Þjóðviljinn - 18.07.1987, Qupperneq 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Hvor þessara föngulegu pilta skyldi kunna meira fyrir sér í skák? Elólistinn segir okkur að Kasparof sé miklu betri enda
hefur hann 2740 stig á móti 2700 stigum Karpofs. En er málið svo einfalt?
Skák
Hver er bestur?
Þótt elóstig séu almennt talinn mælikvarði á styrk skákmanna
er ekki alltsem sýnist
Það er ærið umdeilanlegt hve
sterkur sterkur stórmeistari í
skák kann að vera. Hér áður og
fyrr orkaði slíkt jafnan tvímælis
og menn sem unnið höfðu sér
nafnbótina „heimsmeistari í
skák“ gátu haldið þeim titli svo
lengi sem þeim sýndist því þeir
réðu því hvort þeir gáfu einhverj-
um kollega sinna kost á því að
svipta sig sæmdarheitinu.
Eigingirni
Aljekíns
Eitt frægasta dæmið um slíkt
gerræði er framkoma Alexanders
Aljekíns gegn Raoul Capa-
blanca. Kúbumaðurinn Capa-
blanca varð heimsmeistari eftir
að hafa lagt hina öldnu kempu
Emmanúel Lasker að velli í ein-
Moskvu
kvikmyndahátíð
Fellini vann
Það var nýjasta hugsmíð ítal-
ska kvikmyndaleikstjórans Fe-
dericos Fellinis, „Viðtalið“, sem
valinn var besta filman á kvik-
myndahátíðinni í Moskvu sem
lauk í gær.
„Viðtalið“ fjallar um líf og
hugðarefni kvikmyndaleikstjóra.
Dómnefndin er hreifst svo af
þessari mynd var, sem kunnugt
er, undir forystu bandaríska
leikarans og leikstjórans Roberts
de Niro.
Bretinn Anthonhy Hopkins
var kjörinn besti leikarinn og
Ungverjinn Dorothy Udvaros
fremst leikkvenna.
Sérstök aukaverðlaun fengu
Sovétkonan Karen Shakhnazarof
fyrir mynd sína „Kurier“ og Pól-
verjinn Felix Falk fyrir „Hetju
ársins.“
Efnt hefur verið til kvikmynda-
hátíðar í Moskvu á tveggja ára
fresti allar götur frá árinu 1959.
Orðstír hátíðarinnar var orðinn
næsta pervisinn á síðari hluta
valdaskeiðs Leonids heitins
Brésnefs en nú var kappkostað
að fá bestu fáanlegar kvikmyndir
og einvalalið í dómnefndir til að
auka hróðurinn á ný.
-ks.
vígi. Árið 1924 gaf hann rússan-
um Alexander Aljekín kost á því
að tefla einvígi um titilinn. Það er
skemmst frá því að segja að Alj-
ekín sigraði og varð heimsmeist-
ari.
En Aljekín gaf Capablanca
aldrei kost á því að ná fram
hefndum. Og hann forðaðist
einsog heitan eldinn að þreyta
kapp við sterkust skákmennina
og leggja krúnuna að veði. Hann
var til að mynda mjög öruggur
um sigur er hann bauð Hollend-
ingnum Max Euwe til einvígis
árið 1935, full viss í sinni sök því
hann drakk eina flösku af ákavíti
á dag þann tíma sem einvígið tók
og tapaði.
Euwe var sjentílmaður og gaf
Aljekín kost á því að glíma um
titilinn tveim árum síðar. Að því
sinni drakk Rússinn aðeins mjólk
og vann léttan sigur.
Aljekín lést í lok síðari
heimstyrjaldar og þá var keppn-
inni um skákkrúnuna komið í
fastar skorður. Síðan hefur
heimsmeistari orðið að verja há-
sætið í einvígi við öflugan and-
stæðing með jöfnu millibili.
Er heimsmeistari
heimsmeistari?
En menn gátu enn deilt um það
hvort heimsmeistari væri í raun
og veru bestur. Sovétmaðurinn
Petrosjan hélt titlinum í sex ár,
1963-1969, en sigraði sjaldan á
öflugum mótum. Þetta helgaðist
af skákstíl hans, hann tapaði nán-
ast aldrei en sigraði aðeins oftar.
Einvígi voru því hans sterka hlið.
En margir héldu því fram að hann
væri illa að skákkrúnunni kom-
inn.
Af prófessor Eló
og hugsmíð hans
Á sjöunda áratugnum var
tekið upp nýtt og dágott kerfi við
mat á skákstyrk manna og var
það skýrt í höfuðið á höfundin-
um, stærðfræðiprófessornum
Eló.
Samkvæmt því er frammistaða
manna metin á sex mánaða fresti
út frá úrslitum skáka, fjölda
þeirra og styrkleika andstæðing-
anna. Þeim er þvínæst gefin stig,
hin frægu elóstig.
Sá skákmaður þykir býsna
góður sem státar af 2500 elóstig-
um. Einsog sakir standa þá eigum
við íslendingar fjóra skákmenn
sem eru yfír því marki (því þótt
Margeir Pétursson hafi „aðeins“
2490 samkvæmt nýja listanum þá
blandast fáum hugur um að styrk-
ur hans sé miklu meiri en stigin
gefa til kynna, hann hefur verið
mjög óheppinn í ár). Okkar hæsti
maður, Jón L. Árnason hefur nú
2555 stig sem er prýðilegt.
„Súper
stórmeistarar“
og ferðasirkúsar
Aðeins sautján stórmeistarar
hafa 2600 stig eða fleiri. Slíkir
meistarar eru gjarna nefndir
„súperstórmeistarar" og tefla
ógjarna á mótum sem minni spá-
menn heiðra með nærveru sinni.
Svo sterkir skákmenn eru iðulega
atvinnumenn í faginu og ferðast á
milli landa ailt árið um kring og
etja kappi innbyrðis á lokuðum
mótum. Þeir eru því nefndir
„ferðasirkúsinn" af gárungunum.
Fischer á elómetið
Afar fátítt er að skáksnillingar
hreppi 2700 stig eða fleiri. f fljótu
bragði minnist ég aðeins fjögurra
sem hreykt geta sér af slíkum ár-
angri. Enginn er enn nærri því að
slá met Bandaríkjamannsins Ro-
berts James Fischers sem hafði
2780 elóstig þegar hann kvaddi
hinn eðla leik árið 1975, nýkrýnd-
ur heimsmeistari. Garrí Kaspa-
rof, núverandi krúnuhafí hefur
mest náð 2745 stigum og Karpof
vinur hans 2730. Mikael Tal var í
banastuði árið 1979 og komst upp
í 2705 og um svipað leyti var Vikt-
or Kortschnoi býsna nærri þessu
marki en hann komst aldrei
lengra en að hreppa 2695.
Kasparof
er bestur...
Samkvæmt nýja listanum er
Garrí Kasparof langsterkasti
skákmaður heims. Hann hefur
nú 2740 elóstig, 40 stigum meira
en landi hans og fyrrum
heimsmeistari, Anatólí Karpof.
Það ætti því samkvæmt þessu að
Bobby Fischer er langbesti skákmaður heims fyrr og síðar. Ef marka má
elókerfið.
vera léttur leikur fyrir hann að
sigra í innbyrðis viðureign þeirra
um krúnuna (þeirri fjórðu á þrem
árum!) í Sevilla á Spáni í haust.
...en er hann
betri en Karpof?
En málið er hreint ekki svo ein-
Áhætta er honum ekki að skapi.
Fyrir vikið sigrar Kasparof oft-
ar en Karpof andstæðinga á borð
við Timman, Portisch, Tal og
Ljubojevic. En töpin eru jafnfá
hjá báðum og í einvígi er aðalat-
riðið að tapa ekki, samanber
kaflann um Petrosjan. Menn geta
orðið heimsmeistarar með því að
FIDE
20 sterkustu
skákmenn heims
1. Garrí Kasparof (Sovét)........................................2740
2. Anatólí Karpof (Sovét)........................................2700
3. Artur Jusupof (Sovét)..........................................2635
4. Andrei Sokolof (Sovót).........................................2635
5. Viktor Korschnoi (Sviss).......................................2630
6. Jan Timman (Holland)...........................................2630
7. Alex Beljavsky (Sovót).........................................2630
8. Mikael Tal (Sovét).............................................2625
9. Ljubomir Ljubojevic (Júgó).....................................2625
10. Predr. Nicolic (Júgó)..........................................2620
11. Nigel Short (Engl.)............................................2620
12. Lajos Portisch (Ung.)..........................................2615
13. Jon. Speelman (Engl.)..........................................2615
14. Robert Huebner (V.-Þýsk.).....................................12610
15. Kiril Georgiev (Búlg.).........................................2605
16. Yasser Seirawan (USA)..........................................2600
17. Ulf Andersson (Svíþjóð)........................................2600
18. Zoltan Ribli (Ung.)............................................2595
19. Lev Polugajevsky (Sovét).......................................2595
20. Rafael Vaganjan (Sovét)........................................2595
falt. Þótt báðir þessir snillingar
eigi fremur létt með að sigra alla
andstæðinga sína þá er viðhorf
þeirra til íþróttarinnar með ólíku
móti. Kasparof berst til þrautar í
hverri einustu skák og lítur á
hverja viðureign sem heim út af
fyrir sig. Þá má einu gilda hvort
hann hafi þegar tryggt sér sigur í
einvígi eða móti, hann teflir engu
að síður til vinnings.
Karpof er latari. Hann reynir
yfírleitt ekki að yfirbuga and-
stæðing með svörtu mönnunum.
Hann fylgist ætíð grannt með
mótstöflunni og hafi hann tryggt
sér sigur felst hann gjarna á
skiptan hlut í síðustu skákum.
vinna eina skák og gera 23 jafn-
tefli!
Það er einkar athyglisvert að
Karpof og Kasparof hafa teflt um
100 skákir sín á milli og hefur
heimsmeistarinn núverandi að-
eins einn vinning umfram Karp-
of. Séu jafnteflin undanskilin þá
er staðan nú 13-12 Kasparof í vil.
í raun er sá munur ekki mark-
tækur og því óvíst hvort Kasparof
er betri skákmaður en Karpof
þótt hann hafi 40 elóstiga forskot.
Nú er mál að linni en fyrir þá
sem áhuga hafa verða birt nöfn
og stigafjöldi 20 efstu skákmanna
á styrkleikaskrá FIDE. Sjá ann-
ars staðar á síðunni. -ks.
Laugardagur 18. júlf 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11