Þjóðviljinn - 18.07.1987, Side 2
-rSPURNINGINB"
Spurt á Hvolsvelli:
Verður þú var við aukinn straum
ferðamanna um hóraðið?
Agúst Ingl Ólafsson,
aðstoðarkaupfólagsstjóri:
Það eru fleiri erlendir ferðamenn sem
fara hér í gegn og sérstaklega verður
maður var við fólk sem ferðast á putt-
anum. Ég verð ekki var við að landinn
ferðist neitt meira en áður.
Guðjón Árnason,
skálavörður í Þórsmörk:
Erlendir ferðamenn eru ekkert fleiri í
Þórsmörk en síðustu ár en islending-
arfiykkjast þangað. Um síðustu helgi
vorum við með um 1000 manns f lesta
úr Fólagi eldri borgara í Reykjavík.
Það koma miklu fleiri ferðamenn í
Mörkina í sumar en oft áður.
Kjartan Magnússon,
bóndi Hjallanesi í Landsveit:
Ég hef nú verið erlendis að undan-
fömu en mér finnst vera ótrúlegur
flöldi útlendinga að ferðast hór á putt-
anum eins og sagt er. Áshreppingar
eru komnir á kaf í ferðamannabrans-
ann og ferja fólk skipulega inn á afrétt
og eru með kaffisölu þar.
Guðrún Æglsdóttlr,
vinnur í Landsbankanum:
Nei, ég hef nú ekki orðið var við það.
Þeir eru ekkert fleiri en undanfarin ár.
Slgrfður Karlsdóttir,
afgreiðir í sjopþu K.R.:
Jú, frekar er það nú. Það er líka tals-
vert meira af útlendingum sem ferð-
ast á puttanum hórna.
FRÉTTIR
Akureyri
Ferðanám í Háskólann?
Hugmyndir heimamanna um kennslugreinar: Sjávarútvegsfrœði, rekstrarfræði,
ritarabraut, matvœlafrœði ogferðaþjónusta. Iðnrekstrar- og hjúkrunarfrœðií vetur
Meðal þeirra hugmynda sem
háskólanefnd Akureyrar hefur
sett fram um hugsanlegar
kennslugreinar í Háskólanum á
Akureyri er kennsla í ferðaþjón-
ustu, sjávarútvegsfræðum,
rekstrarfræði, ritarabraut og
matvælafræði.
Aðalgeir Pálsson rafmagns-
verkfræðingur á sæti í háskóla-
nefnd Akureyrar og sagði hann í
gær að háskólanefnd Akureyrar
væri hugsuð sem nefnd heima-
manna til að gera tillögur um
hvað leggja beri áherslu á að
kenna í skólanum á komandi
árum og höfum við einungis
tillögurétt, en ekkert vald til að
ákveða það. Þessar tillögur okkar
eru á frumstigi og það á eftir að
fjalla mun ítarlegar um þær á
næstu fundum háskólanefndar-
innar. Allar þessar hugmyndir
sem fram hafa komið eru þess
virði að þær séu skoðaðar nánar,
en hvað úr þeim verður er
ómögulegt að segja á þessu stigi
málsins, en þær eru allar allrar
athygli verðar.“
Háskólinn á Akureyri mun
hefja sitt fyrsta starfsár á hausti
komandi og hafa 15-20 stúdentar
skráð sig í nám í iðnrekstrarfræði
og 10 í hjúkrunarfræði, en þessar
tvær greinar eru kenndar á fyrsta
árinu. Háskólinn hefur fengið
inni í gamla Iðnskólanum þar
sem Verkmenntaskólinn er til
húsa. Forstöðumaður háskólans
er Haraldur Bessason, brautar-
stjóri er Stefán Jónsson og skrif-
stofustjóri Bárður Halldórsson.
grh.
Þeir fólagamir Smári Guðmundsson og Hrafnkell Gíslason voru önnum kafnir við að hlaða steinvegg umhverfis lóð
Þjóðarbókhlöðunnar í gær. Innan við vegginn verður síki mikið og þarf því að byggja síkisbrú að inngangi bókahússins.
Mynd Ari.
Þjóðarbókhlaðan
Síkisbm að inngangi
45 milljóna króna fjárveiting til Þjóðarbókhlöðu íár. Gert
ráð fyrir að húsið verði tilbúið árið 1990
Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmt verði fyrir um 45 milljónir
við Þjóðarbókhlöðuna í Reykja-
vík ó þessu ári og er um þessar
mundir unnið við að steypa inn-
gang hússins og ganga frá ýmsu á
lóðinni.
Verið er að hlaða steinvegg
umhverfis lóð Þjóðarbókhlöð-
unnar en gert er ráð fyrir að sjö
metra breitt síki umkringi bygg-
inguna.
Þar af leiðandi verður að
byggja brú undir þá sem í fram-
tíðinni munu leggja leið sína í
þetta merka hús, sem vonast er til
að verði fullgert árið 1990.
-gg
GURKA fc
DAGSINS M
-mtfcr
Suðurland
Box 233 - M0 Sdfowl
Gefíö út af kjördæmisráði Sjálfiueðisflokksms á Suðurlandi.
Kltitjórn, akrtfstofa, au|lýsla|ar, Maðaafgrtlðsla, áskrtft:
Austurvegi 22, Selfossi, slmi 99-1004. Heimaslmi ritstjóra: 2258.
Prentsmiöja Suðurlands hf. Selfossi.
Sumar
og
sól
iðustu vikurnar hefur I tclja sig jafnvel þess uml
) veörið svo sannarlega að virða reynslu get
ImlriA viA lanHcmpnn I Vvnclóða »A vntllloi Pr
Sumar hjá
Steina
Gúrkanfer til
„Suðurlands“,
málgagns Sjálfstæðis-
flokksins í
Suðurlands-
kjördæmi, fyrir
sumarleiðara
Það er gúrkutíð víðar en á dag-
blöðunum. Landsbyggðarblöðin
segja nú hverja stórfréttina ann-
arri merkari, og leiðarahöfundar
þeirra eru ekki síður í essinu sínu.
í málgagni forsætisráðherra,
Suðurlandi, sem sunnlenskir
Sjálfstæðismenn gefa út, eru
sicrifaðir einbeittir leiðarar, og
leiðari síðasta tölublaðs var af
þeirri gerð að af ber. Suðurland
fær því gúrku dagsins fyrir leiðar-
ann „Sumar og sól“.
Þar segir meðal annars að
sumarið sé „gengið í garð og
komi það fagnandi" eftir kosn-
ingabaráttuna „þar sem naprir
vindar vorhretanna léku um
sali“. Suðurland segir að þessa
mánuði verði lesendur „að nota
til þess að hlúa að jarðargróðri og
vinna nauðsynlega undirbúnings-
vinnu fyrir haustið og veturinn.
Leiðarahöfundur Suðurlands
getur gengið að gúrku sinni vísri á
ritstjórn Þjóðviljans, en þess má
geta að fyrsta gúrkan var afhent
fréttastjórum Tímans í gær við
hátíðlega athöfn. Skúmur
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. júlf 1987