Þjóðviljinn - 30.08.1987, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 30.08.1987, Blaðsíða 3
Söngkona Bar sigurorð af 40 keppendum SólrúnBragadóttirráðintiltveggjaáravið þýska óperu Úr öperunni „Saltan keisari” eftir Rim- sky Korsakov. Bergþór Pálsson í hlut- verki keisarans og Sólrún Bragadóttir í hlutverki keisaraynjunnar. - Uppfærsla í Indiana voriö 1987. íslenskir söngvarar hafa áratugum saman aukið á hróður íslands á erlendri grund. Nægirþaraðnefna óperusöngvarana Pétur Jónsson, Sigurð Skagfield, Stefán íslandi, EinarKrist- jánsspn, Maríu Markan, Guð- rúnu Á. Símonar, svo aðeins sé minnst á þá sem gerðu garðinn frægan fyrr á öldinni. Ymsa fleiri söngvara mætti nefna, sem síðar hafa komið viðsögu, með eftirtektarverð- um hætti, raunar bæði hér heima og erlendis. Allt hefur þetta fólk verið í fremstu röð á sviði sönglistarinnar. Og enn er að bætast í þennan hóp fólk sem mikils má af vænta. Nú síðast hún Sólrún Bragadótt- ir. Hún er að vísu að hefja feril sinn sem söngkona, enda nýbúin að ljúka námi, að því leyti sem hægt er að segja að söngnámi sé nokkurn tíma lokið. En úrslit í harðri söngkeppni, þar sem Sól- rún bar sigurorð af 40 keppend- um víðs vegar að úr heiminum, fela í sér mikil fyrirheit um frama þessarar ungu söngkonu. Sólrún Bragadóttir er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún hóf söngnám í Tónlistarskóla Kópa- vogs og síðan Tónlistarskóla Reykjavíkur. Kennari hennar hér var Elísabet Erlingsdóttir. Þá tók við 5 ára söngnám við há- skólann í Bloomington í Indiana í Bandaríkjunum og hefur hún nú nýlega lokið þaðan meistara- prófi. Meðal kennara hennar þar var hin fræga ítalska söngkona Virginia Zeani. Það er ekki heiglum hent að koma sér á frantfæri í óperu- heiminum. Samkeppnin er hörð og allt fer þetta fram í gegnum umboðsmenn. En Sólrún kom, sá og sigraði. Umboðsmaðurinn, sem hún gekk undir próf hjá, valdi hana úr 40 keppendum. Þegar svo var farið að svipast um hjá óperuhúsum í Þýskalandi kom á daginn, að þar var aðeins óráðið í eina stöðu fyrir það tíma- bil, sem í hönd fór. Var það við óperuna í Kaiserslautern í Þýska- landi. Um stöðuna kepptu, auk Sólrúnar, 6 söngkonur frá öðrum umboðsmönnum. Óperuhúsið valdi Sólrúnu og þar er hún nú ráðin til starfa næstu tvö ár. Trú- lega er það næsta fátítt að íslensk- ur söngvari, nýkominn frá námi, fái þannig fastan atvinnusamning erlendis. Fyrsta hlutverk Sólrúnar Brag- adóttur við óperuna er Mimi í La Boheme. Frumsýningin er þann 19. sept. n.k. svo ekki er nú tím- inn langur til stefnu. Síðan er það Marzellína í Fidelíó og loks Clór- inda í Öskubusku Rossinis. Þessi hlutverk öll henta einkar vel hinni Iyrisku sópranrödd Sólrún- ar Bragadóttur. Sólrún Bragadóttir sópransöngkona. Sólrún Bragadóttir skaust hingað heim um daginn en er nú farin til Þýskalands til að fást við Mimi - og fékk þar ágætustu við- tökur. Maður hennar, Bergþór Pálsson veðurfræðings Bergþórs- sonar, er einnig söngvari. Þau hafa bæði sungið hér heima og auk þess gefið út sameiginlega hljómplötu. Þau eiga einn ungan son. „Og nú erum við feðgarnir á förum út,” sagði Bergþór Páls- son. Og við hér á Þjóðviljanum segjum bara: Gangi ykkur öllunt. sem best. -mhg Heimdallur jafnaði Um formannsbaráttu SUS er það annars að segja, að leikar munu nú standa jafnir millum Árna Sigfússonar og Sigur- björns Magnússonar. Vegna ítaka sinna á lands- byggðinni var Sigurbjörn kominn hestlengd framyfir Árna í keppninni. En fulltrúa- kjör á þingið er með afar undarlegum hætti hjá ung- íhaldinu, svo ekki sé meira sagt. Stjórnir ungliðafélag- anna tilnefna fulltrúa, þannig að þegar stjórn Heimdallar, fjölmennasta félagsins, hafði skipað sína fulltrúa var Árni búinn að vinna upp forskot Sigurbjörns. Formaður Heimdallar og nær einvaldur er Þór Sigfússon...bróðir Árna 9 Arás á HP Þórarinn Jón Magnússon er hinn nýi eigandi Vikunnar, sem Þórunn Gestsdóttir rit- stýrði fyrir Frjálsa fjölmiðlun. Þórarinn er einkar geðþekkur forleggjari, sem hefur það helst á móti sér fyrir smekk okkar á Þjóðviljanum að vera fram úr hófi mikill íhalds- maður. Hann hefur verið meðeigandi Sam-útgáfunnar, sem hefur vaxið vel að undan- förnu. Með Vikunni leggur Þórarinn hins vegar á sér áður ókunn djúp. Hann hyggst nefnilega gera Vikuna að einskonarfréttamiðli með við- tölum í bland, og verða sjálfur ritstjóri. Þórarinn ætlar af stað með miklum stíl, og hefur mangað til við flestar helstu fjölmiðlastjörnur lýðveldisins. Allt mun það þó í miklum leyndum, því kanónurnar sem munu taka til starfa hjá Þór- arni hafa enn ekki tilkynnt nú- verandi yfirboðurum um flutn- inginn. Þórarinn Jón ku telja að nú sé gott lag fyrir fjölmiðil af þessu tagi þar sem Helgar- pósturinn sé á mikilli og erfiðri niðurleið. Hann ætlar sumsé að slátra HP, strákurinn sá arna K9 Ðavíð styður Árna í næstu viku hefst landsfund- ur Sambands ungra Sjálf- stæðismanna og hápunktur- inn verður slagur Árna Sigfússonar og Sigurbjörns Magnússonar um for- mennsku SUS. Til þessa hef- ur Árni reynt að laga pólitísk- an feril sinn mjög að ferli Da- víðs Oddssonar, - þannig var hann kosinn annar af skrifurum borgarstjórnareins- og Davíð á sínum tíma og fyrir isumarfrí borgarstjórnar lagði hann fram tillögu um frjálsari ' opnunartíma verslana, alveg einsog Davíð á sínum sokka- bandsárum. Tillögu Árna var raunar vís- að til borgarráðs. Þar hefði til- lagan líklega fallið á jöfnu, með hjásetu fulltrúa Alþýðu- bandalagsins. En Davíð borg- arstjóri lagði þá til, að tillög- unni yrði aftur vísað til borgar- stjórnar þar sem meirihluti er að líkindum fyrir henni. Borg- arstjórnarfundur verður næst 3. september, þannig að þeg- ar SUS-þingið hefst ríður Árni í hlaðið með tillögu sína sam- þykkta í farteskinu, og mun væntanlega veifa því drjúgt. Slagurinn um formenn- skuna í SUS speglar öðrum þræði hina vaxandi togstreitu milli Davíðs og Þorsteins Pálssonar. Sigurbjörn er framkvæmdastjóri þing- flokksins og því handgenginn Þorsteini og á átakatímunum sem eru framundan í flokkn- um er nauðsynlegt fyrir Þor- stein að halda formanni SUS sín megin. Ámi Sigfússon hef- ur hins vegar, öllum á óvart, haft uppi óvægna gagnrýni á Þorstein í fjölmiðlum. Davíð sá sér því leik á boröi, og gagnstætt fyrri áformum, hef- ur nú blandað sér í baráttuna með ofangreindum hætti 9 Þórunn áfram Ekki er talið að deilt verði jafn hart hjá konunum og ungí- haldinu um formennsku sam- i / *> » -jr- bandsins. Þórunn Gests- dóttir, fráfarandi ritstjóri Vik- unnar, hefur gegnt embætti formanns og um skeið var tal- ið að hún hygðist ekki gefa kost á sér aftur. Ýmsar minni spákonur voru þá nefndar til sögu, -meðal annars Bessí Jóhannsdóttir, sem ekki fékk að vera á þinglistanum í Reykjavík fremur en Ásgeir Hannes. Ýmsar stuðning- skonur Þórunnar lögðu hins Sunnudagur 30. ágúst 1987;ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA Sjálfstæðiskonur eru fyrr á ferðinni en ungliðarnir og halda landsþing sitt nú um helgina, á Norðurlandi. Það hefur vakið athygli, að við auglýsingar á þinginu hefur mest borið áTómasi Inga Ol- richt, framagosa að noröan sem þykir hafa til að bera yfir- náttúrulegan metnað. Tómas hefur víða reynt að komast til mannaforráða í Sjálfstæðis- ílokknum nyrðra, en jafnan borið skarðan hlut frá borði. Gárungarsegja, aðTómas sé svo örvæntingarfullur orðinn um svölun metnaðar síns, að hann hyggist nú reyna að komast til mannaforráða hjá Landssambandi Sjálfstæðis- kvenna 9 (ráðuneytunum er orðin fræg sagan um upplýsingafulltrú- ann nýja hjá Jóni Baldvin, sem réð sig sjálfur. Sá heitir Karl Th. Birgisson, og sam- kvæmt fréttatilkynningu sem hann samdi sjálfur og fór með niðrá Mogga er hreint ómögu- legt að skilja hvaða hlutverki hann á að gegna. Karl gaf þó örlitla vísbendingu í viðtali við Alþýðublaðið um þá stefnu sem hann hyggst taka í starfi. Þar gerði hann uppskátt, að hann hyggðist beita sér fyrir því að Jón Baldvin breytti um hárgreiðslu. ( fjármálaráðu- neytinu fara menn hálfvegis hjá sér, þegar spurt er út í upplýsingafulltrúann, sem enginn veit um hvað á að upp- lýsa, né hvern 9 Besti vinur Ijóðsins lifir! Á miðvikudagskvöldið í næstu viku mun Besti vinur ljóðsins - upprisinn eftir langan svefn - standa fyrir skáldakvöldi á Hótel Borg. Þar koma fram fjölmörg og misþekkt skáld, sem flest eiga það sameiginlegt að hafa sent frá sér bók nýlega eða eru með það í bígerð. Þannig les Sigfús Daða- son úr væntanlegri bók sinni; svo og Porgeir Þorgeirsson sem bráð- lega sendir frá sér þýðingar á ljóðum hins kunna færeyska fræðimanns og skálds, Kristjáns Matras. Þorsteinn frá Hamri les úr Urðargaldri og Árni lbsen les úr verkum Samúels Becketts sem væntanleg eru á bók. Aðrir sem fram koma eru þessir; ísak Harð- arson, Jóhann árelíuz, Steinunn Sigurðardóttir, Vilborg Dag- bjartsdóttir, Kristín Ómarsdóttir, Jón Egill Bergþórsson og Gunnar Hersveinn. Kynnir verður Viðar Eggerts- son leikari, sérlegur verndari BVU. Miðaverð fyrir þessar trakteringar er aðeins 300 kall - og svo verða hinar rómuðu veitingar Hótel Borgar vitanlega á boðstólum. (Fréttatilkynning)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.