Þjóðviljinn - 28.07.1987, Blaðsíða 6
FLÓAMARKAÐURINN
(sskápur tll sölu
Til sölu vel með farinn, nýlegur Ign-
is ísskápur. Uppl. í s.: 53972.
Lftil íbúð - húshjálp
Ungt reglusmt par óskar eftir ódýrri
íbúð. Til greina kemur húshjálp eða
barnagæsla á móti. Upplýs. í s.:
35706.
Vel nothæft
sv./hv. sjónvarp er til sölu á kr. 2
þús. Uppl. í s. 13387.
fbúð
Tvær 25 ára reglusamar stúlkur
óska eftir að taka íbúð á leigu. Uppl.
í s. 10099 kl. 5-7.
Óska eftir að kaupa
vel með farna regnhlífarkerru. Upp-
lýs. í s. 14329 næstu daga.
Tll sölu
2 karlmannsreiðhjól, annað barna-
hjól. 3ja gíra Kalkhoff. Hitt er 10 gíra
Raleigh-hjól. Sími 38426 kl. 11-14.
Til sölu
sem nýtt, skrifborð úr Lundia-
hillusamstæðu (frá Gráfeld)
153x76,5 sm. Sími 21903.
Tll sölu
4 óslitin sumardekk 13” á hálfvirði.
Sími 75033 eftir kl. 5.
Starfsmann Þjóðviljans
vantar litla íbúð. Skilvísum
greiðslum og mjög góðri umgengni
heitið. Upplýs. í s. 35236.
Sósíalískt neyðarkalll
Miðaldra komma vantar nú þegar
3-4ra herb. íbúð í 6-12 mánuði.
Erum 3 í heimili (á götunni). Fækkið
ekki geirfuglunum frekar. Upplýs. í
s. 72399. Sigurður.
Hjónarúm tll söiu:
frá Ikea (bæsuð fura), 6-7 ára gam-
alt, með 2 náttborðum og dýnum.
Selst á 12 þús. kr. Upplýs. í s.
20045.
Tll sölu:
2 fótstignar antik-saumavólar, skrif-
borð, stór, þykk 2ja manna dýna
(rúm), hella m. 2 plötum, leðurstóll,
kanínupels (jakki), vetrarkápa nr.
14 úr Ijósu gerviskinni m. hettu.
Upplýs. í s. 28931/43428 helst
seinni partinn/kvöld.
Veiðileyfi
Veiðileyfi í Langavatni. Góð að-
staða í húsum og traustir bátar.
Einnig er hægt að fá veiðileyfi utan
aðstöðu í húsum. Nánari upplýsing-
ar gefur Halldór Brynjólfsson í síma
93-7355.
Til leigu f ágústmánuði
íbúð í Vínarborg. Uppl. í síma
681108.
Til sölu
Sófi, sófaborð, barnarimlarúm og
kaffivél. Uppl. í s.: 621454 eftir kl.
17.
Mæðgur af Austurlandi
með 5 ára telpu óska eftir 3ia herb.
íbúð helst í vesturbænum. Óruggar
mánaðargreiðslur. Fyrirfram-
greiðsla ef óskað er. Sími 97-3187
eða 91-40591.
13 ára stelpa
getur tekið að sér að passa börn
hálfan eða allan daginn, líka á
kvöldin ef þörf er. (miðbæ. Uppl. í s:
17087.
Volkswagen Golf '78
til sölu. Mikið nýtt í honum. Uppl. í s
84310.
Elnkatímar í ensku og þýsku
Upplýs. í s: 75403.
Barnagæsla
13 ára stelpa óskar eftir vinnu við
barnapössun. Uppl. í s: 23218 og
29474.
Gömul handverkfæri
fyrir tré og járn
Seljast ódýrt. Sími eftir kl. 17.
Hókus-pókus barnastóll
til sölu. Gult sæti með brúnum hlið-
um. Selst á kr. 1.500. Einnig til sölu
karlmannsreiðhjól, grátt að lit fyrir
uþb. 2.500 kr. Sími 672283.
Tll sölu 20” svJhv.
Nordmende sjónvarpstæki á fæti.
Verð kr. 2.200.- Einnig Telefunken
hljómtæki með stereohátölurum.
Verð kr. 7.500,- Uppl. í s:688393.
Volkswagen Variant Station
árg. '71 til sölu, er vel útlítandi og
gangfær en þarfnast viðgerðar.
Ymsir fylgihlutir m.a. aukavél. Verð
kr. 20.000.- Sími 688393.
Húsnæði óskast
Reglusamt par vantar 2ja herb.
íbúð helst frá 1. september. Örugg-
ar mánaðargreiðslur. Uppl. í s:
76495 eftir kl. 17. Eyrún og Páll.
Vantar góðan barnavagn
Óskum eftir að kaupa góðan barna-
vagn (ekki kerruvagn). Sími 27958.
Tll sölu garðsláttuvél
gengur fyrir bensíni. Lítið notuð.
Þarfnast smá viðgerðar. Uppl. í s:
34088.
Til sölu gamalt engjatjald
Tilvalið á þjóðhátíðina. Selst ódýrt
gegn staðgreiðslu. Upplýs. á
auglýs.deild Þjv.
Gangstéttar
eru EKKI bílastæði
Verjum gangbrautir fyrir átroðningi
einkabíla. Bjóðum upp á hentuga
límmiða. Uppl. í s: 15196, 12943,
13317, 12014 og 29116.
Frjálsir vegfarendur.
Mig vantar pössun fyrlr 2ja ára
strák
frá 1. ágúst í einn mánuð. Sími
622242.
Felligluggatjöld
Vil selja þrenn felligluggatjöld, br.
188 sm x 210 sm sídd, br. 266 sm x
162 sm sídd og br. 162 sm x 120 sm
sídd. Bómullarefni (Ador úr Epal).
Sanngjarnt verð. Sími 32185.
Tll sölu
svampdýna með áklæði. Stærð
200 x 35 sm. Uppl. í s: 15790.
Óska eftir að kaupa
Lada fólksbifreið
Hringið í síma 73351. Ólafur.
ísskápur til sölu
á kr. 2000.- og barnaferðarúm,
einnig á kr. 2000.- Uppl. í s: 39072.
2 stúlkur utan af landl
vantar 2-3ja herb. íbúð sem fyrst.,
Öruggar greiðslur og algjör reglu-
semi. Uppl. í s: 82043 eftir kl. 17.
Óskast keypt
Óska eftir að kaupa barnakojur 150
sm á lengd, tvo 2ja sæta sófa og
stóla, mega vera körfustólar. Sími
623779.
Rúm gefins
Heimasmíðað, en vandað hjóna-
rúm 150 x 200 sm fæst gefins. Sími
35441.
DJÚÐVJUINN I íniinn
68 13 33 . ' 68 18 66 •" 68 63 00
Blaðburður er
HSŒnM
LAUS HVERFI NU ÞEGAR:
Bakkagerði
Steinagerði
Skálagerði
Stekklr
Eskihlíð
Mjóahlfð
Hvassalelti
Háaleltisbraut 68
Akurgerði
Grundargerðl
Búðargerði
Sogavegur2-70
Sogavegur101-212
Borgargerði
Rauðagerðl
Austurgerði
Síðumúla 6
0 68 13 33
Bræðratunga
Hrauntunga 2-48
Vogatunga
Háteigsvegur
Langahlíð
Flókagata
Áhorl'endur frétta á RÚV og Stöð 2.
Nóvember 1986 til Júlí 1987.
SVÆÐI BEGGJA STÖÐVA (15-70 ára).
Rúv
Slöð 2
NÓVEMBER DESEMBER DESEMBER MARS 87 MARS 87 Júlí-mánud. Júlí-briðiud.
Fjölmiðlakönnun
Hvert útvarp með
um tíu prósent
Stjarnan jafnoki Bylgjunnar. Stöð tvö sœkir á
N
ý könnun Félagsvísindastofn-
unar háskólans gefur til
kynna að fjórða almenna út-
varpsstöðin á suðvesturhorninu,
Stjarnan, hafi náð hlustendum af
hinum stöðvunum þremur, og sé
nær jafnoki tónlistarstöðvanna
tveggja sem fyrir voru, Rásar tvö
og Bylgjunnar.
Að undanteknum fréttatímum
Rásar eitt fer útvarpshlustun
hverrar stöðvar þó ekki mikið
uppfyrir tíu prósent svarenda
þegar mest er, en til samanburðar
má hafa, að í annarri nýlegri
könnun sögðust 20 prósent sjá
Þjóðviljann daglega.
Á því svæði sem allar stöðvam-
ar ná yfir, skiptast Bylgjan og
Stjarnan á um forystuna yfir dag-
inn, en á landinu öllu hefur Rás
tvö yfirhöndina nema í bítið, sem
enn em helstir heimahagar Gu-
funnar gömlu.
Spurt var þriðjudaginn 14. júlí,
og reyndust 46% svarenda hafa
hlustað á hádegisfréttir RÚV á
báðum rásum, 42% á kvöldfrétt-
ir.
Samkvæmt könnuninni hefur
Sjónvarpið enn umtalsvert fors-
kot á Stöð tvö á samanburðar-
hæfum landshlutum og tímum
dags, en Stöðin virðist þó sækja
á. Á sameiginlegu svæði stöðv-
anna horfðu 46-54% á fréttatíma
Sjónvarps könnunardagana þrjá,
28-33% á fréttir á Stöð tvö. Á
landinu öllu er talan fyrir Sjón-
varpið 49-59%, fyrir Stöðina 21-
25%. Spurt var sunnudaginn 12.,
mánudag og þriðjudag, og
reyndist áhorf mest, að unda-
nteknum fréttum, við þáttinn um
Bergerac í Sjónvarpinu á þriðju-
dagskvöldið.
Mun minna er horft á sjónvarp
á sunnudögum en mánu- og
þriðjudögum.
Sá galli þykir á könnuninni að
heimtur voru lakar og bámst svör
aðeins frá um 57 prósent þeirra
sem í úrtaki lentu.
- m
Hlustun á tónlistarstöðvarnar þriðjudaginn 14. júlí 1987. Svæði þar sem 4 stöðvar nást.
Húsnæðismál
Opið bréf
frá Áhugamönnum um úrbœtur í húsnœðismáium
til fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra
Áhugamenn um úrbætur í
húsnæðismálum fagna þeirri
ákvörðun nkisstjórnarinnar að
búa svo um hnútana að þeir sem
lent hafa í greiðsluvanda síðustu
ára geti skuldbreytt lánum sínum
í samræmi við núverandi lánskjör
og lánareglur Húsnæðisstofnun-
ar. Þetta er í samræmi við það
sem við höfum margoft bent á, að
eðlilegt sé að umræddur hópur
njóti fullra réttinda í núverandi
húsnæðiskerfi og hljótum því að
líta á þessa ákvörðun sem fram-
faraspor. Við beinum þeirri fyrir-
spurn nú til félagsmálaráðherra
hvenær fólk getur fengið þessar
skuldbreytingar framkvæmdar
hjá Húsnæðisstofnun.
Jafnframt þessu vilja Áhuga-
menn um úrbætur í húsnæðismál-
um minna á kosningayfirlýsingar
Alþýðuflokksins (sem nú fer með
fjármál, félagsmál og bankamál)
um leiðréttingu aftur í tímann. í
svari Alþýðuflokksins til Áhuga-
manna um úrbætur í húsnæðis-
málum frá 3. apríl sl. sagði orð-
rétt: „Afstaða Alþýðuflokksins
til eignaupptökunnar hjá þeim
sem öfluðu sér íbúðarhúsnæðis á
árunum 1980-85 hefur ítrekað
komið fram í ræðum, blaðagrein-
um og tillöguflutningi á Alþingi.
Hjálögð er þingsályktunartillaga
okkar um þessi mál, þar sem
þessi afstaða birtist í stuttu máli.“
í umræddri þingsályktunartil-
lögu Alþýðuflokksins er gert ráð
fyrir að endurgreiðslur nemi 50%
„af þeirri hækkun viðkomandi
skulda sem átt hefur sér stað fram
til 31. desember 1985 umfram
hækkun almenns verðlags í
landinu“, en „hámarksviðmiðun
sé 2,5 millj. kr. skuld á verðlagi í
des. 1985.“
í greinargerð með frumvarp-
inu segir orðrétt: „Hér duga eng-
ar lánalengingar því að eigna-
staða aðilanna er orðin óbærileg.
Til þess að jafna muninn er það
eitt til ráða að greiða niður hluta
af skuldum þessara aðila svo að
eignastaða þeirra skáni.“
Áhugamenn um úrbætur í
húsnæðismálum auglýstu í
heilsíðuauglýsingum dagblaða
fyrir kosningar hver afstaða
flokkanna væri til leiðréttinga á
lánum og á blaðamannafundum
var skýrt frá svörum flokkanna í
smáatriðum.
Áhugamenn um úrbætur í
húsnæðismálum leyfa sér nú að
beina þeirri spurningu til fjár-
málaráðherra og félagsmálaráð-
herra sem báðir voru flutnings-
menn tillögunnar hvenær henni
verði hrint í framkvæmd.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 28. júlí 1987