar ef svo skyldi fara að enginn stór hængur gengi aftui í árnar. Þessi kenning sænska vísindamannsins Öster- dahls hefur ef til vill eitthvað til síns máls. En það má allt eins rökstyðja, að litlu seiðin sjái um verulegan hluta frjóvgunarinnar, og nýlegar athuganir Skotanna Buck og Youngstone og Kanada- mannsins Myers styðja það raun- ar. Þetta er hins vegar ekki sagt bókinni til hnjóðs, heldur fremur til að benda á að hún ergjaldgeng í umræðu um merkan þátt í lífi laxins, sem menn eru fyrst á seinni árum að gera sér grein fyrir. Og það er vissulega gaman að sjá vangaveltur um þessa hluti í bókinni frá Handagagni. Bókin er að öllu leyti mikill fengur fyrir stangveiðimenn. Það lýtir hana helst að ófáar prentvill- ur er að finna á síðum hennar. Mér fannst líka heldur klént að sjá í orðasafninu orðið „sjóreið- ur“ ekki bara skrifað vitlaust, heldur líka haldið fram að það merki sjógenginn urriða. „Reyður" er vitaskuld gamalt heiti yfir íslensku bleikjuna, og „sjóreyður“ ekkert annað en sióbleikja. lil/- Lokafrágangur áfokheldu húsi að Litla-Hrauni Tilboö óskast í lokafrágang á viöbyggingu viö verkstæðishús Vinnuhælisins á Litla-Hrauni. Viðbyggingin er fokheld og er um 70 m2 Innifaliö er múrhúöun, málun og pípulagnir úti og inni. Ennfremur allt annaö er þarf til aö skila byggingunnifullgerðri (veggir, dúkalögn, raflagn- ir o.s.frv.) Verkinu skal vera lokiö 1. febr. 1988. Útboösgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borg- artúni 7, Reykjavík, gegn 3.000 kr. skilatrygg- ingu. Tilboö veröa opnuð á skrifstofu vorri þriöjudaginn 21. júlí 1987 kl. 11.30. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS Borgartúni 7, sími 26844 þJÓÐVIUINN Höfudmálgagn stjómarandstööunnar Áskriftarsími (91)68 13 33 Yfirsjúkraþjálfara Sjúkraþjálfarar óskast á Gigtlækningastöðina strax eöa eftir samkomulagi. Nýjar hugmyndir eru á döfinni um starfsemi stöðvarinnar, samráð verður viö þann/þá sem vilja vinna þar. Upplýsingar hjá Sigríöi Gísladóttur sjúkraþjálfara í síma 36421 eða 29000/583. Gigtarfélag ísiands Össur Skarphéðinsson. Frá Bændaskólanum á Hvanneyri Búfræðingar athugið Bændaskólinn á Hvanneyri óskar eftir að ráöa mann til starfa í fjósi á skólabú Bændaskólans. Nánari uppiýsingar um starfið veitir bústjóri í síma 93-7502 í hádegi og á kvöldin. GRUNNSKÓLI ESKIFJARÐAR Kennara vantar Kennara vantar að Eskifjarðarskóla, um er að ræða kennslu í eftirtöldum greinum: íslensku, dönsku, líffræöi og íþróttum. Skólinn starfar í nýju húsnæði og er vinnuaö- staöa kennara mjög góö. (búðarhúsnæöi er út- vegað á góöum kjörum og einnig kemur greiðsla flutningsstyrks til greina. Nánari upplýsingar gefa skólastjóri í síma 97- 6182 og formaður skólanefndar í síma 97-6422. Skólanefnd

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.