Þjóðviljinn - 03.09.1987, Blaðsíða 15
Gubmundur Torfason fylgir boltanum yfir línuna, 1-0. Ainnfelldu myndinnihorfirWeissflogáeftir þrumuskoti Olafs Þórðarsonar þenja netmöskvana, 2-0. Mynd:;E.OI.
Knattspyrna y
Glæsileg hefnd Islendinga!
Frábær sigur gegn Austur-Þjóðverjum
Hefndin er sæt og þó að enn vanti
fjögur mörk í stóra tapið gegn
Austur-Þjóðverjum þá má segja að
við höfum þegar svarað fyrir okk-
ur. Glæsiiegur sigur gegn Olympíu-
Liði Austur-Þjóðverja, 2-0 í
skemmtilegum og fjörugum leik.
..Ég er ánægður með þennan
sigur. Þetta var smá hefnd fyrir
skellinn heima og miklu skemmti-
legir leikur. Við sýndum góða
knattspymu og lékum af skynsemi,
það gerði gæfumuninn," sagði Sigi
Heid, landsliðsþjálfari eftir
leikinn.
Mikil barátta
Það var greinilegt strax á fyrstu
mínútunum að íslendingar báru
enga virðingu fyrir Þjóðverjun-
um. Barátta og kraftur í íslenska
iiðinu var meiri en sést hefur
lengi. Greinilegt að leikmenn
léku með hjartanu og mikill sig-
urvilji í liðinu. Miðjumennirnir
gáfu ekkert eftir og smám saman
náðu Islendingar undirtökunum.
Þjóðverjar áttu þó fyrstu færin.
Halata átti tvo góða skalla, annan
framhjá, en hinn varði Friðrik.
Pétur Arnþórsson átti fyrsta
skotið á markið: yfir frá vítateig
og skömmu síðar átti Guðmund-
ur Steinsson skalla framhjá.
Þjóðverjar fengu dauðafæri á
31. mínútu. Schlösser gaf fyrir á
Thomas Doll, en Friðrik varði
meistaralega. Mínútu síðar fengu
íslendingar dauðafæri. Guð-
mundur Steinsson fékk góða
sendingu frá Halldóri Ás-
kelssyni, en Þjóðverjar náðu að
komast fyrir skot hans á síðustu
stundu.
íslendingar fengu svo annað
dauðafæri á 42. mínútu. Guð-
mundur Steinsson lék upp kant-
inn og gaf fyrir á nafna sinn
Torfason. Hann skaut að marki,
en í varnarmann, reyndar ekki
annað að sjá en að boltinn færi í
hendi Þjóðverjans. Þaðan barst
boltinn til Ólafs Þórðarsonar, en
skot hans fór framhjá. Guð-
mundur Steinsson fékk svo gott
færi rétt fyrir leikhlé, en Weissf-
log varði vel.
Fyrri hálfleikurinn var mjög
vel leikinn af íslands hálfu og
hvergi gefið eftir. Miðjumennirn-
ir, Pétur, Halldór, Ólafur og Ing-
var voru mjög sterkir, Guðmund-
arnir sprækir í sókninni og vörnin
sterk.
íslendingar hófu síðari hálf-
ieikinn af krafti. Halldór Áskels-
son átti skot yfir og á 50. mínútu
lá boltinn í neti Þjóðverja. Guðni
Bergsson tók aukaspyrnu og gaf á
Guðmund Steinsson. Hann skall-
aði fyrir fætur Guðmundar Tor-
fasonar, sem hljóp með boltann
framhjá Weissflog í markinu og í
netið, 1-0.
íslendingar slökuðu ekki á
þrátt fyrir markið og fimm mínút-
um síðar fengu þeir dauðafæri.
Þeir fengu aukaspyrnu og Ingvar
var fljótur að átta sig. Sendi góða
sendingu á Halldór sem komst
einn í gegn. En Weissflog varði
glæsilega skot Halldórs. Góð
sókn sem hefði mátt enda með
marki.
Guðmundur Torfason keniur
að nýju í A-iandsliðshópinn fyrir
leikinn gegn Norðmönnum í Evr-
ópukeppninni n.k. miðvikudag.
„Guðmundur verður í hópn-
um, en ég get ekki sagt hvort
hann byrjar inná,“ sagði Sigi
Held landsliðsþjálfari í gær. Guð-
mundur hefur ekki verið í hópn-
um síðan í fyrri leiknum gegn
Austur-Þj óðverj um.
Þjóðverjarnir voru ekki hættir
og á 60. mínútu átti Richter gott
skot sem Friðrik varði meistara-
lega. Richter átti annað skot sjö
mínútum síðar, en Friðrik varði
enn glæsilega. stórkostleg mark-
varsla Friðriks á mikilvægum
augnablikum.
Á 69. mínútu fengu fslending-
ar aukaspyrnu og Guðmundur
Torfason skaut þrumuskoti, en i
hliðarnetið.
Það var svo á 80. mínútu að
íslendingar gulltryggðu sigurinn
með öðru marki. Pétur Arnþórs-
son gaf fyrir markið og boltinn
barst út til Ólafs Þórðarsonar sem
var fyrir utan vítateig. Hann var
ekkert að hika og skaut þrumu-
skoti í bláhornið. Glæsilegt mark
og Weissfiog stóð frosinn án þess
að reyna að verja, enda átti hann
ekki möguleika.
Eftir markið voru úrslitin
ráðin. Þjóðverjar sóttu nokkuð,
en íslenska vörnin föst fyrir.
íslenska liðið lék mjög vel og
Olympíuliðið greinilega sam-
stilltur hópur. Baráttan var ein-
stök. Einkum voru það þó mið-
verðirnir sem gáfust aldrei upp.
Pétur og Halldór voru óþreytandi
Það er ljóst að íslenska lands-
liðið kemur til með að taka
nokkrum breytingum. Ómar
Torfason kemst ekki af persónu-
legum ástæðum, hann er að verða
faðir um þessar mundir.
Þá er ekki ljóst með Ásgeir Sig-
urvinsson, Arnór Guðjohnsen og
Lárus Guðmundsson, en líkur á
því að þeir komist £ leikinn.
-Ibe
og Ingvar og Olafur léku einnig
vel. Vörnmin lék af skynsemi og
gerði engin mistök. Áftast var
Friðrik, öryggið uppmálað.
„Ég var mjög ánægður með
þennan leik og leik liðsins í
heild,“ sagði Friðrik eftir leikinn.
„Vörnin var góð og það var virki-
íega gaman að spila þennan leik.“
„Gáfum ekkert eftir“
Guðmundur Torfason var
skæður í framlínunni, skoraði sitt
þriðja mark í tveimur lands-
leikjum og er nú markahæstur í
riðlinum.
„Það var geysilega gaman að
spila þennan leik. Við náðum vel
saman og það munaði miklu um
sigurviljann í liðinu," sagði Guð-
mundur eftir leikinn. „Strákamir
áttu allir frábæran leik og málið
var að við gáfum ekkert eftir. Það
fór í taugarnar á þeim og þeir
vom grófir."
„Ég hætti sæti mínu í liði Wint-
erslag, það kemur maður í stað
mín, en ég er sáttur við það þegar
við leikum svona.“
Austur-Þjóðverjar léku ágæt-
iega, en mótspyrna fslending-
anna kom þeim á óvart. Þeir
brutu illa af sér, en komust upp
með það. Þrátt fyrir að fá góð færi
tókst þeim ekki að skora og það
fór greinilega í taugarnar á þeim.
Það voru aðeins rúmlega 1300
áhorfendur sem lögðu leið sína í
Laugardalinn og þeir fengu
eitthvað fyrir peningana.
Skemmtilegan leik, sem lauk
með sigri lslands.
-Ibe
Staðan
í B-rlðli undankeppni Olympíul-
elkanna
Italía............3 2 1 0 3-0 5
A-Þýskaland.......4 1 2 0 1-2 4
fsland............3 1 1 1 4-4 3
Holland...........3 0 2 1 3-4 2
Portúgal..........2 0 112-41
England
Q.P.R. á toppiim
Q.P.R. tyllti sér að nýju á topp
ensku 1. deiidarinnar með því að
leggja sjálfa meistarana, Evert-
on, að velli 1-0.
Knattspyrna
Firmakeppni
Hin árlega firmakeppni ÍK í
knattspyrnu, utanhúss, verður
haldin á Vallargcrðisvellinum í
Kópavogi helgina 5. - 6. septemb-
er.
Leikið er á þveran völlinn, 7
leikmenn í liði, auk 3-4 vara-
manna.
Þátttaka tilkynnist í síma
681333 (Logi) og 75209 (Víðir), í
síðasta lagi fimnmtudaginn 3.
september.
Það var Martin Allen sem
skoraði sigurmark Q.P.R.
snemma í fyrri hálfleik.
Þá gerðu Nottingaham Forest
og Southampton jafntefli, 3-3 í
hörkuleik. Neil Webb náði for-
ystunni fyrir Nottingam Forest,
en Andy Townsend jafnaði. Stu-
gart Pierce og Nigel Clough
breyttu stöðunni í 3-1 og þannig
var staðan þegar 18 mínútur voru
til leiksloka. Þá jöfnuðu Colin
Clarke og Gordon Hobson fyrir
Southampton.
Þá voru einnig nokkrir,leikir í
fyrrakvöld. Norwich og Newc-
astle gerðu jafntefli, 1-1, Totten-
hanm sigraði Oxford, 3-0 og
Wimbledon sigraði Charlton 4-1.
Q.P.R. er í efsta sæti með
tveggja stiga forskot á Manchest-
er United sem er í 2. sæti.
-Ibe/Reuter
A-landslið
Guðmundur í hópinn
Ómar ekki með
Fimmtudagur 3. september 1987 pjÖÐVILJINN - SÍÐA 15