Þjóðviljinn - 09.08.1987, Qupperneq 3
Fiskin
mannvitsbrekka
Egill Helgason, ritstjórnar-
fulltrúi á Helgarpóstinum, hef-
ur slegið flestum við í spurn-
ingakeppni Þjóðviljans í
sumar. Um síðustu helgi
keppti hann við Þorra
Hringsson myndlistarnema
og hafði nauman sigur. Áður
en til þess kom hafði Egill þó
næstum valdið upplausn á
spurningadeild málgagns
sósíalismans. Hann hafði
nefnilega horfið úr bænum án
þess að hafa fengið til þess
tilskilin leyfi hjá spurninga-
deildinni. Þegar komið var
fram á föstudag og blaðið
beið klárt til prentunar hafði
enn ekki náðst í Egil. Loks
fréttist af honum við háborg-
aralega laxveiði í Vatnsdaln-
um. Þegar ístað var haft sam-
band við tvö veiðihús í Vatns-
dalnum og Kristín á Bakka
var áður en lauk komin í þjón-
ustu Þjóðviljans við að enda-
sendast út um allar þorpa-
grundir til að hafa uppi á
mannvitsbrekkunni. En allt
kom fyrir ekki. Þegar í óefni
var komið og allt útlit fyrir að
mannskapurinn í prentsmiðj-
unni kæmist ekki út úr bænum
í hefðbundna verslunar-
mannahelgi var tekin um það
pólitísk ákvörðun á ritstjórn að
láta þá Egil og Þorra skilja
jafna, þannig að þeir yrðu að
keppa aftur að viku liðinni, í
þeirri von að Egill yrði þá kom-
inn úr veiðinni. ( þann mund
sem hinir bestu menn voru
búnir að svara fyrir Egil, og
haga þannig til að hnífjafnt var
á millum þeirra Þorra, hringdi
loksins Egill úr bílasíma úr
Vatnsdalnum. Sigur vannst
þannig á beggja bóg á elleftu
stundu.
Ekki léttist hins vegar brún-
in á spurningadeild Þjóðvilj-
ans þegar í Ijós kom hverjir
höfðu glapið Egil í brottu.
Hann reyndist nefnilega vera í
laxinum með forystu Borgara-
flokkksins, - sjálfum Júlíusi
Sólnes. Þess má svo geta, að
mannvitsbrekkan nældi í 18
punda lax sem er víst næst-
stærsti lax sumarsins í
Vatnsdalsánni...B
Bróðir í
bróður stað
Guðmundur Magnússon
blaðamaður á Morgunblaðinu
er nú orðinn aðstoðarmaður
Birgis ísleifs Gunnarssonar
menntamálaráðherra. Guð-
mundur er með helstu spraut-
um í því liði sjálfstæðisflokks-
ins sem kennt er við frjáls-
hyggju og nú er raunar að
verða að eins konar skam-
maryrði innan flokksins. Ekki
munu kennarar beinlínis vera
að deyja úr fögnuði yfir skipan
Guðmundar sem eins og
menn muna gerðist talsmað-
ur einkar afturhaldssamra
skoðana í umræðum um
skólamál fyrir nokkrum árum.
Það er hins vegar ekki nein
Heyrðu.. hvað er á seyði.. Ijósmyndari mættur á staðinn..
..svona eruði þá á Þjóðviljanum, takandi myndir af hálfberu fólki uppf tveit...
segi upp blaðinu - kommasvín! Myndir:Ari.
nýlunda fyrir Guðmund að
sæta ásökunum um öfgar í
skoöunum. Eini munurinn er
sá að áður komu þær frá
hægri mönnum í stað miðju-
og vinstrimanna nú um stund-
ir. Guðmundur var nefnilega
öskuróttækur fyrir nokkrum
árum. Á sínum tíma var hann
einn af forsprökkum örfám-
ennra samtaka íslenskra trot-
skfista langt til vinstri við Ál-
þýðubandalagið sem honum
þótti þá afar hægrisinnaður
og borgaralegurflokkur. Síðar
var hann framarlega í baráttu
vinstri stúdenta í Háskólanum
og var meðal annars ritstjóri
Stúdentablaðsins á þeim
árum þegar námsmanna-
hreyfingin var á órólega
skeiðinu og formaður Stú-
dentaráðs hét Össur Skarp-
héðinsson núverandi ritstjóri
Þjóðviljans. En Guðmundur
og félagar hans í trotskíistalið-
inu voru í þeim hluta hinnar
róttæku stúdentahreyfingar
sem þótti Össur og hans lið
allt of hægfara og bundu sitt
trúss við þá í kosningum ein-
göngu af taktískum ástæðum.
Þetta er hins vegar ekki í
fyrsta skipti sem fjölskylda
Guðmundar ræður embætti
aðstoðarmanns mennta-
málaráðherra. í tíð Ragnars
Arnalds í þeim stóli skipaði
hann ungan félagsfræðing úr
Alþýðubandalaginu í emb-
ættið sem á þeim tíma var
raunar allt of hægfara fyrir þá-
verandi smekk Guðmundar
og hans pólitísku félaga. Að-
stoðarmaðurinn var Þor-
steinn Magnússon bróðir
Guðmundar.
Bleikjan
eftirsótt
Sigmar B. Hauksson, mat-
arfagurkeri, fór fyrir skömmu
á vegum Byggðastofnunar til
að kanna markað fyrir ís-
lenska bleikju í ýmsum
löndum Mið-Evrópu. Áð lok-
inni för sinni skrifaði Sigmar
merka skýrslu um málið, og
kom í Ijós að talsverður áhugi
er í þessum löndum á kaupum
á bleikjunni, enda gamall
þjóðarréttur þar um slóðir
sem gerist æ fágætari á tím-
um hins súra regns. í kjölfar
heimsóknar Sigmars munu
svo franskir peningamenn
hafa sýnt áhuga á að fjárfesta
í bleikjurækt á (slandi. Þeir ku
þegar hafa haft samband við
íslenska aðila...B
Vilhjálmur í
stríði
Einn þeirra sjálfstæðismanna
sem fóru mjög illa út úr kosn-
ingunum í vor var vonarlamb
frjálshyggjumanna, Vilhjálm-
ur Egllsson, sem nú er ný-
orðinn framkvæmdastjóri
Verslunarráðs. Mikil vinna
var lögð í að koma Vilhjálmi á
þing, og meðal annars var
honum tryggt annað sætið í
Norðurlandskjördæmi vestra
eftir að Eyjólfur Konráð
Jónsson, fyrrverandi ritstjóri
Morgunblaðsins, gerðist
leiður á dreifbýlisvarginum,
eins og SUS-arar sögðu, og
ók suður heiðar til að þingast
á vegum Reykjavíkurbúa. En
Vilhjálmur var fastur i frjáls-
hyggjuþruglinu og staglaðist
á kjörorðum hennar fund eftir
fund. Fyrir bragðið bakaði
hann sér óvinsældir í héraði
og þegar svo annað sætið
tapaðist - en það var talið
gulltryggt - var honum kennt
um tapið. Þessar óvinsældir
uröu til þess að Þorsteinn
Pálsson bauð honum ekki
embætti aðstoðarmanns for-
sætisráðherra. Framámenn
úr frjálshyggjuliðinu höfðu
hins vegar sótt fast að ná Vil-
hjálmi í þetta embætti og urðu
að vonum reiðir þegar Jónína
Michaelsdóttir (Jónína
hver?) fékk það í staðinn fyrir
hagfræðinginn unga. Sjálfur
varð Vilhjálmur ókátur mjög
eins og titt er um fallnar stjörn-
ur og hefur nú laast í harða
stjórnarandstöðu. I stríði sínu
gegn Þorsteini og stjórninni
beitir hann Verslunarráðinu af
hörku, eins og sást af hinum
þunga áfellisdómi ráðsins yfir
stjórnarstefnunni sem birtur
var í vikunni. En menn tóku
sérlega eftir hversu lítið var
gert úr starfi Þorsteins Páls-
sonar sem fjármálaráðherra í
því annars merka plaggi...
Skáldsaga eftir
Álfrúnu
Meðal merkustu tíðinda úr
bókaheiminum eru fréttir af
stórri skáldsögu sem rithöf-
undurinn góðkunni, Álfrún
Gunnlaugsdóttir, sendir frá
sér á þessu ári. Mál og menn-
ing gefur út gripinn, en áður
hef u r Álf rún sent f rá sér skáld-
söguna Þel, sem hlaut menn-
ingarverðlaun DV, og smá-
sagnasafnið Af manna völd-
um.
Fyrir utan starfa sinn sem
rithöfundur gegnir Álfrún
stöðu bókmenntadósents við
Háskólann, hefur nýlega sótt
um prófessorstöðu við
skólann og þykir manna lík-
legust til að fá hana...B
Von á
Allende
Isabel Allende, frænka Sal-
vador forseta sem fasistarnir
myrtu í Chíle, skrifaði hrífandi
frumraun, Hús andanna. Nú
er von til þess að Máli og
menningu takist að koma út
þýðingu snillingsins Thors
Vilhjálmssonar á þessari
bók Isabel á næstu vikum. En
Isabel er væntanleg hingað til
lands um miðjan september á
vegum MM og bók-
menntahátíðar og forlagið
hyggst freista þess að koma
þýðingunni út í tengslum við
heimsóknina.
Af Isabel er það annars að
segja, að hún hefur nú gefið út
aðra skáldsögu, Um ást og
skugga, sem fær fádæma
góða dóma...H
Fínn Fjörður
Fyrir skömmu kom út nýtt
tímarit í Hafnarfirði, sem ber
hið virðulega nafn Fjörður-
inn. Tímaritið, sem er hið
glæsilegasta, á að koma út
ársfjórðungslega samkvæmt
yfirlýsingu í leiðara þess.
Blaðinu var einkar vel tekið af
Göflurum, og meira að segja
Hamar, málgagn þess sem
eftir er af Sjálfstæðisflokknum
í Hafnarfirði, sá sig tilneyddan
að hrósa Firði í bak og fyrir. Að
vísu, segir Hamar, er viðtal við
bæjarstjórann í Hafnarfirði,
Guðmund Árna Stefáns-
son, sem sýnir vitaskuld að
Fjörður á að vera málgagn
vinstri meirihlutans í Hafnar-
firði. Þessu hafa hins vegar
forráðamenn Fjarðar neitað
af innlifaðri vandlætingu, og
kveða fjarri lagi að blaðið hafi
nokkra pólitíska slagsíðu.
Skráðir eigendur og útgef-
endur Fjarðar eru þeir Lúðvík
Geirsson formaður Blaða-
mannafélags (slands og Sig-
urður Á. Friðþjófsson. Þeir
starfa báðir hjá Þjóðviljan-
um...l