Þjóðviljinn - 09.08.1987, Side 20
Byltingar-
maður á
heimleið
Ben Kingsley fer með hlutverk Leníns
Nú er verið að taka í
Austurríki sjónvarpsmynda-
flokk sem tekur alls fjóra tíma
og lýsir heimferð frægasta
byltingarleiðtoga allra tíma,
Leníns, til Rússlands fyrir rétt-
um sjötíu árum. Það er Dami-
ano Damiani sem stjórnar
myndinni en með aðalhlut-
verkið fer Ben Kingsley sem
mikla frægð hlaut á sínum
tíma fyrir leik sinn í hlutverki
Gandhis í samnefndri mynd.
Rússneska byltingin á sjötíu
ára afmæli í október í haust og er
ekki nema von að kvikmynda-
menn hugsi gott til að notfæra sér
jafn dramatískt og afdrifaríkt
tímaskeið.
Mynd Damianis er um margt
ólík þeim kvikmyndum um
rússnesku byltinguna sem frægar
hafa orðið allt frá „Október”
Eisensteins, sem gerð var árið
1928 til „Rauðliðanna” sem gerð
var 1981 um feril bandaríska
blaðamannsins Johns Reeds í
byltingunni. Reynt er að blanda
saman nauðsynlegri innsýn í pól-
itísk stórtíðindi tímans og svo að-
ferðum spennusögunnar og má
vitanlega segja að oft hefur verið
lagt upp með dauflegra efni en
þetta hér.
Myndin um heimferð Leníns
vorið 1917 heitir „Lestin” og
byggir á mjög reifaralegum tíð-
indum. Lenín hafði verið í útlegð
í Sviss heimsstyrjaldarárin fyrri
og boðaði þaðan það fagnaðarer-
indi að hermenn allra styrjaldar-
aðila sneru vopnum sínum gegn
yfirstéttum hver hjá sér og
breyttu heimsveldastríði í stétta-
stríð. Vitanlega var þetta versta
villutrú í augum allra valdhafa
Evrópu. En þegar komið var
fram á árið 1917 var Þýskaland
Vilhjálms keisara orðið mjög
dasað og því töldu slóttugir menn
í valdahring að það væri ómaks-
ins vert að hjálpa Lenín að kom-
ast til Rússlands - í þeirri von að
hann og bolsévikaflokkur hans
gætu unnið að því að koma
rússneska hernum út úr styrjöld-
inni.
Þetta bar upp á þann tíma að
Lenín og félögum hans bráðlá á
að komast heim. í febrúar hafði
Nikulási keisara verið steypt af
stóli og við tók bráðabirgðastjórn
borgaralegra og vinstrisinnaðra
afla. En Lenín sá í þeirri stöðu
sem upp var komin möguleika á
að dýpka byltinguna ef svo mætti
segja. Með því að hinir róttæk-
ustu, bolsévikar og bandamenn
þeirra, einbeittu sér að því að
gera ráð verkamanna og her-
manna, sem upp spruttu þessa
mánuði, að nýjum valdastofnun-
um sem tefla myndu bráða-
birgðastjóminni út úr sögulegum
leik.
Það gekk því saman með út-
lægum byltingarmönnum rússn-
eskum og erindrekum Þýska-
landskeisara og Lenín fékk að
fara með fylgdarliði sínu í
Ben Kingsley sem Lenín og Lesl-
ie Caron í hlutverki konu hans við
upptökurá „Lestinni".
innsigluðum vagni frá Sviss, yfir
Þýskaland og til Stokkhólms.
Eins og nærri má geta fékk hann
óspart að heyra það þegar heim
kom að hann hefði með þessu
móti gerst landráðamaður og
mútuþegi Vilhjálms keisara, en
það er svo önnur saga.
Kvikmyndatökur hafa farið
fram í Austurríki vegna þess að
þar eru járnbrautir enn til kola-
kyntar og enginn skortur á forn-
eskjulegum járnbrautarstöðvum.
Ben Kingsley þykir að sögn
þeirra sem séð hafa kunna vel á
lenínskt látbragð og ræðustíl
(sitthvað er til af kvikmyndabú-
tum með Lenín og grammófón-
upptökum með rödd hans) og
Leslie Caron þykir það góð til-
breyting að fá að leika eiginkonu
byltingarforingjans mikla, Na-
dézdu Krúpsköju - en leikkonan
er ekki hvað síst þekkt fyrir að
leika útsmogna ástkonu í Falcon
Crest. áb tók saman.
W
K
Þú ættirað leggja nýja póstnúmeríð
vel á minnið svo þú getirnotað það
næst þegar þú sendir bréf í hverfið.
Með því móti sparast tími og fyrir-
höfn og þú flýtir fyrir sendingunni.
Mundu nýja póstnúmeríð 103
og fyrir pósthólf 123.
PÓSTUR OG SÍMI
KRINGLUNNI 103 REYKJAVÍK
Nýtt pósthús.
að er íleira nýtt á þessum slóðum.
Jr Þann 13. ágúst nk. opnum við nýtt
póstútibú í Kringlunni. Það verður í vist-
legu umhverfi og mun veita alla alm-
enna póstþjónustu auk póstfaxþjónustu.
Afgreiðslutíminn verður virka daga frá
kl. 8.30 til 18.00. Við bjóðum þig vel-
komin í nýja póstútibúið okkar.
Ný söludeild
P amhliða nýja póstútibúinu munum
O við opna söludeild í Kringlunni. í
söludeildinni verða á boðstólum fjöl-
margar tegundir vandaðra símtækja
og annarbúnaður tengdur síma. Auk
þess mun söiudeildin veita símnoteríd-
um alla þjónustu varðandi nýja síma
og flutning á símum.
NAGRENNI HEFUR
PÓSTNÚMERIÐ 103
0G NÆSTA
FENGIÐ
<
c/)
l