Þjóðviljinn - 25.10.1987, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 25.10.1987, Blaðsíða 19
Punklar Að komast yfir fjöllin háu Skífan gaf út plötuna Gaui fyrir nokkru síðan. Eins og fram hefur komið á síðum þessa blaðs og flestra annarra og einnig á hinum ýmsu bylgjulengdum útvarps- sendinga vítt og breitt um landið, þá dregur platan nafn sitt af skapara sínum Guðjóni G. Guðmundssyni. Hann semur öll lög og alla texta utan tvo. Og syngur. Og útsetur í félagi við Tómas Tómasson og fleiri. Upp- taka og spilamennska á þessari plötu er með því besta sem gerist hérlendis, það er best að segja það strax. Enda upptökustjórinn sá færasti á sínu sviði hér á landi og gott ef ekki víðar. Tómas hef- ur sýnt það undanfarið að hann getur gert nánast hvað sem er úr hverju sem er. Og gerir það líka hér. Svo eru hljóðfæraleikararnir á þessari plötu ekkert til að fúlsa við heldur. Títtnefndur Tómas plokkar bassann, Þorsteinn Magnússon fer höndum um gítar- strengi af stakri alúð og snilld, Ásgeir Óskarssom ber húðirnar og þeir Kristinn Svavarsson (sax) og Maggi Kjartans (píanó) láta til sín taka í þremur lögum hvor. Og enginn þeirra tekur feilspor frem- ur en við var að búast. Lögin eru líka nokkuð góð yfirleitt og sum þeirra hreint ágæt. En þá komum við að söngnum og textunum. Þar er ekki alveg jafn strangt gæða- eftirlit og annars staðar. Söngur- inn er að vísu hreint ekki slæmur og fellur ágætlega að tónlistinni. Gaui er ekki raddmikill maður og kemur það berlega í ljós hér og þar. Yfirleitt beitirhann röddinni þó í samræmi við möguleika hennar, reynir ekki meira en hann ræður við. Það er gott. Ansi gott. Það gætu ýmsir tekið hann sér til fyrirmyndar í því efni. Ég held ég nefni samt engin nöfn. En þá komum við að því sem er stærsti galli þessarar annars ágætu skífu, nefnilega textunum. Gauja liggur greinilega mikið á hjarta. En það er ekki nóg að hafa boðskap fram að færa, það verður að gera það vel. Ekki síst þegar maður er í félagsskap svo frábærra músíkanta og Gaui er á í dag verður ekkert fjallað um Go West. af plasli þessari skífu. Á bak við fjöllin háu er eini textinn sem er í ein- hverju samræmi við gæði annarra þátta tónlistarinnar. Aðrir eru misjafnlega mengaðir ýmiss kon- ar ambögum og barnalegum til- tækjum. „í húsi mínu/rauðleit málverk hanga./Eftir plötu Dylans/við stúlkuna ég vanga.” Og hvað? Og „konur í djúpum sorgum“. Og þetta: „Við vitum/ að allir ljúga/Blekkja sjálfa sig/og smjúga./Upp á kerfin/má öllu trúa/því allar tilfinningar/er búið að rúa ...” Svona er hægt að halda áfram enn um stund, en ég læt það ógert. Hvað er svo að þessu, kunna einhverjir að spyrja. Því læt ég ósvarað, að öðru leyti en því að það er einna helst að þessu það sama og flest- um öðrum textum hjá flestum öðrum ungum (og öldnum) texta- smiðum hérlendis, þ.e.a.s. þeim sem telja sig hafa eitthvað til mál- anna að legga. Það er meira að hjá öðrum. Ef þetta segir ekki nóg, þá þýðir það einfaldlega að þú, lesandi góður, skilur ekki hvað ég á við, finnst ekkert at- hugavert við kveðskapinn, og þá bið ég þig bara að njóta hans vel. En sjálfum finnst mér þetta galli á annars góðum grip. Og næst víst- vona ég - að textagerð Gauja á eftir að þróast til hins betra í framtíðinni, en fyrst verður hann að klífa fjöllin háu. Einn á ferð - aftur Primitive Cool nefnist önnur sólóplata Mick Jaggers. Það er skemmst frá því að segja að hún er mun betri en sú fyrri, She’s the Boss, sem út kom fyrir tveimur árum. Hann er búinn að skipta um útsetjara, á þessari nýju plötu eru það þeir Keith Diamond og Dave Stewart (Eurythmics) sem sjá um þá hlið mála, ásamt hon- um sjálfum, og tekst þeim nokk- uð vel upp. Þá hefur hann stokk- að mikið upp í spilagenginu. Jeff Beck er sá eini sem fær að vera með áfram, og sér hann nú um nánast allan gítarleik á plötunni, auk þess sem Jagger sjálfur gríp- ur í hann hér og þar. Sly Dunbar og Robbie Shakespeare eru horfnir og í þeirra stað eru komn- ir þeir Doug Wimbish (bassi) og Simon Phillips. Öllu ófrægari en Sly og Robbie, en engu síðri nema síður sé. Herbie Hancock er líka farinn, sömuleiðis Nile Rodgers, Pete Townshend, Eddie Martinez, Bill Laswell (sem, auk þess að plokka bassann hér og þar, útsetti með Jagger á fyrri plötunni) og allir hinir. Nú eru það þeir Phil Ashley og Ric- hard Cottle, sem tekið hafa við hlutverki Hancocks á hljómborð- unum. Fleiri spila á skífunni, en í minna mæli. Sú staðreynd að sömu mennirnir sjá um allan grunn-undirleik í öllum lögun- um, gerir þetta að mun heilsteyptari plötu en þá fyrri, þar sem heilt stjörnustóð skiptist á um að spila undir. Og svo er þetta dulítið rokk- aðri plata en hin, sem var svona örlítið of poppuð, þrátt fyrir ágæta spretti. Þó að poppið sé víða áberandi á Primitive Cool, þá hefur rokkið þó yfirhöndina og er það vel. Því í mínum huga er Jagger alltaf rokkari og á að hegða sér sem slíkur! (Frekja er þetta ...). Ágætis gripur í alla staði og nú er bara að bíða og sjá hvað aðalrokkari Steinanna, Keith Richards, gerir ... Á geðdeildum Landspítal- ans starfa um 600 manns við lækningar, hjúkrun, endur- hæfingu og aðstoð við sjúkl- ingaog aðstandendur jjeirra. Starfsemin fer fram á nokkr- um stöðum á höftiðborgar- svæðinu, t.d. á Landspítalan- um, á Kleppi, á Vífilsstöðum og í Hátúni Starfi hjá Ríkisspítölum fylgja ýmis hlunnindi, svo sem ókeypis vinnufatnaður (eða fatapeningar), ódýrt fæði í matsölum á vinnustað, mikið atvinnuöryggi, öflugur lífeyrissjóður og launahækk- andi námskeið. HJÚKRUNARFRÆÐINGUR Hjúkrunarþjónusta geðdeilda er mjög fjölbreytt, allt frá bráðamóttöku til endurhæf- ingar. Geðhjúkrun er sérhæft hjúkr- unarsvið. Hjúkrunaraðgerðir geta snúist um einstaklinga, hópa eða fjölskyldu. Þær miða að því að fyrirbyggja geðsjúkdóma, styrkja heil- brigða aðlögun og stuðla að bættri heilsu og endurhæf- ingu. Hjúkrun tekur mið af heild- arástandi sjúklings og sam- spili ýmissa áhrifaþátta. Unn- ið er eftir ferli sem byggir á upplýsingaöflun, greiningu, áætlun, framkvæmd og end- urmati. Hjúkrunarfræðingar skipu- leggja, stjóma og bera ábyrgð á framkvæmd hjúkrunarþjón- ustu, þeir hafa sér til aðstoð- ar sjúkraliða og ófaglært starfsfólk og fer verkefhadreif- ing eftir aðstæðum hverju sinni. Möguleiki er á fullu eða hluta- starfi, jafnvel sveigjanlegum vinnutíma, vetrarfríi og eins launaflokks hækkun á geð- deild. Meðallaun: (án aukavinnu) Mánaðarlaun eru 70.193 kr. með vaktaálagi. Fyrir hverja aukavakt eru greiddar 5.155 kr.. Hlutastörf eru einnig í boði. Nánari upplýsingar eru veitt- ar í síma 38160 (hjúkrunar- framkvæmdastjóri). SJÚKRALIÐI Sjúkraliðar eru þátttakendur í hjúkrunarferli sjúklinga. Við bjóðum upp á skemmtilega samvinnu og tækifæri til að annast sjúklinga með mis- munandi þarfir og ólík hjúkr- unarvandamál. Þér bjóðast tækifæri til að bæta við þig þekkingu í formi námskeiða, auk reglubundinnar fræðslu sem er innan ákveðinna ein- inga. Meðallaun: Mánaðarlaun eru um óO.OOOkr. með vaktaálagi. Fyrir hverja aukavakt eru greiddar 3.982 kr. Hlutastörf eru einnig í boði. STARFSMAÐUR Á GEÐ- DEILD fest við þjálfun, uppeldi og umönnun sjúklinga og vinn- ur í nánu samstarfi við hjúkr- unarfræðinga, sjúkra- og iðju- þjálfa, auk lækna og sálfræð- inga. Boðið verður upp á launa- hækkandi námskeið í þeim tilgangi að gera fólk hæfara og veita því meiri innsýn í starfið. Meðallaun: Mánaðarlaun eru 45.665 kr. með vaktaálagi. Fyrir hverja aukavakt eru greiddar 3-235 kr. Nánari upplýsingar eru veitt- ar á Geðdeild í síma 38160. ... ogfá innsyn í mannleg samskipti á storum vinnustaé RÍKISSPÍTALAR GEÐDEILD LANDSPÍTALANS ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 essemm/sfA 19.05

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.