Þjóðviljinn - 12.08.1987, Síða 7
Jón Páll Halldórsson fyrir framan Faktorshús,
þar sem Jón Sigurpálsson safnvörður Byggða-
safns Vestfjarða býr.
Isumareru 10ársíð-
an endurbygging
Neðstakaupstaðar
hófst. Búist við að
endurreisn hiðytra
Ijúki að mestu næsta
sumar, enfrágangi
innanhússíTurnhúsi
ogTjöruhúsiólokið.
Sjóminjasafn opnað í
Turnhúsi næsta vor.
Jón Páll Halldórsson
formaður húsafriðun-
arnefndar: Almenn-
ingursýnirverkinu
æ meiri áhuga
% ''M
Meriair menningamrfur
endurheimtir fyrri reisn
Endurbygging dönsku
verslunarhúsanna í
Neðstakaupstað er nú langt
komin og er búist við að henni
verði að mestu lokið hið ytra
næsta sumar. Þó er talsvert
starf óunnið innandyra í Turn-
húsi og í Tjöruhúsi. Verkið
hófst árið 1977, tveimur árum
eftir að ákveðið var að friða
húsin og færa þau í uppruna-
legt horf. Neðstikaupstaður
var aðsetur dönsku einokun-
arverslunarinnar á ísafirði og
voru húsin öli fjögur byggð
áður en einokun var aflétt árið
1786.
„Húsin voru illa farin þegar
tekin var ákvörðun um að frið-
lýsa þau,“ sagði Jón Páll Hall-
dórsson formaður húsafriðunar-
nefndar ísafjarðar í samtali við
Þjóðviljann, en nefndin hefur
haft yfirumsjón með endurbygg-
ingunni.
Jón Páll bauð blaðamanni
Þjóðviljans í stofu í Faktorshúsi,
sem að mestu leyti er íbúð
safnvarðar Byggðasafns Vest-
fjarða, en bærinn hefur aðgang
að stofunni fyrir gesti.
Jarðýtumafur eða
menningararfur
„Það var um tvennt að ræða.
Annað hvort að fara með jarðýtu
á þetta allt saman og gleyma því,
eða að friðlýsa þessi hús og
endurbyggja þau.
Það voru skiptar skoðanir um
þetta meðal ísfirðinga á sínum
tíma, en almenningur hefur sýnt
þessu starfi æ meiri áhuga eftir
því sem verkinu hefur miðað og
nú held ég að flestir séu sammála
um að það var rétt ákvörðun að
varðveita þessi hús. Augu margra
hafa eflaust opnast fyrir því hvað
hér er að gerast þegar haldið var
ball í Turnhúsi á 200 ára afmælinu
ífyrra.
Húsafriðunarnefnd ákvað
strax í upphafi að líta á þetta sem
langtímaverkefni og reyna að
vanda vel til verksins og ég tel að
þetta hafi tekist vonum framar,“
sagði Jón Páll. Hann sagðist ekki
geta sagt glögglega til um hvað
endurbyggingin hefur kostað á
núvirði, en sagði bæjarstjórnir
hafa sýnt þessu mikinn skilning
og lagt fé til verksins eins og hægt
væri að ætlast til. Auk þess hafa
Húsafriðunarsjóður, Þjóðhátíð-
arsjóður og Byggðasjóður styrkt
þessar framkvæmdir.
Húsin fjögur, Faktorshús,
Turnhús, Krambúð og Tjöruhús,
voru einu húsin sem stóðu í
Neðstakaupstað þegar einokun
lauk.
Tjöruhús er þeirra elst, var
byggt árið 1734. Þar geymdu
danskir einokunarkaupmenn
veiðarfæri og fleira sem viðkom
útgerð verslunarinnar, auk þess
sem þar var seglagerð. Gert er
ráð fyrir að viðgerð Tjöruhúss að
utan verði lokið næsta sumar.
í Krambúðinni, sem talið er að
hafi verið byggð árið 1757 eða
1761, var verslun, en húsið hefur
um langt skeið verið haft til íbúð-
ar og býr bókavörður þar nú.
Viðgerð Krambúðar verður lokið
í sumar.
Faktorshúsið var byggt árið
1765 og var eins og nafnið ber
meö sér íbúðarhús faktorsins og
hyskis hans. Faktorshús var ein-
na verst farið húsanna fjögurra
þegar endurbygging hófst, en
viðgerð þess er nú lokið og býr
Jón Sigurpálsson safnvörður þar
ásamt konu sinni.
Sjóminjasafn
í Turnhúsi
Turnhúsið, sem var byggt rétt
fyrir lok einokunarverslunarinn-
ar dönsku, mun gegna merku
hlutverki í framtíðinni. í Turn-
húsi var áður fiskverkun og vöru-
lager, en nú er að sögn Jóns Páls
fyrirsjáanlegt að þar verði opnað
sjóminjasafn næsta vor.
Að sögn Jóns Páls hefur sjó-
minjum á ísafirði og víðar verið
safnað í nær hálfa öld. Þeir hafa
verið geymdir í Byggðasafni
Vestfjarða, en verða fluttir í
Turnhúsið á komandi vetri.
„Það er að mínu mati mjög á-
ríðandi fyrir stað eins og ísafjörð
að eiga sjóminjasafn. Þegar sjóð-
akerfí sjávarútvegsins var lagt
niður fékk sjóminjadeild Byggð-
asafnsins eina milljón króna af
eftirstöðvum úreldingarsjóðs og
það fé verður notað til þess að
koma þessu safni upp.
Fyrsti gripurinn sem komið var
í geymslu var sexæringur sem
Bárður G. Tómasson skipaverk-
fræðingur beitti sér fyrir að yrði
byggður og fékk bátasmið úr Bol-
ungarvík til þess að sjá um smfð-
ina. Báturinn var sjósettur 17.
júní árið 1943,“ sagði Jón Páll um
þetta atriði.
Hér er ekki vettvangur til þess
að rekja sögu Neðstakaupstaðar í
smáatriðum en þó er rétt að geta
þess að staðurinn var í eigu ým-
issa aðila á 19. öldinni, en veldi
hans var mest á 1. áratug þessarar
aldar, þegar Ásgeirsverslun, sem
á sínum tíma var talin stærsta fyrí
irtæki landsins, hafði þar aðsetui*
sitt. Þá var uppgangur mikill ál
ísafirði, sem m.a. má ráða af því
að um aldamótin bjuggu þar 1000
manns, en tíu árum síðar voru
íbúarnir orðnir 1850. Til saman-
burðar má geta þess að íbúar ísa-
fjarðar eru nú rúmlega 3000.
Hinar sameinuðu íslensku
verslanir eignuðust Neðstakaup-
stað þegar Ásgeirsverslun hætti í
lok heimsstyrjaldarinnar fyrri, en
eftir að Hinar sameinuðu liðu
undir lok eignaðist hafnarsjóður
Neðstakaupstað.
Vagga
saltfiskverkunar
Talaðhefur veriðum að Neðsti-
kaupstaður hafi verið vagga
saltfiskverkunar á íslandi og er
sagt að ísafjörður hafi löngum.
lyktaðaf saltfiski. Veldi Neðsta-
kaupstaðar hnignaði því veru-
lega eftir að saltfískmarkaðir lok-
uðust í síðari heimsstyrjöldinni
og eftir það er að sögn Jóns Páls
varla hægt að tala um samfelida
atvinnustarfsemi í Neðstak-
aupstað.
Staðurinn komst að lokum í
eigu bæjarsjóðs og eins og áður
sagði var ákveðið að friðlýsa
þennan merka menningararf ís-
firðinga árið 1975. En þótt þessi
einstæðu hús hafi endurheimt
sína fyrri reisn hvað ytra útlit
snertir, er talsvert starf óunnið í
Tjöruhúsi og í Turnhúsi. Auk
þess er ýmsum frágangi á lóðinni
ólokið.
„Þessi hús eru hluti af
menningar- og atvinnusögu stað-
arins sem okkur ber að varðveita
fyrir komandi kynslóðir. Ég vona
að hér verði í framtíðinni vin,
sem bæjarbúum mun þykja vænt
um,“ sagði Jón Páll Halldórsson.
-gg
I sumar hefur verið unnið að endurbótum á Krambúð, þar sem áður var verslun, en nú bústaður bókavarðar. Jón H.
Hreinsson, Jón Ottó Gunnarsson og Nanný Guðmundsdóttir vinna verkið.
Miðvikudagur 12. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7