Þjóðviljinn - 25.10.1987, Blaðsíða 14
£2
Happdrætti
Hjartaverndar 1987
Vinningaskrá
Greiðsla upp í íbúð kr. 1.000.000 26892
Jeppabifr. Patjero 1988 kr. 900.000 31860
Bifreið Chevrol. Monza 1988 kr. 560.000 89878
Greiðsla upp í íbúð hvor á kr. 500.000 50651
og 117040
Ferðavinningar hver á kr. 150.000
15501 54573 86524 114703
Ferðavinningar hver á kr. 100.000
1104 53546 103367 144273
11079 57448 105153 148710
33478 101218 107439
Vinninga má vitja á skrifstofu Hjartaverndar, Lág-
múla 9, 3. hæð.
Þakkir til stuðningsmanna um land allt
Snjómokstur 1987-1988
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í snjómokstur
með vörubifreiðum í Húnavatnssýslum veturinn 1987-
1988
WJ Um er að ræða tvö útboð:
é. 1. Blönduós - Skagaströnd - Blönduvirkjun, (67 km).
Vjm 2. Blönduós - Hvammstangi, (52 km).
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
26. október nk. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir
kl. 14:00 þann 2. nóvember 1987.
Vegamálastjóri
FLUGMÁLASTJÓRN
Rafeindavirkjar óskast
Flugmálastjórn óskar eftir að ráða 2 rafeindavirkja eða
starfskrafta með sambærilega menntun í 2 stöður
eftirlitsmanna flugöryggistækja hjá radíódeild.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsækjendur mega gera ráð fyrir að sækja námskeið
erlendis í meðferð flugleiðsögu- og fjarskiptatækja.
Allar nánari upplýsingar um starfið má fá hjá deildar-
stjóra radíódeildar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendist samgönguráðuneytinu fyrir 13. nóv-
ember 1987.
Vinna í Steinahlíð!
Við erum með spennandi upeldisstarf í boði fyrir
áhugasamt fólk. Hafið samband við okkur í síma
33280.
Páll Ólafsson skorar í landslaik gagn Sviss. Landsliðlð hafur staðið sig mjög v©l og mætir Sviss um helgina.
Spuming
um forgang
Undirbúningur handknatt-
leikslandsliðsins er nú hafinn
að nýju eftir stutt hlé. Búið er
að leika fyrstu fimm umferð-
irnar í íslandsmótinu, en nú
verður gert hlé á því og lands-
liðið leikur á móti í Sviss. Ung-
lingalandsliðið hefur hinsveg-
ar lokið leikjum sínum ásterku
móti í V-Þýskalandi.
Mikill hluti starfsemi HSÍ snýst
um landsliðið. Ýmsar nefndir
starfa á vegum landsliðsins, ýmist
til að skipuleggja eða fjármagna
kostnaðarsaman undirbúning
liðsins. Hlutverk HSÍ er einnig að
sjá um íslandsmótið í handknatt-
leik og hlýtur það að vera stærsta
verkefni sambandsins.
Nú er sú staða komin upp að
landsliðið gengur fyrir íslands-
mótinu. Vissulega þarf landsliðið
sinn tíma, en í upphafi mótsins
var gert ráð fyrir tímanum sem
átti að fara í landsliðið og ísland-
smótið skipulagt í kringum það.
Þessir útreikningar virðast ekki
hafa gengið upp og því greip HSÍ
til þess ráðs að fresta 6. umferð
íslandsmótsins vegna ferðar U-
19 ára liðsins og A-landsliðsins.
En hvað á að hafa forgang?
Landsliðið hefur vissulega náð
frábærum árangri og mikilvægt
að undirbúningur verði sem best-
ur fyrir Olympíuleikana í Seoul á
næsta ári. Ef við ætlum að gera
okkur vonir um að ná árangri þar
verður landsliðið að fá sinn tíma.
Handbolti hefur verið í
markvissri sókn undanfarin ár og
frumskilyrði fyrir því er gott
landslið og skemmtilegt íslands-
mót. Ef annað af þessu gleymist
er hætt við að áhugi almennings á
handknattleik dvíni smám sam-
an.
Landsliðið er framtíðarverk-
efni og við verðum að gera okkur
grein fyrir því að þeir leikmenn
sem nú skipa landsliðið verða
ekki þar nema 5-10 ár í allra
mesta lagi. Þeir leikmenn sem
leika hér heima, með íslenskum
liðum, verða að fá sín verkefni og
það er deginum ljósara að metn-
aðarleysi í skipulagningu íslands-
mótsins gæti haft mjög slæm áhrif
á framtíðarlandsliðið.
Frestun 6. umferðar er því hið
versta mál. Það er slæmt að þessi
ákvörðun skuli hafa veri tekin án
samþykkis mótanefndar. Nefnd-
in ætlaði að segja af sér, en virðist
hafa hætt við. Þó er mikil óá-
nægja innan mótanefndar með
þessa ákvörðun stjórnar HSÍ.
Það er vissulega slæmt ef að sam-
starfið gengur illa, en þetta er þó
nokkuð sem HSÍ ætti að geta
ráðið framúr.
Það þýðir þó ekki að einblína á
dökku hliðarnar. Það er mjög
ánægjulegt að unglingalandsliðið
skuli fá verkefni og keppnisferðin
til V-Þýskalands kemur til með
að gefa þessum ungu leik-
mönnum mikla og dýrmæta
reynslu. Leikmenn liðsins hafa
sýnt að þar eru margir efnilegir
leikmenn á ferð og margir þeirra
eru famir að banka á dyrnar í
A-landsliðinu. Glæsilegir sigrar
yfir Noregi og Tékkóslóvakíu
sýna að þarna eru á ferð leik-
menn framtíðarinnar.
Annað sem vekur athygli er að
HSÍ skuli hafa ráðið Dr. Slavko
Bambir sem þjálfara kvenna-
landsliðsins. Það hefur oft verið
svo að kvennalandsliðið hefur
setið á hakanum, en ráðning
júgóslavnesks þjálfara ber það
með sér að breyting sé í vændum.
Handboltabrauð er eitt af því
sem gerir HSÍ kleift að standa
undir þeim gífurlega kostnaði
sem fylgir undirbúning landsliðs-
ins. Landsamband bakarameist-
ara hefur kynnt brauðið og mun
sala á því hefjast um miðjan nóv-
ember. Brauðið er hollt og af
hverju seldu brauði fær HSÍ þrjár
krónur. Þetta er styrkur sem gæti
numið 1-2 milljónum kr. fram að
Seoul. Samingar sem þessi eru
sniðugir og beggja hagur.
Þetta er kannske einn hluti af
þeirri þróun sem hefur átt sér
stað í mörgum nágrannalöndum
okkar. í stað þess að vera að
reyta inn eina og eina auglýsingu
er það einn „sponsor“ sem leggur
mikið í auglýsingar hjá einhverju
tilteknu liði eða í einhverri
íþróttagrein.
Þrátt yfir að knattspyrnuver-
tíðinni sé lokið eru landsliðin enn
að. Drengjalandsliðið fékk slæm-
an skell gegn Svíum á útivelli.
Þeir sem sáu leikinn hér heima,
sem lauk með jafntefli 3-3, eru
ekki í vafa um að íslensku strák-
arnir eru þeim sænsku engir eftir-
bátar. En dæmið gekk ekki upp
og ísland komst því ekki í úrslit
Evrópukeppninnar.
A-landsliðið á fyrir höndum
líklega sinn erfiðasta leik. Gegn
Sovétmönnum á Krímskaga. So-
vétmenn verða að sigra til að
tryggja sér sæti í lokakeppninni
og róðurinn verður því þungur
fyrir íslenska landsliðið.
ÍÞRÓTTASPEGILL eÍðsson
14 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. október 1987