Þjóðviljinn - 09.08.1987, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 09.08.1987, Qupperneq 7
ÍÞRÓTTASPEGILL Kynnisferð til Kóreu Það lifnar enn yfir 1. deildar- keppninni í handknattleik 1987- 88 þótt hún byrji ekki fyrr en eftir tæpa tvo mánuði. Landsliðs- mennirnir eru byrjaðir að tínast heim og gangatil liðs við íslensku félögin - Atli Hilmarsson og Sig- urður Gunnarsson voru komnir og nú hefur Einar Þorvarðarson markvörður bæst í hópinn. Einar ætlar að leika með Val eins og hann gerði áður en hann hélt til Spánar. Þar með er Hlíð- arendaliðið enn líklegra en fyrr til afreka, markvarslan var höfuð- verkur þess í fyrra. Þá stefna Valsmenn að því að leika heima- leiki sína í 1. deildinni í nýja hús- inu sem er að verða tilbúið á Hlíðarenda, og þar með verða þeir fyrstir Reykjavíkurliða til að eignast eigin heimavöll. Það verður líka betra að troða 500 áhorfendum inní minna hús en að láta þá sitja hér og þar á stangli í víðáttu Laugardalshallarinnar! Handknattleikslandsliðið marði sigur á Japan, 22-21, á fimmtudaginn í fyrsta leik al- þjóðamótsins í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu. Um helgina mætir liðið Suður-Kóreubúum og Sví- um, tveimur þjóðum sem það tapaði fyrir í síðustu heimsmeistarakeppni. Þar má búast við hverju sem er en hafa ber hugfast að ekki er leikið stíft uppá toppárangur í þessari Kór- euför. Megintilgangur hennar er að kynnast sem best þeim að- stæðum sem leikið verður við á ólympíuleikunum að ári. Bogdan ætlar liðinu ekki að vera í topp- formi næst fyrr en í byrjun janú- ar, í heimsbikarkeppninni í Sví- þjóð. Sex mörk í leikjunum við IA og KR færðu Frömurum aðeins eitt stig í 1. deildinni í knattspyrnu og því var kærkomið fyrir þá að skora sex gegn Völsungi og fá fyrir þau 3 stig. Það voru líka seinustu forvöð fyrir íslands- meistarana til að komast í nám- unda við liðin í efri hluta deildar- innar. Takist Fram að sleppa við ódýru mörkin sem liðið hefur verið að fá á sig gæti það enn blandað sér í baráttuna á toppn- um með góðum endaspretti. Það er allavega nægur mannskapur fyrir hendi til að vinna leiki. KR-ingar sýndu í seinni hálf- leiknum gegn Fram að það var of snemmt að afskrifa þá í topp- slagnum. Þennan leik urðu þeir að vinna til að missa ekki af lest- inni, en til að halda sér við topp- inn verða þeir líka að sigra neðstu liðin í deildinni, einsog t.d Völs- ung á Húsavík nú um helgina. Það er oft merkilegt að fylgjast með gengi þeirra liða sem fá slæma skelli. Oftar en ekki leggja þau allt í sölurnar til að sanna getu sína í næsta leik á eftir og eru þá til alls vís. Þetta sást vel á Víð- ismönnum sem töpuðu fyrir skömmu 6-0 fyrir KA á Akureyri. Það var þeirra 15. leikur í röð í 1. deild án sigurs, frá 8. ágúst í fyrra. Næsti leikur var gegn FH og þá vann Víðir 5-2, kom sér úr neðsta sætinu og skoraði jafnmörg mörk og í öllum hinum 11 leikjunum í deildinni til samans! Nú er fallbaráttan í 1. deildinni orðin galopin, fimm lið eru í hættu og margir úrslitaleikir framundan. Til dæmis FH-KA nú um helgina. KA getur forðað sér af mesta hættusvæðinu með sigri en FH er komið á bötninn á ný og þarf svo sannarlega á stigunum að halda. Þetta er lykilleikur fyrir framhaldið hjá báðum liðum. Keflvíkingar hafa fengið nýjan Breta í stað þess sem þeir ráku á dögunum. Frank Upton er sagð- ur mun harðari í horn að taka en Peter Keeling, og það er einmitt þannig þjálfari sem Keflvíkingar virðast þurfa. Hvort það dugar til að forða liðinu frá falli í 2. deild verður svo að koma í ljós. í 2. deild er Jón Hermannsson hættur hjá Breiðabliki, og það kemur ekki mjög á óvart, miðað við gengi Kópavogsbúanna í sumar. A pappírum eru þeir sennilega með besta liðið í deildinni en það er ekki nóg að vera með sterka einstaklinga á meðan þeir spila með hangandi haus. Blikarnir Kennarar Kennara vantar aö grunnskóla Fáskrúösfjarðar. Meðal kennslugreina: Enska, danska, íþróttir og kennsla yngri barna. Húsaleigu- og flutningsstyrkur. Upplýsingar gefa skólastjóri og formaður skólanefndar í símum 97- 5159 og 97-5110. Skólanefnd Læknastofa Hef opnað stofu í Læknastöðinni hf. Álfheimum 74. Tímapantanir í síma 686311 frá 9-17 alla virka daga. Atli Þór Ólason Sérgrein: Bæklunarlækningar Einar Þorvarðarson er þriðii landsliðsmaðurinn sem snýr heim í sumar. þurfa einhvern hörkunagla á borð við Kjartan Másson til að rífa sig upp og forða stórslysi. Okkur ætlar að ganga brösug- lega að vinna knattspyrnulands- leiki á þessu ári, og það á við um öll landsliðin. Drengjalandsliðið varð að sætta sig við sjötta sæti á Norðurlandamótinu, varð aðeins fyrir ofan Færeyinga og b-lið Svía. Það dugði síðan ekki 21-árs landsliðinu að vera komið í 2-0 eftir kortér gegn Finnum á Akur- eyri. Þegar upp var staðið mátti það þakka fyrir 2-2 jafntefli og er enn án sigurs í Evrópukeppninni. Vestur-þýska deildakeppnin er byrjuð og Ásgeir Sigurvinsson fer vel af stað. Mark í fyrsta leiknum, sigurleik, og það með skalla! Hann hefur verið þekktur fyrir að skora mörk með flestum öðrum aðferðum. Ef marka má fyrstu leikina er þó ekki ástæða til sérstakrar bjartsýni um gengi liða íslendinganna í vetur. En það kann að breytast fyrr en varir. Keilismenn fögnuðu tvöföld- um sigri á landsmótinu í golfi. Þeir áttu báða íslandsmeistarana í efstu flokkunum, Úlfar Jónsson og Þórdísi Geirsdóttur. Sigur Þórdísarvarlangþráður, hún hef- ur lengi verið í fremstu röð ís- lenskra golfkvenna en aldrei áður náð þessu marki. Úlfar var hins- vegar mjög sigurstranglegur og nánast aðeins spurning um hve mörgum höggum hann yrði á undan næsta manni. Úlfar leggur geysimikið í íþrótt sína, enda kallaður atvinnumaður af keppi- nautum sínum. Vfst er að þessi 18 ára piltur ber höfuð og herðar yfir aðra íslenska golfmenn og í vetur fær hann gott tækifæri til að bæta við sig í Bandaríkjunum. Kennarar - kennarar Við Dalvíkurskóla eru lausar tvær kennarastöð- ur. Æskilegar kennslugreinar eru íslenska, dan- ska og stærðfræði í eldri deildum skólans. Upp- lýsingar gefur skólastjóri í síma 96-61380 eða 96-61491. Fóstrur óskast Skóladagheimilið Hagakot, Fornhaga 8, óskar að ráða fóstrur eða annað uppeldismenntað starfsfólk til starfa strax eða eftir nánara samkomulagi. Nánari upplýsingar gefur Steinunn forstöðumaður í símum 27683 og 29270. Frá Verkmenntaskóla Austur- lands KENNARAR Staða íslenskukennara við Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað er laus til umsóknar. Upplýsingar veitir skólameistari í síma 97-7833 eða 97-7620. ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.