Þjóðviljinn - 25.10.1987, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 25.10.1987, Blaðsíða 18
Moyet og Madonna í jólaskapi. Bruce Sprlngsteen: Á jóla- og Guthrie- plötunum GULLASIÐ Woody Guthrie Woddy Guthrie (faðir Arlos) lést fyrir einum tíu árum að ég held. Hann var einn af merkilegri tónlistarmönnum Ameríku og nú er svo komið að CBS er að fara að gefa út safnplötu með nokkrum laga hans, fluttum af ýmsum stór- poppurum nútímans. CBS stend- ur í útgafunni fyrir Smithsonian Institute, sem eignaðist útgáfu- réttinn að slatta af Guthrie- lögum fyrir skemmstu. Á plötu- nni mun Bob Dylan flytja Pretty Boy Floyd, Bruce Springsteen syngur Vigilante Man og U2 flytja XagibJesus Christ. Platan kemur á markað í byrjun næsta árs. Jólaplata aldarinnar? Bruce Springsteen, Sting, U2, Madonna, Bon Jovi, The Pret- enders, John Cougar Mellen- camp, Whitney Houston, Pointer Sisters, Eyrythmics, Bob Seger og silfurkúlubandið, Run- D.M.C., Bryan Adams, Alison Moyet og Stevie Nicks. Állt þetta Iið kemur við sögu á jólaplötunni A Very Special Christmas, sem gefin er út til styrktar ólympíu- leikum fatlaðra. Að sögn átti þetta í upphafi aðeins að vera vel rokkuð jólaplata, en kona pró- dúsentsins Jimmy Iovine kom honum á aðra skoðun. Fannst honum þetta verðugt verkefni og í anda jólanna. Hann var víst alfarið á móti því að blanda pó- litík inní dæmið, svo það útilok- aði hluti eins og anti-apartheid baráttu, Amnesty o.s.frv. En fatlaðir fengu semsagt séns ... Og ennum safnplötur Þó að Jimmy Iovine hafi ekki viljað láta Amnesty International njóta góðs af fyrrnefndri jóla- plötu, þá eru aðrir þeir til sem eru meira en viljugir til slíks. Nú ný- verið kom út hjá Virgin útgáfunni plata sem heitir því ágæta nafni The Secret Policeman’s Third Ball. Þarna er að finna lög með Jack- son Browne, Kate Bush (í félagi við David Gilmour og Nick Ma- son ...!). og fleirum. Og þeir Mark Knoepfler og Chet Atkins taka instrumental útgáfu af lagi Lennons, Imagine ... Þá hefur verið gerð kvikmynd um þennan ágæta konsert (því þetta var konsert skiljiði ...) sem frum- sýnd verður síðar í vetur. Og allur ágóði af bæði mynd og plötu rennur sem sagt í sjóð Ámn- esty ... Og enn meiri góð- gerðarstarfsemi... ... ef góðgerðarstarfsemi skyldi kalla. Pólitík og aftur pó- litík og hreint alveg ágæt pólitík. Þrennir tónleikar voru haldnir í Ameríkunni hans Ronna fyrir stuttu. Don Henley, Bonnie Ra- itt, Herbie Hancock, Peter Case og Bobcat Goldthwait o.fl. komu fram á einum þeirra, á öðrum spiluðu gömlu brýnin Peter, Paul and Mary, ásamt Bruce Cock- burn, Judy Collins ásamt hljóm- sveit o.fl. og þann 7. okt s.l. hélt Joan Baez tónleika í Carnegie Hall, New York, til styrktar þessu sama málefni. Og hvaðaj málefni er svo um að ræða? Jú,; allur ágóði rennur til samtakanna Countdown ’87, sem berjast gegn fjárveitingu Reaganstjórnarinn-1 ar til Contra-skæruliðanna í Nic- aragua. Að grœða ó tó og fingri Fjármála/viðskiptatímaritið Forbes í Bandaríkjunum hefur sett saman lista yfir helstu pen- ingamaskínur skemmtanaiðnað- arins þarlendis. Ef trúa má því sem þar stendur þá eru 18 af 40 efstu mönnum listans úr rokk- heiminum. Þar fer Bruce Springsteen fremstur í flokki með áætlaðar tekjur uppá 56 milljónir dollara til loka þessa árs. U2 munu þéna 37 milljónir dollara á sama tíma, ZZ Top 31 milljón, Bon Jovi 29 millj ónir og Van Hal- en21 milljón. Einstaklingar, aðr- ir en Bruce, eru nokkuð aftar á merinni. Wayne Newtin og Phil Collins þéna til dæmis ekki „nema” 12 milljónir dollara hvor (bara 4-500 milljónir íslensk- ar ...). Þeir hjá Forbes eru sem- sagt á því að það sé góður bissness að vera í rokkinu. En það eru ekki allir á eitt sáttir um áreiðanleika þessara talna, né heldur þá ályktun sem af þeim er dregin í blaðinu, þ.e. að allir græði vel á rokkinu. Fyrir utan að draga í efa starfsaðferðir blaðsins við áætlanir sínar er nefnilega bent á að t.d. 1986 hafi komið út 2345 popp/rokkplötur á vegum bandanskra útgefenda. Talsmað- ur RIAA, sem eru samtök fólks í músíkiðnaðinum þar vestra, telur að aðeins 15% allra þessara platna skili hagnaði til útgefenda. Og þar sem flestir samningar tryggi að útgefendur græði áður en listamaðurinn fær að sjá krónu, þá má telja næsta víst að innan við 15% tónlistarmanna sjálfra græði á verkum sínum. Og ekki orð um það meir. upphafí Þegar ég er orðinn hundraðog- þrettánára, ætla ég að skrifa ævi- sögu mína á tölvu. Þetta verður ábyggilega mjög fullkomin tölva, svo f ullkomin að ég þarf bara að hugsa eitthvað og þá prentar hún það út. En það er langt þangað til ég verð hundraðogþrettánára og þangað til ætla ég að láta ýmis- legt gerast sem er þess virði að skrifa um það þegar ég verð hundraðogþrettánára. En til að verða hundraðogþrettánára verðurmaðurað lifaíhund- raðogþrettán ár. Ég á semsagt 89 ár eftir í þetta takmark. Það er semsagt nógurtími til að láta eitthvað skemmtilegt ske. Það er svosem ýmislegt skemmtilegt búið að ske, en ekki nógu mikið af nógu skemmtilegum hlutum, sem tekur því að minnast á í ævi- sögu hundraðogþrettánára ga- mals manns. En það er bara eitt vandamál. Mér skilst að til þess að ná svo háum aldri þurfi maður að lifa mjög heilbrigðu lífi. Borða rúgbrauð og lýsi á morgnana, ýsu í hádeginu og grænmeti ( kvöldmatinn. Ekki mikið af rauðu kjöti, ekki mikið af steiktum mat, ekki mikið og helst ekkert sæl- gæti, lítið salt og þ.a.l. ekkert poppkorn, og svona mætti lengi telja. Kökur eru til dæmis alfarið úr sögunni og allt annað slíkt gúmmilaöijúmmilaðijukk. Svoer alveg bannað að reykja og drekka. Maður á aö borða mikið af grænmeti, hreyfa sig mikið, þ.e.a.s. stunda einhvers konar llkamsrækt, og ég veit ekki hvað og hvað. Mór finnst rautt kjöt hins vegar afskaplega gott. Hvort sem það eraf grjóthörðu vegalamba, ís- lensku óholdanauti eða friðuðum hval. Ég elskakökurogsælgæti, eins og sjá má af íþróttamanns- legum vextinum. Og hata íþróttir. Nema í sjónvarpinu auðvitað, það er alltaf gaman að horfa á góðan fótbolta í rólegheitum í besta stólnum í stofunni, étandi vel saltað poppkorn. En mór finnst að það ættí að banna Iþróttir utan sjónvarpsins. Það á semsagt mun betur við mig að liggja í makindum en stunda ein- hver víðavangshlaup eða fettur og bretturýmiss konar. Og ef guð hefði viljað að ég synti þá hefði hann gefið mér ugga. Svo finnst mér ósköp notalegt að kíkja í glas öðru hvoru, jafnvel eins og í hálf- an flöskubotn. Og ég reyki eins ogstrompur. Þaðþykirmér reyndar slæmt þó mór þyki það gott. Og ég er ekki par hrifinn af of miklu grasi með kjötinu mínu. Þannig að ef ég ætla að skrifa ævisögu mína þegar ég verö hundraðogþrettariára, þá verð ég aldeilis að breyta um stíl. En líklega skrifa ég frekar ævisög- una mína aðeins fyrr, svona í kringum fimmtugsaldurinn, eins og tíska er (dag. Þangað til ætla óg að gera eitthvað skemmtilegt, t.d. fá mér blóðuga nautasteik með berneissósu og súkkuiaði- búðing með rjóma á eftir, Og svo konjakkstár og sígó þar á eftir. Mér datt þetta bara svona í hug af því pabbi greyið fókk bara eina appeislnu í hádeginu um dag- inn... Bruce Springsteen: Mokar inn 2.2 milljörðum kr. á árinu ... 18 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. október 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.