Þjóðviljinn - 02.07.1987, Qupperneq 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími ■
681348
Helgarsími
681663
þlÓÐVILIINN
Fimmtudagur 2. júlí 1987 140. tölublað 52. örgangur
LEON
AÐFARS€LLI
SKÓLACÖNCU
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
Haugakjötið
Viltlu kjödðT dýrafóður
Steinþór Steingrímsson, framkvœmdastjóri Sambands fóðurverksmiðja: Við vorum aldrei spurðir.
Hefðum getað nýttkjötið. Magnús G. Friðgeirsson, hjá SIS: Hagkvœmara að eyðileggja kjötið.
Guðmundur Sigþórsson, landbúnaðarráðuneyti: Búvörudeildin kannaði alla möguleika
Við vorum ekki spurðir hvort
við vildum þiggja kjötið gef-
ins, eða kaupa það fyrir slikk til
fóðurframleiðslu. Ég veit til þess
að einhverjar fóðurverksmiðj-
urnar hefðu viljað kjötið, sagði
Steinþór Steingrímsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands fóður-
framleiðenda, aðspurður um það
hvort ekki hefði verið hugsanlegt
að nýta þau 170 tonn af kinda-
kjöti til fóðurframleiðslu, sem
undanfarið hefur verið dysjað á
sorphaugum Reykjavíkur.
Staöhæfingar Búvörudeildar
Sambandsins og Framkvæmda-
nefndar búvörusamninga að mun
hagkvæmara sé aö henda kjötinu
en að koma því í refa- og
minnkafóður hefur vakið undrun
margra.
- Ef til þess hefði komið að við
hefðum fengið kjötið, þá hefðum
við trúlega greitt flutnings-
kostnaðinn og annan þann kostn-
að sem kjötflutnmgunum og
vinnslunni fylgdi, sagði Steinþór
Steingrímsson.
- Eftir að búið var að athuga
alla möguleika, afréð Fram-
kvæmdanefnd búvörusamninga
að kjötið skyldi eyðilagt. Þetta
var talið hagkvæmast og jafn-
framt var tryggt að kjötið færi
ekki út á markað með ólöglegu
móti. Það hefði sjálfsagt verið
hægt að setja kjötið í loðdýrafóð-
ur, en það hefði verið óhagkvæm-
ara, sagði Magnús G. Friðgeirs-
son, hjá Búvörudeild SÍS.
- Við fengum þær upplýsingar
frá Búvörudeildinni, að það væri
hagkvæmast að urða kjötið. Það
var reynt að selja kjötið sem
skepnufóður, en það reyndist
enginn áhugi fyrir hendi hjá fóð-
urframleiðendum, sagði Guð-
mundur Sigþórsson, skrifstofu-
stjóri í landbúnaðarráðuneytinu.
-RK
Póstur og sími
Borið 100
tonn af pósti
Guðfreður Guðjónsson hættir störfum hjá
Pósti og síma eftir 32 ára starf. Hefur gengið
33 ferðir kringum landið
„Eg minnist þess einu sinni að
við vorum að bera út póst alla
Þorláksmessu og stanslaust fram
til sjö á aðfangadagskvöld. I þá
daga var alltaf svo mikil auka-
vinna," sagði Guðfrcður Guð-
jónsson, póstafgreiðslumaður í
32 ár og þar af bréfberi í átján ár,
sem hætti störfum hjá Pósti og
síma í fyrradag, fyrir aldurssak-
ir.
Starfsmenn flokkunardeildar
póstmiðstöðvarinnar í Ármúlan-
um héldu Guðfreði veglega
kveðjuveislu síðasta vinnudag-
inn. „Það hefur aldrei verið
kvartað undan störfum Guðfreðs
í öll þau ár sem hann hefur verið
undir minni stjórn. Hann hefur
ávallt unnið sín störf með stakri
prýði,“ sagði Reynir Ármanns-
son póstfulltrúi.
Samkvæmt lauslegum útreikn-
ingum samstarfsmanna Guð-
freðs, hefur hann þau átján ár
sem hann var við póstútburð,
gengið vegalengd, sem samsvarar
um 33 hringferðum kringum
landið. Á hverju ári bar Guð-
freður út 5 tonn af pósti, eða um
100 tonn á 18 árum.
„Launin hafa nú aldrei verið
góð hjá okkur póstafgreiðslu-
mönnum og ekki hafa þau lagast
síðustu ár. Það er eins og póstaf-
greiðslumenn hafi alltaf verið
hornreka í kjarasamningum
BSRB við ríkisvaldið. En ein-
hvern veginn hefur manni tekist
að þreyja þorrann af þessum
launum," sagði Guðfreður Guð-
jónsson.
Aðspurður um það hvort hann
myndi ekki sakna gömlu vinnu-
félaganna og hvernig hann hygð-
ist eyða ellinni, sagði Guðfreður
að honum hefði lítt gefist tími til
að hugsa um slíkt. „Ég hlýt að
finna mér eitthvað til að drýgja
tíðina. Það er engin hætta á öðru.
ég vil bara skila þakklæti til
vinnufélaganna fyrir ánægjulegt
samstarf og viðurgjörninginn í
þessari stórkostlegu veislu hér í
dag, sagði Guðfreður Guðjóns-
son. -RK
Guðfreður Guðjónsson, póstaf-
greiðslumaður og bréfberi í 32 ár.
mynd E.ÓI.
Júníþurrkar
Sá þurrasti
' ■ r
i 7 ar
Júnímánuður sá
sólríkasti og þurrasti í
Reykjavíkfrá 1980.
Sólskinsstundir í
Reykjavík 143fleiri í júní
í ár en á sama tíma ífyrra
Nýliðinn júmmanuður var í
senn sá sólríkasti og sá þurrasti í
Reykjavík frá árinu 1980 og ættu
höfuðborgarbúar að geta vel við
unað eftir mörg rigningarsumur
síðast liðin ár. Sólskinsstundir í
júní sl. voru til að mynda 143
fleiri en á sama tíma í fvrra.
Að sögn Trausta Jónssonar
veðurfræðings lágu ekki fyrir
tölur um úrkomu og sólskins-
stundir í júní á öllu landinu í gær.
í Reykjavík voru sólskinsstundir
í júní sl.um það bil 223, en sól-
skinsstundir í júnímánuði í
Reykjavík voru að meðaltali 175
á árunum 1951-1980. f júní 1980
voru þær hins vegar 233.
En þurrkar eru ekki bundnir
við Reykjavík og þurrara hefur
verið víða annars staðar á
landinu. Jafnvel svo að mönnum
þykir nóg um og er trúlegt að víða
hafi verið dansaður regndans í
sveitum að undanförnu. Þurrk-
arnir hafa haft nokkur áhrif á
grassprettu, einkum sprettu á
sandtúnum. Þá eru margar ár
vatnsminni en ella vegna þurrk-
anna.
Vert er að geta þess að trjá-
gróður er víða skraufþurr og eld-
hætta því talsverð. -gg
Forseti íslands
Danskir
heiðraðir
Forseti íslands hefur sæmt
áhöfn þyrlu danska varðskipsins
Vædderen afreksmerki hins ís-
lenska lýðveldis úr silfri, fyrir
björgun skipverja af Suðurlandi á
jólanótt 1986. Ennfremur var
skipherrann á Vædderen, Preben
A. Andersen særndur riddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu.
Afreksmerkið verður afhent í
dag en þeir sem fá það eru Jan
Rasmussen liðsforingi, Arne
Fröge liðþjálfi, Claus T. Eriksen
liðþjálfi og Jörgen Laursen lið-
Þjálfi- -Sáf
Fjarhitun Vestmannaeyja
Vilja rafmagn úr landi
Fjarhitun Vestmannaeyja verður að leita nýrra leiða til orkuöflunar. Kaupá afgangsorkufrá
Landsvirkjun talin vœnlegasti kosturinn. Hefja viðrœður við Landsvirkjun 14. júlí
Handfœri
Á sjóinn í
sumarfríinu
„Það er alveg á hreinu að júlí er
mánuður handfæraveiða og þá
giska ég á að séu um 1000-1100
bátar af ýmsum stærðum á
veiðum á miðunum umhverfis
landið,“ sagði Arthúr Bogason í
Vestmannacyjum, formaður
Landssambands smábáta-
eigenda, við Þjóðviljann.
Margir nota sumarfríið sitt til
að skella sér á handfæri, annað-
hvort á eigin bát ef hann er fyrir
hendi eða þá ráða sig í skipsrúm
hjá öðrum. En strax í ágúst fer
handfærabátum fækkandi. grh.
að er orðið mjög aðkallandi
fyrir okkur að finna nýjar
leiðir í orkumálum hér í
Vestmannaeyjum og okkur sýnist
að vænlegasti kosturinn væri sá
að kaupa afgangsorku frá Lands-
virkjun og hita vatnið upp með
rafskautskötlum. Við hefjum
formlegar viðræður við Lands-
virkjun um kaup á afgangsorku
14. júlí, sagði Eiríkur Bogason
hjá Fjarhitun Vestmannaeyja í
samtali við Þjóðviljann í gær, en
nú liggur fyrir að Eyjamenn geta
ekki reitt sig á hraunvarma nema
fram á næsta ár.
Tvær holur sem boraðar voru í
hraunið nýlega sýndu fram á að
hitinn í hrauninu hefur farið ört
lækkandi og er ekki grundvöllur
fyrir því að nýta hann sem ork-
ugjafa nema fram á næsta ár.
Eiríkur sagði í gær að ýmsir
möguleikar á orkuöflun hefðu
verið ræddir, en ljóst væri að
kaup á afgangsorku frá Lands-
virkjun væri vænlegasta leiðin.
Flutningsgeta fyrir rafmagn út í
Heimaey er nægileg að sögn
Eiríks og er ekki gert ráð fyrir að
stofnkostnaður verði mikiíl. Auk
þess má jafnvel búast við að
orkureikningar Vestmannaey-
inga lækki ef af verður.
Auk þessa hafa komið upp
hugmyndir um að setja upp kola-
orkuver eða sorpbrennsluorku-
ver, en þær eiga minna fylgi að
fagna.
-gg