Þjóðviljinn - 11.09.1987, Page 11
TÓMSTUNDIR
TÓMSTUNDIR
/Ettfræði
Hverra
manna
ertu?
v -
| jPjgr y*"" f | 1
1 |ÍwJRF : *»■ ' ® jffv iá K ■■ W * \ t 1
pí W<f. í, .
Nýlega birtist hér í blaðinu stutt
og yfirlætislaus fréttatilkynning
um ættfræðinámskeið. Það er
ættfræðiþjónustan sem stendur
fyrir þessum námskeiðum, en
forstöðumaður hennar og jafn-
framt leiðbeinandi á námskeið-
unum er Jón Valur Jensson,
cand.theol.
Okkur hér hjá Þjóðviljanum
sýndist ómaksins vert að afla nán-
ari fregna af þessari starfsemi og
fórum í því skyni á fund Jóns Vals
Jenssonar og spurðum hann fyrst
að því hversu langt væri síðan
hann byrjaði á þessu námskeiða-
haldi.
- Upphaf þessarar starfsemi er
nú að rekja til fsafjarðar, sagði
Jón Valur. Þar veitti ég forstöðu
kvöldskóla veturinn 1983-1984,
þar sem haldin voru námskeið af
ýmsum toga. Þá datt mér í hug að
efna til ættfræðinámskeiðs. Fékk
það strax mjög góðar undirtektir
og var bæði vel sótt og skemmti-
legt.
- Hvert var svo framhaldið?
- Ég þóttist þess fullviss að víðai
væri áhugi á ættfræði en á ísafirði.
Þess vegna var það að þegar ég
kom til Reykjavíkur stofnaði ég
Ættfræðiþjónustuna og hún hefui
starfað frá því í fyrrahaust, en þá
byrjaði ég með fyrsta námskeiðið.
Áhugi reyndist vera það mikill að
mér þótti einsýnt að halda áfram og
s. l. vetur sóttu yfir 100 manns þessi
námskeið.
Nú eru í gangi fjögur námskeið
hér í Reykjavík. Hvert þeirra
stendur í 8 vikur í senn og komið er
saman einu sinni í viku. Auk þess
eiga svo þátttakendur kost a 5
vikna framhaldsnámskeiði, ef þeir
óska þess.
- Eru þátttakendur eingöngu úr
Reykjavík?
7 Nei, þeir hafa einnig komið
t. d. frá Selfossi og Akranesi en
auðvitað er ekki hægt um vik fyrir
þá sem langt eiga að fara, að sækja
námskeið hér. Ahugi er hins vegar
mikill á þessari starfsemi víða út
um land, það sýna þær fyrirspurnir
sem ég hef fengið þaðan. Því hef ég
hug á að fara með námskeiðin út á
land, en þá tækju þau styttri tíma,
þáttakendur kæmu saman oftar í
viku.
-Hvernigferþessi kennslafram?
- Að nokkru leyti fer hún fram í
fyrirlestrum en megináhersla er
lögð á rannsóknir á frumheimild-
um um ættir þátttakendanna.
Reynt er að veita fólki fræðslu, sem
gerir því kleift að stunda þessar at-
huganir bæði sem fræðigrein og
tómstundagaman, Fólki er
leiðbeint um heimildaleit, gildi
helmilda og meðferð, ýmsar
hjálpargreinar ættfræðinnar, að-
ferðir við að taka saman niðjatöl og
ættartölur, uppsetningu ættarskráa
o.s.frv., og það fær hér aðstöðu til
að æfa sig á þessu í verki.
Þátttakendur fá f hendur ýmiss
konar heimildaskrár og leiðarvísa
með upplýsingum, bæði um frum-
heimildir og prentaðar heimildir.
Varðandi ættrakningu eftir 1700 er
fólki bent á að nota sem mest frum-
heimildir, einkum kirkjubækur og
svo manntöl. Þátttakendur hafa
aðgang að öllum manntölum frá
1700 til 1930. Til eru 16 manntöl frá
þessu tímabili og fjögur af þeim
hafa verið gefin út. Kirkjubækur
eru tiltækar á microfilmum og svo
eru það auðvitað þær bækur sem út
hafa komið um ættfræði og átt-
hagafræði. En það er grundvallar-
atriði í meðferð þessara heimilda
að menn læri réttar aðferðir til að
rekja slóðina frá einu atriði til ann-
ars í æviferli einstakling og tengs-
lum þeirra við næsta ættliða. Með
þessum hætti er þátttakendum á
námskeiðunum kennt að leiða í
ljós sem traustastar ættfærslur. Um
leið eiga þessar aðferðir og þekk-
ing á heimildunum að geta flýtt
mikið fyrir og auðveldað verkið.
- Nú má sjálfsagt segja að tilgan-
gurinn með þessari starfsemi sé
nokkuð Ijós, en hvernig viltu ann-
ars orða hann?
- Tilgangurinn er sá að svala
fróðleiksfýsn manna um forfeður
sína og ættmenn og gera þeim fært
að uppfylla þá þörf með sjálfstæð-
um rannsóknum. Að gera
mönnum fært að rekja ættir sínar
og annarra af öryggi og kunnáttu
með notkun aðgengilegra heim-
ilda, verða þannig eigin ættar-
skrárritarar.
- Hvað þykir þér hœfilegt að þátt-
takendur séu margir á hverju náms-
keiði?
- Ég vil helst ekki vera með
stærri hópa en 8 manns. Fimm til
sjö manna hópar eru góðir. Þá nær
maður vel til hvers og eins.
Því má svo bæta hér við, að
'ítíiiaii
almenn
enska
ístttsari
xt , k namskeidsins.
Ahersía Jögd á: málfoedi
skriía efiir
upplestri, rilgerölr, lýsln^r
°8 brcl.
It' ttp!c~18-dcs- '
kJ' 13-15 eða 16-18
ALÞJOÐLEG
PRÓFl
ENSKU
VERSLUNAR
ENSKA I
Pitman Knjtlish for
Businesa Communicatioas
— elementary. Kennt er
fjóra datja í viku, tvær
klukkustundir í senn í fjórtán
vikur. Pitmanspróf er tekið í
luk námskeiðsins. Áhersla
lögð á: samin verslunarbréf
eftir ítarlegum minnisatriðum
varðandi kaup og sölu.
kvarlanir, fyrirspurnir o.fl.;
persónuleg bréf fyrir
vinnuveitenda varðandi
meðmæli, hamingjuóskir o.fl.;
móttaka og sending
skilaboða gegnum sima og
telex.
14. sept.-18. des.
kl. 13-15 eða 16-18
TÍMI: H TÍMI:
ENSK
VERSLUNARBRÉF
Skriflegar æfingar i enskutn
verslunarbréfum. 10 vikna
námskeið. Kennt einu sínni í
viku tvær klukkustundir i
senn.
14. sept.-20. nóv.
kl. 13-15 eða 16-18
Vilt þú auka
möguleika þína á
vinnumarkaði?
Stöðugt fleiri störf
krefjast staðgóðrar
kunnáttu í erlendum
tungumálum.
Námskeiðin hjá Mimi
eru einhver
aðgengilegasta leiðin
til þess að bæta
þekkingu þína.
Leitaðu til Mímis —
og málið er leystl
Upplýsingar og innritun í síma 11109/10004/21655
Mímir
■ ÁNANAUSTUM 15
ÁOstkDtl
un asxom
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Er bókvit í þessum öskum?
Málsháttur óskast um stálpotta.
Föstudagur 11. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - S(ÐA 11
Hússtjómunamámskeið:
Fatasaumur
vinsæll
sín eigin föt sjálfur. En allt verð-
mætamat hefur breyst. Ég vil þó
taka fram að ungt fólk sækir matr-
eiðslunámskeið okkar mikið og
karlmönnum fjölgar stöðugt. í vet-
ur bjóðum við einnig upp á bóta-
saum og útsaum, en vitum ekki enn
hvort það fær hljómgrunn. En öll
þessi námskeið verða fram að ára-
mótum, en þá tekur hússtjórnar-
skólinn sjálfur til starfa.
-ekj
Hússtjórnarskóli íslands er að
fara af stað með árviss námskeið
sín og kennir þar margra grasa.
„Fatasaumur, vefnaðarnám-
skeið og almenn matreiðslunám-
skeið eru best sótt hjá okkur. Það
eru nokkurra vikna námskeið,
2svar í viku,” sagði Ingibjörg Þór-
arinsdóttir skólastjóri, „þá eru
styttri námskeið, einn dag eða
nokkra í senn, þar sem við bjóðum
upp á tilsögn í gerbakstri, fiskrétt-
um, veisluréttum, borðskreyting-
um. Við erum alltaf með nýjar
uppskriftir á hverju ári. Slátur-
gerð, laufabrauðabakstur og
kennsla í að frysta grænmeti hafa
fallið niður, því fólk virðist ekki
hafa áhuga. Éinu sinni kenndum
við að steikja á glóðum. En það
virðist sem fólk hafi ekki haft tíma
til að sinna því sem viðkemur heim-
ilinu. Ég trú því samt að það sé
mjög gefandi ef fjölskyldan getur
sameinast um matargerð og átt
þannig góða stund saman einu
sinni á dag. En fólk vinnur of mikið
og notfærir sér þannig okkar þjón-
ustu. Þá er líka gaman að geta gert
Rætt viö
Jón Val
Jensson um
Ættfræöi-
þjónustuna
næsta námsönn byrjar seinnipart-
inn í október. Skráning þátttak-
enda er þegar hafin.
-mhg
PÓLÝFÓNKÓRINN
auglýsir
VETRARST ARF
1. Námskeið
25. september - 4. október
Fyrir félaga í Pólýfónkórnum
Leiðbeinandi: Mauro Trombetta frá Ítalíu.
Þátttökugjald kr. 2.000,-
Innritun hjá raddformönnum.
Staður: Vörðuskóli, Skólavörðuholti.
2. Kóræfíngar
heQast 5. október.
Viðfangsefni: MESSÍAS eftirG.F. Hándel. Flutt
12. desember í HaUgnmskirkju.
Staður: Vörðuskóli, Skólavörðuholti.
Tími: mánudaga kl 20.00 karlaraddir
þriðjudaga kl. 20.00 kvennaraddir
miðvikudaga kl. 20.00 samæfíngar
3. Kórskóli
10 vikna námskeið hefst 8. október.
Námsefni: Heyrnarþjálfun, nótnalestur, öndun og
raddbeiting.
Þátttökugjald: kr. 2.500.-
Staður: Vörðuskóli, Skólavörðuholti.
Tími: kl. 20-22 á fimmtudögum.
Innritun: sími 26611 (Steina), 72797
(Kristján Már), 656799 (Olöf).
ÆFINGASTÖÐIN ENGIHJALLA 8
Upplýsingar og innritun í síma j húsi Kaupgarðs.
46900, 46901 og 46902. SÍMAR 46900, 46901 OG 46902.
Ný námskeið hefjast mánudaginn 7. Allar nýjungar í aerobic
kennslu hjá okkur. Lítið af hoppi. Innritun er hafin.
KVENNALEIKFIMI:
Kvöldtímar byrjenda og framhalds.
ÞREKLEIKFIMI FYRIR KARLA:
Hörkupuð í leikfimisal.
TÆKJASALUR:
Bjóðum upp á stærsta og besta tækjasal á landinu. Þrek-
þjálfun fyrir fólk á öllum aldri, vaxtarrækt og styrkjandi
þjálfun fyrir hvers konar íþróttafólk. Getum tekið á móti
stórum hópum.
KONUR:
Sérþjálfun fyrir konur í tækjasal með upphitun og teygjuæf-
ingum á mánud., miðvikud. og föstud. kl. 14.00.
AEROBIC:
DAGSKRÁ í LEIKFIMISAL:
Mánudag Þriðjudag Miðvikudag Fimmtudag Föstudag Laugardag
kl. 14 Kvennal. kl. kl. 14 Kvennal. kl. 14 kl. 14 Kvennal. kl. 1 1 Aerobic I
kl. 1 8 Aerobic I kl. 18 Aerobic frjálst kl. 18 Aerobic I kl. 18 Aerobic frjálst kl. 12 Aerobic opið
kl. 19 Aerobic II kl. 19 Kvennal. kl. 1 9 Aerobic II kl. 1 9 Kvennal. kl. 1 3 Aerobic II
kl. 20 Aerobic opið kl. 20 Aerobic 1 kl. 20 Aerobic opið kl. 20 Aerobic I kl. 14 Þrek karlar
OPNUNARTÍMI STÖÐVARINNAR
Mánud. 14-22, þriðjud. 12-22, miðvikud. 14-22, fimmtud. 12-22, föstud. 12-21,
laugard. 11-18 og sunnud. 13-16. Ath.! Afsláttur fyrir hópa og skólafólk.
Hringdu strax og láttu innrita þig.