Þjóðviljinn - 10.09.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 10.09.1987, Blaðsíða 1
Hvalamálið Samskiptin endurskoðuð Halldór Ásgrímsson: Hermálið stórt atriði ísamskiptum þjóðanna. Steingrímur mótmœlti þvíað fulltrúar viðskiptaráðuneytisins voru sendir tilfundar við hann meðþvíað mœta ekki áfundinn. Hjörleifur Guttormsson: Lítilsvirðing við Islendinga Eg hef ekki viljað blanda saman hermálinu og þessari deilu okkar við Bandaríkjamenn út af hvalveiðunum. Málið er hinsveg- ar komið á það alvarlegt stig að endurskoða verður öll samskipti þjóðanna og vera „varnarliðsins“ er óneitanlcga stórt atriði í sam- skiptum þjóðanna, sagði Halldór Asgrímsson, sjávarútvegsráð- herra í gær. Hvalveiðideilan er nú komin í mjög alvarlegan farveg. Banda- ríkjastjórn sendi nefnd undir for- ystu Dr. Calio, fulltrúa í við- skiptaráðuneytinu, til Kanada en Steingrímur Hermannsson, utan- ríkisráðherra, hafði farið fram á að hitta utanríkisráðherra Bandaríkjanna eða háttsetta menn úr utanríkisráðuneytinu. Steingrímur mótmælti þessu með því að mæta ekki á fundinn en Ingvi Ingvason, sendiherra fs- Iands í Bandaríkjunum mætti í stað þess á fundinn. „Á vissan hátt má líta á þetta sem móðgun,“ sagði Halldór í gær. „Við lögðum áherslu á að hitta fulltrúa utanríkisráðun- eytisins því við vildum ræða sam- skipti þjóðanna á víðum grund- velti. Með því að senda dr. Calio leggja þeir áherslu á að þeir vilji fyrst og fremst ræða um hvalam- álið. Þetta sýnir að það er við- skiptaráðuneytið sem ræður ferð- inni nú sem áður.“ „Með þessu hafa Bandaríkja- menn stigið dæmalaust skref, að ætla sér að lítilsvirða íslendinga svona,“ sagði Hjörleifur Gutt- ormsson í gær. Að frumkvæði hans var utanríkismálanefnd kölluð saman í gær til að ræða síðustu atburði í hvaladeilunni. „Málið snýst ekki lengur hvalveiðarnar heldur skipti ríkjanna.“ um um sam- Að sögn Hjörleifs liggja nú fyrir ótvíræðar hótanir frá Bandaríkjamönnum um að beita okkur viðskiptaþvingunum ef við bökkum ekki. „Það fæst enginn botn í afstöðu Bandaríkjastjórn- ar fyrr en forsetinn stendur frammi fyrir því hvort hann eigi að beita okkur þvingunum, en ég efast um að Hvíta húsið láti kné fylgja kviði. íslensk yfirvöld hljóta því að halda áfram þar sem frá var horfið og ættu t.d. að íhuga að draga til baka þær breytingar sem gerðar voru á rannsóknaráætluninni." Halldór sagði að ef ekki næst samkomulag við Bandaríkja- menn hljóti ríkisstjórnin að taka það til athugunar hvort ekki beri að hverfa til upphaflegrar áætlun- ar. Nú er verið að kanna hver við- brögð Japana verða ef staðfest- ingarkæran verður lögð fram. -Sáf Sjá bls. 3 Varnarmálaskrifstofan Þeir voru kampakátir Gunnar Gíslason og Bjarni Sigurðsson eftir sigur Islands gegn Noregi, 2-1. Þeir höfðu enda ástæðu til, báðir leika þeir I Noregi og það gerir sigurinn enn sætari. (Mynd: E.ÓL.) Stöðvun hótað Þorsteinn Ingólfsson: Ráðherra varekki tilbú- inn til að taka afstöðu til framkvœmda Fundi varnamálanefndar um forúthlutun framkvæmda á veg- um hersins, sem halda átti í dag, var frestað um óákveðinn tíma að ósk Steigríms Hermannssonar, utanríkisráðherra. „Ráðherra bað okkur að fresta fundinum þar sem hann væri ekki tilbúinn að taka afstöðu til þess- ara mála,“ sagði Þorsteinn Ing- ólfsson, forstöðumaður Varna- málaskrifstofunnar. Á forúthlutunarfundinum kynna Bandaríkjamenn þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á vegum hersins á næsta ári og að sögn Þorsteins á það bæði við um nýframkvæmdir og viðhald. í framhaldi af fundinum er svo tekin ákvörðun um framkvæmdir og þær lagðar til grundvallar við fjárlagagerð á þinginu í Washing- ton. Allar framkvæmdir á vegum hersins eru háðar samþykki fs- lendinga og Steingrímur Her- mannsson hefur það því í hendi sér hvort framkvæmdir leggjast niður um næstu áramót, á það jafnt við þær framkvæmdir sem þegar eru í gangi, sem og nýjar framkvæmdir. Þetta getur snert framkvæmdir við ratsjárstöðvarnar fyrir vestan og austan, en þar er nú unnið að byggingu stöðvarhúsanna. f ár er áætlað að ljúka þriðja áfanga af sjö í Helguvík og hefja fjórða áfanga á næsta ári. Stjórnstöðinni á Keflavíkurflugvelli verður að mestu leyti lokið í ár og fram- kvæmdir við nýju ratsjárstöðina á flugvellinum eru ekki ráðgerðar alveg á næstunni, að sögn Þor- steins. Þá getur þetta seinkað framkvæmdum við ný íbúðarhús á vellinum auk þess sem allt við- hald er háð niðurstöðu þessa fundar. -Sáf VMSÍ Klofið til samninga Mikil reiði hlaupin ídeiluna innan VMSÍ. Ekkert samband verið haft við félögin að er öruggt að Verkamanna- sambandið fer ekki með samningsumboð fyrir okkur, sagði Kári Ævarsson, varafor- maður Jökuls á Hornafirði, en Björn Grétar, formaður Jökuls var einn af ellefumenningunum, sem gengu út af formannaráð- stefnu VMSÍ um helgina. „Eðlilegast hefði verið að framkvæmdastjóm VMSÍ hefði kallað saman fund strax á mánu- dag og fjallað um þetta alvarlega mál og í framhaldi af því rætt við okkur,“ sagði Sigrún Clausen, formaður kvennadeildar Verka- lýðsfélags Akraness. „í stað þess er þessu blásið upp í fjölmiðlum af þeim, sumt satt og sumt logið.“ Mikil reiði hefur hlaupið í deil- una innan Verkamannasam- bandsins og bendir flest til þess að þau þrettán félög sem yfirgáfu fundinn verði ekki með í þeim viðræðum sem VMSÍ hefur hafið við VSÍ og VMS. Félögin sem hér um ræðir em auk Jökuls og Verkalýðsfélagsins á Akranesi, Árvakur á Eskifirði, Verkalýðsfélag Fljótsdalshéraðs, Verkalýðs og sjómannafélag Stöðvarfjarðar, Snót í Vest- mannaeyjum, Báran á Eyrar- bakka, Bjarmi á Stokkseyri, Jök- ull í Ólafsvík, Afturelding á Hell- issandi og Stjarnan í Gmndar- firði. Félögin hafa haft samband sín á milli og hafa flest boðað til fé- lagsfundar til að fjalla um málið. „Þetta gæti orðið fyrsti vísir að sérsambandi fiskvinnslufólks,“ sagði Kári Ævarsson, Jökli. Stjóm VMSÍ hefur ekki haft samband við stjómir þessara fé- laga þó formaður Verkamanna- sambandsins hafi látið í það skína að unr.ið væri að lausn þessa máls og sagðist Sigrún Clausen mjög ósátt við þann fréttaflutning að tillaga Björns Grétars hefði kom- ið á síðustu stundu. Sagði hún að Björn hefði komið í pontu á eftir Guðmundi J. og Karli Steinari og beðið strax um að tillagan yrði fjölrituð og henni dreift meðal fundarmanna. Þrátt fyrir að félögin verði ekki með í samflotinu munu fulltrúar þeirra sækja þing VMSÍ á Akur- eyri í lok október. -Sáf Sjá bls. 3 og bak.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.