Þjóðviljinn - 18.07.1987, Page 10
ERLENPAR FRETTIR
Frakkland/ íran
Starf bæjarritara
Hér með er auglýst laust til umsóknar starf bæjar-
ritara á Akranesi. Háskólamenntun er æskileg.
Nánari upplýsingar um starfið veita bæjarstjóri
og bæjarritari í síma 93-11211.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst n.k.
Bæjarstjórinn á Akranesi
Fóstrur, kennarar og
annað uppeldismenntað
fólk
Okkur vantar fóstru, kennara eða fólk með aðra
uppeldismenntun á skóladagheimilið að Kirkju-
vegi 7.
Okkur vantar forstöðumann á leikskólann/dag-
heimilið Ásheima og forstöðumann á leikskólann
Glaðheima. Fóstrumenntun áskilin.
Fóstrur á öllum deildum.
Nánari upplýsingar á Félagsmálastofnun Sel-
foss, Eyrarvegi 8, sími 99-1408.
Dagvistarfulltrúi
^Húsnæðisstofnun ríkisins
_____________TÆKNIDEILD_____________
Simi 696900
Útboð
Þórshafnarhreppur
Stjóm verkamannabústaða Þórshafnarhrepps
óskar eftir tilboðum í byggingu íbúða í parhúsi,
byggðu úr steinsteypu. Verk nr. U 21.01 úr
teikningasafni tæknideildar Húsnæðisstofnunar
ríkisins.
Brúttóflatarmál húss 176 m2
Brúttórúmmál húss 598 m3
Húsið verður byggt við götuna Vesturveg 4A og
4B Þórshöfn og skal skila fullfrágengnu, sbr. út-
boðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á sveitarstjórnarskrif-
stofu Þórshafnarhrepps, Langanesvegi 3, Þórs-
höfn og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins frá fimmtudeginum 23. júlí 1987 gegn kr.
5.000.- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sömu staði eigi síðar en
miðvikudaginn 5. ágúst 1987 kl. 11.00 og verða
þau opnuð að viðstöddum bjóðendum.
F.h. stjórnar verkamannabústaða
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins
^ Húsnæðisstofnun ríkisins
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns míns og bróður okkar
Sigfúsar Jóhannssonar
Sléttahrauni 15 Hafnarfirði
Bára Guðbrandsdóttir og systkini
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við and-
lát og útför
Ólafs Þórðar Þórarinssonar
Kársnesbraut 111, Kópavogi
Ester Benediktsdóttir
Ulfur Óiafsson
Nanna Ólafsdóttir Þórhannes Axelsson
Guðrún Edda Þórhannesdóttir
Axel Ólafur Þórhanness. Sigurður Orri Þórhanness.
Guðbjörg Þórarinsdóttir Valgerður Þórarinsdóttir
Slrta stjómmálasambandi
Sendiráðsmenn beggja hypji sig innan fimm daga. Hvað
verður um franska gísla í Líbanon?
Frakkar og íranar rufu
stjórnmálasamband ríkja
sinna í gær. Það var franska
stjórnin sem reið á vaðið og mun
ástæðan vera dvöl meints hryðju-
verkamanns í íranska sendi-
ráðinu í París. Stjórnvöid hafa
ítrekað reynt að fá hann fram-
seldan síðustu átján daga en
hvorki gengið né rekið. Hann er
grunaður um hiutdeild í
sprengjutilræðum í höfuðborg-
inni í fyrra þegar fjöldi manns
beið bana.
, Samskipti ríkjanna tveggja
hafa verið mjög stirð undanfarin
misseri og er vopnasala Frakka til
erkifjenda írana, íraka, megin-
ástæðan. Jacques Chirac hafði
síðustu sextán mánuði gert sitt
ítrasta til að færa sambandið í
skikkanlegt horf en allt komið
fyrir ekki og var sendiráðsmálið
síðan kornið sem fyllti mælinn.
Ekki liðu nema sex klukku-
stundir frá því franska stjórnin
tilkynnti ákvörðun sína að íranir
svöruðu í sömu mynt. Meginrök
þeirra voru þau að Frakkar hefðu
gengið í berhögg við Vínar-
sáttmálann um úrlendisrétt og
friðhelgi erlendra sendimanna.
Bæði Frakkar og íranir hafa mælt
svo fyrir að sendiráðsfólk deilu-
nautarins skuli hafa sig á brott úr
landi sínu innan fimm daga.
Franska lögreglan hafði mik-
inn viðbúnað fyrir utan íranska
sendiráðið í gær. 180 lögreglu-
þjónar slógu hring um bygging-
una til að koma í veg fyrir að
Þessir menn vilja ekkert vita hvor af öðrum. Ajatollah Ruhollah Khomeini
„andlegur faðir“ frana og Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakka.
hryðjuverkamaðurinn reyndi að
komast undan. Hann mun ekki
eiga sér undankomu auðið, vopn-
aðir verðir bíða uppi á þökum ef
hann skyldi reyna þá leið og koll-
egar þeirra eiga illa vist ofaní hol-
ræsum.
Skömmu eftir að ákvörðun
Frakka varð lýðum ljós var haft
samband við útibú alþjóðlegra
fréttamiðla í Beirút í Líbanon.
Var þeim tjáð að tveir franskir
gíslar sem eru í haldi samtakanna
„Heilagt stríð“ yrðu teknir af lífi
yið fyrsta tækifæri vegna ósvífni
Frakka í garð írana.
Samtök þessi eru skipuð síta-
múslimum sem bera ákaflega
sterkar taugar til trúbræðranna í
Persíu. Þau hafa haldið frönsku
sendiráðsmönnunum Marcel
Carton, sem er 62 ára, og Marcel
Fontaine, 43, í gíslingu allar göt-
ur frá því í marsmánuði árið 1985.
Talið er að miklar mótmæla-
göngur gegn Frakklandi verði
gengnar í Teheran á morgun og
óttast stjórnin í París mjög um
öryggi þegna sinna í íran.
-ks.
Kosningarnar I Portúgal á sunnudag munu umfram annað snúast um það hvort jafnaðarmenn, undir forystu Cavacos
Silva, muni verða einráðir á þingi.
Portúgal
Þingkjör á morgun
Jafnaðarmenn gera sér vonir um hreinan meirihluta og skoðanakann-
anir benda til þess að þeim verði að ósk sinni
Kosningabaráttunni í Portúgal
lauk formlcga í gærkveldi en á
sunnudag ganga landsmenn að
kjörborði og kjósa til þings.
Kosningabaráttan hefur fyrst
og fremst fjallað um eitt; tekst
Cavaco Silva forsætisráðherra og
Jafnaðarmannaflokki hans að fá
hreinan meirihluta þingsæta.
Það yrði í fyrsta skipti í 13 ára
sögu endurreists lýðræðis í Portú-
gal að einn flokkur yrði allsráð-
andi á þinginu. Til þess að slíkt
megi verða þurfa jafnaðarmenn
að hreppa 43 prósent atkvæða og
verulegar líkur eru á því að það
takist ef marka má tvær skoðana-
kannanir. Niðurstöður þeirra
voru birtar í fyrradag.
Sé tekið meðaltal úrslita
beggja þá mun Jafnaðarmanna-
flokkurinn fá um 43 prósent
greiddra atkvæða, nákvæmlega
jafn mikið og þarf til að fá meiri-
hluta 250 sæta á þingi.
Sósíalistaflokkur Vitors Con-
stancios lenti í öðru sæti með 23
af hundraði. Sá flokkur má sann-
arlega muna fífil sinn fegurri því
hann var að jafnaði vinsælasta
stjórnmálafl Portúgals meðan
hann laut forystu Marios Soares-
ar sem nú gegnir embætti forseta
landsins. Engu að síður er ljóst að
sósíalistar munu vinna örlítið
fylgi frá því í kosningunum árið
1985 en þá galt flokkurinn hroða-
legt afhroð.
Það var að hluta til nýjum
vinstriflokki Ramalhos Eanesar,
fyrrum forseta, að kenna. Hann
vann þá glæstan sigur og fékk 45
menn kjöma. Samkvæmt fyrr-
nefndum könnunum mun Endur-
reisti lýðræðisflokkurinn tapa
þriðjungi atkvæða á sunnudag-
inn.
Hinsvegar munu kommúnistar
og bandamenn þeirra halda sínu
og fá 38 menn kjörna. Leiðtogi
þeirra, hinn aidni bragðarefur
Alvaro Cunhal, hvatti landa sína
í gær til að koma í veg fyrir að
Silva yrði einráður í Portúgal.
Kvaðst hann fús til að taka þátt í
vinstristjóm sósíalista, endur-
reistra lýðræðissinna og komm-
únista ef tækist að hnekkja fyrir-
ætlunum jafnaðarmanna.
Allur kosningaáróður er
stranglega bannaður í Portúgal
daginn fyrir kjördag. Þá er ætlast
til að landslýðurinn íhugi málin
og geri upp sinn hug. Forseti lýð-
veldisins mun ávarpa þegna sína í
dag og hvetja þá til að greiða at-
kvæði. Margir óttast að metskróp
verði á morgun og um 30 af
hundraði 7,8 miljóna atkvæðis-
bærra manna muni sitja heima.
-ks.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNÍ Laugardagur 18. júlí 1987