Þjóðviljinn - 11.09.1987, Síða 8

Þjóðviljinn - 11.09.1987, Síða 8
TÓMSTUNDIR Málaskólinn Mímir Gott að kunna ensku -einnig kennsla í ritara- störfum og aöstoö viö treglæs börn I nútímaþjóðfélagi, þarsem ferðalög og fjarskipti færa þjóðir heims nær hver annarri, er gott að kunna tungumál. Sumir þurfa á tungumálakunnáttu að halda, vegna vinnu sinnar en aðrir vilja geta átt samneyti við fólk frá öðr- um þjóðum, skipst á skoðunum og sögum. Málaskólinn Mímir, sem er bæði mála- og ritaraskóli, hefur verið rekinn af Stjórnunarfélagi ísiands frá 1984. Skólinn býður uppá fjölbreytta kennslu, þar sem reynt er að mæta helstu kröf- um nútímans. Námið byggist upp á áfangakerfi, þar sem hverjum áfanga er skipt í fjögur sjö vikna námskeið. í lok hvers námskeiðs er haldið lítið próf. Aðalnýjungin í haust, er sú að nú er hægt að taka alþjóðleg enskupróf frá háskólanum í Cambridge. Þá er boðið upp á stutt sérnámskeið, í verslunarensku, tækniensku og einnig eru sérhæfð námskeið fyrir félagasamtök, stéttarfélög og vinnustaði ef áhugi er fyrir hendi. Skipt í hópa eftir kunnáttu Enskuskóli æskunnar er fyrir börn á aldrinum 8-13 ára. Börn- unum er skipt í fámenna hópa eftir kunnáttu. Kennslan fer al- farið fram á ensku og kennarar eru enskir. Þetta eru 12 vikna námskeið, sem hefjast í septemb- er og janúar. Kennt er tvisvar í viku, klukkustund í senn. Mímir býður aðstoð við grunnskólane- mendur, sem standa höllum fæti gagnvart námsefni sem tekið er til samræmds prófs. Þar sem ne- mendum er skipt í litla hópa og fá tilsögn kennara með góða reynslu. Kennslugreinar eru en- ska, danska, íslenska og stærð- fræði. Þá er aðstoð við treglæs börn, en víða í skólum er stuðn- ingi við þau mjög ábótavant. Sérmenntaður lestrarkennari sér um þá deild. Menntaskólane- mendur geta fengið aðstoð í ensku, dönsku, þýsku, frönsku eða stærðfræði, hvort sem er til lengri tíma eða upprifjunartíma. Ritaraskólinn 66 Þar kappkosta þeir Mímis- menn, að tryggja nemendum sín- um nútímaþekkingu í skrifstofu- störfum og tekur námsskráin stöðugum breytingum, eftir því sem þurfa þykir. Islensk tunga, bréfaskriftir, ábyrgð og sjálf- stæði, það að geta unnið undir miklu álagi og geta skipulagt tíma sinn, eru allt atriði, sem margir vinnustaðir gera kröfur til. Þess- um þáttum reynir ritaraskólinn að sinna. Næsta ár munu nem- endur Ritaraskólans geta stund- að tveggja ára markvisst skrif- stofunám. Á fyrra ári verða allir nemendur að taka kjarna ásamt einni valgrein. Er þetta gert í þeim tilgangi að undirbúa ne- mendur undir framhaldsnám. Enskan er undirbúningur fyrir sölubraut, en bókfærslan fyrir fjármálabraut. Til að nemandi ljúki prófi frá Ritaraskólanum þarf hann að fá einkunnina 7 í öllum námsgreinum. -ekj. < v •«. iMfb lt\ Kenn mtnnríÚ <ar 1-6 r viku ia dstímar Pax de deux tímar idatímar Klassísk tækni a tímar Barnatímár aárið er4 annir. Greiða má eina önn / einu j Hraunberg • 79988 ír.;7:‘ • 8373Ó

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.