Þjóðviljinn - 11.09.1987, Qupperneq 7
Umsjór,:
Elísabet Kristín
Jökulsdóttir
„lt smells of life, it tastes of death", Hafdís Árnadóttir og Valgeir Skagfjörð í tangó. Mynd E.ÓI.
Allt i sveiflu
í vetur
Tangó og leiklist fyrir börn
„Mig langar til að gera eitthvað
skemmtilegt í vetur,“ segir ung
stúlka, sem birtist í húsakynnum
Kramhússins, við Bergstaða-
stræti og Hafdís Árnadóttir veitir
forstöðu. Stúlkan skráirsig í
dansspuna og afrocarabiadans
ogferharlaglöð.
„Afrocarabiadans er spenn-
andi blanda af afrískum dansi,
rúmbu ogcalypsó. Hann ermýkri
en jazzdansinn, er því aðgengi-
legri, hentar öllum, þó þeir séu
ekki í sérstakri þjálfun. Afrocar-
abian byggist upp á hreyfingu og
rymtha og er mjög frjáls tjáning.
Dansinn er uppruninn frá Kara-
bíaeyjunum og við höfum fengið
kennara frá Barbados, Cle H
Douglas, sem verður hjá okkur í
vetur,“ segir Guðný Helgadóttir,
starfsmaður Kramhússins.
„Tangónámskeiðið stendur yfir
þessa viku, bæði fyrir byrjendur
og fyrir þá sem lengra eru komn-
ir. Tangó einkennist af sterkum
tilfinningum og er mjög vinsæll.
Það er samt þannig að fólk virðist
vera hrætt við að læra dansinn,
sem er alger óþarfi, dansinn er
ekki eins erfiður eins og hann
sýnist og við höfum mjög góðan
tangókennara, Charles Leuthold
frá Sviss. Pað verður annað tang-
ónámskeið hjá okkur eftir ára-
mót, þannig að þeir sem eru að
pæla í tangó geta safnað kjarki
þangað til.
Uppbyggjandi
leikfimi
„Við leggjum líka mikla
áherslu á leikfimina hjá okkur,
þetta er alhliða leikfimi, sem
miðar að því að byggja upp lík-
amann og lögð áhersla á mýkt,
slökun og öndunaræfingar, og
höfum sérstakan tíma fyrir þá
sem þjást af streitu, og einnig
fyrir þá sem vilja meiri hreyfingu
og sveiflu. Ástæðan fyrir því að
við kennum ekki eróbik, sem
annars er svo mikið í tísku, að við
teljum okkur ekki vita hvað hún
gerir líkamanum, eróbik hentar
betur íþróttafólki og þeim sem
eru í mjög góðri þjálfun.
Leikfimin er á öllum tíma, þannig
að fólk velur hvað hentar því
best.
Leiklist fyrir börn á aldrinum
7-13 ára, sem Sigríður Eyþórs-
dóttir kennir nú 4. árið í röð, er
alltaf mjög vinsæl. Það eru 13
vikna námskeið. Leiklistin
þroskar börnin og styrkir sjálfs-
ímynd og er góð fyrir öll börn,
ekki síst fyrir börn sem þurfa
mikla útrás eða eru mjög lokuð. í
vetur verðum við með leiki, dans
og rythma fyrir börn frá 4 ára
aldri, þar sem meiri áhersla er
lögð á leikformið. Anna Ric-
hards kennir, og notar mikið tón-
list. Þetta eru 6 vikna námskeið,
og á meðan börnin eru í leiktím-
um, höfum við sérstaka leikfimi-
tíma fyrir foreldrana. Þannig að
þetta er kjörin stund fyrir fjöl-
skylduna á laugardögum.
Dansspuni er aðferð fyrir þá
sem vilja öðruvísi útrás, þar er
spunnið út frá músík. Þetta er
ekki ósvipað vinnu í leiklistar-
skólanum. Stundum vinnur hóp-
urinn með ákveðið verkefni sem
er þróað smám saman í nokkrar
vikur. Kramhúsið er eini staður-
inn sem býður upp á dansspuna.
Nútímadans, klassískur bal-
lett, jazzdans og rokk, verða enn
fremur á dagskránni í vetur og að
sjálfsögðu tímar fyrir byrjendur
og fyrir þá sem eru lengra komn-
ir. Við leggjum áherslu á
þrautreynda þjálfara okkar.“ ekj
„because when I love, I bleed to death in kisses", segir í tangóljóði og
þannig verða tilfinningar að hreyfingum. Bryndís Petra og Charles
Leuthold tangókennari. Mynd: E.Ol.
Föstudagur 11. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7