Þjóðviljinn - 18.07.1987, Page 1
Laugardagur 18. júlí 1987 154. tölublað 52. árgangur
Efnahagsaðgerðimar
Arangurinn hæpinn
Pjóðhagsstofnun dregur íefa að ein helstafjármögnunarleið ríkissjóðshallans beri árangur
Olfldegt er að fyrstu efnahags-
aðgerðir ríkisstjórnarinnar
skili þeim árangri sem hún hefur
stefnt að, ef mið er tekið af nýrri
spá Þjóðhagsstofnunar. Þar er
m.a. dregið í efa að ein helsta
fjármögnunarleið hallans á rflds-
stjóði, hækkun vaxta af ríkis-
skuldabréfum, skili sér í mikilli
sölu þeirra.
Það er mat ríkisstjómarinnar
að hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs á
árinu 1987 nemi rúmum 4,2
milljörðum króna. Stærsti liður-
inn í fjármögnun hallans verður,
samvkæmt áætlun fjármálaráðu-
neytisins, innlend lántaka að
upphæð 2,8 milljarðar, en þar
vega þyngst sala sparisskírteina
til almennings og ríkisvíxla til
banka og sparisjóða. í skýrslu
Þjóðhagsstofnunar er hins vegar
dregið í efa að íVi% hækkun
vaxta af ríkisskuldabréfum örvi
sölu þeirra til mikilla muna, en
það er sú hækkun sem ríkisstjórn-
in hefur stefnt að. Sala ríkis-
skuldabréfa hefur verið mjög
treg það sem af er árínu og raunar
mun minni en innlausn eldri
skírteina.
Það er ljóst að standist þessi
áætlun ríkisstjórnarinnar ekki,
Efnahagsmálin
Svartar
horfur
hefur það vemleg áhrif á áætlun-
ina um erlenda lántöku, þar sem
innlendri lántöku er ætlað stórt
hlutverk í að minnka hlut er-
lendra lána í fjármögnun hallans.
Ríkisstjórnin hefur áætlað að
nettólántaka erlendis á árinu
verði 370 milljónir, en samkvæmt
ofangreindu er ólíklegt að sú
áætlun standist.
Þá stefnir ríkisttjórnin að yfir-
drætti uppá tæpan einn milljarð
króna hjá Seðlabanka íslands.
Hér er í raun ekki um annað en
peningaprentun að ræða.
Því virðist ljóst að aðhaldsað-^
gerðir ríkisstjórnarinnar eru ekki
það sem þær eru auglýstar fyrir
að vera.
-K.ÓI.
iHisi m
■
I v 8 v' 'V^ - \ S." '•.J.
Jón Kristinsson hjólar síðasta áfangann ásamt Arnari syni sinum og fleira fólki. Söfnunin bar góðan árangur og nýtur hjúkrunardeild aldraðra við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri góðs af. Mynd Ari. H .
Langferðir
Þjóðhagsstofnun spáir að
góðœrið sé að líða hjá
Ýmislegt bendir til að góðæri
undanfarinna tveggja til þriggja
ára sé að líða hjá samkvæmt spá
Þjóðhagsstofnunnar sem birtist í
gær. í þessu sambandi skiptir
væntanlegur samdráttur í þorsk-
veiðum mestu máli. Verði farið
að tillögum fiskifræðinga Haf-
rannsóknarstofnunar um sam-
drátt í þorskveiðum á næsta ári
gætu þjóðartekjur rýrnað um 2-
3%.
Verði þorskaflinn hins vegar
óbreyttur en annar afli í samræmi
við tillögur fiskifræðinga, gætu
þjóðartekjur samkvæmt bjart-
sýnustu spám leitt til 1-2%
aukningar þjóðartekna.
Einnig telur Þjóðhagsstofnun
óvarlegt að reikna með áfram-
haldandi viðskiptakjarabata í lík-
um mæli og verið hefur undanfar-
in ár.
Þá segir í skýrslu Þjóðhags-
stofnunar að þjóðarútgjöld hafi
að undanförnu aukist töluvert
umfram þjóðartekjur þannig að
verðbólga og viðskiptahalli hafi
farið vaxandi.
Skýrslu Þjóðhagsstofnunar
lýkur með: „Þessar horfur setja
vexti þjóðarútgjalda á næstunni
afar þröngar skorður, ef verð-
bólga og viðskiptahalli eiga ekki
að fara úr böndunum."
-K.Ól.
Að norðan eftir hálfa öld
Hjólreiðakappinn Jón Kristins-
son var hinn hressasti þegar
hann kom til Reykjavíkur síðdeg-
is í gær eftir að hafa hjólað alla
leið frá Akureyri í söfnunarher-
ferð fyrir Sel 2, hjúkrunardeild
aldraðra á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri.
Helga Jónsdóttir Kristinssonar
fylgdi föður sínum eftir í bifreið
frá Akureyri og saman söfnuðu
þau verulegum upphæðum til
styrktar byggingunni nyrðra. Þau
feðgin heimsóttu öll dvalarheim-
ili aldraðra sem á vegi þeirra urðu
og skemmtu sjálfum sér og vist-
monnum.
Þegar til Reykjavíkur kom
slógust fleiri hjólreiðamenn í för
með Jóni og Helgu og fylgdu
þeim niður á Lækjartog, þar sem
Jón ávarpaði hóp fólks sem safn-
aðist þar saman.
Jón er ekki með öllu ókunnug-
ur hjólreiðaferðum sem þessum.
Fyrir 52 árum hjólaði hann nefni-
lega frá Reykjavík til Akureyrar
og það má því segja að hann hafi
nú verið að snúa aftur úr þeirri
för, 71 árs að aldri.
-gg
Skák
Jafntefli gegn Portisch
Jóhann byrjar vel á millisvœðamótinu. Margeir annar í Þórshöfn, Héðinn efstur í
Puerto Rico
Jóhann Hjartarson gerði jafn-
tefli við ungverska meistarann
Portisch í fyrstu umferð milli-
svæðamótsins í Szirak í Ung-
verjalandi. Portisch er næsthæst-
ur 18 þátttakenda, en þar á meðal
eru Júgóslavinn Ljubojevic, Sví-
inn Andersson, Sovétmennirnir
Beljavskí og Salof, John Nunn frá
Englandi og Kanarnir Christians-
en og Bepjamin. Tvær umferðir
verða tefldar nú um helgina, en
mótinu lýkur 10. ágúst.
Daninn Mortensen er enn efst-
ur eftir 6. umferð í landsliðsflokki
Norðurlandamótsins í skák í
Þórshöfn, og Margeir Pétursson
næstefstur.
í gær gerði Margeir jafntefli
við Tissdal, Helgi vann
Schneider, Máki vann Osten-
stad, og Mortensen gerði jafntefli
við Valkesalmi.
Staðan: Mortensen 4Vi, Mar-
geir 4, Hansen, Tissdal, Máki,
Schneider og Helgi 3VÍ, Wedberg
3, Valkesalmi og Ostenstad 2Vi,
Jón L. 2, Ziska O. Tvær umferðir
verða tefldar um helgina, en mót-
inu lýkur á fimmtudag.
Ekki var teflt á heimsmeistara-
móti bama í Puerto Rico í gær, og
er Héðinn Steingrímsson enn
efstur í sínum flokki.
Þjóðviljinn í dag er fullur af
skák. Frá nýjum elóstigalista er
sagt á baksíðu og í Heiminum, og
Helgi Ólafsson fjallar um glataða
snillinga í Sunnudagsblaðinu.
Þingvallavatn
Mikil
murtuveiði
Við fengum eitthvað á annað
hundrað murtur og nokkrar
sæmilegar bleikjur yfír daginn,
sagði veiðimaður sem var að
koma frá Þingvallavatni í gær-
kveldi. Að sögn hans var mikil
murta í Vatnsvikinu og út af
Lambhaga og Vatnskoti.
Svipaða sögu segja aðrir veiði-
menn sem hafa verið á ferð við
Þingvallavatn, og eftir frekar
daufa byrjun hefur góða veðrið
leitt til þess að murtan tekur nú
grimmt.
Við fréttum líka af einum
veiðimanni sem hafði fengið
tveggja punda urriða, feitan og
sællegan í Vatnsvikinu, en þeir
gerast nú fáséðir. _ös