Þjóðviljinn - 30.08.1987, Blaðsíða 16
I upphafi
í upphafi skyldi endinn skoða,
sagði einhver vitur maður fyrir
margt löngu síðan. En það sér
ekki fyrir endann á þessu spjalli
mínu enn, hvað þá á þeim popp-
síðum er ég hef tekið að mér að
rita í framtíðinni, og því ógerlegt
að spá um það, hvað verður úr
þessu öllu saman fyrir rest. Ég vil
því bara byrja á því að bjóða ykk-
ur velkomin í minn hóp og taka
það fram að þetta er mín allra
allra fyrsta poppsíða í þessu
ágæta biaði, sem og annars stað-
ar, þrátt fyrir að nafn hafi fyrir
einhvern misskilning ratað á síð-
ustu poppsíðu forvera míns hér á
bæ. Nú tekur að líða að hausti,
lóan og krían kveðja með kurt og
pí og bráðlega byrjar saltaustur á
malbik borgarinnar, bíleigendum
til blandinnar ánægju. Mér er það
hins vegar alls óblandin ánægja
að tiikynna ykkur að þó C-
vítamínmagn líkamans minnki
með lækkandi sól (og D-
birgðirnar að sjálfsögðu líka), þá
ætti það ekki að reynast hættulegt
heilsu ykkar, sérstaklega ef þið
snæðið eins og eina appelsínu
svona við og við. Eldamennska
íslenskra kvenna hefur ekki verið
í fréttum að undanförnu, og er
það miður. Það hefur hins vegar
þótt næsta fréttnæmt að dönsk
skinka, sem kom til landsins án
tilskilinna vegabréfsáritana
skyldi komast á sýningu bú-
manna í Reiðhöllinni nýju. Já,
það er gott að ríða inni þegar kalt
er úti, eins og hestamaðurinn
sagði, og tek ég heilshugar undir
það. Ég hef annars ekkert ýkja
merkilegt að segja ykkur í þess-
um pistli, enda er það ekki til-
gangur hans að segja frá neinu er
máli skiptir. Dálkur þessi er
sumsé aðallega til uppfyllingar,
hér get ég röflað um allt og ekki
neitt (aðallega ekki neitt), án
þess að hugsa (sem kemur sér
mjög vel fyrir menn eins og mig)
eða eyða tíma í upplýsingaöflun
eða annað slíkt. Þess vegna tala.
ég um appelsínur og C-vítamín,
og í framtíðinni megið þið eiga
von á gíröffum, heftiplástrum og
rósóttum gólfteppum á þessum
sama vettvangi. Það var því ekki
að ástæðulaúsu sem Iæknirinn
tók sér pensil í hönd og hóf bfla-
viðgerðir í sumarleyfinu, marg-
sigldur maðurinn. Hvað popp
varðar, þá hef ég ekki hundsvit á
því, og það er eins gott, því það
tryggir að öllum er gert jafn hátt
undir höfði hér - eða lágt, ef
menn viJja frekar orða það þann-
ig. Hér verður semsagt ferðast
um á herðatrjám og þeim farkost-
um öðrum er henta þykir í það og
það skiptið. Rúsínur eru hér ekki
margar og pylsuendar enn færri,
en ef nóg er til af gluggatjaldaefni
ætti það ekki að koma að sök. Ég
fer svo til sálfræðings með þenn-
an pistil um leið og ég hef efni á
því, en það ætti að verða um svip-
að leyti og menn hætta að heyja
stríð í heiminum og byrja að sýna
þriðja heiminum þá sanngirni að
láta þá njóta eigin auðlinda.
Annars er það helst í fréttum að
frá og með næstu helgi verður
poppsíðan ekki poppsíða lengur,
heldur poppopna. Ég get þó
huggað lesendur með þvi að þessi
pistill minn mun ekki Iengjast í
réttu hlutfalli við það....
Og enemenemenefergosa-
lat....
Af Snarli og öðru matarkyns
POPPSÍÐAN
Eins og einhverjir vonandi vita
kom út ein ágætissnælda nú um
miðsumarbil, undir nafninu
Snarl. Kassetta þessi er gefin út af
eina „underground” útgáfufyrir-
tæki okkar Frónverja; Erðanú-
músík, sem ku vera til húsa í her-
bergi í Kópavogsbæ. Þar er
Gunnar Hjálmarsson staddur
nokkuð oft, enda mun þetta vera
hans herbergi og er það víst engin
tilviljun að þetta tvennt, þ.e.
Gunnar og Érðanúmúsík, skuli
deila með sér plássi. Gunnar er
höfuðpaurinn í einni af okkar al-
bestu rokksveitum: Svar/hvítum
draumi, og er jafnframt verka-
maður, markaðsstjóri, útgáfu-
stjóri, símsvari og sjoppusendill
Erðanúmúsíkur. I stuttu, mjög
stuttu símtali fyrir ekki ýkja
löngu síðan tjáði Gunnar oss æði
margt og allt af hinu góða. Verð-
ur nú rakið það helsta er fram
kom í samsímatali voru. Snarlið,
sem (svona ef einhver er nú ekki
alveg á Iðnaðarbankalínunni)
inniheldur 18 lög með 6 mis-
þekktum sveitum áhugasamra
ungmenna, hefur nú þegar selst í
fleiri eintökum hér á landi og er-
lendis en áður hefur þekkst í átj-
ánlaga kassettuheiminum eins og
hann er í dag. Hátt í 300 eintök
eru þegar seld, aðallega í
Gramminu, en slatti hefur einnig
selst milliliðalaust, þ.e. beint frá
hjartanu, út um allan bæ og í
heiminum stóra handan Atlant-
sála eftir ýmsum leiðum sem þeir
einir fara er til þekkja. Örfá ein-
tök til viðbótar munu vera vænt-
anleg í Grammið ekki mjög löngu
síðar og er víst betra að vera tíma-
nlega á ferðinni ef maður hyggur
á Snarlkaup. Óhætt er að mæla
með snarli þessu, hvort sem er á
matmálstímum eða milli mála,
þar sem það er sykurlaust og með
öllu kaloríusnautt, þar að auki
bætiefnaríkt og einstaklega
ferskt. Einhverjir verða sjálfsagt
til að kalla svona Snarl „junk-
food” sbr. samlokur með majon-
esi og tveimur komma fimm út-
hafsrækjum, en þeim hinum
sömu er bent á að hressa upp á
sína andlegu næringarfræði. Því
þó hljómgæðin séu ekki ailtaf
upp á það besta, þá er innihaldið
þeim mun safaríkara og bitastæð-
,ara. Þarna spreyta sig sveitir frá
Reykjavík, (Sogblettir, Muzzo-
líní, The Daisy Hill Puppy Farm
og Draumurinn sjálfur), Akur-
eyri (Parror) og ísafirði (Gult að
innan). Það er ekki ætlunin að
; rita hér ítarlega gagnrýni um
Iþessar hljómsveitir hverja fyrir
sig, enda býður efnið ekki upp á
slíkt. Ég læt mér nægja að skella
fram þeirri fullyrðingu að hér sé
um að ræða eitt merkilegasta
fyrirbærið sem út hefur komið á
pessu landi elds og spóa um ára-
bil, eða síðan á velmektardögum
pönksins er Rokk í Reykjavík
kom í þennan heim.
Já, það er von á meiru. Veröld-
in er veimiltíta: Snarl II, er vænt-
anleg á markaðinn þegar líða
tekur að hátíð barnanna. Ætlun-
in er að hafa þá snældu öllu lengri
en Snarlið hið fyrra, eða 90 mín-
útur. Ekki er enn ljóst hvaða bfl-
skúrsbönd muni koma úr felum á
þessu seinna Snarli, en stefnt er
að því að draga allt að 15 undir-
anúmúsík vill hafa hana - erðan-
úrokki sem sagt. Fyrsta (og
eina?) tölublaðinu mun fylgja
tveggjalaga plata, s.k. flexidiskur
með nýjum lögum frá S/H
Draumi. Þá verður endurútgefin
spólan Listir með Orma
(Draumurinn) sem Grammið gaf
út í 15 eintökum fyrir fjórum
árum síðan og er nú af einhverj-
Bútaðir leggir ... OG - stór tíð-
indi og óvænt - að sama skapi
ánægjuleg - kassetta með óút-
gefnu Fræbblafurðuverki mun
koma út öðru hvoru megin við
áramótin. Nefnist þetta safn
Fræbblalaga, Allt heila klabbbið
(béin eiga að vera þrjú ...) og
hlýtur að vera kærkomin viðbót í
tónlistarsafn allrar fjölskyldunn-
ar. Og ekki er allt talið enn. 1
byrjun næsta árs mun Erðanú-
músík hefja innflutning á lifandi
tónlist. Fyrsta fórnarlambið er
breska sveitin Membranes, sem
starfað hefur frá árinu 1980 við
þokkalegan orðstír í heimalandi
sínu, þó heimsfrægðin hafi látið á
sér standa. En ef ég þekki ís-
lenska kollega mína rétt þá ætti
frægð þeirra núna að aukast til
mikilla muna, þegar h'ða tekur að
hljómleikunum. Og síðast en
ekki síst; ný breiðskífa Draums-
ins mun koma út og flæða yfir alla
landsmenn í jólaplötuflóðinu
mikla. Er þetta tólflagaskífa, á
hún skv. áreiðanlegustu heimild-
um að heita Goð eða God upp á
engilsaxneskan móð og er gefin
út af Erðanúmúsík í samvinnu við
breska fyrirtækið Lakeland.
Það er sem sagt nóg um að vera
hjá Gunnari Hjálmarssyni,
bassaleikara, söngvara og laga-
smiði Draumsins á næstunni og
nú er bara að bíða og vona að allt
gangi upp í bjartsýninni ...
Að vekja upp draug ... Fræbblarnir ganga aftur!
Svart/Hvítur Draumur: Ný breiðskífa í haust.
heimabönd fram í dagsljósið.
Líklegt má þó telja að eitthvað af
þeim hljómsveitum er snörluðu
nú í sumar fái að fljóta með aftur.
Þá er heldur ekki ólíklegt að ein-
hverjum erlendum gestum verði
boðið í snarl, má þar nefna
breska hljómsveit að nafni Venus
Fly Trap og aðra finnska, hverrar
nafn á okkar ylhýra mun útleggj-
ast sem Límsniffararnir. En það
er ýmislegt fleira og ekki síður
spennandi á döfinni hjá Erðan-
úmúsík. Nýtt tímarit mun koma á
markað á þeirra vegum með
haustinu, kallast það BABB og
mun fjalla um flest það er flestu
tengist er að rokkmúsík lýtur -
þ.e.a.s. rokkmúsík eins og Erð-
um orsökum ófáanleg .... Efni
þeirrar snældu verður á annarri
hlið 90 mínútna kassettu, en á
hinni hliðinni gefur að heyra mis-
gamalt áður óútgefið efni með
Draumnum, undir samheitinu
Eitt er víst, Erðanúmúsík fer
ekki troðnar slóðir í útgáfumál-
um, en það væri óskandi að hinir
stóru fylgdu á eftir og hæfu útgáfu
á einhverju öðru en verksmiðj-
uframleiddu og misheppnuðu
ryksugupoppi með ófyndnum
gríntextum.
Er það nú...
Úr frœndgarði
Skandinavískir frændur okkar
hafa verið iðnir við að slá í gegn
að undanförnu og virðast ekki
þekkja nein landamæri eða
önnur takmörk í þeim efnum.
Nægir þar að nefna A-ha og Eur-
ope. Nú virðist sem önnur norsk
spilisveit sé að hasla sér völl í
rokkheiminum, og eiga þeir
kannski meira sameiginlegt með
hinum sænsku Europe-piltum en
löndum sínum A-ha. Þó taka þeir
Europe fram um flest. Hér.er um
að ræða sveit vaskra sveiná frá
Þrændalögum, hvar forfeður
okkar börðust hetjulega hér áður
fyrr á öldunum. Nefnist sveítin
Stage Dolls að enskum sið og er
forsprakki hennar gítarleikarinn
Torstein Flakne. Torstein þessi
er enginn nýliði í rokkinu, hefur
verið einn fremsti gítaristi í
norsku rokki um langt árabil. Það
var svo fyrir fimm árum að hann
fékk til liðs við sig þá Steinar
Krokstad (trommur) og Terje
Storli (bassi) og stofnaði þessa
ágætu sveit. ’85 gáfu þeir út
plötuna Soldier’s Gun og í fyrra
kom út plata sú er hér um ræðir:
Commandos. Hún er gefin út af
bandarísku útgáfumaskínunni
Bigtime. Stage Dolls hafa notið
töluverðra vinsælda í heimalandi
sínu og er orðstír þeirra í
Draumalandinu einnig stöðugt
að aukast - og er það ekki að
undra, því bandarísk áhrif eru
mikil og næsta auðheyrð í tónlist
þeirra. Það er þó ekki lýti hér að
mínu viti, því helstu áhrifavaldar
virðast vera þeir Bryan Adams og
John Cougar Mellancamp. Rokk
sviðsdúkkanna er þétt, kraft-
mikið og umfram allt vel spilað -
greinilegt að það eru engir
aukvisar sem hér fara fingrum um
strengi og kjuða. Útsendingarn-
ar, sem eru í höndum Björns Nes-
sjö, eru einnig giska góðar, svona
yfirleitt, honum hættir þó til að
skreyta sum lögin um of með alls
kyns aukastrengjum og röddum,
á það sérstaklega við um lagið
America, en það er jafnframt
sísta lag plötunnar og má ekki við
svo ofhlaðinni útsetningu sem
raunin er á. Önnur lög plötunnar
(flest eru þau eftir Flakne) eru
bara nokkuð góð, og þá sérstak-
lega Heart to Heart og titillagið,
Commandos. Kraftmikil og góð
plata sem á heima í hillum - og
helst á fóninum líka - hjá öllum
unnendum kraftmikils rokks,
sem þó er ekki komið út í algjö-
ran gaddavír - spennandi....
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN ISunnudagur 30. ágúst 1987