Þjóðviljinn - 26.07.1987, Blaðsíða 3
Kratapósturinn?
Samtryggingin ferðast víða.
Áður fyrri auglýsti Hetgar-
pósturinn sig sem blað óháð
stjórnmálaflokkum, en nú er
engu líkara en blaðið sé orðið
nokkuð dyggur þjónn Alþýð-
uflokksins. Kratabroddar fá
þannig mjög jákvæða umfjöll-
un í slúðurklausum blaðsins,
og engu líkara á stundum en í
gegn gægist sama hönd og
sést stundum stýra fjaðurstaf
skrifara Alþýðublaðsins, -
hönd Jóns Baldvins. Ekki
hafa heldur tengsl flokks og
blaðs versnað við það að
Helgi Már Artúrsson, fyrrum
frambjóðandi Alþýðuflokksins
á Vestfjörðum, er nú orðinn
ritstjóri Helgarpóstsins.B
íslensk
fiskeldisfrægð
Ólafur Skúlason á Laxalóni
er einn af færustu fiskeldis-
mönnum á íslandi, enda
lærður hjá föður sínum,
kempunni Skúla Pálssyni,
einum af frumkvöðlum fi-
skeldis á íslandi. Færni Laxal-
ónsmanna hefur flogið víða,
einsog mátti sjá f síðasta hefti
Fish Farming International,
alþjóðlegri biblíu fiskeldis-
manna. Þar er viðtal við dr.
Ivar Warrer-Hansen, Dana
sem rekur þrjár fiskeldi-
sstöðvar á Irlandi. Doktorinn
lætur þess getið í viðtalinu, að
mest af því sem hann hafi lært
um laxeldi hafi hann lært af
nánum vini sínum Ólafi Skúla-
syni á Laxalóni á íslandi, „ein-
um af reyndustu laxeldis-
mönnum í Evrópu". Þess er
jafnframt getið, að Skúli, faðir
Ólafs, hafi 35 ára reynslu af
öllum tegundum eldis og frá
honum sé komin sú drýgsta
heimspeki eldismannsins, að
„hafa hlutina einfalda og
hugsa fyrst og fremst um þarf-
ir fisksins“.B
Hvítur lax
Þess má raunar geta, að Lax-
alónsmenn eru ekki við eina
fjölina felldir í eldismálum.
Uppi í Hvammsvík í Hvalfirði
hafa þeir rekið sjóeldi með
miklum árangri. Nú ætla þeir
hins vegar að færa út kvíarn-
ar. í landi þeirra uppí Hvalfirði
er nokkuð stórt sjávarión. Þar
hefur Ólafur Skúlason íhug-
að að setja út stóran regnbog-
asilung og leyfa mönnum síð-
an að koma og veiöa í lóninu
og greiða þá tyrst og fremst í
hlutfalli við veiðina. Þannig
tyrirkomulag tíðkast víða er-
lendis. Til að auka aðdráttar-
afl svæðisins hyggst Ólafur
jafnframt búa til golfvöll á
svæðinu, enda er hann
þrautreyndur og margverð-
launaður golfleikari.
Ólafur hefur aö auki tromp
á hendi, sem mun slá út öllum
viðlíka veiðisvæðum erlendis.
Hann hefur nefnilega yfir að
ráða hvítum laxi, albínóa, eina
stofninum sem þekktur er í
heiminum. Nú þegar hefur
Ólafur komið sér upp nokkr-
um tugum þúsunda hvítingja,
og hefur jafnvel komið til tals
að sleppa nokkrum þeirra í
lónið. Það yrði þá eini staður-
inn í heiminum þar sem menn
geta veitt hvítan lax...B
Sú Ellen
á toppinn!
Eins og dyggum lesendum
þessa dálks er kunnugt hefur
Sú Ellen heldur betur gert
það gott að undanförnu með
nýju plötunni sinni. í tyrstu
viku skaust lagið Símon beint í
fjórða sæti vinsældalista rás-
ar tvö og nú er það komið á
toppinn; á undan bæði A-ha
og Stuðmönnum.
Annars eru hvorki fleiri né
færri en tíu íslensk lög á topp-
tíu rásarinnar. Auk Sú Ellen
og Stuðmanna eiga Greifarn-
ir, Sverrir Stormsker, Stuð-
kompaníið, Skriðjöklar og
Bubbi Morthens lög á nýja list-
anum.
Það er greinilegt að landinn
er að komast í verslunar-
mannahelgarskaplB
l’m from
The Times!
Nú í vikunni var boðað til blað-
amannafundar af því tilefni að
sovésk sendinefnd frá þar-
lendum æskulýðssamtökum
kom að heimsækja fslenska
kollega sína, Æskulýðssam-
band íslands.
Fundurinn var haldinn á
veitingastaðnum Gauki á
Stöng og komu fulltrúar frá
flestum dagblaðanna. (Hér
skal tekið fram að í samræmi
við stefnu Mikaels Gorbasj-
ovs var einungis boðið upp á
kaffi.)
Starfsmaður úr sovéska
sendiráðinu tók á móti blaða-
mönnum með hinum mestu
virktum, og þegar inn snarað-
ist ung blaðakona spurði
hann vitanlega hvaðan hún
væri. Og hún svaraði að
bragði „l’m from The Times!”
Talsvert fát kom á sendi-
ráðsmanninn sem átti ekki '
von á því að heimspressan
sýndi fundinum slíka athygli.
Svo áttaði hann sig; „Oh! You
mean Tíminn...“B
Dýr myndi
Búkolla öll
Helgarpósturinn skartaði á
forsíðu nú í vikunni einhverju
stærsta tyrirsagnarletri sem
nokkurt íslenskt blað hefur
notað fyrr og síðar. „ísland
dýrasta land í heimi” stóð þar
á styrjaldarletri.
Og inni í blaðinu útskýrði
Jónína Leósdóttir málið:
Mjólk og mjólkurafurðir eru
dýrari á íslandi en í öðrum
löndum og vitnaði hún þó
bæði til Svíþjóðar og Spánar.
Úttekt Helgarpóstsins var
semsagt hin forvitnilegasta
og nú geta Neytendasam-
tökin tekið málið að sér.
En það var hinsvegar
myndskreytingin við þessa
grein sem stal senunni. „Dýr
dropinn úr Búkollu" var fyrir-
sögnin yfir stæðilegum bola-
kálfi sem þakti hálfa
síðuna...B
Tákn
Heyrst hefur að á útgáfufé-
laginu Tákn sf standi
breytingar tyrir dyrum. Guð-
mundur Árni Stefánsson bæj-
arstjóri í Hafnarfirði mun vera
að draga sig út úr fyrirtækinu
en hann rak það ásamt séra
Önundi Björnssyni.
Önundur mun halda áfram
rekstrinum og til umræðu mun
vera að Sigmundur Ernir Rún-
arsson fyrrverandi ritstjórnar-
fulltrúi á Helgarpóstinum og
Matthías Viðar Sæmundsson
lektor við Háskólann komi inn
í tyrirtækið sem nýir eignarað-
ilar. Sigmundur mun að vísu
ekki starfa þar, þar sem hann
er að hefja störf sem frétta-
maðurá Stöð tvö í haust.
Tákn sf gef ur út hin vinsælu
hefti Sígildar sögur og mun
hafa í bígerð að gefa út við-
talsbók við Guðmund J. Guð-
mundsson í haust. Er talað
um að Guðmundur Árni Stef-
ánsson skrifi bókina.
Óttar Felix hafði ekki stigið á svið í 18 ár þegar hann yljaði „týndum" um hjartað með gömlum og góðum númerum í
Hollywood. Með Óttari á myndinni má sjá Rúnar Júlíusson og Björgvin Halldórsson. (Mynd Sveinn Rúnar)
„Hann kenndi
okkur alla stœlana"
Undanfarna mánuði hefur
veitingastaðurinn Hollywood
staðið fyrir leit að svokallaðri
„týndu kynslóð” með því að
endurvekja þær hljómsveitir sem
voru vinsælar á árunum 1965-
1975, hljómsveitir eins og Svan-
fríði, Ævintýri og Dúmbó og
Steina. Þeir Hollywood-menn
virðast vera búnir að fínkemba
ísland í leit að gömlum poppur-
um, því að um síðustu helgi fengu
þeir mann frá Kaupmannahöfn
og kynntu hann sem „Mr. Sixties
Himself”, enda bar mikið á hon-
um á þeim áratug. Hann spilaði í
hljómsveitunum Sonet og Pops,
en var þó kannski þekktari sem
týpa en sem hljómlistarmaður.
Hann var þekktasti bítill á íslandi,
eitt tyrsta Stones-fríkið og tyrsti
hippinn. Hér er auðvitað átt við
Óttar Felix Hauksson, sem nú
býr með fjölskyldu sinni í Kaup-
mannahöfn og nemur matvæla-
tæknifræði, en um síðustu helgi
brá hann sér í poppgallann og
söng nokkur af uppáhaldslögum
sínum frá 7. áratugnum.
Þjóðviljinn hitti einn gamlan
poppara í Hollywood, sem hafði
farið oft að hitta gamla félaga og
stjörnur. Hann sagði að
stemmningin hefði aldrei verið
jafn góð og þetta kvöld, þegar
Óttar tróð upp með slatta af
fyrstu Rolling Stones lögunum
(Not Fade Away, Mercy, You
Better Move On, It’s All Over
Now, Johnny B Good), auk Do
Wah Diddy, The Weight, I’m a
Beliver og Wild Thing, en í síðast
nefnda laginu kom Pétur Krist-
jánsson upp á sviðið og tók ó-
gleymanlegt „sjó“ með Óttari.
Kvintett Rúnars Júlíussonar sá
um undirleikinn, en auk þeirra
lék Birgir Hrafnsson á gítar, eins
og sjálfur Keith Richards væri
mættur, og Björgvin Halldórsson
blés munnhörpu og tók undir í
söngnum.
Björgvin hitti naglann á höfuð-
ið í einni kynningunni, þegar
hann sagði: „Óttar er þekktari í
bransanum heldur en í Moggan-
um. Þessi náungi kenndi okkur
alla stælana.“ Áhorfendur, sem
voru á öllum aldri frá tvítugu til
fertugs, fengu líka óspart að sjá
stælana, því að Óttar túlkaði öll
lögin með miklu látbragði um
leið og hann söng, enda iðaði allt
dansgólfið.
Við spurðum Óttar eftir kons-
Spjallað við einn fulltrúa
„týndu kynslóðarinnar“
Óttar Felix Hauksson
ertinn, hvort hann vissi hvað átt
væri við með hugtakinu „týnda
kynslóðin“. Hann sagðist ekki
hafa orðið var við að menn af
hans kynslóð hefðu týnst. „Kann-
ski voru veitingahúseigendur
farnir að sakna þeirra á börunum
og vildu fá þá aftur að fá sér einn
tvöfaldan”. Óttar sagðist enn
hlusta á suma tónlist frá 7. ára-
tugnum, t.d. fyrstu Stones og
Dylan plöturnar og margs konar
soul-tónlist, en hann hlustar líka
á nýbylgju og djass - alls konar
tónlist.
Óttar hefur ekki komið fram
með hljómsveit í 18 ár enda sagði
hann að hann hefði bæði kviðið
fyrir hlakkað til. „Galdurinn er
bara sá að hafa trú á að maður
geti þetta og að vera hress og
upplagður.“
Koma lögin og sviðsframkom-
an af sjálfu sér?
„Maður verður náttúrlega að
vinna þetta upp og æfa það, en ég
held að það sé með rokk’n’roll
eins og skák og fótbolta: ef þú
kannt þetta einu sinni, þá týnir þú
því ekki niður.“
Sérðu eftir að hafa ekki haldið
áfram á þessari braut?
„Nei, ég var aldrei það góður.
Ég sakna ekki þessara tíma neitt
sérstaklega, en þetta voru góðir
tímar.“
Hvenær komstu fram fyrst?
„Ég kom reyndar fram sem
einsöngvari með barnakór árið
1962 og söng þá í útvarpinu á að-
fangadagskvöld lagið „Sjá himins
opnast hlið“, en svo byrjaði ég að
koma fram með Sonet árið 1966.
Við spiluðum í tvö ár, en eftir það
var ég aðstoðarmaður hjá Hljóm-
um í eitt ár og spilaði svo með
Pops í eitt ár. I árslok 1969 hætti
ég í þessum bransa.“
Hvernig voru viðtökumar eftir
öll þessi ár?
„Fyrra kvöldið voru viðbrögð-
in eins og ég átti von á, en seinna
kvöldið fór það fram úr öllum
vonum. Annars vissi ég það -
ekki að ég næði í gegn, heldur að
lögin næðu í gegn. Ég veit alveg
hvað er góð músík, og ef svona
músík hreyfir ekki við fólki, þá er
eitthvað að. En að viðbrögðin
hafi orðið svona meiri háttar, það
kom mér náttúmlega skemmti-
lega á óvart.“
Hefurðu komið eitthvað fram í
Kaupmannahöfn?
„Nei, enda hefur maður ekki
tíma til þess. Það er helst að ég
syngi milliraddir á þorrablóti
með hljómsveit þeirra Óla Sig.
(úr Pops) og Svein Arvé (úr
Haukum).“
Við spurðum Óttar að lokum
hvort hann hygðist koma fram
aftur, og sagði hann að þeir
Hollywood-menn vildu gjarnan
fá sig aftur, en hann væri ekki viss
um að hann gæti tekið sér frí frá
náminu í haust.
K.Ól.
Frá menntamálaráðuneytinu
LAUSAR STÖÐUR VIÐ
FRAMHALDSSKÓLA:
Umsóknarfrestur um áður auglýsta stöðu skólastjóra við
nýstofnaðan Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu,
Nesjaskóla, er framlengdur til 1. ágúst nk.
Ennfremur eru lausar kennarastöður við Nesjaskóla. Meðal
kennslugreina eru danska, þýska, stærðfræði, raungreinar
og samfélagsgreinar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og tyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, tyrir 10. ágúst.
Menntamálaráðuneytlð
Sunnudagur 26. júlí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3