Þjóðviljinn - 10.09.1987, Qupperneq 11
ERLENPAR FRÉTTIR
Danmörk
Schliiter falin stjómarmyndun
Aðeins sex klukkustundum eftir að Paul Schluter sagði af sér embœtti forsœtisráðherra
fól Margrét drottning honum að mynda nýja stjórn
Forsætisráðherra Dana, Paul
Schliiter, tilkynnti í eftirmið-
daginn í gær að Margrét Þórhild-
ur drottning hefði kallað hann á
sinn fund og falið honum að
freista þess að koma saman starf-
hæfri ríkisstjórn.
Aðeins sex klukkustundum
áður hafði Schliiter sagt af sér
embætti forsætisráðherra í kjöl-
far ósigurs stjórnarflokkanna í
þingkosningunum í fyrradag.
En leiðtogar sex mið- og hægri
flokka, þar á meðal forystumenn
Framfaraflokksins og „Róttæka
vinstriflokksins,“ höfðu áður
látið það viðhorf sitt í ljós að rétt-
ast væri að Schluter fengi umboð-
ið fyrstur manna. Flokkar þessir
ráða yfír 90 að 179 sætum á
danska þinginu.
Forystumenn þriggja vinstri-
flokka, Jafnaðarmannaflokksins,
Sósíalíska þjóðarflokksins og
„Fælles kurs“ voru hinsvegar
þeirrar skoðunar að Anker Jörg-
ensen bæri umboðið þar eð hann
er formaður stærsta flokksins.
Samtals ráða þessir þrír flokkar
yfir 85 sætum á þingi. Það er eftir-
tektarvert að flokkar á vinstri-
væng, þeir sem að ofan eru
nefndir auk 6 smáflokka, hrepptu
alls 49,5 af hundraði atkvæða í
kosningunum.
Schluter var nokkuð ánægður
eftir fund sinn með drottningu.
„Ég hef komist að þeirri niður-
stöðu að meirihluti þingmanna er
ekki andvígur ríkisstjórn undir
mínu forsæti og því ráðlagði ég
drottningu að fela mér umboð til
stjórnarmyndunar og hún fór að
þeim ráðum.“
Á öðrum stað á þessari síðu
gefur að líta töflu yfir úrslit kosn-
inganna í fyrradag. Til upprifjun-
ar má geta þess að íhaldsflokkur,
„Venstre,“ Miðdemókratar og
ÚRSLITIN í DANMÖRKU
Hlutfall atkvæða og fjöldi þingmanna (tölur frá 1984 í svigum)
Jafnaðarmenn 29,3% (31,6) 54 (56)
íhaldsflokkur 20,8% (23,4) 38 (42)
Sós. þjóðarfl 14,6% (11,5) 27 (21)
Venstre 10,5% (12,1) 19 (22)
Rad. venstre 6,2% (5,5) 11 (10)
Miðdemókratar 4,8% (4,6) 9 (8)
Framfaraf lokkur 4,8% (3,6) 9 (6)
Kristil. þjóðarfl 2,4% (2,7) 4 (5)
Fælles kurs 2,2% H 4 H
Vinstri sós 1,4% (2,7) - (5)
Græningjar 1,3% H - H
Kommúnistafl 0,9% (0,7) — (-)
Retsforbundet 0,5% (1,5) - (-)
Flokkur mannsins 0,2% H - H
Trotskíistar 0,0% (0,1) - (-)
Maóistar 4 0,0% (0,0) - (-)
Filippseyjar
Kreppir að Aquino
Ásakanir ritara forsetans valda úlfúð og allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar segja af
sérstörfum
ráðherrar í ríkisstjórn Cor-
azons Aquinos forseta Fil-
ippseyja sögðu upp störfum í gær
eða allir sem einn. Með því vilja
þeir gefa henni kost á að endur-
skipuleggja stjórnina og gera
breytingar á henni. Ekki mun
vanþörf á þar eð forsetinn á við
mikinn vanda að etja á flestum
sviðum innanlands.
Þetta er ekki í fyrsta skipti að
gervöll ríkisstjórnin segir af sér
frá því Aquino hófst til valda.
Hið sama gerðist í nóvember-
mánuði i fyrra og þá sætti hún
færis og losaði sig við Juan Ponce
Enrile varnarmálaráðherra auk
fjögurra annarra ráðherra.
Afsagnirnar sigldu í kjölfar
neyðarfundar ríkisstjórnarinnar
þar sem kastaðist í kekki með
ráðherrum vegna orða sem Joker
Arroyo ritari forsetans lét sér um
munn fara í fyrradag. Þá sakaði
hann þrjá þekkta kaupsýslumenn
og herforingja um að grafa undan
ríkisstjóminni.
Joker þessi er gamall fjöl-
skylduvinur forsetans og hafa
ummæli hans vakið mikla athygli
og gremju ýmissa á eyjunum.
Fjármálaráðherrann, Jaime
Ongpin að nafni, neitaði því að
ummæli ritarans væru orsök af-
sagnar ríkisstjórnarinnar en við-
urkenndi að orð og gerðir Jokers
hefðu átt nokkurn þátt í henni.
Önnur veigamikil orsök á-
kvörðunar ráðherranna er sú
mikla gagnrýni sem ríkisstjórnin
hefur sætt eftir valdaránstilraun
dáta þann 28. síðasta mánaðar er
53 menn féllu og yfir 300 særðust.
Ráðherrarnir munu gegna
störfum uns forsetinn hefur
endurskipað þá eða fundið nýja
menn. Aquino vildi í gær ekkert
láta uppi um áform sín í þeim efn-
um.
-ks.
Feneyjar
Annað gullljón Malles
Franski leikstjórinn Louis
Malle hreppti æðstu viður-
kenningu á kvikmyndahátíðinni í
Feneyjum í ár, sjálft gullljónið,
fyrir mynd sína „Au revoir les en-
fants“ eða Kveðja barnanna.
Þetta er i annað skipti að þessi
viðurkenning fellur honum í
skaut. Árið 1980 fékk hann verð-
launin fyrir myndina „Atlantic
City.“
Þetta kvað ekki hafa komið
neinum á óvart á hátíðinni,
hvorki almenningi né
gagnrýnendum, þar eð myndin
þykir framúrskarandi góð. Hún
gerist á árum síðari heimstyrjald-
ar og fjallar um þrjá drengi af
gyðingaættum sem sigla undir
fölsku flaggi og ganga í franskan
menntaskóla sem rekinn er af
prestum. Slefberi nokkur segir
Gestapomönnum allt af létta og
drengimir eru teknir höndum.
Þeir enda ævi sína í útrýmingar-
búðum nasista ásamt einum
prestanna er reyndi að koma
þeim til bjargar. Malle segir sög-
una byggða á reynslu hans sjálfs
þar eð hann hefði í bernsku
gengið í sama skóla og einn
drengjanna.
Tveir kvikmyndaleikstjórar
lentu í öðru sæti og fengu hvor sitt
silfurljónið. Þetta eru Bretinn
James Ivory en framlag hans var
myndin „Maurice" og Italinn Er-
manno Olmi sem sýndi myndina
„Lunga vita alla signora.“ Sér-
stök aukaverðlaun hreppti Svíinn
Kjell Grede fyrir „Hip, hip,
hurra.“
Bestu karlleikarar voru kjörnir
þeir James Wilby og Hugh Grant
úr „Maurice." Suður-
Kóreubúinn Kang Soo-Yeon
þótti skara fram úr öðrum
leikkonum en hún lék aðalhlu-
tverkið í myndinni „Sibaji.“
-ks.
Kristilegur þjóðarflokkur mynd- Schlúter verður nú að reiða sig á
uðu síðustu stjóm. „Radikale velvilja Framfaraflokksins ætli
venstre“ varði hana falli. hann að mynda stjóm. -ks.
Paul Schluter sagði af sér embætti Igær en var skömmu síðar falið að mynda
nýja stjóm.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
ABR
Framhaldsaðalfundur
ABR boðar til framhaldsaðalfundar, þriðjudaginn 15. september kl. 20.30
að Hverfisgötu 105.
Dagskrá: Reikningar félagsins lagðir fram og kjör kjörnefndar vegna lands-
fundar.
Fulltrúar frá Varmalandsnefnd mæta á fundinn og ræða störf nefndarinnar
og flokksmálin.
Reikningar ABR liggja frammi á skrifstofu félagsins frá og með föstudeg-
inum 11. september. Stjómln
ABR
Greiðið félagsgjöldin
Alþýðubandalagið í Reykjavík hvetur félagsmenn til að greiða heimsenda
gíróseðla sem allra fyrst. Stjórnln
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Haustfagnaður ÆFR
Haustfagnaður ÆFR verður haldinn í Risinu, laugardaqinn 19. seotember
kl. 14.30.
Dagskrá: Listamenn lesa úr verkum sínum, tónlist og fl.
Nánar auglýst síðar.
ÆFAB
Skrifstofutími
Skrifstofa ÆFAB er opin á miðvikudögum, fimmtudöqum oq föstudöoum
frá kl. 14-19 að Hverfisgötu 105. Sími 17500. U U
IHafnarfjarðarbær
_____ Áhaldahús
Verkamenn óskast í almenna útivinnu og á loft-
pressur.
Mötuneyti á staönum.
Hagstæöur vinnutími.
Upplýsingar í síma 53444.
Yfirverkstjóri
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11