Þjóðviljinn - 16.10.1987, Síða 8

Þjóðviljinn - 16.10.1987, Síða 8
r HEIMURINN Taiwan Liðkað fyrir Kínaferðum Bann við ferðalögum eyjarskeggja til meginlandsins senn afnumið. Tekurþó aðeins tilþeirra sem eiga nána œttingja í Alþýðulýðveldinu Senn kemur aö því að túristar frá T aiwan geti spókaö sig á Kínverska múrnum rétt eins og aðrir. Aflétting farbannsins nær þó aðeins til lítils hluta eyjarskeggja. Guomindang, stjórnarflokkur- inn á Taiwan, lýsti því yfir í vikunni að bann við ferðalögum landsmanna til Kínverska al- þýðulýðveldisins yrði afnumið. Þetta skref markar nokkur tíma- mót í samskiptum eyjarskeggja við meginlandið, en stjórnvöld í Taipei hafa jafnan haldið því fram að þau séu hin einu sönnu í Kínaveldi. Enda þótt farbanninu verði aflétt er ekki þar með sagt að óheftur túrismi og frjáls verslun milli landanna komist á, en sú krafa hefur lengi verið uppi á Ta- iwan. í tilkynningu Guomindang segir að þeim íbúum einum sem eiga nána ættingja á megin- landinu verði leyft að fara í heim- sókn. Eftir sem áður eiga her- menn og embættismenn á eyjunni enga möguleika á slíku ferðalagi. Mikill meirihluti íbú- anna er Taiwanskur að uppruna, og ferðafrelsið nær ekki heldur til þeirra. Um tvær milljónir manna, þar á meðal 600.000 hermenn, flúðu til Taiwan með stjórnvöldum Gu- omindang árið 1949, og komu sér yfir sundið milli eyjarinnar og Fujian-fylkis á smábátaflota, er herir kommúnista unnu fullnaðarsigur í borgarastyrjöld- inni sem þá hafði geisað í landinu. Púsundir Taiwanbúa hafa ferð- ast til meginlandsins á laun á und- anförnum árum. Með því hafa þeir lagt sig í nokkra hættu, því ef upp um þá kemst er litið á þá sem svikara og þeir njóta ekki lengur ferðafrelsis. Tilkynning stjórnvalda á Taiw- an kemur í framhaldi af ýmsum öðrum breytingum í þíðuátt sem erst hafa á eynni að undanförnu. júlí var herlögum aflétt, fyrir- heit voru gefin um að dregið yrði úr eftirliti með fjölmiðlum og fleiri flokkar en Guomindang voru leyfðir. Nú virðist röðin komin að þeim póltíska mála- flokki sem viðkvæmastur er; tengslunum við Pekingstjórnina. Ekkert þykir benda til þess að Guomindang viiji taka upp við- ræður við þessa helstu óvini sína um sameiningu landsins. Þvert á móti segjast talsmenn stjórnarf- lokksin's vera að taka áróðurslegt frumkvæði með afnámi far- bannsins, með því að leyfa fólki að hittast og stuðla að menning- arlegum samskiptum. Sú hugsun býr að baki að ferðalangarnir frá Taiwan verði gangandi auglýs- ingar fyrir blómstrandi kapítal- isma heimafyrir, og að hugmynd- ir þeirra um pólitískt frelsi falli í frjóan svörð á meginlandinu. Tilslakanirnar komu eftir mót- mælaaðgerðir ýmissa hermanna á eftirlaunum, sem kröfðust þess að fá að hitta ættingja sína. Marg- ir eru einmana og lifa í sárri fá- tækt, og málstaður þeirra hefur vakið mikla samúðarbylgju á Ta- iwan. Ýmsir kaupsýslumenn sjá aukin tengsl við Kína í rós- rauðum bjarma. Þeir vonast til að koma á beinum viðskiptatengsl- um við meginlandið og jafnvel setja þar upp verksmiðjur. Stjórnmálaskýrendur eru efins um að hægt verði að takmarka ferðir til Kínverska alþýðulýð- veldisins. Ferðaskrifstofumenn búast við flóði pantana, og segja að fjölmargir vilji fara yfir og skoða sig um. Fyrir sitt leyti hafa kínversk stjórnvöld stuðlað að því í áravís að taiwanskir ferðamenn kæmu í heimsókn. í því skyni hafa þeir fengið vegabréfsáritun sem ekki er færð inn í vegabréf. Og þar með eru stjórnvöld engu nær heimafyrir um þeirra reisur. Kínversk stjórnvöld hafa einn- ig hvatt til aukinna viðskiptalegra og menningarlegra samskipta, en yfirlýst markmið þeirra er frið- samleg sameining meginlandsins og Taiwan. HS SKÁK Anatoly Karpov Um Karpov má segja það sama og Kasparov. Ferill hans var ein óslitin sigurganga þar til Kaspar- ov kom fram á sjónarsviðið. An- atoly Karpov er í vissum skilningi skáksaga síðustu 15 ára holdi klædd. Hann hefur unnið fleiri skákmót en nokkur annar og er virkasti þátttakandi á skák- mótum sem um getur. Reyndin var um nær alla sem áunnu sér heimsmeistaratign að þeir drógu sig úr þátttöku á mótum en því var þveröfugt farið með Karpov. Hann varð heimsmeistari án keppni árið 1975 er Bobby Fisc- her neitaði að verja titil sinn vegna deilna um reglur einvígis- ins og Karpov fann hjá sér sterka þörf til að sanna sig sem verðugan heimsmeistara og tefldi á hverju mótinu á fætur öðru og vann jafn- an sigur. Flann vakti fyrst verulega at- hygli er hann varð heimsmeistari unglinga í Stokkhólmi 19 ára gamall árið 1969. Hann varð efst- ur í Aljékin-mótinu í Moskvu 1971 ásamt Leonid Stein, hlaut 11 vinninga úr 17 skákum og þá var farið að ræða um hann í ftillri alvöru sem verðandi heimsmeist- ara og keppinaut Fischers eftir að Fischer sigraði Spasskí í Reykja- vík 1972. Karpov sigraði í Hast- ings um áramótin 1972 ásamt Kortsnoj 1971/72 og varð í 1.-3. ásamt Portisch og Petrosjan í San Antonio 1972. Tefldi sem 1. vara- maður í Skopje á olympíuskák- mótinu og vöktu fágaðar vinn- ingsskákir hans þá mikla athygli. Árið 1973 skein frægðarsól hans skært. Hann sigraði á millisvæð- amótinu í Leningrad ásamt Kortsnoj, hlaut 13'/2 v. úr 17 skákum, sigraði síðar um árið á sterku móti í Madrid með 11 vinninga úr 15 skákum. 1974 hófst áskorendakeppnin og Karpov náði að brjóta sér leið gegnum helstu merkisbera so- véska skákskólans. Hann sigraði fyrst Polugaevskí 5Vi:2xh, síðan Spasskí 7:4 og loks Kortsnoj 12Vz:11V2. Þeir Spasskí og Korts- noj kvörtuðu yfir ójöfnum að- stæðum og einvígið við Kortsnoj dró dilk á eftir sér. 1976 yfirgaf Kortsnoj fósturjörðina og hefur búið í Sviss æ síðan. Fischer neitaði að verja titil sinn í einvígi sem Filippseyingar hugðust halda. Þeir buðu ' erð- launafé sem nam 5 milljónum bandaríkjadala. Marcos, þá for- seti landsins, átti stóran þátt í til- boði Filippseyinga. Karpov tefldi á hverju mótinu á fætur öðru og tvívegis tefldi hann við Kortsnoj um heimsmeistaratitilinn. Þeir mættust í Baguio 1978 og Karpov sigraði 6:5 með 21 jafntefli. Ein- vígið var æsispennandi og gengu klögumálin á víxl. Karpov komst í 5:2 en Kortsnoj jafnaði 5:5. Karpov vann síðan úrslitaskákina og hélt titlinum. Honum var tekið sem þjóðhetju í Sovétríkj- unum og náði geysilegum pólit- ískum völdum, ekki aðeins í skáklífinu. 1981 mættust þeir aft- ur Kortsnoj og Karpov en einvíg- ið var jafn áreynslulaust og hin tvö höfðu verið erfið Karpov. Hann sigraði 6:2 með 10 jafnteflum. Þá varð mönnum ljóst að gamla kynslóð skák- meistaranna hafði ekki roð við Karpov. Of langt mál yrði að telja sig- urgöngu Karpovs en eftir að hann varð heimsmeistari vann hann fimm Interpoli-mót, sigraði þrí- vegis f Bugonjo, varð efstur ásamt Tal á stórmótinu í Montre- al, sigraði á IBM-mótinu 1980, vann fjölmörg skákmót með tak- mörkuðum þátttakendafjölda s.s. í Amsterdam 1976. Hann varð sovétmeistari í skák 1976 og 1983. Karpov tefldi á 1. borði í so- vésku olympíusveitinni 1980 og 1982 og átti drjúgan þátt í sigrum Sovétmanna. Hann gat ekki teflt á olympíuskákmótinu í Buenos Aires 1978 en þar urðu Sovét- menn í fyrsta og eina skiptið að láta sér lynda annað sætið. Áhrif Karpovs á þróun skáklistarinnar eru óumdeild. Rétt eins og Fisc- her, Tal, Botvinnik, Aljékin og Kasparov hefur hann bætt við skilning manna á mikilvægum þáttum skákarinnar. Virk fyrir- byggjandi taflmennska er ein- kenni Karpovs samfara geysilegri baráttugleði og oft á tíðum ótrú- legri þrautseigju. Hann er tví- mælalaust í hópi fimm mestu skákmanna allra tíma. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 16. október 1987

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.