Þjóðviljinn - 11.09.1987, Page 14
Preben Moller Hansen. Sjómaöurinn sem fór í land til að sameina villta vinstrið. Gerist Anker Jörgensen hækja hægri stjórnarinnar?
Danmörk
Hægri stjómin lafir
Tímamótá vinstri vœng danskra stjórnmála
Mú liggja fyrir úrslit í dönsku
kosningunum og hægt að spá í
framvindu stjórnmála þar í landi.
Það er nefnilega svo, að mjög erf-
itt er að spá fyrir um hegðun kjós-
enda, jafnvel nokkrar vikur fram
í tímann, en hegðun stjórnmála-
manna lýtur hins vegar augljós-
um lögmáium. Rándýrar og „vís-
indalegar“ skoðanakannanir geta
í mesta lagi sýnt fram á þá
stemmningu, sem er á meðal kjós-
enda þann dag sem spurt er, en
engan veginn skýrt hana né leitt í
Ijós á hvaða leið hún er. Hins veg-
ar þarf mun einfaldari skýring-
arlíkön til að skýra hugsun og
hegðun stjórnmálamanna en til
að skýra hegðun amöbunnar.
Að vísu skutu kjósendur skoð-
anakönnunum ref fyrir rass. Þær
spáðu flestar velgengni Poul
Schliiters og félaga, en niður-
staða kosninganna varð hins veg-
ar væg vinstri sveifla. Sumir
segja, að skoðanakannanir hafi
þau áhrif á veikgeðja kjósendur,
að þeir kjósi þá sem vegni vel í
könnunum, og ef það er satt, hef-
ur vinstrisveiflan í raun verið
stærri, en áhrif kannana dregið úr
henni. Hins vegar má alveg eins
álykta að þrjóskupúkar kjósi
þvert á móti straumi kannananna
og þær hafi því óvart leitt tii
vinstri sigurs. Eftir áratugs kynni
af Dönum held ég þó að fyrri
hópurinn sé stærri þar í landi og
það væri heimskulegt af Schlúter
að efna nú til nýrra kosninga, því
vinstri sveiflan myndi einungis
magnast.
Eftir kosningarnar er komin al-
ger pattstaða milli hægri og
vinstri blokkanna á danska þing-
inu. FjórflokkarSchlúters virðast
því einungis geta haldist við völd
upp á náð Framfaraflokks Glist-
Breytist bros Paul Schlúters brátt í grettu?
rups, en stoð stjórnarinnar hing-
að til, miðflokkur Róttækra
vinstrimanna, hafnaði þeim kosti
alfarið fyrir kosningar og hefur
enn ekki gefið yfirlýsingar um að
sú afstaða hafi breyst. Þótt verka-
lýðsflokkarnir hafi unnið á, vant-
ar þá enn herslumuninn til að ná
meirihluta.
Pattstaða og
miðjustarf
Jafntefli duga ekki í úrslita-
leikjum, né í stjórnmálum. Því
miður fyrir alþýðu Danmerkur
verður einhver að mynda stjórn.
Hugsanlegur möguleiki er sá, að
Róttæki vinstriflokkurinn éti í sig
stóru orðin og verði stuðnings-
flokkur fjórflokkastjórnarinnar
ásamt Framfaraflokki Glistrups.
Þá er komin upp sama staða og
var í upphafi valdaferils Schlút-
ers, frá september 1982 og fram í
desember 1983. Allar stjórnarað-
gerðir voru afgreiddar í
„pökkum", og fyrst samdi
Schlúter við stjórnarflokkana,
síðan við Róttæka Vinstriflokk-
inn og loks við Glistrup. Stund-
um þurfti hann að fara margar
umferðir, og slík stjórn verður
aldrei mjög virk né sterk. Loks
var Schlúter þá kominn upp á náð
krata um samþykkt fjárlaga, því
auðvitað greiða Glistrup og fé-
lagar ekki atkvæði með fjár-
lögum, sem láta meira en heim-
ing af öllum þjóðartekjum Dana
fara um hendur ríkisvaldsins.
Fyrir fjórum árum féll ríkisstjórn
Schlúters einmitt á því að kratar
neituðu að samþykkja fjárlög
hennar (en það „ábyrgðarleysi"
varð krötum ekki til framdráttar,
því að í næstu kosningum losnaði
Schlúter undan því oki að þurfa
að reiða sig á stuðning Framfara-
flokksins).
Enn eitt atriði dregur úr-fýsi-
leika þessa kosts: Fyrir 4-5 árum
sat Glistrup í fangelsi, rúinn
öllum áhrifum, og Schlúter gat
beitt alkunnum refskap sínum til
að leika á þá fremur einföldu ein-
staklinga sem fylla þingflokk
hans. En nú er skálkurinn sjálfur
mættur til leiks og stjórnar sínum
mönnum, þannig að séð er fram á
snúnar samningaviðræður.
Loks er Róttæki Vinstriflokk-
urinn ekki enn búinn að fallast á
þetta stjórnarmynstur, þótt hann
hafi bent á Schlúter sem forsætis-
ráðherra. Þessi flokkur er að vísu
frægur fyrir „já, já, nei, nei“-
afstöðu, eða eins og „Svar mitt er
klárt og ótvírætt: kannski!" Hins
vegar er flokkurinn vandur að
virðingu sinni og ber þess utan,
ásamt krötum, höfuðábyrgð á
uppbyggingu danska velferðar-
samfélagsins. Því á flokkurinn
afar erfitt með að starfa með
Framfaraflokknum.
En hvað er þá til ráða? Ein-
hverja stjórn verða stjórnmála-
menn að mynda. Vinstri stjórnin
hefði verið í vonlausum minni-
hluta, svo að Schlúter gerðist
djarfur og endurreisti fjórflokka-
stjórnina upp á von og óvon,
Hann treystir á að henni takist að
sigla á milli hægra ofstækis Fram-
faraflokksins og krafna Sósíald-
emókrata um félagslegt öryggi,
en e.t.v. ætlar hann að styðjast
við þessa flokka til skiptis.
Slík stjórn verður tæpast lang-
líf, og er skemmst að minnast
svipaðra aðfara Ankers Jörgen-
sen í upphafi þessa áratugar, en
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. september 1987