Þjóðviljinn - 11.09.1987, Blaðsíða 12
Menningar- og fræðslusam-
band alþýðu, MFA, er að verða
ein af umfangsmestu mennta-
stofnunum á landinu á sviði full-
orðinsfræðslu, þótt hljótt fari. Á
síðasta skólaári munu um tvö-
þúsund manns hafa verið í ein-
hverskonar námi á vegum MFA,
annaðhvort beinlínis eða hjá
Tómstundaskólanum, sem MFA
á og rekur.
- Okkar eigið starf er fyrst og
fremst tvfþætt, sagði Helgi Guð-
mundsson stjórnarformaður
sambandsins í spjalli við Þjóðvilj-
ann. Annarsvegar hafa trúnað-
armannanámskeiðin verið mikil-
vægur þáttur hjá okkur. Trúnað-
armenn á vinnustöðum innan
ASÍ hafa samningsbundinn rétt
til að sækja þessi námskeið, og
þau hafa bæði eflt stöðu trúnað-
armannanna og treyst samband
félagsstjórna við vinnustaðina.
- Núna stendur til dæmis yfir
trúnaðarmannanámskeið á
Austurlandi, sótt af fólki úr flest-
öllum félögum þar eystra, og þar
sitja menn við frammí miðjan
október, þetta er samfellt fjög-
urra til fimm vikna námskeið.
Ölfusborgir
- Hinn aðalþátturinn í okkar
starfi er svo Félagsmálaskólinn í
Ölfusborgum. Hann er ætlaður
félögum í Alþýðusambandinu,
en alls ekki bundinn við trúnað-
armenn eina eða stjórnarmenn í
félögunum, og það er rétt að geta
þess að við höfum um hann ák-
veðna samvinnu við Sjálfsbjörg,
-félagar þaðan hafa sama rétt á
vist í Félagsmálaskólanum og úr
hverju öðru stéttarfélagi. Skólinn
starfar yfirleitt í fjórum önnum á
ári, hver önn í tvær vikur.
Námskeiðin þarna miða að því
að gera menn hæfari til að takast
á við félagsleg verkefni, til dæmis
með því að byggja upp nauðsyn-
legt sjálfstraust til félagsstarfa, og
ekki síður er nemendum miðlað
margvíslegum upplýsingum um
störf verkalýðshreyfingarinnar,
félagsleg réttindi og skyldur.
- En MFA stendur líka fyrir
ýmiskonar námskeiðum utanvið
HelgiGuðmundsson
hjá MFA: Um tvöþús-
und manns sóttu á
síðasta ári fræðslutil
MFA og Tómstunda-
skólans
þennan ramma. Við höldum fé-
lagsmálanámskeið í samvinnu við
einstök stéttarfélög og reyndar
fleiri aðila, til dæmis fyrir
skömmu í samvinnu við Banda-
lag kvenna í Reykjavík.
Það má nefna sérstök ræð-
unámskeið, og ekki síður nám-
skeið fyrir þá félaga í stéttarfé-
lögum sem eru að komast á eftir-
launaaldur, - þau heita „Árin
okkar“. Við erum með námskeið
um kjarasamninga og samninga-
gerð, önnur um útgáfu ýmis-
konar, blöð og bæklinga, og til
stendur að auka áherslu á ljós-
vakamiðlana í framtíðinni.
- MFA á gott samstarf við
ýmis félög og stofnanir um
fræðslustarf. Með Húsnæðis-
stofnun stöndum við fyrir nám-
skeiði um félagslega húsnæðis-
kerfið fyrir þá sem sitja í stjóm-
um verkamannabústaða og
reyndar einnig þá starfsmenn
sveitarfélaga sem þar koma við
sögu. Við höfum líka átt góð sam-
skipti við Vinnueftirlitið. Þeir
koma til dæmis inní námskeiðin
sem nú eru í gangi á Austurlandi.
- Þetta er verkefnaskrá vetrar-
ins í grófum dráttum, en það má
lengi telja enn, - til dæmis hafa
þegar verið haldnar ráðstefnur í
tveimur fjórðungum um vinnu-
vernd, og framhald fyrirhugað,
og það má nefna að við höfum
skipulagt einskonar dagskrá í or-
lofsbúðum verkalýðsfélaganna
undir heitinu „List og leikir“, -
listafólk, kunnugir heimamenn
og fleiri og fleiri koma þá í búð-
irnar einusinni í viku allt sumarið
og hafast ýmislegt að, listamenn
fremja sinn seið, sagt er frá um-
Æ V r't'*f
* ' p '•4f_
Tveir nýir kennslustaðir: Dansstúdíó Sóieyjar, Engjateigi 1 og „Híilarsel"
Þarabakka 3 í Mjóddinni. Ennfremur sem fyrr í Auðbrekku 17, Kópavogi.
Kennum alla sa'mkvæmisdansá: suðurameríska, standard og gömlu dansana.
Einnig bamadansa fyrir yngstu kynslóðina - laugardagskennsla á öllum stöðum.
Nemendur skólans unnu 12 af 18 íslandsmeistaratitlum í samkvæmisdönsum ■
1987. •
Irinritun og upplýsingar dagana 1. - 14. september kl. 10 - 19 í símum:
641111,40020 og 46776.
Kennsluönnin er 15 vikur, hefst mánudagjnn 14. septemberog lýkur.með jólaballi.
/
FID Betri kennsla - betri árangur.
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar
hverfi búðanna, farið í leiki,
gönguferðir og fleira.
Tvöhundruð
fyrsta daginn
- í þessu starfi á vegum MFA
taka þátt milli sex og átta hundr-
uð manns árlega. Enn fleiri eru
síðan með í hinum meginþætt-
inum í okkar starfi, í Tómstund-
askólanum sem sambandið tók
við fýrir tveimur árum. Skóla-
stjóri hans er Ingibjörg Guð-
mundsdóttir.
Þar er boðið til ýmiskonar frí-
stundanáms sem eícki er sérstak-
lega tengt verkalýðsfélögunum
og opið öllum. Tómstunda-
skólinn er rekinn bæði í Reykja-
vík og á Akureyri, og á síðasta ári
munu um 1200 manns hafa sótt
námskeið skólans, og aðsóknin
virðist ekki ætla að verða minni í
vetur, - innritun hófst núna í vik-
unni og gríðarlega mikið að gera,
ég held að um tvöhundruð manns
hafi skráð sig fyrsta daginn.
Starf Tómstundaskólans við
hlið hefðbundinnar starfsemi
MFA hefur heppnast með ágæt-
um. Það er skylda okkar að bjóða
uppá sem allra víðtækasta
fræðslu fyrir fullorðna. Við höf-
um aukið hlutdeild okkar á þessu
sviði jafnt og þétt undanfarin ár,
og við ætlum að sækja enn lengra
fram, bæði með beinu starfi á
vegum MFA og í Tómstunda-
skólanum.
Einn bíómiði
Nemendur bera sjálfir kostnað
af rekstri Tómstundaskólans, -
starf á vegum MFA er hinsvegar
fjármagnað með ríkisstyrkjum og
greiðslum frá verkalýðsfélög-
unum. Námsgjald í skólanum er
auðvitað misjafnt eftir greinum,
en við höfum reynt að halda okk-
ur við þá grundvallarreglu að
hver kennslustund kosti að jafn-
aði ekki meira en einn bíómiði,
og það finnst mönnum almennt
ekki mikið.
- Það er merkilegt, segir Helgi
Guðmundsson að lokum, - og í
rauninni einkennileg þversögn,
að hér er við lýði einn lengsti
vinnudagur sem þekkist í okkar
heimshluta, en aðsókn að frí-
stundanámi sem fólk velur sér
sjálft er ótrúlega mikil. Það er
greinilega fyrir hendi vilji til að
bæta við sig á ýmsum sviðum,
þótt fólk vinni bæði mikið og
iengi. -m
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
TÓMSTUNDIR
Helgi Guðmundsson: Mikil aðsókn að frístundanámi | Félagsmálaskólanum að Ölfusborgum, fundarframkoma á dagskránni...
þráttfyrir langan vinnudag.
MFA
Sækjum stöóugt fram