Þjóðviljinn - 03.09.1987, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 03.09.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þJÓOVIUiNN Fimmtudagur 3. september 1987 193. tölublað 52. örgangur SKÓLAVEUA UEON AÐ Fy\RSÆLU SKÓIAGÖNCU SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Hvalveiðiþjóðir Ráðstefnaí Reykjavík Japanir áfram um slíkt ráðstefnuhald hér í haust „Við höfum þreifað fyrir okkur með áhuga á slíkum fundi, en ekki boðað til hans með form- legum hætti,“ sagði Halldór Ás- grímsson sjávarútvegsráðherra er hann var spurður hvort yrði af ráðstefnu hvalveiðiþjóðanna í haust eða vetur. Japanir eru mjög áfram um að slík ráðstefna verði haldin á ís- landi, en þeir leggja fram sína rannsóknaáætlun um miðjan þennan mánuð. Norðmenn eru einnig nefndir í þessu sambandi. Ef af verður mun Kanada- mönnum, Færeyingum, Græn- lendingum, Sovétmönnum og ef til vill fleiri þjóðum boðin þátt- taka. Á slíkri ráðstefnu yrði fjallað um starfið innan Alþjóðahval- veiðiráðsins, hvalveiðar í vísinda- skyni og hvalarannsóknir yfir- leitt, og hvernig ráðlegast sé að tryggja að uppfyllt verði það skil- yrði Alþjóðahvalveiðiráðsins að sem traustastar upplýsingar um stofnstærðir og veiðiþol liggi fyrir þegar að stöðvun veiða í kaupsýsluskyni kemur, að sögn Halldórs. HS i Mjólkurvörur Smjör og ostar á uppleið Jón Helgason, landbún- aðarráðherra: Sala mjólkurvara á nýloknu verðlagsári áfimmtu milljón lítra meiri en á því fyrra Sala mjólkuvara á vcrðlagsár- inu sem lauk um mánaðamótin verður væntanlega á fimmtu milljón lítra meiri en á fyrra verð- lagsári. Þetta kom fram í ræðu Jóns Helgasonar, landbúnaðar- ráðherra, á aðalfundi Stéttar- sambands bænda á Eiðum, en honum lauk í gær. Samkvæmt upplýsingum Jó- hanns Guðmundssonar, deildar- stjóra í landbúnaðarráðuneytinu, liggja nákvæmar tölur ekki fyrir, þar sem salan í ágústmánuði hef- ur ekki verið reiknuð út. En mið- að við söluna frá september 1986 til júlíloka á þessu ári stendur mjólkurneyslan nánast í stað, hefur aukist um 0,8%. Rúmlega 6% aukning er í rjómasölunni, en aftur á móti hefur skyrsala dregist saman um tæplega 2%. Aðalaukningin er í smjörinu, og hefur þannig selst 20% meira af því en á fyrra verðlagsári. Auk smjörsins er hér átt við smjörva og létt og laggott. Innbyrðissölu- hlutfall þessara vörutegunda er 617 tonn af smjöri, 519 tonn af smjörva og 177 tonn af léttu og laggóðu. Þá er ostasalan á uppleið eins og verið hefur undanfarin ár, og er aukningin þar um 12%. Að sögn Jóhanns eykst salan á léttmjólk jafnt og þétt, og er sú söluaukning nokkuð á kostnað nýmjólkurinnar. HS Kennarar - Slæmar heimtur úr Kl Sigurður Helgason, menntamálaráðuneyti: Aðeins 40 af 88 kennurum sem útskrifuðust úr KHÍ hafa verið settir í kennarastöður. 400 umsóknir beint til undanþágunefndar Iupphafi skólaárs hafa aðeins 40 af 88 kennurum sem útskrifuð- ust úr Kennaraháskólanum í ár verið settir í kennarastöður, að sögn Sigurðar Helgasonar, deildarstjóra grunnskóladeildar menntamálaráðuneytisins. „í fyrra voru settir 422 rétt- indalausir kennarar. Þeir heita núna leiðbeinendur, og hefur undanþágunefnd þegar borist um ! 400 beiðnir. Fjöldi leiðbeinenda nálgast því þá tölu sem tók til réttindalausra í fyrra,“ sagði Sig- urður. Sigurður telur líklegt að óráðið verði í um hundrað kennarastöð- ur eftir að undanþágunefnd hefur afgreitt undanþágubeiðnirnar. Af framhaidsskólastiginu er aðra sögu að segja. „Það má heita fullráðið í framhaldsskólana og engin vandræði þar,“ sagði Stefán Ólafur Jónsson, deildarstjóri verk- og tæknimenntunardeildar ráðuneytisins. „Hins vegar er búið að ráða nokkurn hóp stund- akennara sem hafa sína fag- menntun, en hafa ekki lokið upp- eldisfræðinni og eru því réttinda- lausir.“ „Við eigum eftir að taka saman tölur um hve stór hluti kennara er með full réttindi, en það gerum við þegar um hægist,“ sagði Stef- Hress og kát í upphafi skólaárs, enda þurfa þau ekki að kvíða kennaraskorti. Aðra sögu er að segja af grunnskólastiginu, án Ölafur. HS en þar vantar enn að minnsta kosti hundrað kennara. Mynd: Sig. FJÖLBRAUTASKÓLINN BREIÐHOLTI Fatlaðir Hljóta að standa við loforðin TheódórJónsson: Kratar hljóta að œtla að gera stórátak ímálefnum fatlaðra miðað viðfyrri yfirlýsingar. Sigurfinnur Sigurðsson: Tek þetta ekki hátíðlega Með tilliti til fyrri yfirlýsinga Alþýðuflokksins um Fram- kvæmdasjóð fatlaðra, getum við ekki tekið þessu öðruvísi en svo að ílokkurinn ætli sér að gera stórátak í málefnum fatlaðra og í því skyni ætlar fjármálaráðherra að losa sig við lögbindinguna, svo hún sé ekki til trafala, sagði Theó- dór Jónsson, formaður Sjálfs- bjargar, landssambands fatl- aðra. Theódór sagðist alls ekki óttast hið gagnstæða þar sem Alþýðu- flokkurinn hefði nú bæði fjármál- aráðuneytið og félagsmálaráðu- neytið og fyrir kosningarnar í vor hefði flokkurinn gefið góð fyrir- heit um að verulegar úrbætur yrðu gerðar í málefnum fatlaðra. „Ég tek þessa frétt í Alþýðu- blaðinu ekki hátíðlega," sagði Sigurfinnur Sigurðsson, stjórn- arformaður í Framkvæmdasjóði fatlaðra. „Þessi mál eru alveg ófrágengin í ríkisstjórninni.“ Sigurfinnur benti á að sam- kvæmt lögum rennur ákvæðið um lögbundin útgjöld ríkissjóðs úr gildi á næsta ári. Sagði hann að ef staðið hefði verið við það ákvæði væri nú búið að leysa úr brýnustu húsnæðisvandamálum fatlaðra, en þar sem það hefur ekki verið gert er mikið verk enn óunnið. Nýlega vann stjórn Fram- kvæmdasjóðsins í samvinnu við félagsmálaráðuneytið að til- lögum í grófum dráttum um hvernig fjármagni sjóðsins skuli varið á næsta ári miðað við að sjóðurinn fái það sem lög gera ráð fyrir, eða um 250 milljónir króna. „Stærsta verkefni sjóðsins nú er að leysa húsnæðismál fatlaðra með því að reisa sambýli og sam- kvæmt þessum drögum á að veita mestum fjármunum í það,“ sagði Sigurfinnur. - Sáf Sumarferð ABR 1987 SAMAN í HVALFJÖRÐ Farið laugardaginn 5. september, skráning í síma 17500 Sumarferð Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður farin næsta laugardag, 5. september, og verður farið urn Hvalfjörð, sem allir hafa ekið um en fáir þekkja að gagni. Haldið verður af stað klukkan 9 frá Umferðarmiðstöð og miðað við að Ijúka ferðinni um klukkan 19. Farið verður um Mosfellsheiði og í Hvalfjörðinn um Kjósarskarð niðuf með Laxá, ekið um Hvammsvík, athugaðar fjörur, framhjá Hvítanesi, litið á Staupastein og áð í Hvaifjarðarbotni, þarsem kostur gefst á að ganga að fossinum Glymi. Farið að Saurbæ og minnst Hallgríms Péturssonar, og síðan ekið að Grundartanga og litið á járnblendiverksmiðjuna. í bakaleiðinni verður komið við í hvalstööinni og ekið út fjörðinn, í kringum Eyrarfjall, um Tíðaskarð sem leið liggur til Reykjavíkur. Happdrætti, leikir, ávörpog valinkunnirfararstjórar. Verð600 krón- ur fyrir fullorðna, 400 fyrir börn. Skráið ykkur í síma 17500 og hittumst nestuð, sæmiiega búin og í góðu skapi á laugardagsmorgun. Ferðanefnd

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.