Þjóðviljinn - 11.09.1987, Page 2
P-SPURNINGIN—
Hvaö finnst þér um þaö
að nemendur í skyldu-
námi þurfi sjálfir aö
kaupa sínar náms-
bækur?
Kjartan Steinsson
Viðskiptafræöinemi við H.Í.:
Það er alls ekki nógu gott. Það er
algjör óþarfi að krakkarnir þurfi
að eyða miklum fjármunum í
bókakaup á skyldunámsstigi.
Guðrún Kjerúlf
sjúkraliði:
Þetta eru nú ekki margar bækur.
En þau þurfa að skilja hvað það
er að standa á eigin fótum og
vera til. En þetta er sjálfsagt um-
deilanlegt.
Sigríður Gísladóttir
verslunarstjóri:
Þau hafa sjálfsagt gott af að
kaupa sínar bækur sjálf, en sjálf-
sagt er það mörgum þeirra ofviða
að gera það fjárhagslega. En þau
fara kannski betur með þær fyrir
vikið.
Hjalti Gíslason
rafeindavirki:
Mér finnst það skítt. Þegar um er
að ræða skyldunám á ríkið að
standa straum af kostnaðinum.
Annað er óeðlilegt.
Harpa Jónsdóttir
verslunarskólanemi:
Fáránlegt. Þau eiga að fá bæk-
urnar ókeypis þegar um skyldu-
nám er að ræða og ríkið á hik-
laust að taka þennan kostnað á
sínar herðar.
FRETTIR
Vestfirðir
M
Skólar illa staddir
Áfangaskýrsla segir skólahús á Vestfjörðum ísvipuðu
standi ogfyrir tólfárum á Vesturlandi
málaráðuneytisins er skóla-
húsnæði á Vestfjörðum aðeins
um þrír fímmtu af þörfinni.
Kennsluhúsnæði Vestfirðinga er
um tveir þriðju af því sem þyrfti
og íþróttarými aðeins 44% af því
sem vera ætti.
Þetta eru niðurstöður áfanga-
skýrslu sem formlega var lögð
fyrir fjórðungsþing nú um helg-
ina. Til þessarar könnunar var
kosin nefnd á þinginu í fyrra og
ætlar hún að skila af sér eftir ár að
sögn Péturs Bjarnasonar fræðslu-
stjóra á ísafirði.
Pétur sagði í samtali við Þjóð-
viljann að niðurstöður áfangask-
ýrslunnar væru mjög hliðstæðar
niðurstöðum hliðstæðrar skýrslu
um Vesturland fyrir tólf árum.
Nefndin hygðist nú leita úrbóta-
leiða í samvinnu við sveitarfé-
lögin í héraðinu, en hér væri
raunar erfitt við að eiga þarsem
forsendur úrbóta væru margar
enn á huidu, og sumar komnar
undir pólitískum ákvörðunum.
Til dæmis væri íþróttaaðstaðan
einna skemmst á veg komin, en
áður en átak yrði hafið þyrftu að
fást svör við ýmsum spumingum,
til dæmis um samnýtingu, en slík
svör væru mjög tengd áformum
um bættar samgöngur, til dæmis
með jarðgöngum, sem nú er tíð-
rætt mál vestra.
Pétur taldi líklegt að Vestfirðir
væru héraða aftast á merinni um
skólahúsnæði allt, og hefði
landshlutinn farið varhluta af
þeim umbótum sem annarstaðar
urðu á síðasta áratug við bygg-
ingu stórra dreifbýlisskóla, með-
al annars vegna þess að sú lausn
hefði þá ekki hentað Vestfjörð-
um.
Þór Þorbjörnsson sölustjóri Steinullarverksmiðjunnar beinir gaslampa á fullu blússi að steinullarplötu. Þórður Hilmars-
son framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Ingi R. Helgason forstjóri Brunabótafélags Islands og Bergsteinn Gizurarson
brunamálastjóri ríkisins fylgjast með góort eldfælniframmistöðu ullarinnar með vel þóknun. Mynd: Sig.
Steinullin
Seyðisfjörður
Fékk hrefnu
í netin
Náðuml.5 tonnum af
ágœtis kjöti. Geymt í
frysti
, JÞetta var mjög óvænt allt sam-
an að fá svona stóra hrefnu í net-
in. Ætli hún hafi ekki verið rúmir
8 metrar á lengd. Við skárum
hana niður í bita og settum í öskj-
ur sem við geymum í frysti, eins
og stendur,” segir Einar Ottesen
skipstjóri á Andra frá Seyðisfirði,
sem er 4-5 tonn á stærð.
Að sögn Einars er ekki mikið
um hrefnu á veiðislóðum
Seyðfirðinga að öllu jöfnu, en í
fyrradag varð hann þó var við
aðra hrefnu en í þetta sinn slapp
hann við að fá hana í netin.
Sagði Einar að hann væri að
hugsa um að hætta með netin, en
hann hefur verið með um 20
þorskanet í gangi frá því um miðj-
an ágúst. Astæðan er sú að lítill
afli hefur fengist í þau, og það
sem hefur veiðst hefur aðallega
verið ýsa. Bjóst hann við að byrja
á handfærum aftur á næstu
dögum.
Fer í eld og brennur ekki
Steinullarverksmiðjan, Brunabót og Brunamálastofnun gefa útbæk-
ling um brunavarnir. Steinull eina óbrennanlega einangrunarefnið
Steinull er eina efnið á mark-
aðnum sem teist óbrennanleg
einangrun. Hún þolir þúsund
gráðu hita í tvo tíma án þess að
missa einangrunareiginleika sína,
sagði Þórður Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri Steinullarverk-
smiðjunnar hf. á fundi með blað-
amönnum í gær, en fyrirtækið
hefur gefið út leiðbeiningabæk-
ling í samstarfi við Brunabótafé-
lag íslands og Brunamálastofnun
rfldsins og nefnist hann Bruna-
vörn - einangrun og hönnun
bygginga.
Markmiðið með útgáfunni er
þríþætt: að gefa öllum sem standa
að hönnun húsa og taka þurfa til-
lit til brunavarna innsýn í bruna-
hönnun með því að draga fram öll
mikilvægustu atriði reglugerðar
um brunavarnir; að kynna hinum
almenna húsbyggjanda á einfald-
an hátt helstu atriði brunahönn-
unar og mikilvægi brunavama í
heimahúsum; að kynna einstæða
eiginleika steinullarinnar sem
brunaeinangrunar.
íslendingar skera sig úr meðal
Norðurlandabúa hvað varðar
notkun brennanlegrar einangr-
unar í húsbyggingum. Á hinum
Norðurlöndunum eru einungis
notuð brennanleg einangrun 1
5% tilfella, en hérlendis er hlut-
fallið milli 25 og 35%. Að sögn
Inga R. Helgasonar forstjóra
Brunabótafélagsins vonast að-
standendur bæklingsins til að fólk
láti sér segjast og fari að nota
óbrennanleg einangrunarefni í
hús í auknum mæli.
Bæklingnum verður dreift
mjög víða, meðal annars til allra
hönnuða húsnæðis, s.s. arki-
tekta, verkfræðinga og tækni-
fræðinga, ennfremur til sveitarfé-
laga, slökkvilið og sjávarútvegs-
og iðnfyrirtækja.
HS
Heimsóknir
Vigdís
til Japans
Vigdís Finnbogadóttir hélt í
gær í heimsókn til Japan en þar
mun hún opna norrænu menning-
arkynninguna sem er að hefjast
þar um þessar mundir. Forsetinn
mun dvelja í Japan til 20. sept-
ember. Frá Japan fer Vigdís í
heimsókn til Frakklands en þar
verður haldin íslandskynning í
Bordeaux dagana 22.-25. sept-
ember.
í Bordeaux mun Vigdís m.a.
sækja málþing fræðimanna um ís-
lenskar bókmenntir og halda
blaðamannafund og horfa á
knattspyrnuleik íslendinga og úr-
valsliðs frá borginni. Þá mun há-
skólinn í Bordeaux sæma Vigdísi
heiðursdoktorsnafnbót.
2 SÍÐA - ÞJÓÐViLJINN Föstudagur 11. september 1987