Þjóðviljinn - 11.09.1987, Page 20
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Wm K m K m
BWj>. M ÍPHfcBI R Bl
....i
548
j • v-*&
Helgarsími
681663
Föstudagur 11. september 1987 200. tölublað 52. öroangur
SKÓLAVELTA
l£ON
AÐ FARS^ELLI
SKÓLACÖNCU
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDSHF
Kvótamálið
Þingvallavatn
Skúli Alexandersson hefur
g kúli Alexandersson hefur kært um 40 hús,
kærir
kœrt úrskurð sjávarútvegsráðuneytisins
úrskurð sjávarútvegsráðu-
neytisins á hendur Jökli á Heliis-
sandi, um upptöku afla að and-
virði rúmlega ein og hálf milljón
króna. I kærunni krefst Skúli
þess að úrskurðurinn verði látinn
falla úr gildi að því er varðar afla-
upptöku. Kæran var send ráðu-
neytinu 3. september.
f bréfinu færir Skúli þau rök
fyrir kröfu sinni að hann telji úr-
skurðinn með öllu órökstuddan.
í öðru lagi að ráðuneytið hafi
ekki gefið kaupendum og selj-
endum meints ólöglegs sjávarafla
kost á að gera grein fyrir máli
sínu, þar sem ráðuneytið hefur
ekki haft neitt samband við út-
gerðaraðila þeirra skipa, sem
lögðu upp afla hjá Jökli árið
1986. í þriðja lagi segir Skúli að
ráðuneytið gefi sér forsendur,
sem ekki standist í raunveruleik-
anum, varðandi magn fullunn-
innar vöru úr upplögðum sjávar-
afla hjáJökli. Segir hann að ráðu-
neytinu hafi þegar verið gerð
fullnægjandi grein fyrir þeim
fiski, sem kom inn í fiskverkunar-
hús Jökuls umrætt ár, enda hafi
ráðuneytið engar sannanir fyrir
hinu gagnstæða.
Pórður Eyþórsson hjá sjávar-
útvegsráðuneytinu sagði í gær að
kæran hefði borist ráðuneytinu
en hvorki verið skoðuð né tekin
til meðferðar. Hann sagðist ekki
vita hvort þetta væri eina athuga-
semdin sem hefði borist frá þeim
fimm fiskverkunarhúsum sem
hefðu verið kærð.
Alls hefur ráðuneytið heimsótt
valin af handahófi
víðsvegar um landið, en aðeins
verið ástæða til að gera athuga-
semdir við fimm þeirra og þau öll
á Vesturlandi og Vestfjörðum.
-Sáf
Tólf punda urriði
Það bar til tíðinda í nýlegri
veiðiferð að tólf punda urriði
veiddist á stöng í Þingvallavatni, í
Vatnsvikinu við þjóðgarðinn.
Fágætt er að svo stór urriði
veiðist hin síðari ár. í gamla daga
var hins vegar mikið stóran urr-
iða og getur Björn Th. Bjömsson
um það í Þingvallabók sinni að
heimildir séu um allt að 37 punda
urriða úr vatninu. -m/ÖS
Flugleiðir
Þota spöruð
DC 8 þota okkar TF-FLV fer í
stórskoðun í janúar næstkom-
andi og það er miðað við 25 þús-
und flugtíma hverju sinni þegar
viðkomandi þota á að fara í
skoðun sem þessa. A meðan
spörum við hana eins og við frek-
ast getum án þess þó að það komi
niður á okkar þjónustu, segir Sœ-
mundur Guðvinsson blaðafulltrúi
Flugleiða.
Glöggir lesendur Þjóðviljans
höfðu tekið eftir því að þessi þota
Flugleiða hafði verið sett til hlið-
ar á Keflavíkurflugvelli og höfðu
þess vegna samband við blaðið til
að láta undrun sína í ljós yfir því
að þotan skyldi ekki vera í notk-
un eins og aðrar vélar félagsins.
„Þar sem komið er á seinni
hlutann með þann flugtíma þot-
unnar þótti okkur rétt að minnka
á henni álagið þangað til hún fer
út til Stokkhólms til skoðunar.
Það kemur ekki að sök hjá okkur
þar sem mesti annatími sumars-
ins er liðinn og vetraráætlun að
hluta til er að komast í gagnið.
TF-FLV er notuð í áætlunarflugi
á milli Amenku og Evrópu og
þessa stundina er hún í notkun,
en hún fær meiri hvfld en aðrar
þotur okkar af fyrrgreindum
ástæðum,” sagði Sæmundur
Guðvinsson blaðafulltrúi Flug-
leiða. grh
Sænski ferjuflugmaðurinn Ruben Werjefelt hefur ríka ástæðu til að brosa og flagga flotgallanum sínum með sigurmerkið
hátt á lofti eftir að hann bjargaðist á giftusamlegan hátt, án meiðsla, eftir að hafa nauðlent eins hreyfils flugvél sinni
Cessna 172, sams konar þeirri sem er í bakgrunni myndarinnar, 140 sjómílur út af Reykjanesi. (Mynd: E.OI.)
Flugslys
Flotgalinn
bjargaði mér
Eg varð skraufþurr í kverkun-
um þegar ég sá sjóinn nálgast
óðfluga og tilfinningin hjá mér
var eins og maður getur ímyndað
sér að sé hjá manni sem er stillt
upp fyrir framan aftökusveit,
segir Ruben Werjefelt, fertugur
ferjuflugmaður frá Linköbing í
Svíþjóð, sem nauðlenti á leiðinni
yfir haflð frá Bandaríkjunum á
eins hreyfils flugvél, Cessna 172,
140 sjómflur út af Reykjanesi.
Seint í fyrrinótt þegar hann var
kominn framhjá Grænlandi
reyndust eldsneytisbirgðirnar
komnar að þrotum og fyrirséð að
hann næði ekki til Reykjavíkur.
Sjálfur segist hann hafa haft
nægilegt eldsneyti þegar hann
lagði af stað og telur sennilegast
að í staðinn fyrir að hafa dælst
milli tanka hafi eitthvað bilað og
bensínið farið út í loftið.
Flugvél Flugmálastjórnar kom
í tæka tíð til að geta miðað hann
út þegar hann þurfti að nauð-
lenda í hafið. Við nauðlending-
una stakkst vélin á bakið og hann
komst út á einn vænginn, en
þurfti að vera í sjónum hátt í
klukkutíma, áður en björgunar-
þyrla frá Keflavíkurflugvelli kom
og hífði hann upp.
„Það vildi mér til happs að ég
var vel búinn í flotgalla og með
neyðarljós, svo ég gat sent upp
ljósmerki til þess að hægt yrði að
sjá hvar var ég var staddur í sjón-
um í myrkrinu. Það var þó nokk-
ur öldugangur og hvasst þegar ég
nauðlenti, en þetta gekk sem bet-
ur fer allt að óskum.”
Hann hefur komið hingað til
lands 15 sinnum áður og ætlar að
koma eftir hálfan mánuð með
nýja flugvél sem hann ætlar að
ferja yfir hafið. „Þá mun ég ör-
ugglega borga lendingargjöldin
mín, þó svo að af skiljanlegum
ástæðum hafi ég ekki gert það í
þetta sinn,” sagði Ruben. grh
Loðnuverð
Hvetur ekki til veiða
Þetta loðnuverð er svo lágt að
það er ekki hægt að skilja það
öðru vísi en það sé í raun frjálst.
Það er borin von að sjómenn sigli
til loðnuveiða nema loðnuverk-
smiðjurnar borgi hærra verð
fyrir tonnið en yfírnefnd samþyk-
kti í fyrradag. Þetta verð ýtir ekki
við neinum til loðnuveiða,” segir
Hólmgeir Jónsson hagfræðingur
hjá Sjómannasambandi íslands.
Yfirnefnd samþykkti á fundi í
fyrradag lágmarksverð fyrir
loðnu til bræðslu með tveimur at-
kvæðum kaupenda á móti einu
atkvæði útgerðarmanna. Fulltrúi
sjómanna og oddamaður sátu
hjá. Samþykkt var að borga 1600
krónur fyrir tonnið og breytist
verðið miðað við breytingar á
fituviðmiðun.
Jón Reynir Magnússon hjá
Sfldarverksmiðjunum sagði að
þetta loðnuverð væri kannski við-
unandi, en gæfi þó tilefni til yfir-
borgana eins og tíðkaðist hér
áður fyrr.
Sverrir Leósson útgerðarmað-
ur greiddi atkvæði gegn kaupend-
um. Hann tók undir það með sjó-
mönnum að þetta verð laði menn
ekki til að fara á loðnuveiðar,
eins og staðan væri í dag. „Kaup-
endur vildu ekki fallast á frjálst
loðnuverð en samþykkja svo
þetta verð sem gerir loðnuverðið
nánast frjálst. Maður skilur bara
ekki þennan skollaleik, enda
ekki að furða þar sem ég er ný-
græðingur í að sitja í nefndum
sem þessari. En það er ljóst að ég
held að mér höndum í bili og sé til
hvað gerist. Krossanesverk-
smiðjan er þegar búin að kasta
fyrsta boltanum með því að bjóða
3 þúsund krónur fyrir fyrsta
loðnufarminn og 2500 fyrir ann-
an, að öðru leyti 1800-2000 krón-
ur fyrir hvert tonn. Ætli maður
eigi ekki eftir að heyra eitthvað
meira frá loðnuverksmiðjunum
áður en maður hugsar sér til
hreyfings,” sagði Sverrir.
grh