Þjóðviljinn - 11.09.1987, Page 3
FRETTIR
Hollusta
Varasöm efni í gosinu
Reglugerð um tilbúning og dreifingu matvœla gömul og götótt. Hollustuverndin
vinnur að nýrri reglugerð um notkun aukaefna
mmm ÖRFRÉTTIR mmmm
Sr. Kristján
Róbertsson
hefur verið kallaður til prests-
þjónustu í Seyðisfjarðarpresta-
kalli frá 1. október nk. að beiðni
sóknarnefndarinnar á staðnum.
Sr. Kristján hefur gegnt prests-
starfi ma. á Akureyri, Siglufirði í
Reykjavík og Borgarfirði.
Atvinnuástandið
í ágúst var með besta móti. Þá
voru skráðir um 7400 atvinnu-
leysisdagar sem er 20% minna
en á sama tíma í fyrra. Þetta sam-
svarar því að um 340 manns hafi
að meðaltali verið án atvinnu í
mánuðinum en það jafngildir um
0.3% af áætluðum mannafla á
vinnumarkaði.
Farþegum
til landsins hefur fjölgað töluvert í
sumar frá því sem var í fyrra-
sumar. í ágúst komu rúmlega
35.500 farþegar til landsins þ.a.
18.660 útlendingar. Það sem af
er árinu hafa 190.779 farþegar
komið til landins en á sama tíma í
fyrra voru þeir orðnir 157.621.
Biskup islands
hefur auglýst 6 prestaköll laus til
umsóknar og auk þess embætti
farprests kirkjunnar. Prestaköllin
eru í Bjarnanesi í Skaftafellspróf-
astsdæmi, Ólafsvík, Patreksfirði,
Breiðabólsstað í Húnavatnspróf-
astsdæmi, Hálsi í Þingeyjarpróf-
astsdæmi og Raufarhöfn.
Skil ekki
Þóri
Sigurður Ingvarsson,
Eskifirði: Ekki
samstaða í
kjaranefndinni
Þáttur Þóris Daníelssonar,
starfsmanns VMSI, í þessu máli
er mér með öllu óskiljanlegur,
sagði Sigurður Ingvarsson á Eski-
firði í gær vegna yfirlýsinga Þóris
um að eining hafi verið í kjara-
nefnd fyrir frægan fund Verka-
mannasambandsins síðustu helgi.
Vegna þeirra orða Þóris vill
Sigurður, sem sat fyrir hönd Ár-
vakurs í kjaranefndinni, taka
fram að þar hafi ekkert sam-
komulag orðið um röðun fisk-
vinnslufólks, og hafi því verið
ákveðið að vísa því máli til for-
mannafundarins.
„Mér er óskiljanlegt hvers
vegna Þórir ræðst með slíku of-
forsi á þá fulltrúa sem gengu af
fundinum vegna málsmeðferðar-
innar“ sagði Sigurður, „og álít
með öllu óverjandi að starfsmað-
ur VMSÍ dragi þannig taum
sumra félagsmanna en ráðist að
öðrum“.
Guðmundur J. Guðmundsson
er nú á Austfjörðum og reynir að
ná sáttum í VMSÍ-deilunni. -m
Krabbameinsvaldandi aukaefni
eru notuð í matvörur hér á
landi ef marka má lista yfir slflc
efni frá rannsóknarstöð Villejuif-
sjúkrahússins í Frakklandi, en að
vísu eru þetta ekki óumdeUd vís-
indi. Markmiðið með gerð listans
er að vekja athygli neytenda á
þeim áhrifum sem aukaefnin
kunna að valda.
Reglugerð um tiibúning og
dreifingu matvæla hér á landi er
orðin gömul og götótt, að stofni
til frá árinu 1976, en Hollustu-
vernd ríkisins vinnur nú að nýrri
reglugerð um notkun aukaefna,
og er hennar að vænta fljótlega.
Hún mun innihalda lista yfir
aukaefni sem heimilt er að nota í
matvæli og aðrar neysluvörur,
svokallaðan aukaefnalista.
Blaðamaður lagði leið sína í
næstu sjoppu í gær og hugaði að
innihaldi nokkurra tegunda gos-
drykkja. Fyrir valinu urðu sykur-
laust tab, diet kókakóla og þrjár
tegundir af Sodastream; appels-
ín, kóla og límonaði, allt saman
sykurlaust. Að sjálfsögðu var
vöruvalið í þessari óformlegu
„könnun“ handahófskennt og
enginn dómur á það lagður hvort
gosið komi verr út en hvað ann-
að.
Samkvæmt innihaldslýsingu
innihalda allar þrjár tegundirnar
af Sodastream aukaefnin E-211
sem er rotvarnarefni og E-330, en
bæði eru talin krabbameinsvald-
andi samkvæmt lista Villejuif-
sjúkrahússins.
í sykurlausu tab er meðal
margs annars aukaefnið E-211 og
litarefnið E-150, en það er
„grunsamlegt" að mati sjúkra-
hússins.
Diet-kók inniheldur meðal
annars bæði aukaefnin sem getið
er um varðandi tabið, en auk þess
E-330 og E-338, en síðasttalda
aukaefnið vilja Frakkarnir meina
að geti valdið meltingartruflun-
um.
Þá er cyclamat í öllum fimm
tegundunum, en það verður seint
talið neitt sérstakt hollustuefni.
„Það eru mörg önnur efni sem
hafa verið meira inni í umræð-
unni en þessi tvö“, sagði Jón
Gíslason hjá Hollustuvernd ríkis-
ins, aðspurður um aukaefnin E-
211 og E-330. „E-211 er langal-
gengasta rotvarnarefnið, og er
skaðlaust í því magni sem það er
notað fyrir fólk flest, en það er
þekkt að það getur valdið of-
næmi, og því þurfa þeir sem því
eru haldnir að sniðganga það.
E-330 er sítrónsýra, náttúrlegt
efni, og ég veit ekki til að skaðleg
áhrif þess hafi verið til umræðu."
HS
Hanna Ólafsdóttir símatæknir hugar að gosdrykkjainnihaldi. Margs konar aukaefni eru í mat- og drykkjarvörum hér á
landi, og er hollusta sumra þeirra drpgin í efa. (Mynd: Sig.)
Stúdentaráð
Húsnæðiseklan gífurleg
Astandið á leigumarkaðnum með versta móti. Verðið rýkur upp
Neyðin er mikil. Það er mikið að leigan hefur hækkað umtals-
um að barnafólk sem er á vert.
götunni hafi leitað til okkar. Þá
vitum við dæmi þess að fólk utan
af landi hafi hreinlega hætt við að
fara í nám vegna húsnæðisekl-
unnar, sagði Ómar Geirsson, for-
maður Stúdentaráðs í gær, en
Stúdcntaráð hefur starfrækt
leigumiðlun undanfarin ár.
„Á síðustu árum hefur þetta
gengið þolanlega, en í sumar var
ástandið mjög slæmt,“ sagði
Ómar. „Það gekk að vísu sæmi-
lega að útvega fólki herbergi, en
aðra sögu er að segja af íbúðum.
Um mánaðamótin vorum við
með um 500 manns á skrá sem
vantaði íbúðir, og þar við bætist
Hjá okkar fólki er verð á her-
bergi til leigu á bilinu 8 til 10 þús-
und, og fer verðið eftir því hvort
eldunaraðstaða er fyrir hendi eða
ekki. Tveggja herbergja íbúðir
fara nú á 20 þúsund á mánuði að
meðaltali, en í vor á 15 þúsund,
og þriggja herbergja íbúðir á 25
til 30 þúsund. Við höfum fengið
dýrari tveggja herbergja íbúðir
en á 20 þúsund en ekki losnað við
þær, vegna þess að fólk í námi
ræður ekki við slíka leigu,“ sagði
Ómar.
Að sögn Ómars er nú í bígerð
að bjóða húseigendum svokall-
aðan þjónustusamning. Þá hefur
kaskótrygging húseigenda komið
til tals og ennfremur eftirlit með
íbúðunt af hálfu leigumiðlunar-
innar, og yrði starfsmaður þá ráð-
inn til að annast eftirlit með leigu-
íbúðum. Kvað Ómar miklar von-
ir bundnar við nýjungar þær sem
hér er bryddað upp á. HS
Bókmenntahátíð á Islandi
Höfundar flykkjast að
32 rithöfundarfrá 14 löndum leiða samanfáka sína, með samfelldri
opinni dagskrá í Norrœna húsinu. Hátíðin hefst á sunnudag
fýJÖLBRAUTASXÓLINN
BREIÐHOUl
Frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
Model vantar aö myndlistarbraut Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti. Dag- og kvöldtímar.
Upplýsingar á skrifstofu skólans, sími 75600.
Voldug bókmenntahátíð verð-
ur í Norræna húsinu alla
næstu viku, hugsuð til þess að efla
norrænar bókmenntir á margan
hátt, m.a. með því að fá hingað
heimsþekkta rithöfunda frá ólík-
um heimshlutum, en annars
munu flestir gestanna koma frá
Norðurlöndum. Á bókmenntahá-
tíðinni, sem er öllum opin, munu
rithöfundar lesa upp úr verkum
sínum öll kvöld vikunnar. Þá
verða fyrirlesarar og umræður af
ýmsu tagi, t.d. flytur Isabel AI-
lende, Chile, fyrirlestur um
suður-amerískar bókmenntir og
Alain Robbe-Grillet, Frakklandi,
fyrirlestur um Nýju skáldsöguna
og ævisöguna. Konur og bók-
menntir, norræn sagnaritun á
seinni árum, eru meðal umræðu-
efna. Á morgnana munu rithöf-
undarnir heimsækja framhalds-
skóla á höfuðborgarsvæðinu. Há-
tíðin verður formlega opnuð
sunnudaginn 13. september og
lýkur laugardaginn 19. septemb-
er.
„Undirbúningur hefur gengið
stórslysalaust, nánast engin for-
föll, og höfundar almennt mjög
spenntir fyrir hátíðinni, þeir
koma flestir á laugardag og
dvelja út vikuna. Við söknum
þess reyndar að hafa ekki fengið
rithöfund frá Grænlandi“, sagði
Ingibjörg Björnsdóttir, fulltrúi
bókmenntahátíðarinnar, en hún
er ein þeirra sem hafa starfað í
undirbúningsnefnd. „Þetta hefur
verið mikil og góð samvinna,
margir sem hafa lagt hönd á
plóginn, og þá vil ég líka nefna
Göthe Institut, Alliance franga-
ise og franska sendiráðið. Norr-
æni menningarsjóðurinn, ríki og
borg ásamt einkafyrirtækjum,
hafa fjármagnað hátíðina, en það
segir sig, að fyrirtækið er dýrt, en
við gerum okkar miklar vonir um
hátíðina. Nú er aðaláhersla lögð
á sagnahöfunda, en fyrsta bók-
menntahátíðin 1985, sem helguð
var ljóðlistinni, þótti takast vel í
hvívetna.“
Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, verður verndari
bókmenntahátíðarinnar, og
Halldór Laxness hefur þegið boð
um að vera sérstakur
heiðursgestur.
Dagskráin fer fram í Norræna
húsinu og Gamla bíó, og er sem
fyrr segir öllum opin. Dagskráin
verður birt ýtarleg í blaðinu á
morgun. -ckj.
Föstudagur 11. september 1987 ÞJÓÐVILJINN — SfÐA 3