Þjóðviljinn - 24.07.1987, Side 6
MINNING
Guðmundur
Óli Ólason
Fœddur 01.02. 1941 - Dáinn 18.07. 1987
Fáa menn hef ég hitt svo oft hin
síðari ár og Guðmund Óla Óla-
son. Mér er til efs að hann hafi
nokkurn tíma átt leið um miðbæ-
inn án þess að líta inn á skrifstofu
stéttarfélags síns. Þó Guðmund-
ur Óli stoppaði ekki lengi í hvert
sinn bar hann ævinlega með sér
hlýju, sem yljaði og yljar enn.
Hann hafði lag á að gleðja okk-
ur félaga sína, en það er orða
sannast að við vissum sjaldnast
hvað honum leið. Hann var ge-
fandi, ekki þiggjandi.
Við minnumst nú og söknum
stéttvíss góðs félaga. Söngur hans
ómar nú innra með okkur og mun
svo verða áfram.
Með félagskveðjum
Magnús Einar Sigurðsson
Afmœliskveðja
Jóhanna
Slelansdóttir
Stykkishólmi
Níræð er í dag Jóhanna Stef-
ánsdóttir, Stykkishólmi.
Hún er fædd 24. júlí 1897 að
Galtará í Kollafirði í Aust-
ur-Barðastrandasýslu. Foreldrar
hennar voru Stefán Gíslason og
María Jóhannsdóttir. Jóhanna er
þriðja í röð sjö systkina. Þær syst-
ur Jóhanna og Jófríður eru einar
á lífi úr systkinahópnum.
Jóhanna ólst upp í foreldrahús-
um að Galtará en flutti síðar
ásamt foreldrum sínum að næsta
bæ, Kleifastöðum í Kollafirði,
sem Jóhanna telur sitt æskuheim-
ili.
Að vera barn um aldamót hef-
ur verið fyrir margra hluta sakir
mjög frábrugðið því sem nútíma-
börn eiga að venjast. Siðir og
venjur sveitaþjóðfélagsins höfðu
lítið breyst um aldaraðir. At-
vinnuhættir og húsakynni voru
allt önnur en við þekkjum í dag.
Nægjusemi og dugnaður ein-
kenndu fólk, auk sterkrar trúar á
mátt Guðs og manna. Sú hjarta-
hlýja og sterka trú á hið góða í
manninum sem einkennir Jó-
hör.nu ömmu á rætur sínar að
rekja til uppeldisins sem hún
hlaut við Breiðafjörð um alda-
mót.
Árið 1918 giftist Jóhanna,
Steinþóri Einarssyni frá Bjarn-
eyjum. Hann fæddist 27. sept-
ember 1895 og lést í Stykkishólmi
12. júní 1968. Jóhanna og
Steinþór hófu búskap sinn í
Stykkishólmi en fluttu út í
Breiðafjarðareyjar og bjuggu þar
í ýmsum eyjum í þrjátíu ár, þar til
þau fluttu aftur í Stykkishólm.
Margar sögur hefur hún Jó-
hanna amma sagt mér af lífi og
starfi fólks í Breiðafjarðareyjum.
Breiðafjörðurinn hefur löngum
haft það fram yfir margar aðrar
sveitir landsins að oftast var hægt
að afla matar, þótt hart yrði að
sækja. Hörð lífsbarátta og sú
virðing sem borin var fyrir náttúr-
uöflunum hefur mótað persónu-
leika fólks eins og Jóhönnu
ömmu.
Jóhanna og Steinþór eignuðust
sex börn og eru fimm á lífi. Af-
komendur þeirra eru í dag 44 tals-
ins.
Árið 1952 fluttu Jóhanna og
Steinþór í Stykkishólm og keyptu
skömmu síðar lítið vinalegt hús,
sem stendur á einum fallegasta
stað í Stykkishólmi. Úr litla hús-
inu í tanganum er víðsýnt, svo
sést um eyjar og sker. í þessu húsi
bjuggu þau í mörg ár í sterkum
tengsium við sjóinn, sem alla tíð
hefur verið þeirra yndi og ógn á
stundum.
Oft var gestkvæmt í tanganum,
því barnabörnin úr Reykjavík og
Stykkishólmi sóttu stíft í faðm
ömmu og afa. Þótt mikið væri að
gera fundu þau alltaf tíma til að
sinna okkur krökkunum. Afi við
að leiðbeina við veiðiskap, út-
gerð og ýmis vandamál sem ungt
fólk á fjöruflakki kemst í. Amma
mátti aftur á móti taka við okkur,
stundum örlítið blautum og skít-
ugum, eftir ævintýri dagsins.
Aldrei fengum við skammir þótt
við ættum það skilið.
Ég veit að það minnast fleiri en
ég þessara ánægjulegu stunda
sem við áttum með afa og ömmu í
litla húsinu inn í tanga.
Eftir að Steinþór afi féll frá árið
1968, bjó amma lengstum ein í
húsinu, þar til árið 1979 að hún
flytur á Dvalarheimili aldraðra í
Stykkishólmi, þar sem hún dvel-
ur nú.
Elsku amma mín, á þessum
merku tímamótum langar mig til
að þakka þér fyrir allar góðu
stundimar sem við höfum átt
saman. Megi gæfan og heilsan
endast þér sem lengst.
Til hamingju með daginn
Ragnar Steinþór
Stelpurnar heita Ingibjörg, Alda, Harpa, Melkorka, Helga, Fanney og Ólöf. Þeim finnst gaman á Laugavatni og sögðust
hafa gengið upp að T rúlofunarhríslu í gær. Aðspurðar að því hvort þær hefðu trúlofað sig þar flissuðu þær alveg rosalega
og harðneituöu því. Sögðu að það væru bara tveir strákar í hópnum og þær væru sko ekki skotnar í þeim.
►
unni og gönguferðunum fyrir bri-
dge og spila nánast daglangt.
Barnagæsla er á staðnum sem
fjölskyldufólk getur notað sér,
íþróttahúsið hefur sumarbúða-
fólk til eigin afnota í tvo klukku-
tíma á degi hverjum og aðgangur
að gufubaðinu og sundlauginni er
innifalinn í sumarbúðagjaldinu. í
upphafi vikunnar er sett á lagg-
irnar skemmtinefnd úr hópnum
og hefur hún það hlutverk að sjá
um og skipuleggja lokakvöldið á
laugardagskvöld, og verður þá
kvöldvaka með veislumat,
skemmtiatriðum og dansi.
Kjarninn í hópnum hefur verið
sá sami á gegnum árin en alltaf
bæst nýtt fólk við á hverju ári.
Allir sem blaðamaður talaði við
voru staðráðnir í að koma aftur ef
sumarbúðunum yrði haldið
áfram að ári, en Margrét Frí-
mannsdóttir tjáði okkur að ekki
væri víst hvort þau hjónin Elísa-
bet og Rúnar sæju sér fært að
halda starfseminni í Héraðsskól-
anum áfram á sumrin vegna fjár-
sveltis. Sagði Margrét húsið
þurfa endurnýjunar við og svo
virtist hreinlega sem ráðamenn
ætluðu að láta það drabbast niður
þar til það væri ekki lengur hæft
til kennslu á vetrum eða ein-
hverrar starfsemi á sumrum.
Margar raddir voru á lofti að slíkt
mætti ekki gerast, Héraðsskóla-
húsið væri nú einu sinni andlit
staðarins ef svo mætti segja, en
ekki síður vegna þess hve mikil
eftirsjá yrði að því ef sumarbúðir
Alþýðubandalagsins leggðust af.
-ing
Margrét Frímanns og Sigríður Karls eru umsjónarmenn sumarbúðanna og eru hór með honum Guðna sem þær segja að
sé afi allra f hópnum, sama á hvaða aldri þeir séu.
Vilberg Sigurjónsson er með fjöskyldu sinni í sumarbúðunum og krakkarnir, þau Andri, Ólöf og Ingibjörg, sem vantar á
myndina, segja að það sé voða gaman. Gufan og sundið finnst þeim skemmtilegt en Andri er líka að spreyta sig I fótbolta
þegar tími gefst til. Svo ætla þau auðvitað á hestbak. Vilberg sagði veðrið vera búið að vera hlýtt og gott, þó hefði rignt
aðeins en ekkert til skaða.
myndir Ari
6 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 24. júlí 1987