Þjóðviljinn - 11.09.1987, Blaðsíða 5
Kominn upp á gilbarminn og björgunarmenn taka snarlega á móti þeim slasaða.
Og þá er ekkert annað eftir en að flytja þann slasaða á börum í gegnum óbyggðirnar að næstu
bækistöð.
Ein af æfingunum á Möðrudalsöræfum var að flytja slasaðan mann upp úr
djúpu og þröngu gili. Á þessari mynd er búið að búa um þann slasaða og hann
er á leiðinni upp.
Myndir Helga og Jón.
Frá bækistöðvunum í Reykjahlíð þar sem sett var á svið stórbjörgun eftir jarðskjálfta.
Björgunarsveitir
Stóræfing á
Möðrudalsöræfum
Á annað hundrað björgunarmönnum við fjölbreyttar æfingar
í óbyggðum. Stórslys sett á svið í Reykjahlíð
Um sl. helgi fjölmenntu björg-
unarsveitarmenn víðs vegar af
landinu norður á Möðrudalsör-
æfi þar sem haldin var þriðja
stóra sambjörguanræfingin sem
sveitir innan Landssambands
Hjálparsveitar skáta standa fyrir.
Hátt á annað hundrað björg-
unarsveitarmenn, frá skátum,
slysavamarfélaginu og Flug-
björgunarsveitinni tóku þátt í æf-
ingunni sem stóð í tvo daga og
tókst mjög vel að sögn þeirra
Jóns Halldórs Jónassonar og
Helgu Einarsdóttur úr Hjálpar-
sveit skáta í Reykjavík.
Á laugardeginum var byrjað
snemma um morguninn og var
þátttakendum skipt niður í fjöl-
marga hópa sem fengust við
margvísleg björgunarverkefni,
leit, sig, aðhlynningu slasaðra og
fleira. Þrátt fyrir nokkra rigningu
tókst æfingin vel en björgunar-
sveitarmenn voru mjög ánægðir
með að geta æft sig á svo ókunn-
um og framandi slóðum en aldrei
áður hefur verið haldin æfing
björgunarsveitarmanna á
Möðrudalsöræfum.
Á sunnudeginum var æfing-
unni framhaldið og þá höfðu
björgunarmenn flutt sig um set
og voru komnir niður í Reykja-
hlíð við Mývatn. Tilkynnt var um
mikinn jarðskjálfta og stórtjón
og slys á fólki. Skólanemar og
leikarar úr sveitinni voru í hlut
verkum slasaðra og sögðu þau
Jón og Helga að þau hefðu staðið
sig frábærlega vel. Æfingin hefði
verið mjög raunveruleg og vel
undirbúin. Sett var á svið hrun
íbúðarhúsa og flestir bflskúrar í
hverfinu notaðir fyrir slíkar sviðs-
setningar. Þá voru markaðar út
stórar jarðsprungur á vegum og
víðavangi en í síðustu stóru um-
brotunum á svæðinu lokaði ein-
mitt stór jarðsprunga þjóðvegin-
um í sveitinni um tíma.
Björgunaræfingin í Reykjahlíð
tókst vel að mati björgunaraðila
og forsvarsmanna almannavarna
á svæðinu. En starfinu var ekki
lokið hjá öllum björgunar-
mönnum eftir að æfingunni lauk
því að á heimleið komu hjálpar-
sveitarmenn úr Garðabæ fyrstir
að slysstað á Öxnadalsheiði þar
sem bifreið hafði farið út af veg-
inum og hlúðu björgunarmenn
að þeim slösuðu og fluttu þá
áleiðis til Akureyrar til móts við
sjúkraliðsmenn. -Ig.
Föstudagur 11. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 5