Þjóðviljinn - 25.10.1987, Page 3
„Geigur, gröf og gildra koma
yfirþig, jaröarbúi. Sá sem flýr
undan hinum geigvæna gný,
fellur í gröfina, og sá sem
kemstupp úrgröfinni, festistí
gildrunni, því aö flóðgáttirnar
á hæðum Ijúkast upp og
grundvöllur jarðarinnar
skelfur; jörðin brestur og
gnestur, jörðin rofnar og
klofnar; jörðin riðar og iðar;
jörðin skjögrar eins og drukk-
inn maður, henni svipar til og
frá eins og vökuskýli; mis-
gjörð hennar liggur þungt á
henni, hún hnígur og fær eigi
risið upp framar."
Jesaa, 24,17-20
Ekkeit píanó
í kjamorku-
byrginu
0 Námskeið fyrir fólk sem vill
kynnast sjálfu sér betur. Nám-
skeið hefur að markmiði að auka
næmi á eigin tilfinningar (lífefling)
og kanna leiðir til útrásar og úr-
vinnslu tilfinningalegra hnúta.
Með líkamsæfingum, „réttri"
öndun og útrás gefst einstak-
lingnum aukið þor til að horfast í
augu við og taka ábyrgð á tilfinn-
ingalegu ástandi sínu.
Námskeiðið fer fram á miðvik-
udagskvöldum kl. 20 - 23 að
Laugavegi 43, frá 27. október -
8. desember.
Leiðbeinandi Gunnar Gunn-
arsson. Upplýsingar og skráning
í síma 21984 og 12077.
# Mál og menning hefur gefið út
þrjár kiljur með verkum rússn-
eskra öndvegishöfunda.
Glæpur og refsing er ein
frægasta skáldsaga Fjodors
Dostojevskís. Hún kom fyrst út
hjá Máli og menningu árið 1984 í
íslenskri þýðingu Ingibjargar
Haraldsdóttur. Sagan gerist í
Pétursborg á árunum upp úr
1860; ört vaxandi stórborg, ið-
andi af litríku mannlífi. í miðdepli
er einfarinn Raskolníkof, tötrum
búinn stúdent sem svífst einskis
til þess að gera stórmennsku-
drauma sína að veruleika.
Skáldsagan Dauðar sálir eftir
Nikolaj Gogol er háðsk lýsing á
því ástandi sem ríkti í Rússlandi á
4. áratug síðustu aldar. Aðalper-
sónan, hinn kostulegi Tsjitsjikof,
er óprúttinn braskari sem gerir
sér dauðar sálir að féþúfu en
hverfur svo með alla peningana.
Frásögnin er í ríkum mæli gædd
þeirri kímni og orðsnilli sem höf-
undurinn varð svo þekktur fyrir.
Magnús Magnússon þýddi sög-
una sem kom fyrst út hér á landi
árið 1950 en hefur nú um langt
árabil verið ófáanleg. Um þessar
itiundir sýnir Ríkissjónvarpið
myndaflokk sem byggður er á
þessari sögu Gogols.
Allar kiljurnareru prentaðar hjá
Norhaven bogtrykkeri a/s í Dan-
mörku en Teikn sá um hönnun á
kápum.
Ari og Beta eru ung og vel
stæð hjón. Hann ertölvufræð-
ingur áframabraut og talinn
mjög fær í starfi sínu. Hún er
píanóleikari, sem lagði ást-
ríðuna á hilluna, eftir gifting-
una, svo hún gæti helgað sig
hjónabandinu. Hún hefurþó
einn nemanda, sem hún
kennir heima. Það er unga
stúlkan Lilja.
Þau hafa byggt sér kjarnorku-
byrgi í kjallaranum, sem enginn
má vita um. Ari hefur útbúið það
fullkomlega tæknilega séð; þar er
hægt að reikna út mengun í lofti
og annað sem að haldi gæti kom-
ið, ef sprengjan springur. Áhuga-
mál hennar hafa hins vegar
„gleymst". Það er ekkert píanó í
byrginu. Hjónin ákveða að taka
æfingu og dvelja niðrí byrginu, til
að sjá hvernig það reynist. Þá fer
margt öðruvísi en ætlað er og vist-
in reynir á þolrif hjónabandsins í
einangrun byrgisins. Þegar allt er
komið í óefni, slysast nemandi
Betu inn í byrgið, og hefur það
mjög alvarlegar afleiðingar í för
með sér.
Leikfélag Akureyrar frum-
sýndi í gærkvöldi „Lokaæfíngu“
eftir Svövu Jakobsdóttur. Leik-
stjóri er Pétur Einarsson. Leik-
mynd og búninga gerir Gylfi
Gíslason, og Ingvar Björnsson sér
um lýsingu. Theódór Júlíusson
leikur Ara, og Sunna Borg leikur
Betu. Erla Ruth Harðardóttir
leikur Lilju.
Eldri gerð leikritsins var frum-
sýnd af Þjóðleikhúsinu sem
Verkatýðsforystunni
þökkuð veitt linkind
Reykjavík 15. október 1987
Nýlega var haldinn almennur
félagsfundur í FÁF - Félagi
áhugafólks um fréttatilkynning-
ar. Fundurinn sendir frá sér með-
fylgjandi ályktun sem samþykkt
var samhljóða:
„FÁF - Félag áhugafólks um
fréttatilkynningar - fagnar fram-
kvæmd fjármálaráðherra á jafn-
aðarstefnunni. Það er kominn
tími til að taka offituvandamál
þjóðarinnar föstum tökum, fjár-
málaráðherra hefur sýnt sig
vandanum vaxinn.
FÁF - Félag áhugafólks um
fréttatilkynningar - leggur til að
barnafjölskyldur þessa lands og
uppflosnaðir kvótabændur sýni
að þau séu af höbbðingjum kom-
in og borgi braggann -a.m.k. að-
flutningsgjöldin.
FÁF - Félagi áhugafólks um
fréttatilkynningar - þykir miður
að fjármálaráðherra skyldi
hverfa frá ætlun sinni að skatt-
leggja skólamötuneyti, sjúkrahús
og fangelsi, sem er öruggur tekju-
stofn.
FÁF - Félag áhugafólks um
fréttatilkynningar - lýsir yfir full-
um stuðningi við valfrelsi forsæt-
isráðherra á lestrarefni, enda
mótmælabréf 55 þúsund manna
verkalýðshreyfingar lítt upp-
byggilegt í kjölfar göfugrar bók-
menntahátíðar.
Að endingu þökkum við
verkalýðsforystunni veitta lin-
kind á liðnum árum.“
Rétt er að geta þess að fundin-
um barst skeyti frá borgarstjóra
Palermo. Hann bað FÁF - Félag
áhugafólks um fréttatilkynningar
- að koma á framfæri í fréttatil-
kynningu sérstöku þakklæti til
okkar ástsæla utanríkisráðherra
fyrir hans góðu ráð gegn mafí-
unni.
Þökkum birtingu
Fh. FAF
Sigríður Kristinsdóttir
Sunnudagur 25. október 1987 ^JÓÐVILJINN — SÍÐA 3
gestaleikur í Norðurlandahúsinu
í Þórshöfn í Færeyjum 31. ágúst
1983 og á Litla sviði Þjóðleik-
hússins 6. október 1983. Nýrri
gerð verksins var frumsýnd í
Badeteatret í Kaupmannahöfn
18. október sl. Pólska sjónvarpið
gerði sjónvarpsleikrit úr Lokaæf-
ingu en frestaði frumsýningu
vegna Chernobyl-slyssins.
Rússneska menningarmálaráðu-
neytið hefur tryggt sér rétt til sýn-
ingar á Lokaæfingu um gjörvöll
Sovétríkin og væntanleg er upp-
setning í London. j
Það ætti því að vera fengur fy rir
Akureyringa að fá Lokaæfingu á
fjalirnar hjá Leikfélagi Akur-
eyrar.
- ekj.
Ásgeir Lárusson sýnir
í Gallerí Grjót
Ásgeir Lárusson hefur opnað
sýningu í Gallerí Grjót, Skóla-
vörðustíg 4. Þetta er sjötta
einkasýning Ásgeirs, en hann
hefur einnig tekið þátt í nokkr-
umsamsýningum, þám.
þremur FIM-sýningum og UM
'83 að Kjarvalsstöðum.
Sýning Ásgeirs samanstendur
af vatnslitamyndum og olíumál-
verkum. Þá eru verk unnin úr ol-
fulitum og lakki og nokkrir skúlp-
túrar.
Þetta er síðasta sýningarhelgi.
Gallerí Grjót er opið 12-18 og um
helgar frá 14-18.