Þjóðviljinn - 16.10.1987, Qupperneq 10
ALÞÝÐUBANDALAGK)
MINNING
Alþýðubandalagiö Hafnarfirði
Aðalfundur Bæjarmálaráðs
Aðalfundur Bæjarmálaráðs ABH verður haldinn í Skálanum, Strandgötu
41, laugardaginn 17. október kl. 10.00
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Drög að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarfyrirárið 1988-Magnús Jón
Árnason hefur framsögu.
3) Starfsáætlun vetrarins.
4) önnur mál.
Guðmundur Bjömsson
veggfóðrari
Fœddur 5.4. 1904 - Dáinn 7.10. 1987
Alþýðubandalag Borgarness og nágrennis
Félagsfundur
Félagsfundur í Röðli laugardaginn 17. október kl. 14.00.
Dagskrá: 1) Kosning fulltrúa á landsfund. 2) Onnur mál. Stjórnln
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráðstefna
Bæjarmálaráðstefna Alþýðubandalagsins á Akureyri 19. október
klukkan 20.30 í Lárusarhúsi.
Dagskrá fundarins: 1. Kjaramál. 2. Dagskrá bæjarstjórnar. Stjórnin
Alþýðubandalagið Kjósarsýslu
Aðalfundur
Ólafur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Kjósarsýslu verður haldinn miðvikudag-
inn 28. október kl. 20.00 í Hlégarði.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Önnur mál.
Sem sérstakir gestir á fundinn koma þeir: Svavar Gestsson form. Alþýðu-
bandalagsins, Geir Gunnarsson alþm., og Ólafur Ragnar Grímsson vara-
þingm. Munu þeir flytja stutt ávörp í tilefni Landsfundar og ræða flokksstarf-
ið, einnig munu þeir fjalla um það sem efst er á baugi í stjórnmálunum.
Félagar eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti á fundinn.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra
Kjördæmisráðstefna í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldin laugar-
daginn 17. október kl. 10.00 í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18 Akureyri.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Skýrsla kosningastjórnar og reikningar.
3. Útgáfumál og flokksstarf.
4. Efnahags- og atvinnumál. Framsaga.
5. Stjórnmálaályktun. Framsaga.
6. Kosningar - almennar umræður - önnur mál.
Áætluð þingslit kl. 18.00.
Kvöldvaka Stjórn kjördæmisráðs
AB Akranesi
Aðalfundur
Aðalfundur AB Akranesi verður í Rein laugardaginn 17.10. klukkan 14.00.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Áherslupunktar landsfundar 3.
Kosning fulltrúa á landsfund 4. Kosning fulltrúa á aðalfund kjördæmisráðs.
5. Önnur mál. stjórn|n
Landsfundur Alþýðubandalagsins
Skrifstofa flokksins minnir á 2. mgr. 14. gr. laga Alþýðubandalagsins:
„Þegar boðað er til reglulegs landsfundar skulu grunneiningar hafa lokið
kjöri fulltrúa á landsfund þremur vikum áður en hann er haldinn."
Þar sem landsfundurinn verður settur 5. nóvember skal kjöri fulltrúa vera
lokið eigi síðar en 15. október.
Þess er vænst að fulltrúatal hafi borist skrifstofunni eigi síðar en 22.
október. Flokksmiðstöð Alþýðubandalagslns
ABR
Greiðið félagsgjöldin
Alþýðubandalagið í Reykjavík hvetur félagsmenn til að greiða heimsenda
gíróseðla sem allra fyrst. Stjórnln ■
Alþýðubandalagið Reykjanesi
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs verður haldinn laugardaginn 24. október kl.
14.00 í Þinghóli, Kópavogi.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin
Alþýðubandalagið Skagafirði
Félagsfundur á Sauðárkróki
Alþýðubandalagsfélag Sauðárkróks heldur félags-
fund í Villa Nova n.k. föstudagskvöld 16. október kl.
20.30.
Dagskrá: 1) Kosning fulltrúa á landsfund. 2) önnur
mál.
Ragnar Arnalds alþm. mætir á fundinn.
Mummi, eins og mér var tam-
ast að kalla hann, var fæddur í
Reykjavík, sonur hjónanna Jón-
ínu Jensdóttur og Björns Björns-
sonar veggfóðrara.
Hann lærði iðnina, eins og
tveir bræður hans, af föður sínum
og vann síðan við hana lengst af
og þá mest í félagi við bróður sinn
Jóhannes. Þriðji bróðirinn sem
vann við þessa sömu iðn var
Guðjón. En áður var Guðmund-
ur búinn að stunda ýms störf, þar
á meðal sjómennsku. Sigldi á ís-
lenskum og norskum flutninga-
skipum og var seinast á gamla
Gullfossi. Hann fór víða þegar
hann var til sjós - sagðist hafa
komið til fjórtán landa.
Mummi gerðist snemma rót-
tækur og gekk fljótlega í Kom-
múnistaflokkinn við stofnun hans
1930. Þegar ég spurði hann ein-
hvern tíma að því hvers vegna
hann hefði orðið svona mikill
kommi, svaraði hann því til , að
ef til vill hefði hann séð eymdina
þegar hann kom í erlendar hafn-
arborgir. Sagðist svo hafa farið
að bera þetta saman við ástandið
heima.
Eitt sinn þegar ég var að spyrja
hann um pólitíkina eins og hún
var þegar hann var ungur, sagði
hann mér frá Dreifibréfsmálinu
svokallaða 1941. Sagði hann að
það mál hefði ekki síst orðið til að
herða sig í baráttunni. Málið var í
aðalatriðum þannig vaxið að
nokkrir menn dreifðu fjölrituðu
bréfi á ensku meðal breskra her-
manna, sem gengið höfðu í upp-
skipunarvinnu Dagsbrúnar-
manna, sem voru í verkfalli.
Voru átta menn handteknir ólög-
lega í kjölfar þessa og þrír þeirra
sendir til Englands í fangelsi.
Eða þá Gúttóslagurinn 1932.
Sagði Mummi að sá atburður
hefði hert margan manninn sem
þar barðist fyrir brauði sínu og er
áreiðanlega ómögulegt fyrir okk-
ur sem nú erum á dögum að setja
okkur í spor þessa fólks sem þar
barðist.
En svo undarlegt sem það gæti
ef til vill virst einhverjum þeirra
sem les þetta þá var hann
Mummi, þessi eldrauði kommi,
innilega trúaður. Trú hans fólst
kannski meðal annars í því sem
hann sagði einhvern tíma: „Já, ef
það hefði nú verið farið eftir því
sem hann sagði, smiðssonurinn.”
Svo var hann Mummi mikill
áhugamaður um „spíritisma”.
Reyndar var hann mjög næmur á
því sviði - hafði miðilshæfileika.
Einnig hafði hann mikla trú á
draumum og heyrði ég hann oft
segja frá draumum sínum; m.a. í
hverjum honum fannst hann
koma á ýms tilverusvið. í því
sambandi minnist ég þess að
hann sagðist einhvern tíma hafa
rætt við meistara Þóberg um þau
mál og hefði farið vel á með
þeim.
Mummi var skapmaður mikill,
en grunnt var á gamanseminni.
Minnist ég í því sambandi sögu
sem hann sagði mér af því þegar
hann var á togara og þeir voru að
leggjast að í Grimsby. Datt þeim
sem stóðu frammi á hvalbak allt í
einu í hug að fara að kyrja „Eld-
gamla ísafold”. Sagði hann að þá
hefðu „Tjallarnir” á kajanum
rifið ofan húfurnar í þeirri trú að
íslendingarnir væru að syngja
breska þjóðsönginn.
Guðmundur kvæntist eftirlif-
andi konu sinni, Þórheiði Sumar-
liðadóttur, árið 1930. Þau áttu
einn kjörson, Aðalstein, en hann
lést árið 1948, aðeins 16 ára gam-
all.
Mummi minn. Ég minnist með
eftirsjá þeirra stunda þegar ég sat
hjá þér í litla súðarherberginu á
Þinghólsbraut 19 í Kópavoginum
og þú talaðir um „pólutík”, spírit-
isma og drauma. Þetta var rétt
upp úr 1960 og haustið 1965 flutt-
um við Gyða og krakkarnir hing-
að austur á Selfoss. Og alltaf vor-
uð þið Þóra fyrstu gestirnir til
okkar á vorin. Það var eitthvað
hátíðlegt við þá daga. Og grunnt
var á pólitíkinni hjá þér þegar þú
dróst upp úr blússuvasanum
þennan ómissandi brjóstsykurs-
poka, helltir úr honum á eldhús-
borðið og skiptir innihaldinu
hnífjafnt á milli krakkanna, segj-
andi um leið: „Nú skiptum við
þjóðarkökunni.”
Hvernig gat farið saman hjá
þér, Mummi; spíritisminn,
draumarnir og þessi róttækni?
Það skilja þeir sem þekktu þig
vel.
Ég vona að nú sértu kominn á
þitt óskaplan, Mummi minn,
hvar sem það nú er.
Ég sakna þín.
Ólafur Th. Ólafsson
ALÞYDUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið
Starfshópur um utanríks- og friðarmál
Fundur verður haldinn í Miðgarði, Hverfisgötu 105 Reykjavík, 4. hæð
fimmtudaginn 22. október kl. 20.30.
Dagskrá: Undirbúningur málefna fyrir Landsfund.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Nesjahreppi
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins Nesjahreppi verður haldinn sunnudaginn
18. október kl. 17.00 á kaffistofu Jökuls hf.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Kosning fulltrúa í kjördæmisráð.
3) Kosning fulltrúa á Landsfund.
Stjórnin.
Alþýöubandalagið Blönduósi og nágrenni
Aðalfundur
Alþýðubandalagsfélag Blönduóss og nágrennis
boðar til aðalfundar í hótelinu á Blönduósi, sunnu-
daginn 18. október kl. 16.00.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Kosning fulltrúa á Landsfund.
3) Steingrímur J. Sigfússon alþm. mætir og ræðir
stjórnmálaviðhorfin. Stjórnin Steingrímur
Alþýðubandalagið á Siglufirði
Félagsfundur
verður haldinn sunnudaginn 18. október klukkan 14 á Suðurgötu
10. Dagskrá: 1. Landsfundur Alþýðubandalagsins 2. Bæjarmál 3.
Vetrarstarfið. Stjórnin
Alþýðubandalagið í Neskaupstað
Aðalfundur
Alþýðubandalagið í Neskaupstað boðar til aðalfundar að Egilsbraut
11 (Kreml), sunnudaginn 18. október kl. 16.00.
Dagskrá: Kosning stjórnar og fulltrúa á landsfund. Önnur mál.
Félagar mætið vel og stundvíslega. Stjórnin
ÆSKULYÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík
Fundaröð ÆFR
ÆFR gengst fyrir fundaröð í október um eftirfarandi málaflokka:
Fimmtudaginn 22. október: Umhverfis- og utanríkismál.
Þriðjudaginn 27. október: Dagvistun og menntamál.
Allir velkomnir - ÆFR
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði
Félagsfundur
ÆFHA boðar til félagsfundar þriðjudaginn 20. októþer kl. 20.30 í Skálanum,
Strandgötu 41.
Dagskrá: 1) Kynning vetrarstarfs. 2) Fjármál. 3) Húsnæði. 4) Landsfundur.
5) Önnur mál.
Hvetjum félaga til að mæta.
Stjórnin.
Ragnar
10 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN