Þjóðviljinn - 09.08.1987, Síða 19

Þjóðviljinn - 09.08.1987, Síða 19
SKÁK Tvœr umferðir eftir af millisvœðinu f Szirak: Úrslitín gœtu ráðist í dag Sigur yfir Allan gœti tryggt Jóhanni eitt af þremur efstu sœtunum. Skákin við Beljavskíer á mánudag Nú eru aðeins tvær umferð- ir eftir af millisvæðamótinu í Szirak í Ungverjalandi. Jó- hann Hjartarson er enn í efsta sæti þrátt fyrirtvö stutt jafntefli í 14. og 15. umferð. Mögu- leikar hans til að hreppa eitt af þrem efstu sætunum eru afar miklir en ekkert má þó út af bregða. Skákir hans ítveim síðustu umferðunum eru við Kanadamanninn Allan og Sovétmeistarann Alexander Beljavskí. Skákunnendur munu eflaust einblína á skák Jóhanns við Belj- avskí en þó gæti svo farið að Jó- hann mætti tapa, takist honum að sigra Kanadamanninn. Ekkert er þó öruggt í þessum efnum og má minna á að Allan hefur í síðustu umferðum sett stórt strik í reikninginn hjá Portisch og Nunn. Að öllu jöfnu ætti Jóhanni ekki að verða skotaskuld úr því að vinna þessa skák en tauga- spennan getur tekið sinn toll. Hann hefur svo hvítt gegn Belj- avskí í síðustu umferð sem er auðvitað geysilegt hagræði. Belj- avskí berst örvæntingarfullri bar- áttu við að vinna sér sæti en hann verður að sigra Velimirovic í 16. umferð og svo aftur Jóhann í síð- ustu umferð. Þess má geta að á millisvæðamótinu í Moskvu 1982 sýndi Beljavskí geysilegt keppn- isskap og náði einu af tveim efstu sætum með því að vinna Gheorg- hiu í síðustu umferð með svörtu. Illar tungur sögðu að Gheorghiu hefði selt punktinn, sem kæmi ekki á óvart miðað við fyrra háttalag þessa skákmanns, en á móti kemur að Beljavskí er ekki sú manngerð sem stendur í versl- un af þessu tagi. Staða efstu manna fyrir lokasprettinn er þessi: 1. Jóhann Hjartarson 11 v. 2.-4. Salvo, Portisch og Nunn 10Vi v. 5. Beljavskí 9Vi v. Aðrir komu ekki til álita. Þessi staða er skrifuð með þeim fyrirvara að skák Nunn og Allan ijúki með jafntefli en biðstaðan mun vera steindautt jafntefli og raunar afar ósennilegt að hún verði tefld áfram í dag er biðskákir verða til lykta leiddar. Lítum þá á 16. um- ferðina sem hefst kl. 13 í dag að fslenskum tíma: AUan - Jóhann, Portisch - Nunn, Salov - De ViUa, Beljavskí - Velimirovic. Auðvit- að eru þetta ekki annað en al- mennar vangaveltur en úrslit gætu orðið þessi: Jóhann vinnur Allan, Salov vinnur De Villa, Beljavskí vinnur Velimirovic, Nunn og Portisch jafntefli. Þá yrði staðan þessi: 1. Jóhann 12 v. 2. Salov IIV2 v. 3.-4. Portisch og Nunn 11 v. 5. Beljavskí IV2 v. I raun og veru eru þetta ekki fráleit úrslit sem myndu þýða að Beljav- skí yrði að vinna Jóhann til að halda í veika von um að komast í aukakeppni um sæti í áskorend- amótinu. í versta falli myndi Jó- hann þá lenda í keppni við Nunn og Portisch um tvö sæti af þrem- ur. Það er því ljóst að sigur yfir Allan næstum því tryggir stöðu Jóhanns feiknavel og hagstæð úr- slit í skákum Portisch og Nunn í lokaumferðinni gerðu það að verkum að hann kæmist áfram. Þá teflir Jóhann við Beljavskí eins og áður sagði með hvítu, Nunn hefur hvítt á Christiansen, Velimirovic hvítt á Portisch en Salov er með svart á Bouaziz. Eins og staðan er þá standa Jó- hann og Salov mjög vel að vígi, baráttan um þriðja sætið stendur á milli Portisch, Nunn og Beljav- skí og verður fróðlegt að fylgjast með viðureign Portisch og Nunn í dag. Portisch hefur hvítt sem þarf ekki að þýða svo mikið því Nunn hefur gert honum margar skrá- veifurnar einmitt með svörtu. Því þykir mér sennilegast að annar hvor keppenda fái létt rolukast og bjóði jafntefli. Ekki má þó skilja orð mín svo að þeir séu þekktir fyrir jafntefli og dauflega taflmennsku, heldur þvert á móti. Hinsvegar taka praktískar vangaveltur oft yfir undir svona kringumstæðum. Að Jóhanni slepptum hafa þeir Salov og Nunn teflt frisklegustu skákirnar í mótinu. Nunn er þekktur fyrir djarfar sóknar- skákir og lausnir við taflborðið sem minna á skákdæmi en hann mun enda eiga engan sinn líka í þeirri kúnst að leysa skákþrautir á sem skemmstum tíma. Eftirfar- andi skák við Spánverjann De Villa ber reikningssnilld hans glæsilegt vitni. Ekki þarf að rifja það upp að á stærðfræðisviðinu þykir Nunn hafa ófreskigáfu til að bera, mun hafa verið yngsti nemandi sem fengið hefur inngöngu í stærðfræðideild Cambridge-háskóla: John Nunn De Villa Spænskur leikur, Janisch-bragð 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. bb5 fS (Janisch-bragðið nýtur alltaf mikilla vinsælda, einkum hjá hin- um minni spámörinum. Stað- reyndin er sú að það stenst ekki bestu taflmennsku en getur reynst erfitt viðureignar séu menn ekki með á nótunum.) 4. Rc3 Rd4 (Annar möguleikier4. ...fxe4 5. Rxe5 d5 með miklum sviptingum sem þykja hagstæðar hvítum. Textaleikurinn hefur heldur ekki gott orð á sér.) 5. exf5 (Annar möguleiki er 5. 0-0 eða 5. Ba4 en þannig var Karpov vanur að tefla.) 5. ... c6 6. Rxe5 Rf6 7. Bd3 d6 8. Rg4 Rxf5 9. 0-0 Be7 10. Rxf6+ Bxf6 11. Hel+ Kf7 12. Re4 Hf8 13. c3 (Svartur hefur sáralitlar bætur fyrir peðið t.d. ef hvítur stofnar til allsherjar uppskipta á f- línunni. Hætt er við að vinnings- möguleikar hvíts séu ekki ýkja miklir en mótspilið er heldur lítil- fjörlegt. Nunn, trúr stfl sínum, kýs vandasamari leiðir.) 13. ... Kg8 14. Bc2 d5 15. Rg3 Rxg3 16. hxg3 d4 17. Be4 Db6 18. Dc2 d3 (Afar erfið staða. Svartur hefur áð því er virðist náð miklum mót- færum. Ef 19. Bxd3 þá 19.... Dxf2+!! 20. Kxf2 Bd4+ 21. Ke2 Bg4 mát!) 19. Dxd3 Bxc3 (Þetta var meiningin með atlög- unni. En Nunn hefur reiknað dæmið nákvæmlega til enda. Valdi hann f-peðið má svartur vel við una vegna veikleika í peða- stöðu hvíts.) 20. bxc3! Dxf2+ 21. Kh2 Dxel 22. Ba3! Dxal 23. Bxh7+ Kh8 (Auðvitað ekki 23. ... Kf7 24. Dg6 mát.) 24. Bxf8 Be6 '1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 1 \ 15 16 17 18 Vinn. 1. Todöiocw Mónakó V'2 0 1 1 1 0 0 0 0 0 1 1 'h '/2 0 6'h 2. Lubojevic Júgósl. y? 1 ’/2 V;> 1 Vi 1 0 '/2 0 '/2 '/2 '/2 1 V2 8'h 3. Milos Ðrasilía 1 0 ’/2 1 0 0 0 ’/2 0 1 0 '/2 'h 1 7 4. Benjamin Bandar. 0 'h 0 ’/2 1 ’/2 0 0 ’/2 1 1 '/2 'h 'h 6’/2+1 5. Salov Sovótr c ’/2 '/2 ’/2 1 ’/2 Vi 1 '/2 1 1 ’/2 1 1 10V2 . 6. Allan Kanada 0 0 0 U k 0 ’/2 0 V2 0 '/2 0 0 0 1’/2+1 7. Beljavski Sovétr. 1 ’/2 1 '/2 0 1 0 ’/2 1 1 '/2 '/2 '/2 1 'h s'V? 8. Portisch Ungverjal. 1 0 1 1 ’/2 ’/2 X '/2 '/2 ' ‘2 '/2 1 1 'h 1 10'/2 9. Nunn England 1 1 1 1' ’/2 ’/2 ’/2 1 1 0 ’/2 1 a 10 + 1 10. Velimirov. Júgósl. 1 ’/2 ’/2 0 1 X '/2 0 1 '/2 1 0 1 0 7-; 1 11. Jóhann Hj. Island 1 1 1 ’/2 ’/2 ’/2 /2 ’/2 k 1 ’/2 0 1 1 1 1 1 12. Dn La Villa Spánn 0 ’/2 0 0 0 '/2 0 1 0 0 '/2 ’/2 '/2 '/2 'h 4Vz 13. Bouaziz Túnis 0 '/2 1 ’/2 0 ’/2 0 0 0 1 ’/2 0 ’/2 0 0 4 'h 14. Andersson Svlþjóö 'h ’/2 0 1 ’/2 ’/2 1 '/2 ’/2 '/2 '/2 1 ’/2 'h 1 9 15. Adorjan Ungverjal. Vi 0 0 ’/2 ’/2 0 ’/2 0 1 'h 1 0 '/2 'h 0 5’/2 16. Marin Rúmenia ’/2 ’/2 ’/2 1 ’/2 0 0 1 0 '/2 '/2 '/2 /2 'h 6V2+1 17: Flear England 0 ’/2 ’/2 0 1 0 ’/2 1 0 0 ’/2 1 ’/2 'h 6+1 18. Christiansen Bandar. 1 ’/2 0 ’/2 0 1 ’/2 0 1 0 ’/2 0 1 'h 7'h abcdefgh 25. Bxg7+!! (Nunn sá þessa stöðu fyrir og tryggir sér nú mikla yfirburði í drottningarendatafli.) 25. ... Kxg7 26. Dg6+ Kh8 27. Dh6! (Hótar m.a. 28. Bf5+ og 29. Bxe6 mát.) 27. ... Bd5 28. Be4+ Kg8 29. Dh7+ Kf8 30. Bxd5 cxd5 31. Dh8+ Ke7 32. Dxa8 Dxa2 33. Dxb7+ Kd6 34. Db8+ Kc6 35. Df4 (Þetta drottningarendatafl er unnið á hvítt þó úrvinnslan krefj- istmikillar nákvæmni vegna frels- ingja svarts á a-línunni.) 35.... Dc4 36. Df5 a5 37. g4 a4 38. d3! Dc5 39. Dc8+ Kb5 40. Db7+ Ka5 41. g5 Dd6+ 42. g3 a3 43. g6 Ka4 44. g7 Dh6+ 45. Kg2 Dd2+ 46. Kh3 Dh6+ 47. Kg4 Dg6+ 48. Kf4 Df6+ 49. Ke3 d4+ 50. Ke4! De6 51. Kxd4 Dg4+ 52. Kc5 og svartur gafst upp Sovétmaðurinn Valeri Salov tefldi á Reykjavíkurskákmótinu í fyrra og vakti athygli fyrir vand- aða taflmennsku. Síðar á árinu gerðist hann aðstoðarmaður An- atoly Karpovs í einvígi hans við Garrí Kasparov í London/ Leníngrad. Það er ekki annað að sjá en að Salov hafi lært sína lexíu því árangur hans uppá síðkastið Leiðrétting f greininni Jón Baldvin og SÍA 1. ágúst lét ég svo um mælt að Amór Hannibalsson hefði ekki birt opinberlega neina gagnrýni á Sovétríkin fyrr en hann hafði lok- ið námi f A-Evrópu 1960. Vísaði ég til greinasafns hans Valdið og þjóðin 1963. Mér hefur verið bent á að tvær þeirra greina höfðu áður komið í tímaritinu Birtingi, List og skrif- finnskulist í Sovét 1961 og Pœttir um list í Sovét 1962 og 1963. Arni Björnsson hefur verið stórgóður. Hann varð t.d. efstur á Sovétmeistaramót- inu síðasta ásamt Beljavskí en tapaði 1:3 í einvígi. í 2. umferð vann hann Ungverjann Andras Adorjan. Skákina teflir hann í sönnun Karpov-stfl. Adorjan, sem hefur aðstoðað Kasparov ósjaldan, er hægt og bftandi ýtt út af borðinu og í lokastöðunni get- ur hann sig bókstaflega hvergi hrært: Andras Adorjan Valeri Salov Bogo-indversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4+ 4. Bd2 c5 5. Bxb4 cxb4 6. g3 b6 7. Bg2 Bb7 8. 0-0 0-0 9. Rbd2 a5 10. Hel d6 11. e4 Rfd7 12. Dc2 e5 13. Hadl Rc6 14. Rfl Dc7 15. Re3 Re7 16. dxe5 dxe5 17. Rxd5 Rxd5 18. exd5 Hae8 19. Rg5 g6 20. b3 Rc5 21. h4 Dd6 22. Hd2 Bc8 23. Ddl Kg7 24. Dal Bf5 25. f4 f6 26. fxe5 Hxe5 27. Hxe5 Dxe5 28. Dxe5 fxeS 29. Kh2 h6 30. Rh3 c4 31. d6 Hd8 32. Rf4 g5 33. Re2 Bg4 34. Rcl e3 35. Hd5 e2 36. He5 Kf6 37. He3 Hxd6 38. Rxe2 Hd2 39. Rcl Hdl 40. Re2 Hd2 41. Rcl Kg6 Nú var fyrstu tímamörkum náð og Adorjan tók að athuga sinn gang. Hann í leikþröng! Kóngs- leikur strandar á - Hdl + og vinn- ur mann, hróksleikur strandar á - Bf3. Adorjan gafst því upp. MAKL05? &LETF«MP Ifaust har? LAUGAVEGI 28 S: 112 75 (217 84) REYKJKKKURBORG l§| VLíuimsi Stö4un Starfsfólk óskast við ræstingar og gæslustörf í Sundhöll Reykjavíkur. Um er að ræða kvöld- og helgarvinnu. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 14059. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.