Þjóðviljinn - 18.07.1987, Blaðsíða 3
FRETTIR
Neytendakönnun
Dagheimili
dýrust á Nesinu
Töluverður munur á vistgjöldum dagheimila í könnun
Neytendablaðsins
Inýju tölublaði „Neytendablaðs-
ins“ kemur fram töiuverður
munur á vistgjöldum dagheimila
eftir bæjarfélögum, og er gjaldið
yfirleitt hæst á Seltjarnarnesi þar
sem samanburði verður komið
við.
Gjöld voru hækkuð 1. júní á
Akureyri, ísafirði, Reykjavík og
Seltjarnarnesi, og 1. ágúst á að
hækka á Húsavík og í Vest-
mannaeyjum á að hækka bráð-
lega, en ekki er vitað um hækkun
í Hafnarfirði og Neskaupstað
segir í blaðinu.
I formála fyrir könnuninni í
Neytendablaðinu segir:
„Mesti munur á leikskólagjaldi
í 5 klst. er 1505 kr. Það kostar
4255 kr. á Seltjarnarnesi en 2750
kr. í Hafnarfirði. Hinsvegar býð-
ur Seltjarnarneskaupstaður nú
sérstakt leikskólagjald fyrir ein-
stæða foreldra, 2000 kr. í 4 klst.
og 2530 kr. í 5 klst. Áður bauð
aðeins Vestmannaeyjabær upp á
slíkt gjald, af þeim stöðum sem
kannaðir voru, 1800 kr. á leik-
skóla í 5 klst.
Á Akureyri er hægt að fá fæði í
hádegi fyrir böm sem eru 6 klst. á
leikskóla, það kostar 4250 kr.
Það er einnig hægt í Reykjavík og
kostar 1035 kr. aukalega á mán-
uði, þ.e. 5025 kr. dvelji barnið í 6
klst. og4360 kr. dvelji það í 5 klst.
Mesti munur á dagheimilis-
gjaldi fyrir einstæða foreldra er
1040 kr. Á Akureyri er gjaldið
4490 kr. en 3450 kr. í Vestmanna-
eyjum og Hafnarfirði. Mesti
munur á almennu dagheimilis-
gjaldi er 2225 kr. Það er lægst í
Hafnarfirði, 5225 kr. en hæst á
Seltjarnarnesi, 7450 kr.
í þrem sveitarfélögum er sama
gjald fyrir námsmenn og ein-
stæða foreldra. í Hafnarfirði,
Reykjavík og á ísafirði.“
Akureyri Hafnar- fjörður Húsavík ísafjörður Neskaup- staður Reykjavík Seltjarnarnes Vestmanna- eyjar
Leikskólar 4 kist 2.840 2.200 2.300 2.640 2.300 2.660 3.275
Leikskólar5klst. 3.460 2.750 2.800 3.300 3.325 4.255 2.750
4 klst. einstæðir foreldrar 2.000
5 klst. einstæðir foreldrar 2.530 1.800
5 klst. m/hádegismat 4.360
6 klst. m/hádegismat 4.250 5.025
Dagheimili-einst.foreldrar 4.490 3.450 3.700 4.200 3.500 4.160 4.410 3.450
Dagheimili-námsmenn 3.450 4.200 4.160
Dagheimili-almennt gjald 6.600 5.225 5.500 6.900 5.500 6.310 7.450 5.400
Það skiptir máli hvar fólk býr, ef það á að fá pláss á dagvistarheimili fyrir vnqstu
kynslóðina. (Mynd: E.ÓI.).
Norðurland
Mjólkurkvótinn aðfyllast
Umframmagn hjá KEA verður 1,2-1,5 milljón lítrar. 15 búnir með kvótann sinn
Um síðustu mánaðamót voru
15-16 bændur komnir fram
yfir mjólkurkvótann og ég hef trú
á því að þegar verðlagsárinu lýk-
Nauðsynjar
Kaupmenn
gegn
matar-
skatti
Spáð hœrra vöruverði
vegna þjónustuskatts
Kaupmannasamtökin mót-
mæla harðlega fyrirhuguðum
matarskatti í ályktun frá fulltrú-
aráði samtakanna.
Kaupmenn segja að auk þess
að hækka verð á helstu nauðsynj-
avörum muni típrósent sölu-
skattur á ýmsar matvörur íþyngja
kaupmönnum „með því að láta
þá inna af hendi enn meiri þegn-
skylduvinnu fyrir ríkissjóð“ við
innheimtu skattsins og uppgjör.
Þá vekur fulltrúaráðið athygli á
að söluskattur á ýmsa þjónustu
sem verslanir og fyrirtæki þurfi
almennt að kaupa, svo sem bók-
haldsþjónustu og tölvuvinnslu,
auki kostnað við rekstur verslana
„sem endanlega þýðir að almenn-
ingur í landinu þarf að greiða
með hærra vöruverði".
• m
ur 31. ágúst næstkomandi verði
helmingur bænda sem leggur inn
mjóik hjá okkur búinn með kvót-
ann, eða um 125 bændur, sagði
Þórarinn Sveinsson, mjólkurbú-
stjóri mjólkursamlags KEA á Ak-
ureyri.
Að sögn Þórarins reyna þeir
bændur sem búnir eru með kvót-
ann sinn að leigja eða kaupa
kvóta af þeim sem eiga nóg eftir
af honum, en einhverjir hafa þó
^ellt niður mjólk. Hversu mikið
það er og hve margir bændur
ættu þar hlut að máli, vildi Þór-
arinn ekki gefa upp. Mjólkur-
kvótinn á samlagssvæðinu er um
20,7 milljónir lítra af mjólk og er
búist við að umframmagnið sem
lagt verður inn til loka verðlags-
ársins nemi um 1,2-1,5
milljónum lítra. Langmestur
hluti þess fer í ostagerð.
Páll Svavarsson mjólkurbú-
stjóri á Blönduósi sagði að farið
væri að síga á seinnihlutann hjá
mörgum bændum í Húnavatns-
sýsiunni með mjólkurkvótann og
bjóst hann við að umframmagnið
sem þangað komi nemi nokkrum
hundruð þúsund lítrum. Þar eins
og á Eyjafjarðarsvæðinu selja
menn og leigja kvóta af hvor öðr-
um eftir því sem það er hægt. Þar
er mjólkurkvótinn um 4 milljónir
á þessu verðlagsári. Ekki hefur
frést af neinum bónda þar, sem
byrjaður er að hella niður mjólk.
grh.
Forræðissvipting
Engin heildar úttekt
Brotalamir á skráninguforrœðissviptingarforeldra. Guðjón Bjarnason,
framkvœmdastjóri Barnaverndarráðs: Engin samantekt til yfir landið á eðli
og umfangi forrœðissviptinga. Lang oftast um tímabundna vistun að ræða
Petta er rannsóknarverkefni
sem er óunnið. Það er ekki til
nein samantekt á ástæðum,
fjölda, aldri og kynskiptingu
þeirra barna sem tekin hafa verið
af foreldrum sínum vegna forr-
æðissviptingar, sagði Guðjón
Bjarnason, framkvæmdastjóri
Barnaverndarráðs.
Að sögn Guðjóns Bjarnasonar
eru það miklar brotalamir á
skráningum hinna einstöku
bamaverndarnefnda að ekki er
unnt að gefa upplýsingar um
ástæður forrræðissviptingar for-
eldra yfir börnum sínum.
- Árið 1985 voru hér á landi,
að Reykjavík undanskilinni, 24
börn sett í vistun fjarri foreldr-
um, til lengri eða skemmri tíma,
með eða án samþykkis foreldra.
Yngri tölur eru ekki samantekn-
ar. Sem betur fer eru þau tilfelli
miklu færri, þar sem verður að
beita svonefndum þvingunarúr-
ræðum, þar sem börn eru tekin af
foreldrum gegn þeirra vilja. Því
miður hef ég ekki sambærilegar
upplýsingar fyrir Reykjavík þetta
ár né árið á undan. Ástæðan er
einfaldlega sú að Félagsmála-
stofnun Reykjavíkur er ekki enn
búin að skila upplýsingum til
mín, sagði Guðjón Bjarnason.
- Þetta er ekkert laununga-
mál. í Reykjavík á árinu 1985
voru kveðnir upp fjórir úrskurðir
um forræðissviptingu 5 barna og
3 börn að auki voru tekin af for-
eldrum til skemmri vistunar,
sagði Sveinn Ragnarsson, félags-
málastjóri Reykjavíkurborgar.
Tölur um fjölda tímabundinn-
ar og langtíma forræðissviptingar
foreldra í fyrra eru ekki tilbúnar
hjá Félagsmálastofnun.
- rk
Hcestiréttur
Óvíst með
Hafskipsmál
Óvíst er hvenær áfrýjun á-
kæruvaldsins á frávísunarúr-
skurði Sakadóms vegna ákæra í
Hafskipsmálinu, verður tekin
fyrir í Hæstarétti. Réttarhlé er
hjá Hæstarétti fram f september
vegna sumarleyfa.
-Eg get ekkert fullyrt um það
hvenær úrskurður Sakadóms
kemur til okkar kasta. Þannig er
að meðan réttarhlé er í Hæsta-
rétti, tökum við vísast ekki önnur
mál fyrir en mál um gæsluvarð-
haldsúrskurð. Hvort það verður
gerð einhver undantekning á
þessu eina máli, get ég ekkert
fullyrt um. Ég mun halda fund
með dómurum í næstu viku og þá
verður tekin ákvörðun um fram-
gang málsins, sagði Magnús
Thoroddsen, forseti Hæstaréttar.
-RK
Fœðingardeildin
Einungis
neyðarbrauð
Þetta er einungis neyðarbrauð.
Okkur hefur ekki tekist að fá
fleira fólk í vinnu á sumrin til af-
leysinga, sagði Davíð Gunnars-
son forstjóri Ríkisspítalanna um
aðvörun sem send hefur verið til
sængurkvenna um að þær verði
að búa sig undir að fá ekki lengri
spítalavist en 3-4 daga eftir fæð-
ingu.
Davíð sagði að aðvörunin væri
ekki frá yfirstjórn spítalanna
heldur frá fæðingardeildinni sem
sendi aðvörunina út af fenginni
reynslu, en á undanförnum árum
hefði gengið mjög illa að manna
deildimar yfir sumartímann.
-K.ÓI.
1967-3987 Á
... sr/1 e*
Bindindismótið Galtalækjarskógi Ci^jP
Verslunarmannahelgin 31. júlí til3. ágúst 1987 ★ Bergþóra Árnadóttir ★ Hljómsveit Geirmundar ★ Rauðir lletir ★ Rocky ♦ Bláa bilskúrsbandið
Metan ★ Kvass * Ómar Ragnarsson ★ Jörundur ★ Július ★ Flugeldasýning ★ Barnaleikhúsið ★ Kristinn Sigmundsson ★ Hjörtur Benediktsson, eftirherma