Þjóðviljinn - 03.09.1987, Blaðsíða 1
Frábiðjum okkur hótanir
Sambandið setur viðskiptaráðherra skilyrðifyrirþátttöku íkönnunarviðræðum um Útvegsbankabréfin. Valur
Arnþórsson: Sitjumekki undir hótunum einstakra ráðherra um hugsanlegstjórnarslit, yerði bréfin okkar
Það má öllum vera Ijóst, að það
er tilgangslaust fyrir okkur að
ganga til endanlegra samninga í
þessu máli, ef menn eygja ein-
hvern samningsgrundvöll, ef svo
kynni síðar að fara að sá samn-
ingur yrði til einskis ef hann yrði
ekki þóknanlegur einhverjum
ráðherra í ríkisstjórn íslands,
sagði Valur Arnþórsson stjórn-
arformaður Sambandsins m.a. í
gær þegar hann kynnti þau skil-
yrði sem samvinnuhreyfingin hef-
ur sett fyrir væntaníegum við-
ræðum þeirra aðila sem gert hafa
tilboð í hlutabréf Útvegsbankans
um hugsanleg kaup.
í bréfi sem Valur sendi Jóni
Sigurðssyni viðskiptaráðherra
Leiklist
Galdra-
Loftur
í París
Ungar íslenskar
leikhússkonur vinna
að uppfærslu á
Galdra-Lofti í nýrri
franskri þýðingu í
París í nóvember
Tveir íslenskir leikhúsfræðing-
ar sem starfa í París, þær Ragn-
heiður Ásgeirsdóttir og Sigríður
Gunnarsdóttir vinna nú að því að
setja Galdra-Loft Jóhanns Sig-
urjónssonar á svið í Theatre Arc-
ane í París í nóvember n.k.
Aðeins 4 leikarar munu taka
þátt í sýningunni þar af þrír
franskir. Leikritið verður flutt í
nýrri franskri þýðingu Gérards
Lamarquis. Alls eru fyrirhugaðar
13 sýningar á Galdra-Lofti í Par-
ís.
Leikritið hefur einu sinni áður
verið sett á svið í París en það var í
leikhúsinu Comédie des
Champs-Elysées árið 1920. Ýms-
ir íslenksir listamenn munu vinna
að uppfærslunni í París. Lárus
Grímsson frumsemur tónlist fyrir
sýninguna, Sigrún Úlfarsdóttir
sér um gerð leikmyndar og bún-
inga. Ragnheiður Ásgeirsdóttir
annarst leikstjórn en Sigríður
Gunnarsdóttir mun fara með
hlutverk Steinunnar.
Samhliða uppfærslunni á
Galdra-Lofti í París mun Halldór
Ásgeirsson myndlistarmaður
halda sýningu á nokkrum verka
sinna í anddyri leikhússins en þau
eru öll unnin út frá leikritinu.
-Jg-
síðdegis í gær setur hann fram
þau skilyrði að viðræðurnar verði
til að byrja með óformlegar
könnunarviðræður og nái hugs-
anlega til fleiri atriða en einungis
hlutabréfanna í Útvegsbankan-
um. Þá muni samvinnuhreyfingin
ekki ganga til eiginlegra samning-
aviðræðna „undir pólitískum hót-
unum eða þvingunum, sbr. hót-
anir forsætisráðherra um ríkis-
stjórnarslit“, eins og segir orðrétt
í bréfinu til ráðherra.
Jón Sigurðsson hefur boðað
fulltrúa tilboðsgjafa á sinn fund
síðdegis í dag til fyrstu könnunar-
viðræðna en hann sagðist stefna
að því að þessum viðræðum yrði
lokið fyrir lok þessa mánaðar.
Næðist ekki samkomulag fyrir
þann tíma væri alls óvíst hvað þá
tæki við.
Valur Arnþórsson ítrekaði í
gær að Sambandið hefði á cngan
hátt gefið eftir í afstöðu sinni og
teldi sig þegar hafa keypt hluta-
bréfin í Útvegsbankanum og biði
aðeins eftir staðfestingu ráðherra
á kaupunum. Hann sagðist
hvorki fara svartsýnn né bjart-
'sýnn út í þessar könnunarvið-
ræður en vonaði að í þeim fyndu
menn leið sem gæti orðið raun-
hæfur samningsgrundvöllur,
enda sætu menn ekki í þessum
viðræðum undir neins konar pól-
itískum hótunum.
-lg-
íslendingar unnu glæsilegan sigur yfir Austur-Þjóðverjum í gær í landsleik liðanna, 2-0. Á myndinni (aana Skaga-
mennirnir Sveinbjörn Hákonarson og Ólafur Þórðarson sigrinum, en sá síðarnefndi skoraði annað mark Islendinga.
Mynd: E.ÓI.
Iðnrekendur
Kynt undir verðbólgu
Víglundur Þorsteinsson harðorður umfyrstu aðgerðir ríkisstjórnar-
innar: Kauðslegar, gefa ekki vonirum að hér sé sterk stjórn áferð.
Varað við verðbólguþróuninni
Mín skoðun er sú, að ríkis-
stjórnin hafí farið kauðslega
af stað, og að aðgerðirnar sem
hún var að reyna að unga út í
nokkrar vikur og áttu að afla
trausts og álits, voru ekkert ann-
að en aðgerðir til að kynda undir
verðbólguna og hafa ekkert að
segja til að draga úr þenslunni,
segir Víglundur Þorsteinsson,
formaður Félags íslenskra iðn-
rekenda, í viðtali sem birt er á
forsíðu tlmaritsins Á döfínni, sem
Félag íslenskra iðnrekenda gefur
út.
Víglundur telur að hækkun
óbeinna skatta á tilteknar vörur
færi bara eyðsluna til. „Niður-
staðan er sú, að upphafsaðgerðir
ríkisst j órnarinnar gefa ekki vonir
um að hér sé sterk stjóm sem sé
fær um að takast á við efna-
hagsmálin.“
Prófverkefni ríkisstjórnarinn-
ar telur Víglundur að verði næstu
mánuðir, þá muni koma í ljós
hvort ríkisstjórnin sé fær um að
stjórna efnahagsmálunum eða
hvort hennar tilgangur er sá einn
að verma stólana.
í ritstjórnargrein tímaritsins er
einnig varað við þróun efnahags-
mála hér á landi: „Það fer ekki á
milli mála að þróun efnahags-
mála á íslandi hefur tekið mjög
hættulega stefnu." Einkum telur
höfundur greinarinnar verðbólg-
uþróunina alvarlega, hversu há
verðbólgan er og að hún geti hæg-
lega farið vaxandi á næstu mán-
uðum.
„Afleiðingar mikillar vaxandi
verðbólgu yrðu miklu verri nú en
áður og gætu orðið mjög afdrifa-
ríkar fyrir lífskjör í landinu á
næstu ámm. Pað er því meira í
húfi en nokkm sinni fyrr að koma
í veg fyrir vérðbólgan taki hér
völdin á ný,“ segir í niðurlagi
greinarinnar. _ gýf
Nýja flugstöðin
Byggingamefndin í þagnarbindindi
Pétur Guðmundsson, flugvallarstjóri: Er ekki til viðræðu um
gagnrýni á störf nefndarinnar
Við erum I þagnarbindindi -
það má segja það. Okkur kom
saman um að vera ekki með opin-
berar yfírlýsingar um þá
gagnrýni sem komið hefur fram á
störf byggingarnefndar, meðan
Ríkisendurskoðun er að fara yfír
málið, sagði Þorsteinn Ingólfsson,
á „VarnarmáIaskrifstofunni“, en
fjögurra manna nefnd á vegum
Ríkisendurskoðunar hefur verið
skipuð til að fara í saumana á
fjárreiðum nefndarinnar.
-Ef út á fjölmiðlavettvanginn
yrði farið er ekki hægt að gera
það án takmarkana. Við höfum
óskað eftir því að Ríkisendur-
skoðun hraði athugun sinni eins
og hægt er. Við höfum mikinn
áhuga á því að þetta gangi greitt
fýrir sig, sagði Þorsteinn.
-Ég er ekki í stakk búinn og er
ekki til viðræðu um það mál,
sagði Pétur Guðmundsson, flug-
vallarstjóri á Keflavíkurflugvelli,
er hann var inntur eftir svörum
við þeirri gagnrýni sem störf
byggingamefndarinnar hafa sætt.
-rk