Þjóðviljinn - 18.07.1987, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 18.07.1987, Blaðsíða 5
Þriðjudagsgetraun á tJriðjudögum Er til frjáls og óháðfrétt? Máfjölmiðill hafa skoðun? Er Hallgrímur Thorsteinsson staðnaður? Erfrystihús í Búðardal? Fjölmiðlar um fjölmiðla um fjölmiðla... Mörgum finnst orðið nóg um hvað þessir gripir eru gjamir á að hverfast hvor um annan og um sjálfa sig; hvar er helvítis veruleikinn sem þetta lið þykist vera að segja okkur frá, segja menn, og ekki að ósekju reyndar í fimbulfambi hinnar margfrægu rafmögnuðu fjöl- miðlabyltingar. „Þetta var frægasta lag þessar- ar geysivinsælu hljómsveitar og var mjög vinsælt á sínum tíma en það merkilega er að það hefur aldrei komið út á lítilli plötu.“ „Hér erum Við komin á vakt- ina, og það er þriðjudagur, og hvað gerist á þriðjudögum? jú á þriðjudögum er alltaf þriðju- dagsgetraunin..." „Og er ekki bara mikið að gera hjá ykkur þarna í Búðardal? í frystihúsinu?" Stöðvarleiðarinn En fjölmiðlar geta fjallað um fjölmiðla á ýmsan hátt, - eftir allt saman em fjölmiðlar snar þáttur af þeim veruleika sem sumir fjöl- miðlar reyna að fjalla um. Og nýr þáttur á Stöð tvö lofar góðu í fjöl- miðlaumfjöllun fjölmiðlanna, að minnsta kosti fyrir okkur hér á Seltjarnarnesinu og í kringum það sem náum Stöðinni truflaðri eða ótruflaðri. Jón Óttar Stöðvarstjóri kallar þáttinn sinn Leiðarann, og er ekki illa til fundið, og virðist búa undir hjá Jóni að „svara“ með nokkrum hætti sífelldri umfjöllun í dagblöðunum um rafmagnsmiðlana. Það var gaman að leggja skiln- ingarvitin við Leiðara Jóns Ótt- ars, - og ekkert við því að segja þótt Leiðarinn hafi verið soldið leiðandi, sem er betra en leiðindi. Við Jón Óttar spjölluðu þarna þrír fjölmiðlungar, þeir Indriði G. Tímaritstjóri, Hallg- rímur Thorsteinsson fréttastjóri á Bylgjunni og Eiður Guðnason sem hófst af sjónvarpsmennsku sinni í þingmannssæti og þarmeð inní útvarpsráð. Þetta var áka- flega huggulegt spjall enda allt kurteisir menn, en snerist í raun- inni uppí einskonar burtreiðar þarsem Jón Óttar og Hallgrímur skipuðu aðra sveitina og þeir Eiður og Indriði fylktu liði á móti. Nýju „frjálsu" rafmagns- miðlarnir gegn flokksblöðum og ráðstjóm á ríkisútvarpi. Og utan þess hrings var ekki neitt. Flokkavald og markaður Snjall útvarpsmaður og góður drengur, Hallgrímur á Bylgjunni, hamaðist gegn flokkstengdum fjölmiðlum. Á þeim væri lítið mark takandi, upplýsingum þeirra vart treystandi, landsföð- urtónn ritstjórnargreinanna þreytandi, heiðarleiki þeirra í efa dragandi. Þau sneru veröldinni til eftir því sem hentaði flokkspólit- ískum hagsmunum hverju sinni, enda hin flokkstengdustu flokks- blaðanna sífellt minni og ómerki- legri vegna þess að „fólkið“ vildi þau ekki og dæmdi þau úr leik gegnum markaðslögmálin. Sosum ýmislegt í þessu hjá Grími. Sú dauða hönd sem flokkavald fyrri áratuga lagði á íslenska fjölmiðlun hefur orðið til þess að skapa hljómgmnn fyrir slagorð um óháða frjálsa hlut- lausa blaðamennsku. Hinsvegar er auðvitað kláradella að mark- aðsstaða fjölmiðils, útbreiðsla, fjárhagur, segi nokkum skapað- an um gæði. Á þeim markaði sem fjölmiðlar mynda em boðnar fram ólíkar vörur, uppfyllt ýmiss konar eftirspurn, og ekki síst tengist þessi markaður öllum öðrum viðskiptamörkuðum. Fjölmiðlar eru skrítnar skepnur, líka frá markaðslegum sjónarhóli. Þeir selja sjálfa sig neytendum sínum, og þeir selja auglýsendum neytendur sína, eða í það minnsta aðgang að þeim. Það fer bæði eftir stærð neytendahópsins og samsetningu hvort fjölmiðill verður fýsilegur kostur fyrir auglýsendur, og inní þetta bætist svo auðvitað að við búum ekki í fótboltaspili, heldur samfélagi þarsem hagsmunir veg- ast á, sem leiðir til þess að auglýs- endur taka óbeina pólitíska af- stöðu, og jafnvel beina hagsmunaafstöðu. Af hverju skyldi Davíð Scheving Sólkon- ungur auglýsa svona mikið á Bylgjunni? Hlutleysi, heiðar- leiki Það stóð aldrei til að fara að lesa Kommúnistaávarpið yfir Hallgrími Thorsteinssyni. Hins- vegar er full ástæða til að gera nokkrar léttar athugasemdir við goðsögnina um frjálsa og óháða fréttamennsku, og hinn hlutlausa fjölmiðil, sem geislaði svo ákaft af þeim Jóni Óttari og Hallgrími í þættinum. Frétt getur einfaldlega ekki verið „hlutlaus". Hún getur í mesta lagi verið hlutlæg, í þeim skilningi að sagt sé sæmilega heiðarlega frá, aðilar máls fái að tjá sig ef um slíkt er að ræða, höfundur fréttarinnar láti viðtak- andanum eftir að draga ályktan- ir, - í eins miklum mæli og unnt er. Hlutiaus frétt getur ekki verið til vegna þess að hlutleysi er ekki til nema sem annáðhvort þjóð- réttarlegt hugtak eða samheiti við afskiptaleysi. Þegar sögð er frétt, -einsog reyndar hvað annað sem sagt er, kemur til sögu ákveðið sjónar- horn segjandans. Hann leggur mat á viðburðina, og með því einu að flokka sundur aðal- og aukaatriði er í raun tekin ákveðin afstaða, komið á framfæri ákveð- inni skoðun, meðvitaðri eða ó- meðvitaðri, viðtekinni eða ný- stárlegri. Heiðarleiki í blaða- mennsku felst meðal annars í því að gera sér grein fyrir þessu sjón- arhorni, reyna ekki að fela það fyrir viðtakandanum, vita af sjálfum sér sem lifandi síu milli upphafs og viðtöku. Þetta er ein- stigi, og menn verða að hugsa hvert fótmál. Óhæði eða frelsi er svo auðvit- að ekki til heldur. Einsog raunar var minnst á í Leiðaraþætti Jóns Óttars. Enginn er eyland, - og að sumu leyti eru þeir fjölmiðla- stjórnendur mestir blekkjendur sem hæst hrópa um óhæði sitt. Eigi að keppa að sem mestu til- tölulegu frelsi og óhæði er raunar ekki slæmt að setjast fyrst niður og athuga hverjum fjölmiðlung- urinn er háður Hérmeð er ekki verið að verja heiður flokksblaða. Enda bendir margt til þess að þau blöð sem haga sér nánast sem einkaritarar flokksforystu séu á á hröðu undanhaldi frá nútímanum um allan heim, meira að segja í hin- um Sameinuðu sósíalísku ráðst- jórnarríkjum. Hinsvegar er með þessu verið að verja rétt fjölmið- ils til að hafa sína eigin skoðun. Fjölmiðlar einsog íslensku út- vörpin og sjónvörpin, DV og Helgarpóstur segjast ekki hafa skoðun, þau endurómi allar skoðanir og enga þó, séu „hlut- laus spegill veruleikans". í raun er hættast við að þar sé aðallega speglað geldri meðalskoðun, hinni viðteknu, oftast þeirri sem í stéttbundnu samfélagi er vald- höfum kær, kerfinu. Hugmyndin um fjölmiðilinn sem hlutlausan spegil, sem sumsé er í sjálfu sér einsog ferköntuð kúla, er aftur- haldssöm í eðli sínu. Þetta þýðir ekki að það sé skylda hvers fjölmiðils að hafa einhverja skoðun. Hreinir pred- ikunarfjölmiðlar eru leiðinlegir og oftast óheiðarlegir. Og fyrir ríkisútvarpið, og hina rafmiðlana líka, er útí hött að fara að haga sér einsog dagblað á ákveðnum kanti í pólitík. Hinsvegar verða þessir miðlar að gera sér grein fyrir því að með endurspeglun viðtekinn- ar meðalskoðunar er einnig tekin afstaða. Hinn almenni óflokkspólitíski fréttamiðill Með því að tala er maður ac taka þátt. Hér um daginn voru opinberaðar niðurstöður úr fjöl- miðlakönnun, sem háskólastúd- entar gerðu, og það er hlálegt að með könnun sinni á afstöðu fjöl- miðlamanna voru kannendur sjálfir að taka afstöðu til fjölmiðl- anna. Könnunin snerist að mestu um blaðamanninn á vinnustað sínum, laun, helstu kosti blaða- manns, álit á hæfilegri menntun til slíks starfa og svo framvegis, en tvær spurningar fjölluðu um sjálfa fjölmiðlana. Þar var mönnum sagt að gefa blöðum, útvörpum og sjónvörp- um einkunn, annarsvegar eftir því hvað þetta væru góðir „al- mennir fréttamiðlar“, hinsvegar eftir því hversu „flokkspólitískir" þeir væru. Báðar spurningarnar má gagnrýna: hver er bestur al- mennur fréttamiðill? Sá sem segir flestar fréttir? Er stærstur? Leitar víðast fanga? Eða sá sem setur þær best í samhengi? Kann best að velja og hafna? Vekur fréttunum mesta hlutfallslega at- hygli? Og af hverju er spurt um flokkspólitík í þeirri stöðu að tveir af helstu fjölmiðlunum eru beinlínis gefnir út af stjórnmála- flokkum, þrír þeirra eru greini- “ /\J 1987 .. ÁRA þioo' lega tengdir stjórnmálaflokkum og afgangurinn segist algerlega óháður? Var ekki rétt að spyrja líka um pólitík meðfram flokkspólitík? Sjónvarpið er ekki flokkspólitískt (vonar maður) en er það pólitískt? Og þá í hvaða átt? En þetta er ekki málið. Málið er að með spumingunum tveimur eru stúdentarnir að velja sér fyrirfram hvað sé mikilvægast við fjölmiðil. Það var til dæmis ekki spurt hvort fjölmiðlar vektu um- ræðu meðal almennings, hleyptu til þess ferskum straumum, væru líklegir til að breyta samfélaginu, hvort einstakir fjölmiðlar þyrðu að bjóða voldugum aðilum birg- inn, vekja athygli á spillingu og samtryggingu, rísa gegn viðtekn- um venjuskoðunum, verja þá sem eiga undir högg að sækja. Meðal annars af þessum ástæð- um er ekki hægt að taka mikið mið af niðurstöðum úr þessum spurningum tveimur, og af þess- um ástæðum skömmumst við okkar ekkert hér á Þjóðviljanum þótt við höfum nánast fengið fall- einkunn hjá kollegum okkar á þessu prófi. Lengra, Hallgrímur, lengra! Sú kynslóð íslenskra fjölmiðl- unga sem nú er smátt og smátt að taka stjórnina hafði uppi þann gunnfána að afneita þeim fjöl- miðlaheimi sem hún ólst upp við, heimi þarsem fjórir flokkar not- uðu fjögur blöð sem hljóðnema og útvarpið hafði þá hugsjón að sitja hreinlíft og aðgerðarlítið við hliðina á Lögbirtingablaðinu. Þessi kynslóð greip fegins hendi amerískum draumi um óháða frjálsa og hlutlausa frétta- mennsku, með svolitlu ævintýra- kryddi um blaðamanninn James Bond eða Sherlock Holmes gegn vondri spillingu. Eitt af því sem þyrfti að fylgja nýrri stöðu í hérlendri fjölmiðlun er að fjölmiðlamenn hætti sér lengra, rýni í félagsrammann utanum starf sitt, geri sér grein fyrir pólitískum afleiðingum þess að vera eða vera ekki. Eða hafna menn því að vera segulbönd fyrir stjórnmálaflokka til þess eins að spyrja um hrað- frystihús í Dölum, þylja þriðju- dagsgetraunina eða upplýsa þjóð sína um það hvaða dægurlög eru til á litlum plötum og hver á stór- um? Mörður Árnason

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.